Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Blaðsíða 25
róttir
DV. MÁNUDAGUR 29. AGUST1983.
(þróttir
25
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Fleet féll
á sjálfs
sín bragði
— Furðulegtað hann
skuli ekki hafa
notað varamenn
„Við áttum
þetta skilið"
— sagði Hörður Helgason, þjálfari
Skagamanna
Þetta var ekta bikarstemmning
og nokkuð góður leikur á köflum.
Það var stígandi í ieik minna
manna og við áttum þcnnan sigur
skilinn, þar sem við vorum betra
liðið á vellinum. Þ6 að við misst-
um Sigurð Lárusson fyrirliða út af
raskaðist leikur okkar ekki og
sýnfr það styrkleika liðsins, sagði
Hörður Helgason þjálfari
Skagamanna, en Hörður hefur náö
mjög gúðum árangri með þá í
sumar og bendir allt til að Akra-
ness vinni tvöfalt — bæði deild og
bikar, í fyrsta skipti í sögunni.
-AA.
Það kom í hlut Alberts Guðmundssonar fjármáiaráðherra að afhenda
Sigurði Lárussyni, fyrirliða Skagamanna, bikarinn. Hér sjást þeir hampa
honum. DV-mynd: Eiríkur J.
Á ýmsu gekk og var Sigurður Lárus-
son bókaður fyrir að brjóta á Tómasi
Pálssyni og Eyjamaðurinn Ágúst
Einarsson fékk einnig að sjá gula
spjaldiö. Þaö mátti oft sjá sex leik-
menn Skagamanna inni 1 vítateig
Eyjamanna og voru aukaspyrnur
Skagamanna hættulegar, þar sem
hinir hávöxnu leikmenn þeirra eru
sterkir skallamenn.
Hörður jaf nar með skalla
Skagamenn náöu aö jafna metin á
69. mín. er Ámi Sveinsson tók horn-
spymu og sendi knöttinn vel fyrir
mark Eyjamanna þar sem þeir
Siguröur Halldórsson og Höröur
Jóhannesson voru á auöum sjó inni í
markteig — viö fjærstöngina. Höröur
náöi aö skalla knöttinn glæsilega og
átti Aðalsteinn ekki möguleika á aö
verja.
Eyjamenn gáfust ekki upp og á 82.
mín. fékk Tómas Pálsson gulliö
tækifæri til aö skora. Omar Jóhanns-
son sendi góöa sendingu til Tómasar
sem komst einn inn fyrir vöm Skaga-
manna. Tómas brunaöi að marki — lék
á Bjarna markvörö og skaut aö marki.
Hörður Jóhannesson sést hér stökkva upp og skaiia knöttinn í netið hjá Eyjamönnum og jafna 1—1 fyrir Skagamenn.
Hann var óheppinn meö skot,
knötturinn hafnaöi rétt fram hjá
stönginni og í hliðametinu.
DV-mynd: Eirikur J.
Tómas bestur á vellinum
Þaö var erfitt fyrir Ieikmenn
liðanna að leika á blautum og þungum
Laugardalsvellinum. Þrátt fyrir þaö
mátti sjá marga góða hluti og þá sér-
staklega frá Tómasi Pálssyni sem
geröi Skagamönnum oft lifiö leitt.
Tómas lék mjög vel, eins og þegar
hann var upp á sitt allra besta. Vörn
Eyjamanna i var oft traust en
miðvallarspiliö ekki nægilega yfir-
vegaö.
Það var fyrst og fremst liðsheildin
sem skóp sigur Skagamanna. Þaö átti
enginn leikmaöur liösins afgerandi
leik — voru allir svipaöir að getu.
Sigurður Jónsson gladdi þó áhorfendur
með góöum sprettum.
-SOS.
Steve Fleet, þjálfari Vestmannaey-
inga, kom heldur betur á óvart, þegar
hann lét sömu eliefu leikmenn Eyja-
liðsins Ieika í 120 minútur gegn Skaga-
mönnum. Það var greinilegt undir lok
ieiksins, að margir Ieikmenn Eyjaiiðs-
ins voru orðnir þreyttir. Þegar Sigurð-
ur Lárusson, fyrirliði Skagamanna,
var rekinn af leikvelli — þegar 7 mín.
voru til leiksloka af venjulegum leik-
tíma (90 mínútur), hefði verið sterkur
leikur hjá Fleet að setja tvo óþreytta
leikmenn inn á, því að Skagainenn
voru þá einum færri. Það gerði Fleet
ekki og ekki heldur í framlengingu
leiksins. -SOS
Eyjamenn gefa eftir
Eftir þetta fóru leikmenn Eyja-
liðsins aö gefa eftir og var greinilegt aö
þeir voru orðnir þreyttari en Skaga-
menn. Á 83. mín. var Siguröi Lárus-
syni, fyrirliöa Skagamanna, vísaö af
leikvelli og viö þaö tóku Eyjamenn
fjörkipp. Bjarni Sigurðsson mátti þá
hafa sig allan við þegar hann varöi
skot Tómasar Pálssonar.
Rétt fyrir leikslok varöi Aðalsteinn
svo skalla frá Heröi Jóhannessyni á
marklínu. Þá þurfti framlengingar viö
og í henni skoraði Sveinbjörn Hákonar-
son sigurmarkið, eins og fyrr segir.
Anderlecht
áttiíbasli
Frá Kristjáni Bemburg — fréttamanui DV
í Belgíu.
Íslendingaliðin unnu öll í belgisku
bikarkeppninni um helgina þó iítill
giæsibragur hefði verið yfir leik flestra
þeirra. Anderlecht, Antwerpen og
Waterschei sigruðu öll 1—0, en SC Brugge,
lið Sævars Jónssonar, vann Diegem létt
4—0. Heistu úrslit í bikarkeppninni urðu
þessi:
Lokeren-Tienen 7—0
Beveren-Hannut 7—1
Bornem-Anderlecht 0—1
P. Eisden-Antwerpen 0—1
Bergen-Waterschei 0—1
Diegem-SC Brugge 0—4
Menen-FC Brugge 1—3
Anderlecht átti í miklum erfiöleikum
með 3. deildarliðið Bornem. Aðeins eitt
mark var skorað í leiknum og átti Arnór
Guðjónsen góöan þátt í því. Hann brunaði
upp kantinn, gaf síðan góða sendingu fyrir
markiö á Vandenberg sem skoraði af
öryggi. Þó Anderlecht hafi unnið þennan
leik var þaö ekki meö neinum glæsibrag.
Þeir máttu reyndar þakka fyrir sigurinn
aöþessusinni.
• Van der Elst skoraöi eina mark Ant-
werpen eftir aö hafa fengiö sendingu frá
Pétri Péturssyni. Þegar líða tók á leikinn
fór ekki á milli mála hvort liðið var betra.
Leikurinn heföi allt eins getaö endaö 3 til
4—0, svo miklir voru yfirburðir Anterpen.
• Hjá Waterschei var þaö Vliegen sem
skoraöi úrslitamarkið. Lárus Guðmunds-
son átti tvö góð færi í upphafi leiks. 1 fyrra
skiptiö skaut hann yfir markið og átti
síðan hörkuskalla en markvöröur Bergen
bjargaði meistaralega meö því aö slá bolt-
ann yfir markiö. -KB/AA.
Stórsigur
Leiknis
Leiknir frá Fáskrúðsfirði vann stórsigur
6—0 yfir Hvöt í úrsiitakeppni 4. deildar,
þannig að Leiknir og Leiftur frá Óiafsfirði
berjast um sæti í 3. deild í Norð-Austur-
landsriðlinum.
Víkverji lagði Hauka að velli 3—2 í Suö-
Vesturlandsriðli úrslitakeppninnar.
Víkverji hafði áður gert jafntefli við
Stjörnuna, 2—2. -SOS.
Frjálsíþrótta-
menn gerast
atvinnumenn
— íknattíþróttum
Bandaríski spretthlauparinn Willie
Gault, sem varð í sigursveit Bandarikj-
anna í 4x 100 m boðhlaupi á HM í Helsinki
og fékk bronsverðlaun í 110 m grinda-
hlaupi, mun ekki keppa á ólympíuleikun-
um í Los Angeles 1984. Gauit hefur gerst
atvinnumaður með rugbyliðinu Chicago
Bcars. Þá hefur hástökkvarinn Tyke Pea-
cock, scm fékk silfurverðlaun í Helsinki,
gerst atvinnumaður — i körf uknattleik.
-SOS.
Fylgjast með
World Cup
íPortugal
Ferðaskrifstofan Utsýn gengst í
næsta mánuði fyrir golfferð til Algarve
í Portúgal. Farið verður utan 21.
september og dvalið í Albufeira í þrjár
vikur.
Á meðan á ferðinni stendur gefst
mönnum kostur á að fylgjast meö
Evrópuriðlinum í World Cup í golfi
sem fram fer á Dom Pedro 23. til 25.
september. Þar keppa tveir bestu at-
vinnumennirnir frá öllum löndmn
Evrópu og einnig tveir áhugamenn frá
Islandi, þeir Gylfi Kristinsson Is-
landsmeistari í golfi og Ulfar Jónsson
sem er yngsti keppandi sem tekiö
hefur þátt í World Cup, aöeins 14 ára
gamall.
róttir íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir