Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1983, Page 48
sjt.
ÁRMÚLA 38 REYKJAVÍK,
SÍMI 82166 OG 83838.
Skákmótið í Chicago:
JÓHANN
VANN
6. umferö heimsmeistaramóts
æskumanna í Chicago var tefld i gær
og áttu íslendingar í höggi viö
kínversku sveitina, sem er ein af þeim
öflugustu á mótinu.
Margeir komst ekkert áleiöis meö
I,i á fyrsta boröi og sömdu þeir um
jafntefli. Jón L. afréö aö taka sér smá-
hvíld fyrir lokahríöina og tefldi Jóhann
Hjartarson í hans staö á 2. boröi. Haföi
hann svart gegn Li Jang og tefldi
franska vörn, fórnaöi skiptamun og
eyöilagði peöastööu andstæöingsins og
fékk allgóð sóknarfæri. Kínverjanum
brást bogalistin í vörninni og vann
Jóhann skákina. Karl Þorsteins tefldi
viö É á 3. boröi og fór sú skák tvívegis í
bið, en er talin nánast steindautt jafn-
tefli. Elvar tefldi viö Ma á 4. boröi og
lék heldur ónákvæmt í tímahraki og
tapaði. Leikar standa þá 1,5—1,5, og er
allt útlit fyrir jöfn skipti. Rúsneska
sveitin er nú komin á haröan skriö,
vann Englendinga 3—1 og er enn efst
með 18 v. Bandaríkjamenn unnu stór-
sigur yfir Brasilíu, 3,5—0,5 og eru í
ööru sæti meö 16 v. Íslendingar eru í 3.
sæti meö 15,5 og jafnteflislega biöskák
en í 4. sæti eru Vestur-Þjóöverjar meö
15 v. og biöskák. Greint er frá úrslitum
5. umferöar á öörum staö í blaöinu.
-BH.
Ungur maður
beið bana í
bflveltu
— íFagradalá
laugardagskvöldið
17 ára piltur beiö bana er fólksbíll,
sem hann ók, fór út af veginum í
Fagradal um miðnættið á laugardags-
kvöld. Fimm manns voru meö honum í
bílnum, tveir piltar og þrjár stúlkur og
voru þau öll flutt á sjúkrahús. Meiösli
þeirra munu ekki vera alvarleg.
Þau voru aö koma frá Reyðarfirði á
leið til Egilsstaða. I beygjunni viö
Hnútu, rétt sunnan viö Egilsstaöa-
skóg, missti ökumaðurinn vald á bif-
reiöinni meö þeim afleiöingum aö hún
valt útaf veginum.
Pilturinn mun hafa látist á slys-
staö. Hin voru flutt á sjúkrahúsiö á
Egilsstöðum en síöan voru tvær stúlkn-
anna fluttar til Akureyrar og piltarnir
á sjúkrahúsiö á Neskaupstað. Meiösli
þeirra munu ekki vera eins alvarleg og
ífyrstuvarhaldiö.
Hinn látni hét Pálmar Dvalinsson,
Vöröubrún Hlíðarhreppi, Norður-
Múlasýslu. Hann var fæddur 18.
janúar 1966.
Bifreiöin er mikiö skemmd, ef ekki
ónýt. -JGH.
LOKI
Eyjamenn munu hafa af-
þakkað b/óm og kransa.
27022
AUGLÝSINGAR
SÍÐUMÚLA 33
SAAÁAUGLÝSINGAR —AFGREIÐSLA
SKRIFSTOFUR
ÞVERHOLTI 11
86611
RITSTJÓRN
SÍÐUMÚLA 12—14
jr Stjórn Hraðfrystihúss Hellissands hf: ^
NYTT FRYSTIHUS
BYGGT í RIFI
—fáist til þess opinber lánafyrirgreiðsla
Þessi mynd er af hafnarbakkanum í landshöfninni i Rifiog svörtu skástrikuðu
línurnar af væntanlegri staðsetningu nýja frystihússins sem fyrirhugað er að
reisa, ef fyrirgreiðsla lánastofnana fæst, eins og góð orð hafa verið höfð um.
H.J./DV-myndir Ægir Þórðarson.
Stjórn Hraöfrystihúss Hellissands
kom saman til fundar sl. föstudag til
þess að ræöa þá stööu sem nú er
komin upp eftir brunann. Á fundi
þessum var samþykkt einróma aö ef
hægt y röi aö endurbygg ja frystihúsiö
yröi þaö ekki á grunni þess gamla
heldur yröi byggt nýtt hús á hafnar-
bakkanum viö landshöfnina í Rifi.
En þaö er algjört skilyröi fyrir því
aö í þetta veröi ráöist aö opinber
lánafyrirgreiðsla fáist hjá þeim
aðilum sem hér eiga hlut aö máli.
Eins og gefur aö skilja er mikill og
almennur áhugi fyrir þessu máli hér
í hreppnum. Og eins og áöur hefur
komið fram í DV veitti frystihúsiö
um 60% vinnuafls hér atvinnu. En
undanfarin ár tók frystihúsiö á móti
4500—6000 tonnum af fiski til vinnslu.
Alexander Stefánsson félagsmála-
ráöherra sagöi í blaðaviðtali í
síðustu viku aö veitt yröi öll sú fyrir-
greiösla sem lög gera ráð fyrir.
Ibúar Neshrepps fara ekki fram á
meira en þetta, en aöeins aö viö þetta
veröi staðiö.
Hreinsun brunarústanna hefur
gengið mjög vel, og er búist viö aö
því verki ljúki nú um miðja vikuna
og aö þá veröi hægt aö byrja á aö
setja nýtt þak á fiskmóttöku svo aö
hægt veröi aö byrja móttöku á fiski í
salt. Saltfiskvinnslan slapp viö
skemmdir í brunanum, enda í ööru
húsi. Um móttöku á fiski til frysting-
ar er allt í óvissu en þau mál eru í at-
hugun, hvar í nágrenninu hægt
veröur aðkoma því viö.
Hafsteinn, Hellissandi.
Skartgripaþjófnaður
á Akureyri:
Nemur tugum
þúsunda kr.
„Þjófnaöurinn nemur nokkrum
tugum þúsunda og var aðallega
stoliö armböndum, hringum, háls-
keðjum og svokölluöum Flora
Danica-skartgrípum,” sagði Pétur
Breiðfjörð, gullsmiöur á Akureyri, i
samtali við DV í morgun.
En aðfaranótt laugardags var
rúöa í sýningarglugga á verkstæði
hans og Sigtryggs Helgasonar við
Brekkugötuna á Akureyri brotin og
skartgripunum stolið.
Máliö hefur verið til rannsóknar
um helgina. Engir hafa veriö hand-
teknir ennþá og þýfið hefur ekki
fundist.
,,Þú mátt endflega láta þess
getið að viö höfum nýlega látiö
setja upp þjófavarnarkerfi í
versluninni en þaö virkaði ekki aö
þessu sinni,” sagöi Pétur. -JGH.
Veðriðerað
breytast
Höfuödagurinn er í dag, 29.
ágúst. Samkvæmt þjóötrúnni á
veður aö breytast með þessum degi
sem heitir þessu nafni tU minning-
ar um afhöfðun Jóhannesar
skirara.
„Það bendir ýmislegt til þess að
þessa dagana sé veðrið eitthvaö aö
breytast. I staö þessara eilifu
sunnan- og suðvestanátta sé vindur
aö haUa sér meira tU noröanáttar,”
sagði Eyjólfur Þorbjörnsson
veöu rfræðingur í morgun. -KMU.
Heittíkolunum
fyrirbikar-
úrslitaleikinn
ígær:
EYJASKEGGJAR AUG-
LÝSTU JARDARFÖR ÍA
Auglýsing þessi þótti sýna heldur
dapran húmor, aö áhti margra. Hún
var prentuð á minningarkort og á þaö
var letrað... „Sunnudaginn 28. ágúst
kl. 14.00 verður íþróttabandalag Akra-
ness jarðað á Laugardalsvellinum af
íþróttabandalagi Vestmannaeyja.
Nærveru þinnar er óskað, meðan útför-
in fer fram. Aðstandendur.”
Forráðamenn Vestmannaeyjaliösins
létu lesa upp yfirlýsingu í hátalara-
kerfi vallarins áöur en leikurinn fór
fram þar sem sagt var aö þessi aug-
lýsing væri stjóm knattspyrnuráðsins
og IBV algjörlega óviðkomandi. Voru
þeir mjög sárir út af þessu tiltæki og
gekk sú saga á vellinum í gær aö þeim
heföi tekist á síðustu stundu aö koma í
veg fyrir aö sömu stuöningsmenn
kæmu gangandi meö líkkistu, skreytta
fána Akraness, inn á völlinn.
Kistan sást í það minnsta ekki en
aftur á móti var fáni Skagamanna
brenndur á áhorfendapöllunum og
svöruöu Skagamenn því með því aö
brenna fána Vestmannaeyinga. Var
mikið um aö vera á pöllunum á meðan
á leiknum stóö en engin óhöpp eöa
meiösli uröu á fólki.
Eyjaskeggjar gátu ekki staðið viö
þaö sem í hinni umdeildu auglýsingu
stóð. Iþróttabandalag Akraness var
ekki jarðaö á vellinum. Þaö voru
Skagamenn sem sigruðu í leiknum 2—1
eftir framlengingu og eru þeir því
bikarmeistarar Islands annað áriö í
röö.
-klp-
„Þeir skulu veröa vitni aö sinni
eigin jaröarför, þaö skal ég lofa þeim,”
sagði einn fokillur leikmaöur Akra-
nessliösins í knattspyrnu er honum var
sýnd auglýsing sem nokkrír aðdáendur
Vestmannaeyjaliösins létu gera og
dreifðu í hús og á bíla á Stór-Reykja-
víkursvæðinu fyrir bikarúrslitaleikinn
ígær.
Fánar liðanna voru brenndir sitt á hvað á vollinum f gær. Hór er það fáni Vestmannaeyinga sem fuðrar upp.
Jarðarfararauglýsingin sem öllu fjaðrafokinu olii sést innfelld. DV-mynd EJ.
& »
*.. .
Sunnudaginn 28. áuúst kl. I400 vcrður
Iþrottabandalag Akraness
jaroað a Laugardalsvellinum
d íþróttabandalagi Vcstmannaeyja.
Nærveru þinnar cr óskað,
meðan útförin fer fram.
Aðstandendur.