Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1983, Side 27
Pflor «TrfftT*,/r'3'rcrríTO r»r *'rnr r rrn
DV. LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER1983.
27
Sími 27022 Þverholti 11
Smáauglýsingar
. Lítil íbúð.
Oskum eftir aö leigja litla íbúö sem
fyrst, erum tvær í heimili (mæðgur).
Reglusemi og ábyggilegum greiðslum
heitiö. Þeir sem gætu aðstoðaö okkur
vinsamlegast hafi samband í síma
10564.
Er 25 ára kennari utan af landi,
er að byrja nám við listaskóla í
Reykjavík og vantar herbergi með að-
gangi að eldhúsi. Fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma 40087.
38 ára karlmaður óskar
eftir að taka á leigu litla íbúð eða her-
bergi með sér snyrtingu sem fyrst, er
reglusamur og hljóðlátur. Pottþéttar
mánaðargreiðslur. Uppl. í síma 34628
eftir kl. 22.
3ja—4ra herbergja íbúð
óskast á leigu. Reglusemi og góðri um-
gengni heitið. Uppl. í síma 66869 eftir
kl. 17.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu ca 20 fm
skrifstofuhúsnæði í Bankastræti. Uppl.
í sima 29928 og 53055 á kvöldin.
Til leigu í Kópavogi
ca 50 ferm bílskúr, er með 3 ja fasa lögn
og upphitaður með rafmagni. Á sama
staö til sölu timbur, einnotað, 2X4, ca
340 m, og heflað, 1X6, ca 225 m. Uppl. í
síma 40816.
Verslunarhúsnæði
á Isafirði. Til leigu 65 ferm verslunar-
húsnæði á jarðhæð og ca 60 ferm lager-
pláss í kjallara að Aöalstræti 24, Isa-
firði. Uppl. í símum 94-3126 og 94-3962.
Öskum eftir
skrifstofuhúsnæði fyrir litla heildversl-
un, allt að 50 m2. Til greina kemur að
deila húsnæði með öörum. Uppl. í síma
77635.
Óska eftir að taka á leigu
ca 30 ferm skrifstofuherbergi í Reykja-
vík. Hafið samband við auglþj. DV í
síma 27022 e.kl. 12.
H—432.
Ca 80—90 fm atvinnuhúsnæði
óskast til leigu sem fyrst. Þarf að vera
á aðgengilegum stað. Uppl. í síma
71391.
Músaviðgerðir
Nýframkvæmdir—-Húsaviðgerðir.
Steypum m.a. bílaplön, gangstéttar og
önnumst alhliða múr-, þak- og tré-
viðgerðir, s.s. glerísetningar.
Viöhaldsþjónusta fagmanna. Uppl. í
síma 74775 og 77591.
Húsprýði hf.
Málum þök og glugga, steypum þak-
rennur og berum í. Klæðum þakrennur
með blikki og eir, brjótum gamlar þak-
rennur af og setjum blikk. Þéttum
sprungur í steyptum veggjum, þéttum
svalir. Leggjum járn á þök. Tilboð,
tímavinna. Getum lánað ef óskað er,
Qðhluta. Uppl. í síma 42449 eftir kl. 19.
Tökum að okkur múr- og sprunguvið-
gerðir,
erum með viðurkennd efni, klæðum
þök og gerum við þakrennur, berum í
þær þéttiefni, einnig gluggaviðgerðir
o.fl. Uppl. í síma 81081 og 74203.
...... —■1 "■■■
Atvinna í boði
Óskum eftir sendli
allan daginn, þarf að hafa vélhjól.
Uppl. í síma 26488. Islenska umboðs-
salan.
Hár gallerí, Laugavegi 28,
auglýsir. Hárskeri og/eða hárgreiðslu-
sveinn óskast. Hár gallerí, Laugavegi
28, sími 26850.
Trésmiðir.
Verktaki óskar eftir smið til starfa,
bæði við verkstæðis- og útivinnu. Fjöl-
breytt starf (vetrarvinna). Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022 e.
kl. 12.
H—646.
Menn vanir trésmíða vélum
óskast í vinnu. Uppl. í síma 86822.
Háseta vantar
á reknetabát frá Hornafirði. Uppl. í
síma 97-8753 eftir kl. 19.
Atvinna óskast
Smiður óskar eftir
atvinnu, vanur sem verkstjóri (úti og
inni). Uppl. í síma 79728.
Atvinnurekendur athugið.
Ung kona óskar eftir góöu starfi i
Kópavogi. Vinsamlega hringið í síma
46248. Á sama staö er til sölu Austin
Mini árgerð 75 sem selst ódýrt.
Þrælduglegur 21 árs námsmaður
óskar eftir vinnu á kvöldin og um helg-
ar. Vinna eftir hádegi kemur einnig til
greina. Uppl. í síma 76041 eftir kl. 19
(Sigursveinn).
Barnagæzla
Mosfellssveit.
Stúlka óskast til að gæta 2ja barna
nokkur kvöld í mánuði. Uppl. í síma
67246.
Dagmamma.
Get bætt við mig börnum, bý í Hafnar-
firði. Uppl. í síma 50612.
Vesturbær — barnagæsla.
Oskum eftir barngóðri konu í vesturbæ
til að gæta 11/2 árs stúlku fyrir hádegi
í vetur, búum í Faxaskjóli. Uppl. í
síma 78464.
Kona óskast
til að gæta 2ja ára telpu eftir hádegi,
helst nálægt Dvergabakka eða
miðbænum. Uppl. í síma 72050.
Góð og reglusöm kona
óskast til að gæta 2ja ára stelpu frá kl.
8—15 á daginn, þarf að geta byrjað
sem fyrst. Uppl. í síma 42491 á kvöldin.
Óska eftir barnaf óstru
á kvöldin og um helgar, vinn vakta-
vinnu, er í Kötlufelli og borga tíma-
kaup, til aö byrja með 25 kr. á tímann.
Uppl. í síma 66248 frá kl. 10—16 og
75797 eftir kl. 16, laugardag og
sunnudag.
Ýmislegt
Ef þér haf ið áhyggjur
þá lyftið símtólinu og ég gæti gefið yð-
ur byr undir vænginn. Viðtal í síma á
sunnudögum kl. 10—12,19414.
Tek að mér alls konar
útsaum, pennasaum, flos, smyrna.
Uppl. í síma 79039.
Hnýti blómahengi,
veggteppi og gardínur. Allar
upplýsingar í síma 76438 eftir kl. 18.
Líkamsrækt
Hef opnað sólbaðsstofu
að Bakkaseli 28. Viltu bæta útlitið?
Losa þig við streitu? Ertu með vööva-
bólgu, bólur eða gigt? Ljósabekkir
með nýjum, sterkum perum tryggja
góðan árangur á skömmum tíma.
Verið velkomin. Sími 79250.
Sólbaðsstofa.
Kópavogsbúar og nágrannar. Hef opn-
að sólbaðsstofu að Tunguheiði 12,
viðurkenndir Do. Kenn lampar, þeir
bestu. Þið verðið brún og losnið við
andlega þreytu. Opið alla daga frá kl.
7—23, nema sunnudaga eftir sam-
komulagi. Sólbaðsstofa Halldóru
Björnsdóttur, sími 44734.
Halló — Halló.
Sólbaðstofa Ástu B. Vilhjáims,
Grettisgötu 18, sími 28705. Erum í
.bjartara og betra húsnæði, sérklefar
oi> headphone á hverjum bekk. Nýjar
extrasterkar perur í öllum bekkjunum.
(Endurgreiðum þeim sem fá ekki lit).
Veriðvelkomin.
Baðstof an Breiðholti
gerir ykkur tilboð í sólarleysinu. I til-
boði okkar eru 10 ljósatímar, gufubað,
vatnsnudd og þrektæki og tveir tímar í
Slendertone nudd- og grenningartækj-
um sem þykja mjög góð við vöðva-
bólgu. Þetta getur þú fengiö á 500 kr.
Gildir til 31.9. Einnig bjóöum við uppá
almennt vöðvanudd. Kreditkortaþjón-
usta. Síminn er 76540.
Ljósastofan, Hverfisgötu 105
(við Hlemm). Opið frá 8—23 virka
daga, laugardaga 9—18, lokaö sunnu-
daga, góð aðstaða. Lækningarann-
sóknarstofan, simi 26551.
Snyrtfstofan Paradis
Laugamesvegi 82, sími 31330.
Líkamsnudd, partanudd, 10 skipta
kúra vatnsnudd, sólbekkur, aldlits-
böö, húðhreinsun, litanir, handsnyrt-
ing, fótsnyrting, förðun og síðast en
ekki síst okkar frábæra vaxmeðhöndl-
un. Einnig bjóðum við upp á haustverð
á augnskuggum, kinnahtum og vara-
Utum frá Jeand Aveze. Vorum að fá
hinar vinsælu, japönsku snyrtivörur
frá Kanebo. Opið laugardaga.
Ljósastofan Laugavegi 52,
sími 24610, býður dömur og herra vel-
komin frá kl. 8—22 virka daga, laugar-
daga kl. 9—19. Belarium Super sterk-
ustu perurnar, 100% árangur. Reynið.
Slendertone vöðvaþjálfunartækið tU
grenningar, ■ vöðvaþjálfunar, við
vöðvabólgum og staðbundinni fitu, sér-
klefar og góð baðaöstða. Tónlist að
eigin vali í bekkjunum, sterkur andlits-
lampi. Verið velkomin.
Nýjung á íslandi.
Sólbaðsstofan Sælan, Ingólfsstræti 8.
Jumbó sólarium sólbekkirnir frá M.A.
Dömur og herrar, ungir sem gamlir.
Við bjóðum upp á fuilkomnustu
sólariumbekki sem völ er á, lengri og
breiðari bekki en þekkst hafa hér á
landi, meiri og jafnari kæling á lokum,
sterkari perur, styttri tími, sérstök
andlitsljós. Einu bekkirnir sem fram-
leiddir eru sem láta vita þegar skipta á
um perur. Stereotónlist í höfuðgafli
hjálpar þér að slaka vel á. Minni tími
— meiri árangur. Enginn þarf aö
liggja á hlið. Opið mánudaga til föstu-
daga frá kl. 7—23, laugardaga 7—20,
sunnudaga 13—20. Sælan, sími 10256.
Óskast keypt
Rafmagnsofn.
Oska eftir að kaupa rafmagnsofn.
Uppl. í sima 72138.
Einkamál
Rúmlega fimmtugur
maður óskar að kynnast konu á aldrin-
um 45—55 ára með sambúð í huga. Vin- ’
samlega sendið svarbréf til auglýs-
ingadeildar DV fyrir 1. okt merkt
„888”.
Ipnrömmun
Tökum til innrömmunar
allar myndir og málverk. Allar út-
saumsmyndir og teppi. Vönduð vinna
og valið efni. Hannyrðaverslunin Erla,
Snorrabraut.
Rammamiðs töðin, Sigtúni 20,
sími 25054. Alhliöa irulrömmun, um 100
teg. af rammalistum, þ.á m. állistar
fyrir grafík og teikningar. Otrúlega
mikið úrval af kartoni. Mikið úrval af
tilbúnum álrömmum og smellurömm-
um. Setjum myndir í tilbúna ramma
samdægurs. Fljót og góð þjónusta. Op-
ið daglega frá kl. 9—18. Kreditkorta-
þjónusta. Rammamiðstöðin, Sigtúni 20
(á móti Ryövarnarskála Eimskips).
Kennsla
....................
Óska eftir tilsögn í ensku
og dönsku eftir kl. 17 á daginn, helst í
Smáíbúðarhverfi. Uppl. í síma 84685.
VÚRUSÝNING
Byggingavörusýningin
í Bella Center, sem Danir kalla
„Byggeri for Millarder”, er nú haldin í
10. sinn. Þar hittast byggingariðnaðar-
menn hvarvetna úr heiminum til að
kynna sér ný efni, nýjar vörur og haf-
sjó hugmynda. Þessi sýning er því
gulhö tækifæri fyrir Islendinga sem
'vUja fylgjast meö tímanum í
byggingariðnaði. 21,—25. okt. fjórir
dagar, 21.—27. okt. 6 dagar, 25.—30.
okt. 5 dagar. Flug og hótelgisting. Verð
frá 11.060. Nánari uppl. hjá okkur.
Ferðamiðstöðin, Aðalstræti 9, sími
28133.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 108. og 112. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Faxatúni 11, Garðakaupstað, þingl. eign Margeirs Ingólfs-
sonar, fer fram eftir kröfu Landsbanka tslands og Björns Ó.
Hallgrímssonar hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 28. sept. 1983 kl.
15.15.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 70., 72. og 74. tbl. Lögbirtingablaðs 1983 á hluta í
Barónsstíg 59, þingl. eign Sigfúsar Sigurþórssonar, fer fram eftir kröfu
Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Sparisjóðs Rvíkur og nágrennis og
Guðjóns Á. Jónssonar á eigninni sjálfri þriðjudaginn 27. sept. 1983 kl.
11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
I*“,arittynr
URVALS EFNI
AF
ÖLLU TAGI.
Fæst á næsta blaðsölustað
V/KiV
er ekki sérrit
heldur fjölbreytt
og víðlesið heimilisblað
býður ódýrasta auglýsingaverð allra íslenskra tímarita. —
Nú býður VIKAN nýja þjónustu fyrir auglýsendur: samn-
inga um birtingu heil- eða hálfsiðu i lit eða svarthvítu, — í
hverri VIKU eða annarri hverri VIKU. Hér eru rökin fyrir
birtingu auglýsinga í VIKUNNI.
i on nœr til allra stétta og allra aldursstiga. Auglýsing í
\ XA Vikunni nær því til fjöldans en ekki aðeins
^m takmarkaðra starfs- eða áhugahópa.
hefur komið út í hverri viku í meira en 40 ár og
jafnan tekið breytingum í takt við tímann, bœði
hvað snertir efni og útlit. Þess vegna er VIKAN
svona fjölbreytt og þess vegna er lesendahópurinn
svona stór og fjölbreyttur.
i HBj selst jafnt og þétt, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Þess
| * vegna geta auglýsendur treyst því, að auglýsing í
um VIKUNNI skilar sér.
kS
um
L3
HfciV
13
WK4V
er ekki sérrit. Enginn efnisflokkur er henni óvið-
komandi. Þess vegna er VIKAN svo vinsæl og
víðlesin sem raun ber vitni.
veitir auglýsendum góða þjónustu á skynsamlegu
verði og hver auglýsing nær til allra lesenda
VIKUNNAR.
[ fi hefur sína eigin verðskrá yfir auglýsingar.
L-jl Upplýsingar um auglýsingaverð VIKUNNAR eiga
við hana eina og þær fást hjá
A UGLÝSINGADEILD VIKUNNAR í síma
85320 (beinn sími) eða 27022