Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1983, Blaðsíða 9
DV. FÖSTUDAGUR 28. OKTÖBER1983. Neytendur Neytendur Þegar borið var saman hæsta og lægsta verð á vörum, sem ekki eru seldar undir ákveðnu heiti, reyndist verðmunur vera mestur á gulrótum eða 208%. 1 tveimur tilvikum til viðbót- ar var hæsta verð helmingi hærra en það lægsta, á kjúklingum 123% hærra og eplum 120%. Þessar niðurstöður á miklum verðmismun koma heim og saman við vikulegar verökannanir DV sem hafa farið fram um nokkurra mánaða skeið. Þessar þrjár vöruteg- undir, gulrætur, kjúklingar og epli, hafa einmitt verið á okkar lista. Skýringin á gulrótarverðinu hefur m.a. verið, annars vegar á innlendum og hins vegar á erlendiun gulrótum. Á eplum er í flestum tilfellum mikill gæðamunur. Reiknivélin þörf Þessi verðkönnun Verðlagsstofnun- ar staðfestir að gera má hagkvæmari innkaup með því að bera saman verð mismunandi vörumerkja. Slíkur verðsamanburður, jafnvel innan sömu verslunar, leiðir oftast til hagkvæmari innkaupa. Hinsvegar er verðsaman- burður milli vörumerkja oft erfiður vegna mismunandi þyngdareininga. Því er full ástæða til að hvetja neyt- endur til að vera vel á verði og gefa sér góðan tíma til verðsamanburðar, þeg- ar verslað er, og nota jafnvel reiknivél til að auðvelda samanburðinn. Vert er að vekja athygli neytenda'á því að könnun Verðlagsstofnunar var gerð um miðjan september og hefur verð á nauðsynjavörum breyst frá þeim tíma en ganga má út frá því að saman- burðarhlutföll séu þau sömu. -ÞG. OECD: Mestar hækk- anir á íslandi I nýútkominni skýrslu sem Efna- hags- og þróunarstofnun Evrópu, OECD, hefur látið gera kemur fram að verð á neysluvörum hækkaöi um 0,4 prósent í júlí og ágúst sl. Hækkunin yfir 12 mánaöa tímabil, fram að ágúst, var 4,9 pró- sent og yfir 6 mánaða tímabil, 2,9 prósent. Ef litið er nánar á hverjar hækkanirnar hafa verið í hverju aðildarlandanna fyrir sig kemur í ljós að Island sker sig úr. Yfir 12 mánaða tímabil, fram að ágúst, hafa hækkanir á verði á neyslu- vörum verið 102,8 prósent og á 6 mánaða tímabili, 50 prósent. Hækkanir í maí og júní eru 7,2 prósent og í júlí og ágúst eru þær 6,8 prósent. Þau lönd sem koma næst Islandi, ef litið er á heildarhækkunina á 12 mánuðum, eru Tyrkland með 29 prósent og Portúgal með 25,9 pró- sent. Yfirburðir okkar eru ótví ræðir í þessum ef num. -APH. Þossi mynd er tokin skömmu eftir að smjörvi kom á markaðinn og sýnir að askjan kostaði i smásölu 20,50. Á sama tima kostaði smjörstykki (500 gi 35,15 kr. Kilóverö á smjörva er samkvæmt þvi verði 68,30 krónur og smjör- kíió kostar 70,25krónur samkvæmt verðskrá. DV-mynd: E.Ó. Verðmunurá SMIÖRIOG SMJÖRVA Mismunandi verð á smjörva í verslunum, sem meðal annars hefur komið fram í vikulegum verðkönn- unum DV, hefur vakið athygli neyt- enda. I síöustu verðkönnun okkar, sem var birt í gær, var lægsta verð á 300 g smjörvaöskju 61,75 krónur og það hæsta 64,45 krónur. Miðað við lægsta verð er kílóverð á smjörvanum 205,80 krónur en miðað við hæsta verð er kíló af smjörva komið í 214,80 krónur. Eftir síðustu hækkun, 1. október sl., kostar eitt kíló af smjöri 200,40 kr., 500 gramma smjörstykki kostar 100,20 kr. Smjörverð er niðurgreitt, samkvæmt ákvörðun sexmannanefndar, um 72,86 kr. kg. Raunverulegt verð á smjörkílói erþví 273,26 kr. I hverju kílói af smjörva eru um 838 grömm af smjöri og eru niðurgreiðslur í hlutfalli viö það magn. Álagning frjáls Smásöluálagnmg á smjöri er lög- bundin 10%. A smjörva er „frjáls” álagning. I heildsölu kostar smjörvinn 53,70 kr. og er því um 20% álagning á honum þegar verðið á öskjunni er komið í 64,45 krónur. Ef sama álagning væri á smjörva og smjöri ætti smjörvaaskjan að kosta 59,07 kr., og miðaö við það verð væri kílóverð á smjörva 196,60 kr., aðeins lægra en smjörkílóið, munar3,50kr. Þegar smjörvi kom á markaðinn í október 1981, fyrir réttum tveim árum, kostaði askjan í heildsölu 18,15 kr. (gjaldskrá 1. nóv. ’81). Tæpar tuttugu krónur kostaöi þá askjan með 10% álagningu en 21,75 kr. meö 20% álagn- ingu. Kílóverð 66—68 krónur. Hækkun á þessu tímabili er á milli 196 og 220% eftir því hvor álagningarprósentan er notuð í smásölu. I nóvember ’81 kostaöi kíló af smjöri 70,25 krónur, hefur hækkaö um 185%. Það kemur líklega neytendum í opna skjöldu að , smjörvinn sé dýrari en smjörið en það er hann kosti askj an yfir 60 kr. Smjörverðið, sem hér hefur verið nefnt, miöast við pakkasmjör en verð á smjöri í 400 gramma öskjum er hærra, kílóverðið þá komið í 210,75 krónur, rúmum tíu krónum dýrara en pakka- smjörið. Smjöröskjurnar eru sambæri- legar umbúðir og smjörvinn er í og því raunhæfasti samanburðurinn að bera saman þessar tvær vörutegundir í sambærilegum umbúðum. Hæsta verð á smjörvakílói er rúmum fjórum krónum hærra en kílóverð á smjöri í öskjum. -ÞG. VÍS STAÐUR FYRIR VEIÐISTANG IRNAR OG BYSSURN- AR • VEIÐIHJÓLIN, FLUGURNAR, SPÚNARNIR OG SKOT- FÆRIN í SKÚFFURNAR TM-HÚSGÖGN Síðumúla 4 - sími 31900 Síðumúla 30 - sími 86822 Kynning á postulíns matar- og kaffistellum — og hnífapörum „Uppdekkud bord” í búdinni * • laugardag kl. 9—4 Kynnið ykkur fallegt úrval Fáið myndalista og verðlista Gerið samanburð — greiðslukjör Orfáar fallegar þurrblómaskreytingar seldar í dag. IÉIÍK-IÍHISTIM Laugavegi 15 Sími 14320 ± w

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.