Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1983, Qupperneq 10
10
DV. ÞRIÐJUDAGUR 8. NOVEMBER1983.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Umsjón: Guðmundur Pétursson
Olof Palme forsctisráðberra grípur
til sömu sparnaðarráðanna, sem
hann gagnrýndi stjórn borgaraflokk-
anna fyrir, og hyggst hækka skatt-
ana enn f Svíþjóð.
Palme ætlar að þyngja
skattpíninguna enn
Spamaðarf járlög þau, sem ríkis-
stjóm sósíaldemókrata lagöi fyrir
sænska þingið um mánaöamótin,
þykja æði ólík þeirri stefnu sem
flokkurinn fylgdi fyrir þingkosning-
amar í september í fyrra, þegar
hann var í stjómarandstöðu.
Halda borgaralegu flokkamir þvi
fram að þau séu ein runa talandi
dæma um kosningasvik sósíaldemó-
krata — nefna þó sérstaklega til-
lögumar um lækkun ellilífeyris,
afnám nær allra niðurgreiðslna á
matvörum og lækkun á fjárveiting-
um til aðstoðar við þróunarlönd.
Nýir skattar
Takmark ríkisstjórnarinnar er að
gæta þess að hallinn á f járlögunum
verði ekki meiri en þeir 90 milljaröar
sænskra króna sem hann er á núgild-
andi fjárlögum. En margar útgjalda-
hækkanir eru sjálfvirkar svo að
stjómin ákvað að skera niður kostn-
aðarliöi fjárlaganna um að minnsta
kosti 5 milljarða og hækka um leiö
skatta um 9 milljarða.
Á hlutabréfamarkaðnum gætir
nokkurra hræringa vegna kvíða
manna fyrir væntanlegum nýjum
sköttum. Komið hefur til tals að
leggja 1% aðstöðugjald á hlutabréfa-
veltuna og ætti þaö aö færa ríkissjóöi
0,8 milljarða króna tekjur. Annar
möguleiki, sem einnig þykir til
athugunar, er aö hækka skatta af
arði hlutabréfa en sósíaldemókratar
hafa til þess lagst gegn því. Þriðji
möguleikinn hefur þótt sá að halda
áfram meö tekjuskattsáiagninguna
hjá fyrirtækjum, sem nemur 20%.
Meðal annarra skattahækkana,
sem liggja í loftinu, er fasteigna-
skattur um 1,4% af fasteignamati, en
áætlað er að hann geti gefið ríkis-
sjóði 1,5 milljarða króna. Af minni
íbúðum leiðir það til 100—150 króna
útgjaldaaukningar á mánuöi. —
Þessi skattur kæmi fyrst til álagn-
ingarl985.
Þá er einnig búist við hækkun á
stóreignaskatti. Hann er í dag 1,5%
af eignum á bilinu 0,4—0,6 milljónir
sænskra króna en rætt er um að
hækka hann um 1% á hverju þrepi
þar fyrir ofan.
Nýr skattur af bátum á að færa
ríkissjóði 0,2 milljarða króna og ný-
leg hækkun á áfengi og tóbaki á að
skila af sér 1 milljarði króna. Skóg-
nytjaskattur á að gefa af sér 0,2 mill-
jarða króna.
Niðurgreiðslur og Irfeyrir
Afnema á allar niðurgreiðslur af
matvöru að undanskilinni mjólk.
Það leiðir af sér að nautakjöt mun
hækka um 5,60 krónur, svínakjöt um
0,60 og osturinn hækkar um 3,20
krónur. Á því mun ríkissjóður spara
um 1 milljarð.
Með því aö lækka vísitölubætur á
ellilífeyri eiga að sparast 3 milljarð-
ar króna. — Sósíaldemókratar gagn-
rýndu ríkisstjórn borgaralegu flokk-
anna mjög harölega á sinum tima
fyrir að lækka vístitölubætur á ellilíf-
eyri. Þegar þeir nú grípa til sömu
ráða réttlæta þeir þaö með því að
ellilaunþegar verði að taka sinn þátt
í þvi aö greiða gengisfellinguna meö
hærri innflutningskostnaði.
Annar sparnaður
Þá er einnig gripið til niður-
skurðar á sviði menntamála. Þannig
veröa til dæmis læknaskólinn i
Málmey og tannlæknaskólinn í
Gautaborg lagðir niður og eiga að
sparast á því 0,6 milljarðar króna.
I aöstoðinni til þróunarlandanna á
að spara um þaö bil 0,4 milljarða
króna. Þar með hefur Svíþjóð gefist
upp við eitt prósent markið, sem
fyrst komst inn á fjárlög 1975. Það
miöaðist við að aðstoð við þróunar-
lönd skyldi vera 1% af brúttóþjóðar-
tekjum. Nú er ætlunin að f járveiting-
ar til þessara mála verði ekki nema
0,93%. Sá niðurskuröur mun fyrst og
fremst koma niður á skyndihjálp
vegna náttúruhamfara því mestur
hluti f járveitinga til þróunarlanda er
bundinn við langtíma framkvæmdir.
Stjórnarandstaðan
Borgaralegu flokkamir og þá
sérstaklega „moderatarna” styðja
í grundvallaratriðum spamað í ríkis-
rekstrinum en þeir munu að líkind-
um greiða atkvæði á móti flestum
þessum tillögum sósíaldemókrata.,
Búist er við að stjórnin slíti sam-
komulaginu, sem hún náði við borg-
aralegu flokkana, miðflokkinn og
„Folkpartiet”, um skattalækkanir
og er búist við því að aðalátökin
spretti út af því.
Samtök „friöarfólksins” á Noröur-
Irlandi, sem eitt sirm vöktu vonir um
að einhvem tíma mætti binda enda á
blóðsúthellingarnar þar, em enn við
lýði en ekki nema skugginn af því
sem eitt sinn var. Og samkvæmt því
sem forvigismenn samtakanna seg ja
er það einmitt eins og þeir vilja hafa
það.
Þessi hreyfing varð til 1976 eftir að
þrjú ung böm höfðu látiö lífið þegar
þau urðu fyrir flóttabifreið IRA-
hryðjuverkamanna, sem orðið hafði
fyrir skothrinu frá breskum dátum.
Hún var stofnuð af Mairead Corrig-
an, móöursystur bamanna, og vin-
konu hennar, Betty Williams, ásamt
blaðmanninum Ciaran McKeown.
Þau vöktu aðrar konur til aðgeröa
og kölluðu þúsundir manna heima
fyrir og erlendis út á götur í kröfu-
göngur, þar sem þess var krafist að
róstunum linnti. — Hæst bar samtök-
in 1977, þegar Corrigan og Williams
var úthlutað friöarverðlaunum
Nóbels.
Upp úr því hófst ágreiningur innan
hreyfingarinnar um framtíðarstefii-:
una og um hvemig ver ja skyldi því fé
sem að henni streymdi úr öllum
áttum. Þær Mairead og Betty greindi
á um hvort skoða bæri nóbels-
verðlaunaféð persónulega eign
þeirra sjálfra eöa hvort það ætti að
renna í sjóði hreyfingarinnar, eins og
Mairead vildi. Hjónaband Betty
Williams leystist upp. Hún var tekin
fyrir ölvun við akstur og yfirgaf loks
N-Irland 1981 til þess að hef ja nýtt líf
í Bandaríkjunum. En þessar uppá-
komur rýrðu samtökin trausti og sá
almenni stuðningur, sem þau höfðu
hlotið, gufaðiupp.
Fjölmiðlar, sem í byrjun höföu
borið hreyfinguna á höndum sér,
sneru viö henni baki þegar hún tók að
gagnrýna harðlega stofnanir og
frammámenn fyrir að leggja ekki
nóg að sér.
En í siöasta mánuöi sýndi friðar-
fólkiö aö það er enn aö verki, en þá
var haldið 7. ársþing samtakanna í
Belfast. Enn áréttaði það fyrri heit
um að stuöla aö því aö brjóta niöur
múrinn milli mótmælenda og
kaþólskra. — Fundurinn, rétt eins og
flest öll önnur starfsemi samtakanna
síðustu ár, vakti litla eftirtekt enda
eru þetta orðin miklu fámennari
samtök, aöeins milli 150 og 200 virkir
meðlimir.
, JEn ég held að við stöndum öflugri
og heilbrigðari núna, með fámennan
kjarna ötulla félaga, fremur en
fjöldahreyfingin var, meö mislitt fé
innanborðs,” segir Paul Smyth, einn
úr stjórn samtakanna.
Félagsskapurinn lætur ennfremur
minna á sér bera orðið og forðast
sviðsljósið eftir leiðindaumfjöllun
þess tíma þegar mest gekk á.
Samtökin hafa einnig minna fé úr
að spila. Ársveltan, um 45 þúsundir
Bandarikjadala, aö mestu fengin
með frjálsum framlögum frá Banda-
ríkjunum. Þrír fastráðnir starfs-
menn og sex sjálfboðaliöar ganga til
daglegra verka í „Friðarhúsinu”,
sem er múrsteinshús að hruni komið
í einu úthverfa Belfast.
Helstu daglegu annir liggja í því að
sjá ættmennum dæmdra fanga í
öryggisfangelsunum Maze við Bel-
fast og Magilligan hjá Londonderry
fyrir flutningi til heimsókna í fang-
elsin. Samtökin eru óflokksbundin og
gera það að skilyrði að mótmælendur
og kaþólikkar ferðist saman í sömu
rútunni í þessar heimsóknir. Reynsla
þeirra er sú að aðstandendur kynnist
í þessum feröum og t.d. opnist augu
mæðra fyrir því að þær eigi við sömu
vandamálin að glíma í uppeldi
barna, sem eiga föður í fangelsi,
hvort sem þær tilheyri mótmælend-
um eöa kaþólskum.
Samtökin gangast einnig fyrir
ýmsum barnaskemmtunum og
íþróttaleikjum bama, þar sem
blandað er saman úr beggja hópi.
Einnig gefa þau út vikuritið Friður
með friði sem boriö er í hús tll sölu.
Áðaltilgangurinn meö útgáfu
þessa rits er mótvægi við Lýðveldis-
fréttir, rit sem gefið er út af IRA
(Irska lýðveldishernum, hryðju-
verkasamtökum kaþólskra) til þess
að breiða út málstað hryðjuverkaafl-
anna.
Hreyfingin rekur einnig í Noregi
sumarbúðir fyrir böm mótmælenda
og kaþólskra, en Norðmenn standa
undir kostnaöinum af þeim rekstri.
Sömuleiöis berjast samtökin fyrir
umbótum í fangelsismálum og gegn
neyðarástandslögunum, sem þau
segja stríða gegn réttlæti.
Efst á dagskrá hjá samtökunum
sem framtíðarverkefni er að koma
sér upp sveitabýli á N-Irlandi þar
sem ungt fólk geti starfað saman,
kaþólikki og mótmælandi hlið við
hlið.
Betty Williams og Mairead Corrigan við afhendingu friðarverðlauna Nóbels, sem þær hlutu vegna starfs þeirra að
friði á N-trlandi. Samtök þeirra, „Friðarfólkið”, eru enn við Iýði þótt Utið fari fyrir þeim.
FRIÐARFÓLKIÐ
Á N-ÍRLANDI
STARFAR ENN