Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Page 22
Stúdentahópur frá Menntaskólanum á Egi/sstöðum. Miklar breytingar á Mennta- skólanum á Egilsstöðum Miklar breytingar hafa veriö geröar á starfsemi Menntaskólans á Egils- stööum sem hefur starfað í hálft fimmta ár. Opnum tímum hefur veriö komiö á viö fjóröung kennslunnar. Ráöa þá nemendur viöveru sinni hjá kennurum og nota þeir tíma þessa ýmist til að bæta kunnáttuna í lökustu fögunum, til aö sinna ákveðnum skóla- verkefnum eöa aö læra á eigin spýtur. Nafnlausar kannanir sýndu ótvírætt fylgi þorra nemenda viö þessa ný- skipan. Þá var í haust tekin í notkun ný heimavistarálma, meö tveggja manna herbergjum, snyrtiaöstööu og mötu- neyti. Getur því Menntaskólinn á Egilsstöðum tekiö viö nemendum utan fjórðungs i heimavist. Þann 17. des- ember næstkomandi veröur í Egils- staöakirkju fimmta útskrift stúdenta frá ME og tala stúdenta þá orðin tæp- lega 100. Nokkurt rými veröur þá laust á heimavist og rennur umsóknar- frestur út 15. desember næstkomandi. -MSþ Ný heimavistarálma var tekin i notkun við skólann íhaust. Afsteypur af verkum Ásmundar til sölu Verkið sem nú veröur til sölu er „Kona meö bikar". Stjóm Ásmundarsafns hefur sam- þykkt að hefja gerð og sölu á afsteyp- um af verkum eftir Ásmund Sveinsson til aö fjármagna bronsafsteypugerð stærri verka. Verkiö sem nú verður til sölu nefnist ,díona meö bikar” frá árinu 1933. Það er unnið í brenndan leir, 39 cm á hæö og gert í 200 tölusettum eintökum. Styttan kostar 12.500 kr. Myndin er til sýnis í Ásmundarsafni þriðjudag, fimmtudag, laugardag og sunnudag frá kl. 14—17. Þá eru pantan- ir teknar daglega frá kl. 9—17 í síma 32155. Aætlað er aö afhenda stytturnar fyrir jól. Eins og fyrr segir verður ágóöanum variö til þess aö koma verkum' Ásmundar í varanlegt efni. Ásmundur Sveinsson geröi mjög stór verk sem hann reisti í garði sínum sem nú er Ásmundarsafn. Ásmundur steypti þessi verk í sement sem ekki hefur staöiö tímans tönn og eru flest þeirra nú í fremur lélegu ástandi. Draumur listamannsins var ávallt að koma verkum sínum í varanlegt efni — brons, sem einnig var hiö endanlega stig í myndhugsun Ásmundar. DV.'FIMMTUDAGUR’l. DESEMBERT1983. Skipting á verði hjólbarða verð kr. 2.800.- Hjólbarðar þykja mjög dýrir, aö sögn JC-manna. ÁstæOan er meöal annars sú að rikissjóður tekur 47prósent tH sin i aðfiutningsgjöid, eins og sjá má á meðfylgjandi töfiu. Léleg hjól undir bílnum en áfram.. — kynningardagar um meðferð hjólbarða á vegum JC-félaganna í Reykjavík JC-félögin I Reykjavík efna til Svörin geta veriö fleiri en eitt og kynningardaga í meöferð hjólbaröa fleiri en tvö,” segja JC-menn. dagana 30. nóvember til 4. desember Þeir benda síöan á aö hjólbarðar í tilefni JC dags. Er þetta liöur í séu mjög dýrir, sem stafar fyrst og verkefninu JC og neytandinn, sem fremst af því að ríkissjóður tekur til JC-hreyfingin veröur meö í gangi í sín 47 prósent af veröi hvers hjól- vetur. baröa í formi aöflutningsgjalda. Sem Aö sögn JC-manna fer verkefnið dæmi er nefnt aö hjólbarðar undir' þannig fram aö birtar veröa greinar fólksbifreið kosta um 11.200 krónur um meðferð hjólbarða í fjölmiölum og af því fái ríkissjóöur um 5.275 næstu daga almenningi til fræöslu og krónur. leiðbeiningar. Þá minna þeir á aö meö því aö hafa Þaö er staðreynd aö ástand hjól- réttan loftþrýsting í hjólböröunum baröa er almennt mjög slæmt nú. og rétt stillt hjól bifreiöarinnar Eru þaö fullyrðingar bæöi hjólbaröa- minnki slit baröans og aukist ending verkstæöa og lögreglu. Ber þeim hans. saman viö kannanir sem Bílgreina- Aö lokum má geta þess aö JC- sambandiö stóö fyrir í fyrra og svo menn ætla aö dreifa nú um helgina 30 aftur í haust. Þar kemur fram að þúsund plakötum með ýmsum aöeins 30 prósent bifreiða aka um á upplýsingum um meöferö hjólbaröa löglegum hjólböröum. Hvað veldur og reglum þar aö lútandi. þessu má ætla áð einhver spyrji. -JGH. \ jpr 1. des. Ýmsir vilja yfirþérdrottna og attra þérmáls. binda festar um fætur þlna og fjötur um háls. Öðrum tit bjargar átt þú aö vera andlega frjáls. (Davlð Stefánsson frá Fagraskógl.) s * i Forsíða 1. desomberblaðs hátíðarnefndar stúdenta. Hátíðahöld stúdenta 1. desember: „Friður, frelsi, mannréttindi” Aö þessu sinni mun Vaka, félag lýöræöissinnaöra stúdenta, sjá um há- tíðarhöld stúdenta á fullveldisdeg- inum 1. des. Fullveldishátíöin ber yfirskriftina: Friður, frelsi, mannréttindi. Dagskrá dagsins hefst með guösþjónustu í Há- skólakapellu kl. 11 á vegum Félags guöfræðinema. Hátíöardagskrá stúd- enta hefst síðan kl. 14 í Háskólabíói. Dagskráin veröur sem hér segir: Setning, formaöur 1. des.-nefndar, Gunnar Jóhann Birgisson. Ávarp háskólarektors, Guðmundar Magnússonar. Einleikur á gítar, Pétur Jónasson. Hátíöarræöa, Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíö Oddson. Guöjón Guömundsson og Islands- sjokkiö flytja frumsamiö efni. Matthías Johannessen les upp úr eigin verkum. Kvartett M.K. syngur. Samleikur á píanó og fiölu, Guöni Þ. Guðmundsson og Hrönn Geirlaugsd. Ræða stúdents, Olafur Amarson. Kórsöngur, Karlakórinn Fóst- bræður. Kynnir Bergl jót Friöriksdóttir. Um kvöldið veröur síðan fullveldis- fagnaður haldinn á Hótel Sögu frá kl. 22 til 3. Þaö er von Vöku aö sem flestir, bæöi stúdentar og aðrir sjái sér fært aö mæta þannig aö fullveldishátíöin veröi haldin með þeirri reisn sem henni ber.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.