Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.1983, Side 48
TAL STÖÐVARBÍLAR um alla borgina...! -.85000 NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN KNARRARVOðl 2 — REYKJAVfK 77nOO AUGLÝSINGAR sÍÐUMÚLA 33 SMÁAUG LÝSING AR AFGREIÐSLA SKRIFSTOFUR ÞVERHOLT111 RfiR11mTSTJÓRN OUU 1 1 i SÍÐUMÚLA 12—14| FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1983. Ávísanaheftin misdrjúg: 25-faldaði innleggið — ogflaugífrí Þaö eru ekki margir sem komast í frí til útlanda fyrir 6 þúsund krónur nema ef vera skyldi ein miöaldra frú úr Reykjavík er iék þann leik fyrir skömmu. Frúin lagði 6 þúsund krónur inn á ávísanareikning, keypti sér ávísanahefti með 25 eyðublöðum, stökk út í bíl og brunaði á milli bankaútibúa og verslana. Að vörmu spori var hún búin að gera stuttan stans á 25 stöðum, heftið búið og 6 þúsund krónumar orönar að 150 þúsund krónum. Keypti hún þá flug- miða og flaug í frí til Kaupmanna- hafnar þar sem hún dvaldi í nokkrar vikur í góðu yfirlæti þar til þarlend yfirvöld framscldu hana aó kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins. Rannsókn er lokið og máliö verður sent til Rikissaksóknara á allra næstudögum. -EIR. Atvinnuleysi i fiskvinnslu Slæmt atvinnuástand er nú meðal kvenna íKeflavík og Njarðvíkum. Hraðfrystihús Keflavíkur og Sjöstjarnan hafa nú sagt upp um hundrað konum sem unnu viöfisk- verkun og bætist sá fjöldi við 40 konur sem þegar voru fyrir á at- vinnuleysisskrá. Astandið er betra meðalkarla. Hraðfrystistöðin í Reykjavik hefur einnig sagt upp 40 starfsmönnum frá ogmeönæstaþriöjudegi. -ÓEF. Þjódviljinn: Kjartan hættir semritstjóri Kjartan Olafsson hefur látið af störfum ritstjóra Þjóðviljans eftir 10 ára starf. Ekki liggur fyrir hver tekur viö starfi hans, Einar Karl Haraldsson og Arni Bergmann munu fyrst um sinn ritstýra og bera ábyrgö á blaöinu tveir, en eins og' kunnugt er hefur Olafur Ragnar Grímsson verið þeim innan handar um tíma. Olafur Ragnar situr á þingi um þessar mundir i fjarveru Guðmundar J. Guðmundssonar og „óvíst hversu lengi Þjóðviljinn nýtur starfskrafta Olafs Ragnars,” eins og Einar Karl orðaði það í morgun. -EIR. ' : - ■ aigf.-.. LOKI Hún kemur sér vel fyrir 1 suma fjölgun bankaútibú- annal Álgróðinn fæðist með tvöföldun álversins — þar sem aðeins þarf að bæta 200 manns við 640 manna starfslið Fáum við 1,500 milljónir króna á ári í staðinn fyrir 250 milljónir í tekjur af orkusölu til Isal-álversins í Straumsvík, ef semst um tvöföldun þess? Þetta gæti látið nærri. Og þá fær-' um við fyrst að græða á álinu fyrir alvöru. í fyrirhuguðum samningavið- ræðum Alusuisse um álveriö og starfskjör þess er tvöföldun fram- leiðslugetunnar einn kjarni málsins. Augljóst er að sú stækkun getur um- turnað afkomu álversins og skotið stoðum undir stórhækkun orku- verðsins, launahækkun starfsmanna og mikla skattahækkun. I Isal-álverinu unnu til skamms tíma 750 manns að framleiðslu 80.000 tonna af áli. Nú, eftir tæknibætur, duga 640 manns. Og ekki þarf nema 200 manns í viðbót við þessa 640 til þess að anna stækkun í 160.000 tonna framleiðslu á ári. Enda eru ný bræðsluker helmingi stærri en gömul. Og litlu þarf að bæta við stjórnun og þjónustu, ef nokkru. Eftir tvöföldun á álverið þannig að ná um 200 tonna framleiðslu á starfs- mann á ári í staðinn fyrir um 110 tonn lengst af hingað til. Þaö svarar til afkasta í nýju álveri eins og því sem áætlun liggur fyrir um frá norska ríkisálfirmanu Ardal- SunndalVerk. Sú áætlun fól í sér að orkuverö væri sem svarar til um 19 US-mill á kíló- vattstund nú. En það svarar raunar einnig til framleiðslukostnaðar á kílóvattstund hér og nú frá nýrri vatnsaflsvirkjun eins og Blöndu- virkjun, samkvæmt traustum heimildumDV. ísal notar nú 1.360 gígavattstundir orku á ári og til þess þarf 160 mega- vatta orkuframleiðslu. Fram að nýlegum bráðabirgðasamningi borgaði Isal um 250 milljónir á ári fyrir orkuna, sem kostaði þá 6,45 mill á kílóvattstund. Ef ísal kaupir helm- ingi meiri orku á ári á 19 mill kíló- vattstundina þýðir það rúmlega 1.500 milljónir króna fyrir orkuna eina á ári. En til þess að geta selt Isal næga viðbótarorku dugir ekki Blöndu- virkjun ein. Hún á að geta lagt til 150 megavött. Svo að jafnframt þarf að leita víðar eftir orkunni, svo sem til Kröflu. HERB íj . ■ Þetta eru miðaldamenn" dómur í Spegilsmálinu kveðinn upp í sakadómi. Úlfar Þormóðsson dæmdurfyrir klám, guðlast og brot á prentlögum „Klukkur dómskerfisins eru of fljótar eins og venjulega,” sagði Ulf- ar Þormóösson klukkan 3 mínútur fyrir níu nú í morgun en þá slógu klukkurnar í sakadómi 9 högg. Stuttu síðar kvað Jón Abraham Olafsson upp dóm í Spegilsmálinu svonefnda þar sem Ulfar sat ákærður fyrir klám, guðlast og brot á prentlögum. Ulfar var dæmdur í 16 þúsund króna sekt sem greiöast á innan fjögurra vikna, tæplega 5 þúsund eintök af 2. tölublaði Spegilsins gerð upptæk svo og offsetfilmur að blaöinu. Þá var Ulfari gert að greiða 15 þúsund krón- ur í málskostnaö og aðrar 15 þúsund krónur til verjanda síns, Sigurmars Albertssonar. „Þetta eru miðaldamenn,” sagði Ulfar eftir dómsuppkvaðninguna, „ég var að vona aö máliö yrði tekið nútímatökum í tilefni dagsins (1. des.). Nú er aftur á móti Ijóst að ég hef verið dæmdur fyrir klám, guðlast og brot á prentlögum og engu ákæru- atriði sleppt nema einu. Það virðist sem sagt ekki vera bannaö að hala upp á sér kynfærin með spotta og birta mynd af því, ” sagði Ulfar. Við uppkvaðningu dómsins hafði Jón Abraham Ólafsson sakadómari sér til aðstoðar séra Bjarna Jónsson á Mosfelli og Eystein Sigurðsson íslenskufræðing. Ulfar Þormóðsson hefur áfrýjað málinutilhæstaréttar. -EIR. - . Jí^............... Jón Abraham Ólafsson sakadómari kveður upp dóm i Spegilsmálinu nú i morgun. 77/ hlióar við sig hefur hann Eystein Sigurðsson isienskufræðing, þá kemur Sigurmar Albertsson verjandi Úlfars, og loks söku- dólgurinn sjálfur, Úlfar Þormóðsson. Dyravörðurkærir „Yfirheyrslur hafa staðiö yfir sið- ustu daga og það er enn unnið aö rannsókn málsins. Að öðru leyti vil ég ekki tjá mig um það,” sagöi Arnar Guðmundsson, deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins, í morgun er DV spurði hvaö rannsókn í máli Skafta Jónssonar blaðamanns liði. EnSkafti hefur kært þrjá lögreglu- þjóna fy rir að hafa misþyrmt sér eft- ir handtöku í Þjóðleikhúskjallaran- um síöastliðiö laugardagskvöld. Þaö var dyravörður í húsinu sem kallaði á lögregluna vegna sam- skipta sinna við Skafta. Við spurðum Amar Guðmundsson hvort rétt væri að umræddur dyra- vörður i Þjóðleikhúskjallaranum hefði lagt fram kæru á hendur Skafta. „Já, þaðerrétt.” -JGH Konan látin Onnur konan sem slasaðist í umferöarslysinu í Hafnarstræti á ísafirði í fyrradag lést á sjúkra- húsinu þar í gær. Hún hét Anna Hall- dórsdóttir og var 83 ára gömul. Konan sem með henni var liggur enn þungt haldin á sjúkrahúsinu. Lögreglan á ísafirði er enn að rann- saka orsök slyssins en dimmt var yfir og mjög hált á götum þegar þaö, varð. -klp-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.