Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Qupperneq 5
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBROAR1984.
Leigy bflaskortur í Reykjavík:
Ölvaðir illa staddir
eftir laugardagsböllin
— „Mallorcaveður” annars staðar á landinu
Þetta fer að verða algeng sjón á þessum vetri. Fastur smábíll og mann-
skapur reynir að ýta honum afstað. Myndin var tekin i Kópavogi á laugar-
dag. DV-myndEinar Ólason.
Umferð tepptist að nokkru leyti í
höfuöborginni á laugardag eftir að snjó
kyngdi niöur fyrir og um hádegið. Lög-
reglan í Reykjavík og nágrenni átti því
annasama nótt við að hjálpa illa
stöddu fólki heim og við að flytja
starfsfólk sjúkrahúsa til. vinnu.
Nokkuð var um ölvun og mörgum
ballgestinum var bjargað úr sköflum á
laugardagsnóttina. Leigubilar voru
„nánast ekki til” að sögn eins lögreglu-
þjóns.
Að sögn Reykjavíkurlögreglu voru
færri bílar í umferö á laugardag en
undanfarið þegar færð hefur versnað.
Annaðhvort hefur fólk hlýtt viðvör-
unum lögreglu eða ekki náð að færa
bílinn úr stæði. Strætisvagnar gengu
nokkum veginn eftir áætlun um
helgina.
Élliðavogurinn og Breiðholtið teppt-
ust um tíma. I Arbæ ríkti öngþveiti í
umferðinni frá hádegisbili á laugardag
til um kl. 5 en þá fóru ruöningstæki að
hafa undan.
A Suðurlandi var víðast fært um
helgina. HelUsheiðin var fær, einnig
Þrengsli og leiðin tU Keflavíkur. Leiöin
til Grindavíkurvartekinaðþyngjast.
Austanlands var einnig sæmUeg
færð nema Fjarðarheiðin og leiðin um
Oddsskarð voru ófærar. Á Akureyri var
„MaUorcaveður”. Frá Patreksfiröi
var fært til TáUrnaf jarðar og út á flug-
vöU en ekki annaö. -ÞóG
Flateyri:
Fólk hyggur á
brottflutning
— vegna himinhárra orkureikninga
Frá Reyni Traustasyni, fréttarit-
ara DV á Flateyri:
Fjöldi fólks á Flateyri hefur við orð
að láta loka fyrir rafmagn og hrein-
lega fara af staönum eftir síðasta
glaöning frá Orkubúi Vestf jarða.
Þegar nýjasti rafmagnsreikning-
urinn barst fólki í hendur rak marga
í rogastans og er þó fólk hér ýmsu
vant. Reikningarnir lágu á bUinu 6—
12 þúsund fyrir eins mánaðar orku-
notkun.
Einn húseigandinn, sem býr í 98
fermetra íbúð og er nýbúinn að fram-
kvæma fyrir stórfé í því skyni að ná
fram orkusparnaði, sagði að hann
hreinlega kæmist ekki yfir þetta en
hann fékk 6 þúsund króna reikning
eftir mánuðinn. Þetta er þó ekki það
hæsta sem hann hefur komist í.
Annar sem fréttaritari ræddi við tók
í sama streng. Hann var að heiman
það tímabU sem reUmingurinn
spannar yfir og hafði hitann á húsinu
í lágmarki en fékk eigi aö síður
reUming upp á kr. 7100. Þar er um að
ræða 120 fermetra íbúð sem einnig
var nýbúið að einangra í orkuspar-
andi skyni. Þriðji reUcningurinn, sem
sérstaklega er tekinn út úr, er upp á
12 þúsund krónur. Þar er um að ræða
nýtt hús, 2x90 fermetra íbúð. I því tU-
viki má segja sem svo að eigandinn
færi sléttur út úr því að láta loka,
fara tU Reykjavíkur og leigja þar
íbúð fyrir 10 þúsund krónur á
mánuði.
Menn spyrja hér í forundran: Hvar
eru þingmenn kjördæmisins? En nú
mun hiö póUtíska litróf búið að sýna
aUar sínar hhðar á undanförnum
árum bæði í stjórn og stjórnarand-
stöðu. En ekkert bólar á leiðréttingu
á þessu ægUega misrétti.
-GB
ORUGGASTA OG BESTA VALIÐ
MICRA ÖRYGGIÐ FELST í:
- GÆÐUM OG ENDINGU SEM NISSAN VERKSMIÐJURNAR EINAR GETA TRYGGT.
GULLTRYGGÐ ENDURSALA
- VERÐISEM ER ÞAÐ LANGBESTA SEM NOKKUR KEPPINAUTANNA GETUR
BOÐIÐ Á BÍLUM SEM EIGA AÐ HEITA SAMBÆRILEGIR.
ÞETTA FÆRÐU ÞEGAR ÞÚ KAUPIR NISSAN MICRA:
• Framhjóladrif • Útvarp • Upphituð afturrúða
• 5gírakassi • Halogenljós • Þurrka og vatnssprauta á afturrúðu
• Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum • Litað öryggisgler • Tveir baksýnisspeglar.
• 57 hestafla vál • Hlíf yfir farangursskut stillanlegir innan frá
• Tvískipt aftursæti sem hægt er • Vandaðáklæði • Skuthurð opnanleg úr
að leggja niður, annað eða bæði • 3ja hraða kraftmikil miðstöð. ökumannssæti
• Quartsklukka alveg nauðsynleg á íslandi • Þykkir hliðarlistar
• Sígarettukveikjari • Geymsluhólf í báðum hurðum • 2ja ára ábyrgð á bíl
• Hanskahólf • Innbyggð öryggisbelti • 6 ára ryðvarnarábyrgð
• Pakkahilla • Blástur á hliðarrúður • Eldri bílar teknir upp i nýja
• Eigin þyngd 615 kg • Þurrkur á framrúðu mlbiðtíma • Góð lánakjör
LEGGÐU ÞETTA Á MINNIÐ EF ÞÚ GETUR 0G GERÐU SAMANBURÐ
NOKKUR DÆMI UM ÞAÐ HVERNIG
MICRA HEFUR VERIÐ TEKIÐ
HÉRLENDIS SEM ERLENDIS:
DAGBLAÐIÐ VÍSIR.
Fyrirsögn greinar Ómars Ragnarssonar um Nissan Micra
var svona: „Fislóttur. frískur bensinspari sem teynir ó
sór.” Og Ómar segir ennfremur:.mór fannst billinn
betri en óg átti von á, þœgilegri og skemmtilegri i bœjar-
akstri en vonir stóðu til og það virðist vera erfitt að fá
hann til að eyða bensíni svo nokkru næmi, þótt frisklega
væri ekið".
AUTO MOTOR SPORT:
„Að meðaltali eyðir NISSAN MICRA aðeins 5,4 I á
hundraði. Enginn annar bill nálgast MICRA i bensín-
sparnaði."
MOTOR:
„MICRA er eyðslugrennri en nokkur annar bíll sem Motor
hefur reynstuekið og það er þeim mun lofsverðara að
MICRA kemst mjög hratt og er þess vegna bensineyðsta
bilsins mæld á meiri hraða en venja er til."
QUICK.
„Bensineyðsla er aðeins 4,21 á hundraði á 90 km hraða og
5,91 á hundraði í borgarakstri."
BILEIM, MOTOR OG SPORT:
Stór fyrirsögn á grein er fjallaði um reynsluakstur á
NISSAN MICRA var svona: „Nýtt bensinmet — 19,2 km á
lítranum." Það jafngitdir 5,2 á hundraði. í greininni segir
m.a.: „MICRA er langsparneytnasti bill sem við höfum
nokkurn tima reynsluekið. Bersýnilega vita NISSAN
framleiðendur hvað bensínspamaður er því sá sem kemst
næst NISSAN MICRA er NISSAN SUNNY 1,5 með 17,2
km ó litranum." Það jafngildir 5,8 á hundraði.
AUTO ZEITUNG:
Eftir mikið lof á NISSAN MICRA segir svo: „En einnig hið
mikla innrými á tof skilið. MICRA býður ekki bara öku-
manni og farþega i framsæti upp á frábært sætarými
heldur gildir það sama um þá sem í aftursæti sitja."
NISSAN MICRA DX 249.000,- - NISSAN MICRA GL 259.000,-
IIMGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.