Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Qupperneq 7
DV. MANUDAGUR6. FEBRUAR1984.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
TAFLA - LÍNURIT
Á meöfylgjandi töflu sést lands-
meöaltal í heimilisbókhaldi DV síöustu
þrjú árin, hvern mánuð. Og línuritið
sýnir einnig útkomu matarkostnaöar
einstaklings þetta tímabil.
Athygh vekur aö í nóvember hvert
ár lækkar landsmeöaltaliö sem virðist
vera árlegt logn á undan storminum í
desember.
Á árinu 1983 var landsmeöaltaliö
mjög hátt í september og þaö var kjöt-
útsalan mikla sem líklega hefur átt
sinn stóra þátt í því. Síöan lækkar
meöaltalið í október og nóvember, tvo
mánuði í röö, og tekur síöan stökk í
desember aftur. Og fer þá yfir lands-
meöaltalið í september.
-ÞG
Landsmeðaltal í heimilisbókhaldi DV
1981 1982 1983
kr. kr. kr.
Janúar 504 904 1.308
Febrúar 525 860 1.335
Mars 671 890 1.698
Apríl 650 1.008 1.569
Maí 597 995 1.837
Júní 703 1.022 1.856
Júlí 835 1.028 2.140
Ágúst 770 1.088 2.306
Sept. 872 1.240 2.691
Okt. 991 1.339 2.444
Nóv. 852 1.220 2.209
Des. 1.115 1.634 2.844
Ársmeðaltal
1981 kr. 757
1982 kr. 1.102
1983 kr. 2.020
Matarkostnaður hækkar um tæplega 30 prósent
Landsmeðaltal í heimilisbók-
haldi DV í desembermánuði er
2.844 krónur. Hefur meðaltalið
hækkaö um 28,7% frá nóvember
sem þá var 2.209 krónur.
I desember 1982 var lands-
meðaltal 1.634 krónur og er því
74% hærra sama mánuð 1983.
Þegar við lítum á tölur lengra
aftur í tímann og skoöum lands-
meðaltal í desember 1981, sem var
þá 1115 krónur, hefur hækkun á
milli desember 1981 og 1982 verið
46,5%. Matarkostnaður hefur því
hækkaðtöluvertáárinul983. -þg
Við bjóðum
kjarabætur
Já, við bjóðum ykkur allt að 60% kjarabót á verksmiðjuútsölu
okkar. Meðan þið lítið á það sem við höfum upp á að bjóða
er upplagt að leyfa börnunum að fara í ÓLÁTAGARÐ þar
sem við höfum barnagæslu með litabókum og litum, mynda-
sögum, Tomma og Jenna á myndsegulbandi og síðast en
ekki síst kafbátnum sem flest börn þekkja af góðu.
KLEINUKOT, já þeim er ekki fisjað saman strákunum. Nú er
kaffi og kleinur handa þeim sem vilja.
OPIÐ TIL KL. 19.
PA
E
EUROCARD
V/SA
Verksmiðjuútsalan
Armúla 17. Sími 687482.