Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Page 9
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
9
Utlönd
Útlönd
ur Rauða her-
inn í hættu-
legri valda-
aðstöðu
Astiz liösforingi, fangi Breta i
Faiklandseyjastríðinu, er grunaður
um að hafa verið framtakssamur í her-
ferð hershöfðingjastjórnanna gegn
vinstrimönnum.
Astiz liðs-
foringi í
sviðsljósi
Liðsforingi í flota Argentínu,
grunaöur um hlutdeild í hvarfi sænskr-
ar stúlku og tveggja franskra nunna,
hefur verið kyrrsettur í heimalandi
sinu og bannað að yfirgefa land.
Yfirvöld hafa skipað flugvallarlög-
reglunni í Bunenos Aires að meina
Alfredo Astiz liðsforingja aö stíga um
borð í miliilandaflugvélar. —
Ostaðfestar fregnir herma aö hann
hafi verið búinn að panta sér far til
Rómar á laugardaginn, en síðan af-
pantaö.
Mannréttindasamtök í Argentínu
saka Astiz liðsforingja um hlutdeild í
hvarfi fjölda fólks á árinu 1977. Þar á
meðal frönsku nunnanna og 18 ára
sænskrar stúlku, að nafni Dagmar
Hagelin.
I Falklandseyjastríðinu var Astiz í
argentínska liðinu á Suður-Georgíu-
eyju og var tekinn til fanga af Bretum.
Um hríð var hann í haldi í Bretlandi og
íhuguöu Bretar að verða við kröfum
Frakka og Svía um að fá hann fram-
seldan til yfirheyrslu en ekki varð af
því. Astiz var síðan sendur með öðrum
stríðsföngum til Argentínu eftir lok
stríðsins.
Komid og fáid myndalista.
ÆHlg MJM Sendum lista út á land.
bjroiMqn
Smiðiuveai 6, — Kópavogi, — Simi 44544
Indverskur diplómat, sem öfga-
sinnar frá Kasmír höfðu rænt í Eng-
landi, fannst myrtur í nótt í heimtröð
bændabýlis, 30 km frá þeim stað þar
sem honum haföi verið rænt.
Ravindra Mhatre (48 ára) hvarf á
föstudaginn þegar hann var á leið til
heimilis síns úr vinnu sinni í ræðis-
mannsskrifstofu Indlands í Birming-
ham.
Lítt þekkt samtök sem kalla sig
frelsisher Kasmír, sendu bréf til
Reuter-fréttastofunnar seint á föstu-
dag og sögðust hafa rænt manninum.
Krafist var einnar milljónar sterlings-
punda í lausnargjald og jafnframt
lausnar sjö Kasmirbúa sem eru í fang-
elsum á Indlandi. Var því hótað að
Mhatre mundi tekinn af lífi ef þessum
kröfum yrði ekki f ullnægt.
Svetlana tel
Lögreglan leitaði á heimilum og
skrifstofum pólitíkusa frá Kasmir,
sem búa í Birmingham, en varð einskis
vísari. — Efldar voru öryggisráðstaf-
anir við ræðismannsskrifstofur Ind-
landsvíðaumheim.
I Birmingham búa um 10 þúsund
manns, komnir frá Kasmír, en allt frá
því að Indland hlaut sjálfstæði hefur
fjöldi Kasmír-búra unað illa aö lúta
stjórninni í Nýju Delhí:
Mhatre er frá Bombay og er ekki
vitað til þess að hann hafi átt nokkur
tengsl viö Kasmírmenn. Hann lætur
eftir sig konu og 14 ára dóttur.
1981 höfðu sjálfstæðisbaráttusamtök
frá Kasmír hótað því að sprengja upp
ráðstefnu utanríkisráöherra óháðu
ríkjanna í Nýju Delhí ef ekki yrðu
látnir lausir Kasmír-fangar úr ind-
verskum fangelsum. Þar á meðal var
einn sem sömuleiðis var á lista yfir
fangana sjö sem heimtaðir voru lausir
aö þessu sinni. Það er Maqbool Butt,
sem dæmdur hefur verið til dauða.
Svetlana Alliluyeve, dóttir Jósefs
Stalín, lét eftir sér hafa í gær að herinn
kynni aö eflast aö völdum í Sovét-
ríkjunum vegna tómarúms á stjóm-
málasviðinu.
I viötali við finnska dagblaðið
„Hufvudstadsbladet” sagði Svetlana
aö árás Sovétmanna á s-kóresku far-
þegaþotuna 1. september sl. bæri því
vitni aö æðstráöendur í hemum væru
í aðstöðu til þess að taka sjálfstæðar
ákvarðanir.
Finnst henni það benda til þess að
forysta kommúnistaflokksins eigi í
erfiðleikum og að áhrif hennar fari
þverrandi en áhrif hersins eflist að
sama skapi.
Svetlana telur að langar fjarvistir
Yuri Andropovs forseta af sjónarsvið-
inu skapi hættulegt tómarúm sem
herinn noti til að efla áhrif sín. Við
slikar aðstæður kemur stundum til
valdaskipta og ekki ólíklegt að hat-
römm valdatogstreita eigi sér stað
bak viö tjöldin um þessar mundir, að
mati Svetlönu.
Svetlana, sem var stödd í Helsinkí í
síðustu viku og veitti þá blaðaviötalið,
segist hafa fylgst vel með heims-
málunum og eins málum í hennar
fyrra fööuriandi en hún hefur búið á
Vesturlöndum í rúm sextán ár.
Finnska blaðið hafði eftir henni að
kæmist herinn til valda í Sovétríkjun-
um mundi nær örugglega brjótast út
styrjöld. Enda finnst Svetlönu sem
Bandaríkjastjóm hafi ýft upp stríðs-
hættuástand.
Sagði hún að aukning herafla í
Evrópu með staðsetningu kjamaeld-
flauga í V-Þýskalandi væri skoðað sem
ódulin hótun við Sovétríkin og að Rauði
herinn mundi fýsandi þess aö hemema
V-Þýskaland.
Fjölbreytt
úrval af
veggeiningum
og
bordstofu-
settum
Leynd yfir leyni-
tilburðunum
Breska stjórnin hefur ákveðið að
læsa niöur fram til ársins 2014
skýrslu um hvernig miðaði að
aflétta leyndinni sem sums staðar
ríkir um opinber störf.
Samkvæmt yfirlýstri stefnu
stjómarinnar er ætlast til þess að
ráöherrar séu eins opinskáir og
unnt er um störf ráðuneyta þeirra.
Skýrslan er afrakstur athugunar
háttsettra embættismanna á því
hvemig þessi stefna hafi veriö
framkvæmd.
Þegar Lundúnablaðið Times
leitaöi eftir upplýsingum um niður-
stööur þessarar skýrslu sagði
Gowrie lávarður,. ráðherrann sem
með hana hefur aö gera, að
„skýrslan væri augljóslega ekki til
birtingar”.
Blaðið segir að þar með heyri
skýrslan undir stjórnarskjöl sem
lögin kveða á um að séu ekki til
opinberunar fyrir almenning fyrr
eneftir30ár.
INDVERSKUR DIPLÓMAT
MYRTUR í ENGLANDI
Þu grillar, ristar, gratinerar á fljótan og þægilegan
hátt. Frábært fyrir ostabrauö.
ffifaú
Grensásveqi 5 Sími: 84016
Hentuqt tæki sem kemur aó qóóum notum ef laqa 220 V — 750 W
þarf létta máltíð í skyndi.