Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Síða 11
.... ~ « rrrTr> * mrr/ » > * \m
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
„Hef áhuga á að
ef la norræna
samvinnu”
— segir Sighvatur Björgvinsson, nýráðinn
f ramkvæmdastjóri Norræna f élagsins
Sighvatur Björgvinsson, fyrrver-
andi alþingismaöur, hefur verið
ráöinn framkvæmdastjóri Norræna
félagsins.
,,Þaö er ekki afráðið ennþá hvenær
ég byrja en það verður einhvern
tíma á næstunni. Þaö er verið aö
ganga frá nýjum innréttingum á
skrifstofunni, sem tekur tíma. Síðan
fer þaö eftir samkomulagi á milli
mín og stjórnarinnar,” sagði
Sighvatur í samtali viö DV þegar
hann var spurður hvenær hann tæki
við nýja starfanum.
— Hvert er hlutverk fram-
kvæmdastjóra Norræna félagsins?
,,Samkvæmt þeim ráðningar-
samningi, sem búið er að gera
uppkast að, er tekið fram að auk þess
að sitja fundi stjómar og fram-
kvæmdaráðs mun ég annast fram-
kvæmd á ákvöröunum stjómar-
innar. Þetta verður semsé
hefðbundið starf að þeim verkefnum
sem stjórnin ákveður hverju sinni.”
Þaö vakti nokkra athygli á sínum
tíma að alls bárast um tuttugu um-
sóknir um starf þetta. Sighvatur var
spurður hvað það væri sem gerði það
svona eftirsóknarvert.
„Eg hef lengi þaft áhuga á sam-
starfi Norðurlandaþjóðanna. Þetta
félag er stofnað til að efla norræna
samvinnu og menningu í aðildar-
löndunum og ég hef áhuga á að eiga
þáttíþví.”
Sighvatur sagði ennfremur að
stjórn félagsins hefði lagt á það
áherslu undanfarin ár aö efla starf-
semina innanlands og aö þaö starf
hefði skilaö árangri.
— Hefur þú í hyggju að brydda
upp á einhverjum nýjungum í starfi
félagsins eftir að þú hefur tekið viö
framkvæmdastjóminni?
,,Eg hef ekki neitt slíkt í huga enda
er það stjórnarínnar að taka
ákvarðanir um það. Framkvæði um
nýjungar hlýtur að koma frá henni.”
— Er mikið gagn aö félagi sem
Norræna félaginu?
„Norræna félagið hefur vissulega hlutverki að gegna," segir nýi
framkvæmdastjórinn, Sighvatur Björgvinsson.
„Það hefur vissulega hlutverki að
'gegna og um það ber gleggst vitni
mikill fjöldi félagsmanna. Þeir era
um 9 þúsund í 40 félögum. ”
— Þýðir þetta nýja starf þitt aö þú
sért hættur í pólitíkinni?
„Síðan ég féll út af þingi í síðustu
kosningum hafa pólitísk afskipti
min verið takmörkuö en ég reikna
með aö hafa áfram áhuga á pólitík.
Það era ekki líkur á aö kosningar séu
í nánd en þegar að því kemur ráða
aöstæður hvaöa ákvarðanir verða
teknar,” sagði Sighvatur Björgvins-
son.
Sighvatur er kvæntur Björk Melax
og þau eiga f jögur böm.
-GB.
HOFUM OPNAÐ SÉRDEILD
MED ÖLGERÐAREFNI
ALLT TIL ÖL- OG VÍNGERÐAR
ÞAÐ BESTA
FRÁ ENGLANDI
UNICAN
ÞAÐ BESTA
FRÁ DANMÖRKU
Verslunin
TILBOÐSVERÐ Á BYRJENDASETTUM. /VMRKIÐ
SENDUM I POSTKROFU.
KREDITKORTAÞJONUSTA.
Suðurlandsbraut 30, sími 35320.
s