Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Page 24
24
íþróttii
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
Margra ára reynsla GENERAL á sviði reikni og rafeindabún-
aðar tryggir að hugsað er fyrir þörfum kaupenda í öllum
smáatriðum.
í fjölbreyttu og vönduðu úrvali GENERAL reiknivéla eru
vélar fyrir einföldustu og flóknustu verkefni.
LÁTTU GENERALINN LEYSA DÆMIÐ
GGENERftL
BORÐREIKNIVÉLAR
Verð frákr:
— stgr. &SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMAR 38900 - 38903
Viðgerða og varahlutaþjónusta. OG KAUPFÉLÖGIN
Ég óska eftir aö fá sendan KAYS pöntunarlistann
í póstkröfu á kr. 98.- (að viöbættu póstburðargjaldi).
Nafn
Heimili
Staöur Póstnr.
(þróttir
íþróttir
StóHeikur
hjá Viggó
á Akureyri
— þegar Víkingur sigraði KA í 1. deild
„Þetta er besti leikur Víkingsliðsins í
langan tima, mikill baráttuleikur og
þýöingarmikill fyrir bæði lið. Vlð þurft-
um að hafa mikið fyrir sigrinum og ég
er ánægður með mína frammistöðu og
mörkin mín tólf,” sagði Viggó Sigurðs-
son, kappinn kunni hjá lslandsmelstur-
um Víkings í handknattleiknum, eftir
að Víklngur sigraði KA norður á Akur-
eyri á föstudag í 1. deildinni með 26—
20. Þetta var fyrsti heili leikurinn, sem
Viggó leikur með Viking síðan í nóvem-
ber. Hann hefur átt við þrálát meiðsli
að striða „en ég er nú orðinn góður af
þeim”,sagðiVlggó.
Jafnræði var með liðunum framan af
eða upp í 5—5. Siöan fóru Víkingar aö
síga framúr, 7—5, 12—7 og staðan í
hálfleik var 14—9. KA tókst um tíma í
siöari hálfleik aö minnka muninn niður
í þrjú mörk, 18—15. Þá tók Víkingsliðið
kipp á ný, komst í 23—17 og vann
öruggan sigur.
Viggó var langbesti maðurinn í
leiknum og fór oft á kostum. Skoraði 12
mörk, þar af eitt úr vítakasti. Hann
misnotaði eitt vítakast í leiknum og
Guðmundur Akureyringur Guðmunds-
son annað. KA fékk fjögur vítaköst,
Kristján Sigmundsson varði eitt og úr
öðru var skotiö í stöng. Hjá KA átti
Þorleifur Ananiasson mjög góðan
leik, skoraöi níu mörk úr níu skottil-
raunum, og þar var ekki hægt að sjá að
færi elsti leikmaður á vellinum.
Leikurinn var nokkuð haröur og nokkr-
um leikmönnum úr báöum liðum vikið
af velli um tíma.
Mörk KA skoruðu: Þorleifur 9/1,
Sigurður Sigurðsson 5/1, Erlingur
Kristjánsson 3, Jón Kristjánsson 2 og
Magnús Birgisson 1. Mörk Víkings
skoruðu: Viggó 12/1, Hörður Harðar-
son 4, Sigurður Gunnarsson 4, Hilmar
Sigurgíslason 3, Guðmundur
Guðmundsson 2 og Steinar Birgisson 1.
Dómarar: Kjartan Steinbach og Aðal-
steinn Sigurgeirsson.
Viggó Sigurðsson, skoraði 12 mörk á
Akureyri.
Enn Stenmark-sigur
í stórsvigskeppni
Hafði yfirburði í keppni heimsbikarsins á laugardag
Sænskl skíðakóngurinn Ingemar
Stenmark vann yfirburðaslgur í stór-
svigi heimsblkarsins í Borovets i
Búlgaríu á laugardagsmorgun og
komst við sigurinn í annað sætið í
stigakeppninni. Þetta var 41. sigur
Stenmark í stórsvigi heimsbikarsins
og 78. sigur hans samtals. Enginn
stdðámaður kemst neitt nálægt
Stenmark hvað sigrum viðkemur.
Stenmark náði langbestum tíma í
fyrri umferðinni, 76/100 á undan Girar-
delli, Lúxemborg. I síöari umferðinni
keyrði Stenmark af öryggi en var þó
varkár. Hann náöi þriðja besta tíman-
um þá, 1:14,67 mín. Girardelli bestur
þá með 1:14,44 mín. og Robert
Erlacher Italiu, var þá með annan
bestatíma, 1:14,61.
Urslitinurðuþessi:
1. I.Stenmark,Svíþj.
2. Marc Girardelli, Lux.
3. R. Erlacher, Italíu
4. BorisStrel, Júgósl.
5. Jose Kurarlt, Júgósl.
6. Jacques Liithy, Sviss,
2:29,60
2:30,13
2:30,38
2:31,29
2:31,44
2:31,45
-hsím.