Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Page 28
28
DV. MANUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Deildarstjórastarf
viö skuröstofu spítalans er laust til umsóknar. Umsækjandi
þarf að hafa sérnám í skurðstofuhjúkrun. Umsóknarfrestur er
til 12. febrúar 1984.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari upplýsingar í síma 19600
kl. 11—12 og 13—14 alla virka daga.
Reykjavík, 3. febrúar 1984.
SKRIFSTOFA HJÚKRUNARFORSTJÓRA.
AUGLÝSINGASTOFU
VANTAR HÚSNÆÐI
Óskum eftir að taka á leigu hentugt húsnæði fyrir
ört vaxandi auglýsingastofu. Helst staðsett í miðbæ
Reykjavíkur. Hentug stærð 60 — 70 fermetrar.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SlMA 75655.
ÞAKÞÉTTING a PunnMivuivi
FILLCOAT
gúmmíteygjanleg samfelld húð
fyrir málmþök
• er vatnsheld.
• inniheldur cinkromat og hindrar ryð-
myndun.
• ódýr íausn fyrir vandamálaþök.
• ábyrgð - greiðslukjör.
LAUSN ER ENDIST ÓTRÚLEGA VEL
cíikbsscmií
HVERFISGÖTU 42 TELEX = 2085
220 HAFNARFIRÐI SÍMI = 91-50538
MARKAÐSHÚSINU
við Sigtún
Nýiar vörur
á útsölu!
ALLT Á 1/2 VIRÐI!
Seljum næstu daga mikið úrval af
óútleystum póstverslunarvörum.
T.d. fatnað, gjafavörur, skrautmuni,
búsáhöld, skófatnað o.fl. o.fl.
Allt á V2 virði + söluskattur!
Nýi Grattan vörulistinn er kominn og
fæst ókeypis á staðnum gegn
innborgun á fyrstu pöntun.
VÖRULISTAUMBOÐIÐ
Lokum Alþingií4 vikurog......
Sendum 60 þing-
menn til Japan
— segir Páll Kr. Pálsson verkf ræðingur, nýkominn úr
kynnisf erð til Japan, Indónesíu og Hong Kong
„Eg væri persónulega til í aö taka
þátt í kostnaði við ferð alíra alþingis-
mannanna okkar til Japan því ég er
sannfærður um að þar gætu þeir lært
ýmislegt sem okkur vanhagar um,”
sagði Páll Kr. Pálsson, verkfræðing-
ur hjá Félagi íslenskra iðnrekenda,
nýkominn úr kynnisferð til Japan,
Singapore og Hong Kong ásamt 20
öðrum Islendingum., ,Það þyrfti ekki
að loka Alþingi nema í 4 vikur,” bæt-
irhannvið.
Islendingamir heimsóttu fyrir-
tæki, verksmiðjur, verslanir og aðal-
bækistöðvar japanskra atvinnurek-
enda og urðu, að sögn Páls, margs
vísari.
Samvinna betri en
sundrung
„Japanska efnahagsundrið, sem
hófst upp úr miðjum sjöunda ára-
tugnum, byggir á þeim einföldu sann-
indum að samvinna er betri en
sundrung. 1 stuttu máli sagt grund-
vallast japanska velferðin og vel-
gengnin á þrem meginþáttum. I
fyrsta lagi að menn vinni saman að
þvi að stækka þjóðarkökuna í stað
þess að eyða orkunni í rifrildi um
skiptingu hennar með þeim afleið-
ingum að hún stendur i staö eða
minnkar. Því markmiði ná þeir að-
eins með því að auka framleiðni og
það er annað aðalatriðiö. Það þriöja
er svo áherslan sem lögð er á mennt-
un þegnanna þannig að þeir skilji
þýöingu framleiðsluaukningar og að
kakan stækki ekki án hennar.
Menntunin tilheyrir ekki aöeins
skólakerf inu heldur er starfsfólk fyr-
irtækja í sífelldri endurmenntun —
lífiðermenntun.”
Að sögn Páls gerir samheldnin og
samvinnan það að verkum að hver
einasti starfsmaður fyrirtækis finn-
ur til vissrar ábyrgðar, allt frá for-
stjóra og niður úr. Allir eiga sér>
sama markmiö, þaö aö stækka
þjóðarkökuna og þar með bæta lífs-
kjörin i landinu. Nú eru þjóöartekjur
á mann í Japan rúmar'270.000 krón-
ur.
„Japanir gerðu sér grein fyrir að
þeir höfðu ekkert hráefni, enga þekk-
ingu, aðeins fólk. Því fóru þeir út fyr-
ir landsteinana og öfluðu sér þekk-
ingarinnar þar sem hún var mest og
best. Þeir fóru til Þýskalands og tóku
meö sér menn heim til að byggja
ljósmyndaverksmiöjur. Þekkingin
var komin og þá tók fjöldinn, sam-
hentur, til starfa. Arangurinn þekkja
allir. Það sama má segja um klukk-
ur og úr, bifreiðar og næst verða það
tölvurnar. Japanir leggja ekkert
ofurkapp á að vera með einhverjar
algerar nýjungar heldur frekar að
tileinka sér þekkingu annarra og
framleiða síðan með sínu lagi gæða-
vöru í miklu magni. Þannig verður
hún ódýrariogselst.
Japanir hafa vit á því að kenna
bömum frá unga aldri að það sem
gildi hér í heimi séu vísindi, tækni og
sölumennska. Sumir segja að múg-
sef jun ríki í Japan en mín skoðun og
reynsla er sú að Japanir séu ekkert
minni einstaklingshyggjumenn en
við lslendingar. Þeir hafa bara skilið
að samtakamátturinn er heilla-
drýgri en karp og barátta á milli
þjóðfélagshópa.”
Jt
ísland kjöriö til iönrekstrar
Þaö kom nokkuð flatt upp á suma'
íslensku ferðalangana þegar Japan^
imir lýstu því yfir að landfræðileg
staða Islands gæti ekki veriö betri til
iðnrekstrar. „Liggur Island ekki
miöja vegu milli Ameríku og Evr-
ópu?” spurðu þeir réttilega. „Þið
eraö með tvo stærstu markaði heims-
ins til beggja handa, byrjið að fram-
leiða og selja. Takið ákvörðun um
hvernig eigi að gera það og þá getur
þaö varla mistekist,” sögðu þeir
hressir í bragði og sáu ekki marga
vankanta á framhaldinu.
„Viö getum beitt þessum japönsku
aðferðum, sem reyndar em sálfræði,
hérheima á Islandi, á því er enginn
vafi. Við þurfum að setja okkur
markmið líkt og Japanir og þora að
ráöast í að ná þeim en mér segir svo
hugur um aö þeir séu margir áhrifa-
mennirnir hér á landi sem hugsa
ekki í þessum brautum. Þeir em
fastir í ríkjandi ástandi,” sagði Páll
Kr. Pálsson. „Þess vegna hvet ég þá
til að taka sér á hendur f erð til Japan
þó ekki væri nema til að sjá að það er
hægt að gera hlutina á fleiri en einn
veg.” ■ -EIR
Tröllaleikirí
Leikbrúðulandi
Sýningar á vegum Leikbrúðulands
hefjast aö nýju næstkomandi sunnu-
dag, 5. febrúar, klukkan 15, í Iðnó.
Samanstendur sýningin af fjórum^in-
þáttungum sem saman bera heitiö
Tröllaleikir.
Einþáttungarnir heita Ástarsaga úr
fjöllunum, byggður á sögu Guörúnar
Helgadóttur, færður i leikbúning af
Hallveigu Thorlacius 3em einnig gerir
brúður og leikmynd en Atli Heimir
Sveinsson samdi tónlist sérlega tii
flutnings meö þessum einþáttungi.
Annar einþáttungurinn er Búkolla, ís-
lensk þjóðsaga í leikbúningi Bryndísar
Gunnarsdóttur sem einnig gerir brúð-
ur og leikmynd en tónlist er eftir Jón
Asgeirsson. Þá er það Risinn draum-
lyndi eftir Helgu Steffensen sem einnig
gerir brúður og leikmynd en tónlist er
eftir Áskel Másson. Og að lokum er það
Eggið eftir Helgu Steffensen sem einn-
ig gerir brúður og leikmynd.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Sundhöll Keflavíkur
lokuð vegna viðgerða
Frá Heiðari Baldurssyni, fréttaritara
DV í Keflavík.
Sundhöll Keflavíkur hefur verið lok-
uð frá því snemma í janúar. Astæðan
er sú að hljóðeinangrandi frauðplast-
plötur í lofti voru famar að losna
vegna raka. Við nánari athugun komu
meiri skemmdir í ljós í loftinu.
Eldvarnaeftirlitið hefur bannað
notkun á frauöplasti til einangrunar
vegna eldhættu og er nú í athugun,
hvers konar efni henti best i staðinn.
Sundhöllin var byggð árið 1950 en
brann árið 1967 og voru þá þessar plöt-
ur settar upp við endurbygginguna.
Aö sögn Hafsteins Guðmundssonar
sundhallarstjóra verður vonandi hægt
aö opna aftur seinni partinn í febrúar,
en á meðan liggur allt skólasund niðri.
Heitu pottamir og sólböðin em opin og
menn geta svo stungið sér i Njarð-
víkurlaugina á eftir.
-GB
Búðardalur:
Laxdælingar
skemmta sér, .
dönsuðufram
undirmorgun
Frá önnu Flosadóttur, fréttaritara DV
í Búðardal.
Hið árlega þorrablót Laxdælinga var
haldið í Dalabúö laugardaginn 28. jan-
úar. Geysileg stemmning var á blótinu
og sóttu það rúmlega 200 manns.
Það sem mesta athygli vakti voru
frábær skemmtiatriöi sem stóðu yfir í
3 klukkustundir. Voru þau einungis,
samin og flutt af heimafólki og byggð-
. ust upp á glensi, upprif jun á skemmti-
legum atvikum frá liðnu ári, smáskot-
■ um á náungann, gamanvisnasöng,
leikþáttum sem samdir voru út frá
mannlifi staðarins, ásamt öörum söng
og gamni.
Að þessu loknu var stiginn dans fram
undir kl. 6 um morguninn en þá renndi
fólk sér fótskriðu í hálkunni áleiðis
heim til sin á óskiljanlegan hátt. -GB
íslandsmeistarakeppni
í gömlum dönsum
*
Islandsmeistarakeppni áhuga-
manna í gömlu dönsunum verður hald-
in á Hótel Sögu síöar í þessum mánuði.
Það eru Nýi dansskólinn og Þjóðdansa-
félag Reykjavíkur sem standa að
keppninni. Þetta er önnur slík keppni í
röð, en hin var haldin fyrir rúmu ári.
Keppt verður í fimm flokkum og ef
allt fer eins og síðast má búast við
keppendum frá fimm til 85 ára göml-
um.
Keppnin hefst 26. febrúar klukkan
tvö fyrir yngri keppendurna en full-
orönir hefja keppni klukkan niu um
kvöldið. Gert er ráð fyrir því að hvert
par dansi í um 10—20 mínútur. Um sex
til sjö pör verða á gólfinu i einu, en
dansað verður á stækkuöu dansgólfi í.
Súlnasal.
Að sögn forráðamanna keppninnar'
er ætlunin að efla gömludansaíþróttina
meðslíkriárlegrikeppni. -ÞóG