Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Qupperneq 38
38
DV. MÁNUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
IMauðungaruppboð
sem auglýst hefur veriö í Lbl. á fasteigninni Brekkustíg 40 í Njarðvík,
þingl. eign Þórðar K. Jóhannessonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Bæjarsjóðs Njarðvíkur og innheimtumanns ríkissjóðs fimmtu-
daginn 9.2.1984 kl. 10.45.
Bæjarfógetinn í Njarðvik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Holtsgötu 22 í Njarðvík,
þingl. eign Þorsteins Þ. Hraundals, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Jóns G. Briem hdi. fimmtudaginn 9.2.1984 kl. 11.00.
Bæjarfógetinn i Njarðyík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á Hraðfrystihúsi Sjöstjörnunnar hf. í
Njarðvík, þingl. eign Sjöstjörnunnar hf., fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu innheimtumanns ríkissjóðs fimmtudaginn 9.2.1984 kl. 11.15.
Bæjarfógetinn í Njarðvík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið i Lbl. á fasteigninni Akurbraut 2 í Njarðvík,
þingl. eign Sveinbjörns Sveinbjömssonar, fer fram á eigninni sjálfri
að kröfu Guðjóns Ármanns Jónssonar hdl. og Hafsteins Sigurðssonar
hrl. fimmtudaginn 9.2.1984 kl. 11.45.
Bæjarfógetínn í Njarðvík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur veriö í Lbi. á fasteigninni Brekku í Vogum, þingl.
eign Þórðar Ó. Vormssonar, fer fram á eigninni sjálfri að kröfu
Hafsteins Sigurðssonar hrl. f immtudaginn 9.2.1984 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýsiu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst hefur verið í Lbl. á fasteigninni Kirkjugerði 11 í Vogum,
þingl. eign Lámsar Kr. Lámssonar, fer fram á eigninni sjálfri að
kröfu Utvegsbanka fslands fimmtudaginn 9.2.1984 kl. 16.30.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 77., 83. og 89. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1983 á
eigninni Vesturvangi 28, Hafnarfirði, þingl. eign Kristjáns Sigurðs-
sonar o.fl., fer fram eftir kröfu Jóhanns Steinasonar hrl. á eigninni
sjálfri fimmtudaginn 9. febrúar 1984 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 107., 111. og 114. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1980 á
eigninni Esjugrond 33, Kjalameshreppi, þingl. eign Hlöðvers Ingvars-
sonar, fer fram eftir kröfu Ólafs Ragnarssonar hrl., Búnaðarbanka
Islands, innheimtu ríkissjóðs, Sambands alm. lifeyrissjóða og Ara ís-
berg hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 9. febrúar 1984 kl. 15.45.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 76., 79. og 85. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1982 á
eigninni Drangahrauni 3, Hafnarfirði, þingl. eign Trésmiðju Gunnars
Helgasonar hf., fer fram eftir kröfu Hafnarfjarðarbæjar, Gjaldheimt-
unnar í Reykjavik, Haraids Blöndal hrl., Brunabótafélags islands,
Sambands alm. lifeyrissjóða og innhejmtu rikissjóðs á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 9. febrúar 1984 kl. 13.45. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Melastöð í Hrólfsskálalandi II, Seltjaroar-
nesi, þingl. eign isbjaroarins hf., fer fram á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 9. febrúar 1984 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Seltjaroarnesi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á eigninni Hæðarbyggð 12, jarðhæð, Garðakaupstað,
þingl. eign Birgis Björgvinssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtu-
daginn 9. febrúar 1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Garðakaupstað.
Eskifjörður:
Skipverjans af
Hilmi II enn saknað
Frá Emil Thorarensen, fréttaritara
DV á Eskifirði.
Ennþá hefur leitin að skipverjanum
af Hilmi II SU engan árangur boriö.
Þaö var á sunnudagsmorgun, 22.
janúar síöastliðinn, sem síðast sást til
ferða hans og var hann þá á
bryggjunni fyrir neðan verbúð Jóns
Kjartanssonar hf. að Strandgötu 38 á
Eskifirði. En Hilmir lá þar og var 4.
skip frá bryggju.
Að sögn Krístins Aðalsteinssonar,
formanns björgunarsveitarinnar
Brimrúnar á Eskifirði, hófst umfangs-
mikil leit þegar á sunnudagskvöldið og
stendur skipulögð leit yfir ennþá og
verður fyrst um sinn.
Margsinnis hafa fjörur verið gengn-
ar á Eskifirði, frá Mjóeyri að norðan
og að Skeleyri að sunnan, auk þess sem
fjörur voru gengnar út með Reyðar-
firði, út fyrir Karlsskála að norðan, en
frá Hólmanesi inn í botn Reyðar-
fjarðar og út fjörðinn aö Vattamesi að
sunnan. Þá hafa kafarar kannað stór
svæöi undan höfninni.
Veðurfar var slæmt nær alla síöustu
viku og gerði það leitarmönnum erfið-
ara viðfangs. TU dæmis gekk á meö
þrumum og eldingum á mánudaginn,
en það er fremur sjaldgæft á Eskifiröi.
Auk björgunarsveitarinnar Brimrúnar.
tóku þátt í leitinni skipver jar á Hilmi H
SU og björgunarsveitin á Reyðarfirði,
en félagamir þar gengu fjörur við
Reyðarfjörð.
Kristinn vUdi að lokum koma á fram-
færi þakklæti tU aUra þeirra sem lögðu
hönd á plóginn við þessa umfangs-
miklu leit, en eins og áður sagði voru
aðstæður fremur erfiðar. Sérstaklega
vddi hann þakka köfurunum sem
komu með snjóbU frá Neskaupstað og
unnu við hin erfiðustu skUyrði við
köfunina.
Skipverjinn, sem saknað er, er 31 árs
og heitir Hrafn Sveinbjömsson tU
heimUis að Skerseyrarvegi 3b í
Hafnarfirði. Hann er einhleypur og býr
hjá móður sinni. Hann á eitt bam.
-GB.
Dalvíkurtogarinn Dalborg mun halda tH rækjuveiða innan skamms, en
Söltunarfélag Dalvikur hefur núáný fengið leyfi tilrækjuvinnslu.
Dalborg
afturá
rækju-
veiðar
Frá Ólafi B. Thoroddsen, fréttaritara
DVáDalvík:
Söltunarfélag Dalvíkur hefur nú á ný
fengið leyfi tU rækjuvinnslu eftir um
tveggja ára hlé. TUraunir tU rækju-
veiða hófust hér um 1970 af Snorra
Snorrasyni skipstjóra. Vinnsla hófst
ekki fyrr en árið 1975. Söltunarfélag
Dalvíkur keypti svo togarann Dal-
borgu til veiðanna 1977 og var aflinn að
mestum hluta unninn um borð. Að sögn
Jóhanns Antonssonar, framkvæmda-
stjóra Söltunarfélagsins, var hráefnið,
úthafsrækjan, aUtaf stopult og sér-
staklega á árunum 1980 tU 1982. Stafaði
það af því hve fáir stunduðu veiðamar. i
Minnkaði áhugi á rækjunni, enda var
þá góður markaður fyrir þorsk, bæði
saltfisk og skreið. Lagðist rækjuveiðin
þá niður en með breyttum aðstæðum
varðandi saltfisk- og skreiðarsölu fóru
menn aö huga aftur að rækjunni.
PUlunarvélar í verksmiöjunni á
Dalvík voru seldar en aðrar hafa nú
verið keyptar í þeirra staö. Þau tæki,
sem voru í Dalborginni, eru enn tU.
PUlunarvélar eru einu tækin sem vant-
ar til rækjuvinnslunnar hjá Söltunar-
félagi DalvUcur. Aðstaða er fyrir hendi
og því þarf tUtölulega litla fjárfestingu
til að hefja rækjuvinnsluna á nýjan
leik. Vélarnar eru væntanlegar tU
landsins i lok febrúar en þangað tU
mun Dalborg landa rækjuafla sínum
hjá K. Jónssyni á Akureyri. Sótt
verður á rækjumið hér fyrir Norður-
landi og er óákveðið hversu lengi
Dalborg verður á rækjuveiðum núna.
Rækjuaflinn var mjög misjafn frá
mánuði tU mánaðar hér áður og fór
mikið eftir gæftum.
Tekið verður við rækju tU vinnslu af
bátum frá Dalvík og víðar. Jóhann
Antonsson sagði að vandamál rækju-
vinnslunnar á Islandi, sem byggt hefur
á úthafsveiðum, hefði fremur verið
skortur verksmiðjanna á hráefni en að
of mikið hráefni hefði borist á land. Því
muni ekki veita af að hafa fleiri skip en
Dalborgu til að leggja upp rækjuafla á
Dalvík. Enginn viti heldur hvað sá
áhugi, sem nú er á rækjuveiði, standi
lengi. Ráðist það mest af aflanum og
hvemig rækjuveiðar komi út saman-
borið við aðrar veiðar.
-JBH/Akureyri.
500
FUNDIR
— hjá bæjarstjórn
Húsavíkur
Fyrsti fundur bæjarstjórnar Húsa-
víkur var haldinn 31. jan. 1950. Karl
Kristjánsson, síðar alþingismaöur, var
fyrsti bæjarstjóri.
Nú, 34 árum síðar, var fimmhundr-
aðasti fundur bæjarstjórnar haldinn
31. jan.
Meöal annars í tilefni af þessum
tímamótum var eftirfarandi tillaga,
undirskrifuö af fulltrúum allra flokka í
bæjarstjóm, samþykkt.
„Bæjarstjórn Húsavíkur samþykkir
að stofna framkvæmdalánasjóð, og
leggja fram sem stofnframlag kr.
100.000,-.
Hlutverk framkvæmdalánasjóösins
verði að örva atvinnustarfsemi á
Húsavík meöal annars meö því að
veita þeim aðilum sem hyggjast reisa
atvinnuhúsnæði, lán til að greiða
gatnageröargjöld og heimæðagjöld
hitaveitu og rafveitu.
Bæjarstjórn felur bæjarráði að
semja nánari reglugerð fyrir s jóðinn. ”
Fleiri mál voru tekin fyrir á
fundinum, m.a. var samþykkt með 7
atkvæðum erindi um breytingu á vín-
veitingaleyfi fyrir Hótel Húsavík.
Bæjarstjóri nú er Bjami Aöalgeirs-
son og forseti bæjarstjórnar er
Sigurður Kr. Sigurðsson.
Ingibjörg Magnúsdóttir, Húsavík.
Sigurður Kr. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Húsavikur, setur 500. fund
bæjarstjórnarinnar á þriðjudag. Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri situr við
borðið. DV-mynd Ingibjörg Magnúsdóttir.