Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Síða 39
DV. MANUDAGUR 6. FEBRUAR1984.
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Nú stendur fyrir dyrum aö
ráöa í stöðu Bjarna Braga.
Einn kemur
í annars stað
Staðiö hefur fyrir dyrum að
ráöa mann i stað Bjama
Braga Jónssonar sem gegndi
starfi forstööumanns hag-
fræðidelldar Seðlabanka til
skamms tima. Bjami Bragi
var, sem kunnugt er,
hækkaður í tign og er nú
orðinn aöstoöarbankastjóri í
Seðlabankanum.
Gamla staöan hans hefur
verið auglýst innan banka-
kerfisins. Þykir mjög líklegt
aö hana hreppi Eirikur
Guönáson. Hann hefur
starfað í hagfræðideild bank-
ans undanfarin ár og raunar
veriö hægri hönd forstöðu-
manns.
Steingrímur
og Amarflug
Araarflug hefur sem kunn-
ugt er sótt um rikisábyrgð
fyrir um 45 mflljónum króna.
Er þetta eitt af þelm málum
sem rikisstjórain hefur til
umf jöllunar núna.
Þetta leiöir hugann að
kaupum Araarflugs á Iscargo
á sinum tíma. Þá keypti hið
fyrraefnda Iscargo af
Kristni Finnbogasynl fyrir
of fjár, að mati fróöra manna.
Var altalað að Steingrimur
Hermannsson hefði gengist
fyrir því að af þessum
kaupum yrði til að aðstoða
flokksbróður sinn, Krlstin,
sem var kominn í ógöngur
með flugfélagið. Fylgdi það
jafnframt sögunnl að Stein-
grimur hefði úthlutað Araar-
flugi flugleyfl til Evrópu
svona í kaupbæti.
En það dugðl ekki og nú
þarf Arnarflug umrædda
rikisábyrgð. Það er þvi komið
til kasta Steingríms enn einu
sinni og nú er að sjá hvort
hann bjargar mállnu.
•
Rætist
draumurinn?
Það hefur lengi verið æðsti
draumur stúdenta i Háskól-
anum að gera Stúdentakjafl-
arann að eins konar bjórkrá.
Staðurinn hefur vínveitlnga-
leyfi svo ekkl ættl það að
standa í veginum. Engu að
síður hefur umrædd hug-
mynd ekki hlotið hljómgrunn
Sigurður Skagfjörð
Sigurðsson.
hjá stjóra Stúdentakjallar-
ans.
Astæðuna segja iUgjaralr
vera þá að framkvæmda-
stjóri Félagsstofnunar stúd-
enta hafi ekkl verið sérlega
spenntur fyrir slikum breyt-,
ingum en hann er Sigurður
Skagfjörð Sigurðsson. Sig-
Stúdontar vilja bjór.
urður er, sem margir vita,
einn af eigendum Gauks á
Stöng sem selur sérislenskan
bjórdrykk og vitaskuld fengi
sá staður samkeppni ef
Stúdentakjallarlnn yrði
gerður aðbjórstað.
En bráðlega heldur téður
Sigurður til framkvæmda-
stjórastarfa á Timanum og
hafa þvi vaknað vonir i
brjóstum stúdenta um að
bjórdraumurinn verði að
veruleika.
Púttkeppni í
Breiðvangi
Skemmtistaöurinn Brelð-
vangur hefur þótt til ýmissa
hluta nytsamlegur i gegnum
tiölna. Þar hafa verið haldn-
ar alls konar hátíðir, keppnir
og aðrar samkundur, allt sem
nöfnum t jáir að nefna. Og það
nýjasta sem heyrst hefur er
að nú standl til að halda þar
golfkeppnl. Menn geta þó
ekki vænst þess að sjá kúl-
uraar þjótandl innan um
brothætt glös og könnur þvi
þarna verður um að ræða
púttkeppni innanhúss og er
hún haldln i tilefni tuttugu
ára afmæfls Goifklúbbs Ness,
— og fer fram þann 26.
febrúar næstkomandi.
Umsjón:
Jóhanna S. Sigþórsd.
.
Kvikmyndir Kvikmyndir \ Kvikmyndir
Háskólabíó—Hraf ninn flýgur:
USTFLUG HRAFNSINS
Heiti: Hrafninn flýgur.
Leikstjóri og handritshöfundur: Hrafn Gunn-
laugsson.
Kvikmyndataka: Tony Forsberg.
Tónlist: Hans-Erik Philip.
Hijóöstjóm: Gurmar Smárí Helgason.
Leikmynd: Gunnar Baldursson.
Búningar: Karl Júlíusson.
Klipping: Hrafn Gunnlaugsson.
Aðalhlutverk: Jakob Þór Einarsson, Helgi
Skúlason, Flosi Ólafsson, Edda Björgvinsdóttir
og Egill ólafsson.
Sjaldan eða aldrei hef ég gengið
jafnsáttur út úr kvikmyndahúsi eftir
að hafa séð nýja íslenska kvikmynd
eins og ég var eftir að hafa séð kvik-
mynd Hrafns Gunnlaugssonar,
Hrafninn flýgur. Það er í rauninni
allt sem hjálpar til að gera myndina
aö einhverri eftirminniiegustu kvik-
mynd sem gerð hefur verið hér á
landi. Efnið er spennandi saga um
blóðþorsta, hefndir og tortryggni.
Handritsgerð Hrafns er að visu í
veikara lagi, en leikstjóm hans er hand-
verk manns sem veit náikvæmlega
hvað hann vill gera úr hlutunum og
kvikmyndataka Taiy Forsberg er með
eindæmum góð, hvort sem er i nær-
myndum af hinum stórbrotnu persón-
um myndarinnar eða þegar landslagið
nýtur sín sem umgjörð um atburða-
rásina Og tónlist Hans-Erik Philip er
eins og kvikmyndatóniist getur best
orðið, fellur vel að atburöarásinni og
eykur stundum á spennuna. Hefur hann
Sprengisand sem meginþema myndar-
innar og hefir þessi ágæti óður sjaldan
hljómaö á eins áhrifarikan hátt.
Myndin byrjar í Irlandi þar sem
víkingar fara um með drápum og
ránum og hafa á brott með sér
kristna þræla. Einn víkinganna hef-
ur ekki þá mannvonsku í sér að
myrða átta ára dreng sem hefur
horft upp á að foreldrar hans eru
myrtir og systur hans rænt.
Tuttugu árum seinna er þessi sami
drengur kominn til Islands í hefndar-
leit og er orðinn hinn vígflmasti mað-
ur. Hann hefur eftir langa leit haft
upp á banamönnum foreldra í líki
fóstbræðranna Þórðar og Eiríks, en
þeir eru á Islandi í útlegð frá Noregi.
Gestur, en svo nefnir ungi Irinn
sig, tekur til við að fækka í liði Þórð-
ar og gerir það þannig að það lítur út
sem Eiríkur sitji á svikráðum við
Þórð. Það verður til þess að Þórður
drepur Eirík ásamt flestum hans
mönnum, en það var einmitt það sem
Gestur hafði ætiast til.
Fundum þeirra Gests og systur
hans, sem er frilla Þórðar og á með
honum son, verður ekki eins og Gest-
ur hefði kosið, því þrátt fyrir að hún
sé fegin að sjá og hitta bróður sinn á
ný þá er það hún sem svíkur hann í
hendurnar á Þórði og mönnum hans,
til að bjarga syni sínum frá því að
verða fórnað.
Ekki er nú rétt að tíunda meira
efni myndarinnar en mikil og
dramatísk átök verða í lokin og þeg-
ar upp er staðið er ekki víst að endir-
inn sé einmitt þegar myndinni lýkur.
Hrafn Gunnlaugsson á að baki feril
sem er æði misjafn. Nokkrar sjón-
varpsmyndir iiggja eftir hann ásamt
tveimur kvikmyndum í fullri lengd,
Oöal feðranna, sem að minum dómi
var hans besta verk þar til Hrafninn
flýgur leit dagsins ljós og Okkar á
milli.. . sem var eins misheppnuö og
Oöal feðranna vel heppnuð. Sjón-
varpsmyndir hans hafa lengi verið
milli tannanna á fólki og þrátt fyrir
að ekki leynist meistaraverk þar inni
á milli, þá hafa sumar þeirra átt
betra skilið en það neikvæða umtal
sem hefur einkennt umræður manna
um þær. En með Hrafninn flýgur hef-
ur Hrafn svo sannarlega fest sig í
sessi sem einn besti og um leið frum-
legasti leikstjóri okkar.
Þrátt fyrir að Hráfninn flýgur sé
rammíslensk að efni eins og frekast
veröur kosið, þá er auðvelt að sjá
nokkra samlíkingu við samurai
myndir Kurosawa og einnig fyrstu
vestramyndir Sergio Leone, þrátt
fyrir að umgjörð myndanna sé ólík.
Þemað er einn gegn öllum. Aðal-
persónan er engin hetja heldur mað-
ur sem hefur þjálfað sig upp í að vera
besti vígamaðurinn og notar óspart
þá hæfileika sína til að koma fram
hefndum. Sigur hans aö lokum er
blandinn sársauka og einhverjum
vonbrigðum. Og þótt hann leggi
niður vopnin er ekki þar með sagt að
hann fái að vera í friði.
Aöalleikarar myndarinnar standa
sig allir meö mikilli prýði. Jakob Þór
Einarsson í hlutverki Gests er nýlið-
inn í hópnum og þrátt fyrir að leikur
hans í hlutverkinu sé gallalaus hefði
ég kosið að gervið hans væri ögn
meira í stil við gervi víkinganna.
Fannst mér hann stundum of blíður
til að standa i slikum stórræðum sem
Gestur stendur í.
En þeir Helgi Skúlason og Flosi
Olafsson í hlutverki fóstbræðranna
Þórðar og Eiríks eru aftur á móti
eins og skapaðir i hlutverkin, ófrýni-
legir en um leið með andlit sem kvik-
myndatökumaðurinn hefur haft
gaman af að mynda. Eina kvenhlut-
verkið sem að kveður í myndinni er í
höndum Eddu Björgvinsdóttur og
þrátt fyrir að Edda sé þekktari sem
gamanleikkona þá sýnir hún að hún
getur eins tekist á við alvarleg hlut-
verk. Irska stúlkan verður sannfær-
andi í meðförum hennar. Önnur hlut-
verk eru minni en sameiginleg með
þeim ölium eru hin góðu gervi sem
tekist hefur aö skapa og eykur enn á
raunsæi myndarinnar.
Hvar sem litið er á Hrafninn flýgur
er enginn byr jendabragur á henni og
veit ég ekki hvort það er aðaUega að
þakka hinum erlendu mönnum er
unnu með Islendingunum að gerð
myndarinnar eða að við séum komn-
ir yfir þá örðugleika sem einkennt
hafa nokkrar íslenskar kvikmyndir
til þessa. Eg haUast að því síðar-
nefnda, a.m.k. þegar í hlut á jafn-
reyndur maður og Hrafn Gunnlaugs-
son er orðinn í kvikmyndagerð.
Hrafninn flýgur ber því glöggt vitni
að þama eru kunnáttumenn að
verki.
I heild er Hrafninn flýgur einstak-
lega vel heppnuð kvikmynd um efni
sem svo auöveldlega er hægt að
klúðra og má segja að Hrafninn flýg-
ur sé listflug í íslenskri kvikmynda-
gerð.
Hilmar Karlsson.
Á VECUM
OC VECLEYSUM
Við leigjum hina frábæru
PORTARO 4 hjóladrifs-jeppa
á verði sem enginn getur
keppt við.
b)ij)ii)Lwv
Smlðjuvegi «4 d - Kópavogi
AIWA
HLJÓMUR
FRAMTÍÐARINNAR