Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Blaðsíða 41
DV. MANUDAGUR 6. FEBRUAR1984. 41
Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið
Siggi sixpensari
og Bogi benda
Siggi sixpensari hefur eignast keppi-
naut í Nairobi í Kenýa. Bogi benda
heitir sá og er álíka drykkfelldur og
kvensamur og Siggi félagi hans í Bret-
landi. Bogi birtist reglulega á síðum
dagblaðsins Kenya Times, hann er
hinn mesti rumur, á fimmtugsaldri, og
sést vart án bjórkönnu í hendi. Tilsvör
hans eru hrottafengin og snögg og
kvenkyns lesendum Kenya Times líkar
ekki hvernig hann kemur fram við
Soffíu konu sína sem sjaldan þorir að
mótmæla honum. I þau fáu skipti sem
þaö gerist fær hún fyrir ferðina svo um
munar. Eitt dæmi:
Bogi benda skröltir heim til sín
snemma morguns meö bjórdollu í
hendi og Soffía kona hans spyr hvað
það eigi að þýða að koma heim klukkan
sex aö morgni. Bogi veltur inn í eldhús
og segir: — Morgunmat!
Mönnum þykir sem höfundur Boga
bendu sé aö gera grín að opinberum
starfsmönnum og mútuþægni þeirra í
skrýtlumsínum:
Bogi situr bak við skrifborö og ræðir
launahækkun við einn undirmanna
sinna. „Komdu heim til mín í kvöld, þá
getum við rætt þetta nánar,” segir
Bogi. „Eg verð heima allt kvöldiö,
hringdu bara bjöllunni með olnbog-
anum.”
„Hvers vegna meö olnboganum,”
spyr undirsátinn.
„Þú ætlar þó ekki að koma tómhent-
ur,” svarar Bogi.
Höfundur Boga bendu er alls ekki
líkur afkvæmi sínu þó svo margir haldi
aö hann sitji á bjórkrám daginn út og
inn til að safna efniviði. James Tumu-
siime er 33 ára aö aldri, landbúnaöar-
hagfræðingur aö mennt og skrifar dag-
lega um efnahagsmál í Kenya Times.
Hrotur geta verið óþolandi — sérstakiega fyrir þá sem ekki hrjóta.
Landvinningar
í
læknavísindum:
HROTUR
UR SOGUNNI
Læknar í Bandaríkjunum hafa
fundið ráö viö hrotum, kvilla sem
hrjáir marga og þá sérstaklega þá
sem ekki hrjóta. Einföld aðgerð í ætt
við þá þegar hálskirtlar eru fjar-
lægðir virðist vera lausnin.
Að sögn skurðlæknisins Martin
Hopps, er starfar á Stanford sjúkra-
húsinu í San Fransisco, hafa þegar
250 hrotusjúklingar fengið bót meina
sinna fyrir tilverknað þessarar nýju
aðferðar.
Einn af sjúklingunum var
kaupsýslumaður sem þurfti að
ferðast mikið með konu sinni i
viðskiptaerindum og þau þurftu allt-
af að leigja sér tvö hótelherbergi
vegna þess að maðurinn hraut svo
mikið.
Annar sjúklingur hafði þrívegis
verið nefbrotinn vegna hrotuhrina
sinna. Var sá hermaður í bandaríska
hernum og nefbrjóturinn klefafélagi
hans sem þoldi ekki hávaðann. Bæði
kaupsýslumaðurinn, kona hans, her-
maðurinn og klefafélaginn eru nú
sælli og betri vinir en áður.
Hrotuaðgerðin kostar sem svarar
75.000 krónum en virkar því miður
ekki á allar gerðir hrota. „Eg mæli
helst með aðgerðinni fyrir þá sem
eru með mjóan háls,” segir doktor
Hopps.
ABBA ENN AÐ
Sænska hljómsveitin Abba er enn að.
I desember gengu tónar sveitarinnar
yfir „sjó og land” og birtust í borginni
þokukenndu, Lundúnum, við mikla
hrifningu stór- og heimsborgaranna.
En hvers vegna í jólamánuöinum?
Jú, Abba lagði þá til lög í söngleik í
hljómleikahöllinni Londons Lyric. Þaö
er David Woods sem er maðurinn á
bakviösöngleikinn.
Hann var snöggur að f á söngkonur til
sín í verkið. Réð þær Finolu Hughes,
Sylveste McCoy og Elaine Page í aðal-
hlutverkin.
Þess má geta að Finola Hughes vakti
mikla athygli í kvikmyndinni Staying
Alive, en þar kom knúsarinn mikli Tra-
volta nokkuð við sögu.
Siggi sixpensari hefur aldrei komið tii Nairobi og þvi ekki hitt vin sinn
Boga bendu.
Ef hundarnir á íslandi vœru svona stórir œtti
lögreglan í vandrœdum.