Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1984, Síða 44
rriÆ?7
'PÞtNGHF s. 86988
Framtfils
áhyggjur?
m
Láttu Kaupþing hf annast:
-skattframtalið þitt
-reikna út væntanlega skatta
KAUPÞING HF
97097 AUGLÝSINGAR SÍÐUMÚLA 33 SMÁAUGLÝSINGAR AFGREIÐSLA
'ÁFÍVIÆLISGETRAUN SKRIFSTOFUR PVERHOLT111 r’ ” .
Á FULLU ÁSKRIFTARSÍMI l J DCC11 RITSTJGRN OUU 1 1 SÍÐUMÚLA 12-14 1 • ; : - ■
AKUREYRI SKIPAGÖTU 13 AFGREIÐSLA (96)25013
- -** BLAÐAMAÐUR (96)26613 MÁNUDAGUR 6. FEBRÚAR 1984.
Metveiðiá
loðnu-
miðunum
Loönuveiðin tók mikinn kipp á
laugardaginn er 35 bátar veiddu
samtais 25 þúsund tonn austur af
Ingólfshöfða. Var fullfermi hjá öllum
bátunum. Lætur nærri aö hér sé um
met að ræða á einum sólarhring eöa
a.m.k. „meöallra bestu sólarhring-
um” eins og það var orðaö hjá
loönunefnd. Sólarhringinn á undan
höfðu sex bátar veriö með 2780 tonn.
Síðar um helgina dofnaði svo yfir
veiöinni að ný ju. -GAJ ■
Ræðaum
bónus
íálverinu
Fundur vegna kjaradeilunnar í ál-
verinu verður hjá ríkissáttasemjara
í dag klukkan 14. Samninganefndir
deiluaðila áttu frí um helgina. Búist
er við aö bónusmál veröi helsta um-
ræðuefniö í dag. -KMU
Hassmál
upplýst á
Seyðisfirði
A Seyðisfirði liggja fyrir játnmgar
10 manna sem allir viðurkenna aö
hafa neytt eöa dreift hassi. Að sögn
Sigurðar Helgasonar bæjarfógeta
vonast yfirvöld á staðnum til þess að
komist hafi veriö fyrir hassinnflutn-
ing til bæjarins frá Reykjavík.
Um er að ræða neyslu og dreifingu
á 60—100 grömmum af hassi á lengri
tíma. Talið er aö hassið hafi borist til
Seyðisfjarðar meö skipi. Tvileitaö
var í Gullberginu en ekkert hass
fannst þar. Tvívegis voru gefnar út
heimildir til húsleitar vegna máls-
ins. Enginn hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald. -ÞóG
LOKI
Það er ekki nóg að muna
eftir smáfuglunum!
Hækkun bamabóta og
neikvæður tekjuskattur
— eru leiðirnar sem ríkisst jórnin skoðar til hagsbóta þeim sem verst eru settir
Meginniðurstaðan í láglaunakönn
un Kjararannsóknanefndar er að ein-
stæðir foreldrar og barnmargar fjöl-
skyldur eru verst setti hópurinn á
vinnumarkaðnum.
Könnunin, sem gerð er að frum-
kvæði ríkisstjómarinnar, á að sýna
kjör þess fjórðungs af vinnuaflinu í
landinu sem verst er staddur og náði
hún til 14 verkalýðsfélaga innan ASI.
Könnunin er talin endurspegla af-
komu um 25 þúsund manna hóps á
vinnumarkaði og þar af er talið að 3
til 6 þúsund manns af þeim hópi séu í
verulegum vanda stödd. Er þaö
einkum sá hópur sem minnsta tekju-
möguleika hefur, einstæðir foreldrar
og bammargar fjölskyldur. Er talið
að grípa þurfi til skjótra aðgerða til
að foröa mörgum þessara heimila
frá gjaldþroti.
Ríkisstjórnin mun nú einkum
skoða þann möguleika að hækka
bamabætur og koma á neikvæðum
tekjuskatti þannig að fólk fái greidd-
an út ónýttan persónuafslátt. ASI
mun hins vegar ekki samþykkt nei-
kvæðum tekjuskatti vegna þess hve
skattframtöl eru léleg vísbending
um tekjur manna. Þá hefur ríkis-
stjómm rætt um hugmyndir um
afkomutryggingu, þannig að ríkis-
sjóöur greiddi gegnum tryggúiga-
kerfiö það sem vantaöi á tiltekin lág-
markslaun. En þessa leið telja ýmsir
sjálfstæðismenn ekki koma til greina
þar sem þá væri verið aö greiða nið-
ur vinnuafl fyrir atvinnureksturinn.
Sjálfstæðismenn hallast helst að því
að greiða út ónýttan persónuafslátt
en tengja hann þó bæði við tekjur og
eignir, til að koma í veg fyrir að stór-
eignamenn fengju láglaunabætur
eins og gerðist í tíð síöustu ríkis-
stjórnar.
Samkvæmt heimildum DV mun
ríkisstjórnin ekki kunngera til hvaða
aögerða verður gripið til hjálpar
þeim sem verst eru settir fyrr en
samningar aðila vinnumarkaðarins
eru komnir á lokastig.
ÖEF
•' WS/fá',
|| v i
:
',f, 's' /'/.
•••■..:,
■ ;-.
fy,'/ s,y
■ ■■ ■:••; ■
.
„Hátíðlegtog
skemmtilegt"
sagði Helgi Óskarsson,
sem var fermdur í gær
og er á förum til Síberíu
ífrekari lengingu
Það var sannarlega hátíðar-
stemmning í Langholtskirkju í
gærdag, þegar Helgi Oskarsson,
íslenski drengurmn sem lengdur var í
Síberíu, var fermdur, eitt fermingar-
bama.
„Þetta er skemmtilegur dagur sem
ég mun minnast lengi,” sagði Helgi-
þegar fermingunni var lokið en hann
er 14 ára gamall. Fermt var við
venjulega messu og var það séra
Sigurður Haukur Guöjónsson sem
fermdi. Viðstaddir ferminguna voru
foreldrar Helga, þau Oskar Einarsson
og Ingveldur Höskuldsdóttir og nán-
asta fjölskylda hans auk annarra
kirkjugesta.
Ástæðan fyrir því að Helgi er ekki
fermdur á venjulegum fermingartíma,
ef svo má að oröi komast, er sú að þeir
feðgar eru á förum til Síberíu.
„Viö förum þann 18.,” sagði Helgi.
„Og hvað við verðum lengi veit ég ekki
alveg en reikna með svona tíu mánuö-
um.”
Eins og kunnugt er var Helgi lengdur
um 18 sentímetra fyrir neðan hné fyrir'
ári og nú á að lengja lærleggi hans um
annað eins.
— Kvíðirðufyrir?
„Bæði og. Mér finnst leiðinlegt að
þurfa að vera svona lengi frá mömmu
en pabbi veröur með mér þarna úti.
Svo fæ ég bót meina minna og þá verð-
ur svo gaman aö koma heim,” sagði
þessilífsglaðipiltur.
Þess má geta að 10. mars fer til
Síberíu 16 ára gömul íslensk stúlka
sem er að fara í samskonar aögerö og
Helgi. -KÞ.
Björgunarþyrla:
Nefndin þarf
lengri f rest
Nefndin sem skoðað hefur þyrlumál
Landhelgisgæslunnar var í morgun ekki
búin að ákveða hvaöa þyrlu hún ætlaði að
mæla méð fyrir björgunarflug.
Sölustjóri frá Sikorsky kom til landsins
fyrir helgi. Hann hefur rætt viö nefndar-.
menn. Ekki er ólíklegt að hann hafi haft
nýtttilboðífórumsínum. -KMU.