Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 93.TBL. — 74. og 10. ARG. — MIOVIKUDAGUR 18. APRIL 1984. Ríkisf jármálin: Lokahrinan eftirpáska „Ég reikna með að við þurfum að hittast allir ráðherrarnir, þá utan ríkisstjórnarfundar, og síðan að þingflokkamir fjalli um þetta áður en við getum lokað fjárlagagatinu,” sagði Albert Guömundsson fjár- málaráðherra í morgun. Hann og forsætisráöherra, ásamt formanni Sjálfstæðisflokksins og landbúnaðarráðherra, fjölluðu um úrlausnir með embættismönnum í gær. >ví veröur haldið áfram í dag. Mjög torveit þykir að ná saman nægum sparnaði ofan á fyrri sparnað, en reynt er að ná samt þannig upp í hálft gatið, sem er tveir milljarðar. Síöan mun helmingurinn skiptast á ný gjöld eða skatta og nýjar lán- tökur, aðallega erlend lán. Lánin verða þó líklega stærri hluti af þeim helmingi. Sú afgreiðsla sem fjármálaráð- herra býst við getur ekki orðiö fyrr en eftir páska héðan af. ___________________-HERB. Heimilislæknar sömdu ígærkvöldi: Númerakerfíð felltniður Heimilislæknar utan heilsugæslu- stööva samþykktu í gærkvöldi nýjan samning við Tryggingastofnun rikisins. Samningurinn er nokkuð breyttur frá því áður. Númerakerfiö svo- kailaða, það að læknar fái greitt fast gjald á ári fyrir hvem einstakling á skrá hjá sér, er fellt niður. I staðinn fá læknarnir fasta greiðslu mánaöarlega frá Trygginga- stofnun, alls 45 þúsund krónur. Um helmingur þeirrar upphæðar fer til greiðslu reksturskostnaðar stof- anna. Sá fyrirvári er á þessu að viðkom- andi heimilislæknir hafi að minnsta kosti 1750 einstaklinga á skrá hjá sér. Þeir sem koma til heimilislækna verða ekki varir við þessar breyt- ingar. Enn greiðir fólk fyrir viðtal hjá heimilislækninum 25 krónur. Afanginn fær læknirinn frá sjúkra- samlagningu í gegnum Trygginga- stobiun. Alls greiddu 15 læknar atkvæði meö samningnum, 11 voru á móti og 3seðlarvoruauðir. -JGH. Sverrir þarf ekki aðsegjaafsér — sem forstjóri Framkvæmdastofnunar þrátt fyrir samþykkt þingf lokksins ,,Eg h't ekki svo á aö Sverrir Her- mannsson þurfi að segja af sér sem forstjóri Framkvæmdastofnunar. Við erum ekki meö afturvirkar sam- þykktir. Það er svo annað mál hvað hann gerir, hvort hann tekur við þessari stööu aftur,” sagði Olafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstæöisflokksins. Tilefni þessara orða var fyrirspurn DV um þá sam- þykkt þingflokksins að þingmenn verði ekki forstjórar Framkvæmda- stofnunar. Sverrir Hermannsson er nú í leyfi frá því starfi meðan hann gegnir ráðherraembætti en Tómas Ámason gegnir starfinu á meöan. Olafur sagðist hafa tekiö þetta mál upp i þingflokknum til aö afstaöa hans lægi ljós fyrir þar sem nefnd sú er faliö var að endurskoða skipulag Framkvæmdastofnunar mun Ijúka störfum fyrir þinglok. Sagði Olafur að þingmenn flokksins hefðu verið á einu máli um þetta en málið hefði ekki veriö rætt að öðm leyti. Að- spurður um hvort sjálfstæðismenn myndu krefjast þess að Tómas Árnason segöi af sér sagði Olafur: Þessi regla þarf ekki að gilda fyrir Framsóknarflokkinn. ÖEF. Þúsundir skólanema nota páskafriið tii lesturs undir próf. Lesstofur skola og safna eru þettsetnar og margir biðja um næði við skrifborðið heima hjá sér. Prófskrekkurinn læðist inn i sálir nemendanna. Von- andigefa þeir sérþó tækifæri tilhollrar útivistar yfir hátiðarnar. DV-mynd Einar Ólason. TapáSam- vinnuferðum- Landsýn: ALÞYÐUSAMBANDS- FERÐIRNAR BRUGDUST Tap á ferðaskrifstofunni Sam- vinnuferðum—Landsýn varð um 700 þúsund krónur á síðastliðnu ári. Meginorsökin var sú að svokallaöar skiptiferðir danska alþýðusam- bandsins og Alþýðusambands Is- lands mistókust. Þátttaka Islendinga í þessum ferð- um mun hafa brugðist. Gert hafði verið ráð fyrir að 330 Islendingar fæm til Danmerkur til 20 daga dvalar í orlofshúsum þarlendra verkalýðssamtaka. Innan við 200 fóm. Af þessum sökum tapaði ferða- skrif stofan 1,6 milljónum króna. Dönum þóttu þessar ferðir hins vegar spennandi. Um 600 Danir komu til Islands til 10 daga dvalar í orlofshúsum hérlendis. Forráðamenn ferðaskrifstofunnar eru þrátt fyrir þetta ekki óhressir meö reksturinn á síöastliðnu ári. Helgi Jóhannsson framkvæmda- stjóri benti á að fjármagnsgjöld vegna húsnæöiskaupa hefðu numið um tveimur milljónum króna. Þá sagði Helgi vel horfa með skiptiferö- imar í ár. 400 sæti væm uppseld og annar eins fjöldi Islendinga á bið- lista. -KMU. Ungstúlkaúr Miðfirðinum: Sinnirheimilis- störfumhjá vamarmáia- ráöherra Bandaríkjanna — sjá Dæmalausa veröldbls.44—45 Hvaömá iögreglan akahratt? - bls. 14 Mágardeilaum Sæhólslandiö — sjá4 • Hvaö eraö gerastum helgina? —12 síðna blaðauki ábls. 19-30 Páskamyndimaríár: Eitthvaö fyriralla -bls. 24-25 DV óskar landsmönnum öllum gleöilegra páska

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.