Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Side 3
dVmIÐVIKUDAGUR 18. APRIL1984. 3 A TÓMSTÖÐIN TIL CANNES Kvikmyndin Atómstööin, sem Þor- steinn Jónsson leikstýrði, hefur verið valin á hina opinberu dagskrá kvik- myndahátíðarinnar í Cannes í Frakk- landi sem fram fer í maí. Atómstöðin er fyrsta íslenska kvikmyndin sem dómnefnd Cannes-hátíðarinnar hefur valið á dagskrá sína en flestar íslenskar kvikmyndir síðustu ára hafa verið sendar nefndinni. Atómstöðin verður sýnd í flokki með myndum sem geröar eru af lítt þekktum leikstjórum. Vekja þær sýningar gjarnan mikla athygli fjöl- miðla þvi þar er oft að finna vaxtar- QOODWYEAR GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ [hIheklahf Jj Laugavegi170-172 Sími 21240 broddinn í kvikmyndagerö. Á dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í Cannes eru sýndar um 40 kvikmyndir. Á annaö þúsund kvikmyndir kepptu um þátttöku í Canneshátíðinni að þessu sinni. Veröur það því aö teljast mikill heiður fyrir íslenska kvikmyndagerð að Atómstöðin skyldi komast í hóp hinna útvöldu. Um 35 þúsund manns hafa nú séð myndina hér á landi en hún er nú sýnd í Austurbæjarbíói og verður auk þess sýnd á Selfossi og á Akranesi um páskana. OEF GERIÐ VERÐSAMANBURÐ Tinna Gunnlaugsdóttir i hlutverki sinu i A tómstöðinni. GERI GOODYEAR KRAFTAVERK Til kraftaverka sem þessa þarf gott jarðsamband. Það næst með GOODYEAR hjólbörðum. Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla jarðvinnu. Hafið samband við næsta umboðsmann okkar. mm GRIKKLAND AMSTERDAM mm MALLORCA Við bjóðum hinar vin- sælu OASIS-íbúðir og HOTEL REGINA « MARIS við GLYFADA- < I ströndina, skammt 1 fyrir utan AÞENU. Brottför alla briðiudaaa Fáið nánari upplýsingar á skrifstofu okkar AMSTERDAM Glæsilegar íbúðir og hótel í SANTA PONZA, MAGALUF og ARENAL. Laugavegi 66 Sími: 28633 Deilt um framlög til Rannsóknar- nefndar sjóslysa „Þetta er furöuleg afstaða Lands- sambands íslenskra útvegsmanna að láta ekki smábrauðmola af því sem það fær í hendur til að tryggja öryggi sjómanna,” sagði Guðmundur Hall- varðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, í samtali við DV. Við ráðstöfun gengismunar síöast- liöið haust var sjö milljónum króna úthlutað til samtaka sjómanna. Til tals kom að af þeirri fjárhæð færu 500 þúsund krónur til Rannsóknarnefnd- arsjósiysa. Sjómannasamband íslands og Farmanna- og fiskimannasamband- ið gerðu tillögu til sjávarútvegsráð- herra um að Rannsóknarnefnd sjó- slysa fengi 450 þúsund krónur. Sjómannasamtökin buðust sjálf til þess að greiða 150 þúsund krónur af sínum hlut gengismunar gegn þvi skilyrði aö LIU greiddi einnig 150 þúsund krónur og ríkissjóður sömu- leiðis. Þessu hafnaði LlU. Sjómannasamtökin gerðu einnig tillögu um að af gengismun sjó- manna færu 500 þúsund krónur til Tilkynningaskyldunnar vegna tölvu- væðingar gegn samsvarandi fram- lagi útvegsmanna og ríkisins. Þessu hafnaði LIU einnig. Ríkissjóöur hefúr heldur ekki sýnt neinn lit í því að vera meö. Að sögn Finns Ingólfssonar, aöstoðarmanns sjávarútvegsráðherra, hefur ráð- herrann fullan vilja til að lyfta framlaginu til Rannsóknarnefndar- innar upp í 500 þúsund krónur. Finnur sagði að þetta mál hefði ekki komið til tals fyrr en búið hefði verið aðloka fjárlögum. „Þrátt fyrir að LIU hlypist undan merkjum vorum við inni á því að borga þetta,” sagði Guðmundur Hallvarðsson. Kristján Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, sagði að það væri út í hött hjá sjómannasamtök- um að binda framlag því skilyrði að LlU greiddi sambærilega fjárhæð. „LlU hefur ekki fengið krónu af gengismun. Það er algerlega á mis- skilningi byggt að við höfum fengið einhver sambærileg framlög og sjó- menn,” sagðiKristján. „Ef við hefðum fengið gengismun eins og þeir hefðum við vafalaust greitt sambærileg upphæð, ef ekki hærri, en það var ekki neinu slíku til að dreifa,” sagði Kristján. Hann tók fram að á síðastliðnu ári hefðu sam- tök útgerðarmanna safnað 150 þús- und króna framlagi til Rannsóknar- nefndarsjóslysa. -KMU. íslensk þota íFæreyjum Islensk þota lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðastliðinn fimmtudag. Boeing-737 þota Arnarflugs lenti á flugvellinum í Vogum hlaðin átta tonnum af fiskumbúöum frá Kassagerö Reykjavíkur. ' „Flugleiðir höfnuðu þessum flutningi einhverra hluta vegna þangaö til þeir vissu að við gætum tekið hann. Þá vildu þeir allt í einu taka þetta,” sagði Guðmundur Magnússon sem var flugstjóri í ferðinni. Aöstoðarflugmaður var Viöar Hjálmtýsson. -KMU. Úrval KJÖRINN V FÉLAGI / AFVOPNUNARMÁL Á FRIÐARVIKU Sæmileg aðsókn hefur verið á fræðslufundi friðarviku í Norræna hús- inu, en sá fyrsti var haldinn á mánudagskvöld. Þar fluttu stjórn- málafræðingarnir Gunnar Gunnarsson og Þórður Ægir Oskarsson erindi um afvopnunarmál. Gunnar Gunnarsson fjallaði um afvopnun frá sögulegu og efnislegu sjónarmiði en Þórður Ægir ræddi ýmsar hugmyndir tengdar afvopnunarmálum. I kjölfar þess fylgdu pallborðs- umræður þar sem Vigfús Geirdal frá samtökum herstöðvaandstæðinga talaöi um sín sjónarmið í þessu sam- bandi og ásakaði sérfræöingana um að sjá ekki lengur skóginn fyrir trjánum í þessum efnum. Ingibjörg Guðmunds- dóttir frá félagsskapnum Samhygð talaði næst og sagðist binda mikiar vonir við aö frumkvæði í friðarmálum kæmi frá Islandi. Guðrún Agnarsdótt- ir, þingmaöur Kvennalista, vitnaði í Albert Einstein „mann sem ber tals- verða ábyrgð á þessari þróun, en hann sagði að þegar atómið var klofið hafi allt breyst nema hugsunarháttur mannsins.” Sagði Guörún að lífsspurs- mál væri að losna úr vítahring skamm- sýni vígbúnaðarkapphlaupsins. Líkti hún fulltrúum Bandarikjanna og Sovétríkjanna, sem ræddu þessi mál á friðarviku kvöldið áður, við tvo snáða á flæðiskeri stadda sem engin svör hefðu haft við þeirri þróun að sífellt ónothæfari kjamorkuvopn væm fram- leidd. Gunnar Gunnarsson sagði að slökun i pólitískum samskiptum austurs og vesturs væri forsenda samvinnu um stjórnun vígbúnaöar. I gærkvöldi ræddu fulltrúar þing- flokkanna utanríkisstefnu Islendinga með tilliti til friðar- og afvopnunar- mála. I dag verður umræðufundur um íslenskt friðarfrumkvæði, vígbúnað á norðurslóðum, varnarviöbúnað á Islandi og hugmyndir um kjarnorku- vopnalaus Norðurlönd. Friðarviku lýkur 2. í páskum. HÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.