Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 3
dVmIÐVIKUDAGUR 18. APRIL1984.
3
A TÓMSTÖÐIN
TIL CANNES
Kvikmyndin Atómstööin, sem Þor-
steinn Jónsson leikstýrði, hefur verið
valin á hina opinberu dagskrá kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes í Frakk-
landi sem fram fer í maí. Atómstöðin
er fyrsta íslenska kvikmyndin sem
dómnefnd Cannes-hátíðarinnar hefur
valið á dagskrá sína en flestar
íslenskar kvikmyndir síðustu ára hafa
verið sendar nefndinni.
Atómstöðin verður sýnd í flokki með
myndum sem geröar eru af lítt
þekktum leikstjórum. Vekja þær
sýningar gjarnan mikla athygli fjöl-
miðla þvi þar er oft að finna vaxtar-
QOODWYEAR
GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ
[hIheklahf
Jj Laugavegi170-172 Sími 21240
broddinn í kvikmyndagerö.
Á dagskrá kvikmyndahátíðarinnar í
Cannes eru sýndar um 40 kvikmyndir.
Á annaö þúsund kvikmyndir kepptu
um þátttöku í Canneshátíðinni að
þessu sinni. Veröur það því aö teljast
mikill heiður fyrir íslenska
kvikmyndagerð að Atómstöðin skyldi
komast í hóp hinna útvöldu.
Um 35 þúsund manns hafa nú séð
myndina hér á landi en hún er nú sýnd í
Austurbæjarbíói og verður auk þess
sýnd á Selfossi og á Akranesi um
páskana.
OEF
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ
Tinna Gunnlaugsdóttir i hlutverki
sinu i A tómstöðinni.
GERI
GOODYEAR
KRAFTAVERK
Til kraftaverka sem þessa þarf gott jarðsamband.
Það næst með GOODYEAR hjólbörðum.
Gott samband jarðvegs og hjólbarða auðveldar alla
jarðvinnu.
Hafið samband við næsta umboðsmann okkar.
mm
GRIKKLAND
AMSTERDAM
mm
MALLORCA
Við bjóðum hinar vin-
sælu OASIS-íbúðir og
HOTEL REGINA
« MARIS við GLYFADA-
< I ströndina, skammt
1 fyrir utan AÞENU.
Brottför alla briðiudaaa
Fáið nánari
upplýsingar á
skrifstofu okkar
AMSTERDAM
Glæsilegar íbúðir og
hótel í SANTA
PONZA, MAGALUF
og ARENAL.
Laugavegi 66 Sími: 28633
Deilt um framlög
til Rannsóknar-
nefndar sjóslysa
„Þetta er furöuleg afstaða Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna að
láta ekki smábrauðmola af því sem
það fær í hendur til að tryggja öryggi
sjómanna,” sagði Guðmundur Hall-
varðsson, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur, í samtali við DV.
Við ráðstöfun gengismunar síöast-
liöið haust var sjö milljónum króna
úthlutað til samtaka sjómanna. Til
tals kom að af þeirri fjárhæð færu 500
þúsund krónur til Rannsóknarnefnd-
arsjósiysa.
Sjómannasamband íslands og
Farmanna- og fiskimannasamband-
ið gerðu tillögu til sjávarútvegsráð-
herra um að Rannsóknarnefnd sjó-
slysa fengi 450 þúsund krónur.
Sjómannasamtökin buðust sjálf til
þess að greiða 150 þúsund krónur af
sínum hlut gengismunar gegn þvi
skilyrði aö LIU greiddi einnig 150
þúsund krónur og ríkissjóður sömu-
leiðis. Þessu hafnaði LlU.
Sjómannasamtökin gerðu einnig
tillögu um að af gengismun sjó-
manna færu 500 þúsund krónur til
Tilkynningaskyldunnar vegna tölvu-
væðingar gegn samsvarandi fram-
lagi útvegsmanna og ríkisins. Þessu
hafnaði LIU einnig.
Ríkissjóöur hefúr heldur ekki sýnt
neinn lit í því að vera meö. Að sögn
Finns Ingólfssonar, aöstoðarmanns
sjávarútvegsráðherra, hefur ráð-
herrann fullan vilja til að lyfta
framlaginu til Rannsóknarnefndar-
innar upp í 500 þúsund krónur.
Finnur sagði að þetta mál hefði ekki
komið til tals fyrr en búið hefði verið
aðloka fjárlögum.
„Þrátt fyrir að LIU hlypist undan
merkjum vorum við inni á því að
borga þetta,” sagði Guðmundur
Hallvarðsson.
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, sagði að það
væri út í hött hjá sjómannasamtök-
um að binda framlag því skilyrði að
LlU greiddi sambærilega fjárhæð.
„LlU hefur ekki fengið krónu af
gengismun. Það er algerlega á mis-
skilningi byggt að við höfum fengið
einhver sambærileg framlög og sjó-
menn,” sagðiKristján.
„Ef við hefðum fengið gengismun
eins og þeir hefðum við vafalaust
greitt sambærileg upphæð, ef ekki
hærri, en það var ekki neinu slíku til
að dreifa,” sagði Kristján. Hann tók
fram að á síðastliðnu ári hefðu sam-
tök útgerðarmanna safnað 150 þús-
und króna framlagi til Rannsóknar-
nefndarsjóslysa.
-KMU.
íslensk þota
íFæreyjum
Islensk þota lenti í fyrsta sinn í
Færeyjum síðastliðinn fimmtudag.
Boeing-737 þota Arnarflugs lenti á
flugvellinum í Vogum hlaðin átta
tonnum af fiskumbúöum frá
Kassagerö Reykjavíkur.
' „Flugleiðir höfnuðu þessum
flutningi einhverra hluta vegna
þangaö til þeir vissu að við gætum
tekið hann. Þá vildu þeir allt í einu
taka þetta,” sagði Guðmundur
Magnússon sem var flugstjóri í
ferðinni. Aöstoðarflugmaður var
Viöar Hjálmtýsson.
-KMU.
Úrval
KJÖRINN
V FÉLAGI /
AFVOPNUNARMÁL
Á FRIÐARVIKU
Sæmileg aðsókn hefur verið á
fræðslufundi friðarviku í Norræna hús-
inu, en sá fyrsti var haldinn á
mánudagskvöld. Þar fluttu stjórn-
málafræðingarnir Gunnar Gunnarsson
og Þórður Ægir Oskarsson erindi um
afvopnunarmál. Gunnar Gunnarsson
fjallaði um afvopnun frá sögulegu og
efnislegu sjónarmiði en Þórður Ægir
ræddi ýmsar hugmyndir tengdar
afvopnunarmálum.
I kjölfar þess fylgdu pallborðs-
umræður þar sem Vigfús Geirdal frá
samtökum herstöðvaandstæðinga
talaöi um sín sjónarmið í þessu sam-
bandi og ásakaði sérfræöingana um að
sjá ekki lengur skóginn fyrir trjánum í
þessum efnum. Ingibjörg Guðmunds-
dóttir frá félagsskapnum Samhygð
talaði næst og sagðist binda mikiar
vonir við aö frumkvæði í friðarmálum
kæmi frá Islandi. Guðrún Agnarsdótt-
ir, þingmaöur Kvennalista, vitnaði í
Albert Einstein „mann sem ber tals-
verða ábyrgð á þessari þróun, en hann
sagði að þegar atómið var klofið hafi
allt breyst nema hugsunarháttur
mannsins.” Sagði Guörún að lífsspurs-
mál væri að losna úr vítahring skamm-
sýni vígbúnaðarkapphlaupsins. Líkti
hún fulltrúum Bandarikjanna og
Sovétríkjanna, sem ræddu þessi mál á
friðarviku kvöldið áður, við tvo snáða
á flæðiskeri stadda sem engin svör
hefðu haft við þeirri þróun að sífellt
ónothæfari kjamorkuvopn væm fram-
leidd.
Gunnar Gunnarsson sagði að slökun
i pólitískum samskiptum austurs og
vesturs væri forsenda samvinnu um
stjórnun vígbúnaöar.
I gærkvöldi ræddu fulltrúar þing-
flokkanna utanríkisstefnu Islendinga
með tilliti til friðar- og afvopnunar-
mála. I dag verður umræðufundur um
íslenskt friðarfrumkvæði, vígbúnað á
norðurslóðum, varnarviöbúnað á
Islandi og hugmyndir um kjarnorku-
vopnalaus Norðurlönd.
Friðarviku lýkur 2. í páskum.
HÞ.