Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 4
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. Á föstudaginn langa kl. 15 verður opnuð í Gerðubergi sýningin Átök, hneyksli og nekt á Apaplánetunni. Það er samsýning 18 súrrealista frá Norðurlöndum sem unnið hafa saman að timaritinu „Dunganon”. Þeir sem eiga verk á sýningunni, auk Medúsu- karlaklúbbsins sem stendur fyrir henni, eru: Alfreð Flóki, Uno Svens- son, Rigge Gorm Holten, Georg Broe, Öivind Fenger, Kjell Erik Vindtarn, Jörgen Nash, Lis Zwick, Ole Ahiberg og Tony Pusey. Á sýningunni verða um 120 verk, grafík, olíumálverk, teikningar, grím- ur, klippimyndir, fánar, ljósmyndir, skúlptúrar og fleira. Flest verkanna eru til sölu. I tengslum viö sýninguna verða kvikmyndasýningar, ávörp, break-dansar, óhöpp, verðlauna- getraun, barnaskemmtun, tónleikar og annað. Viö opnunina leikur lúðra- sveitin Oxmá og Medúsumenn ganga grímuklæddir um salinn og afhjúpa sig. Sýningin er opin virka daga frá kl. 16—22 og um helgar frá kl. 14—18. Mágar deila um Sæbólsland — og Kópavogskaupstaður blandast í málið „Við hefðum ekki hafið framkvæmd- ir þaraa, nema við hefðum ákveðna tryggingu fyrir því að málið færi í ákveöinn farveg,” sagði Kristján Guð- mundsson, bæjarstjóri Kópavogs, í samtali við DV. En í fyrra úthlutaði Kópavogskaupstaður lóðum á svoköll- uðu Sæbólslandi i Kópavogi þar sem framkvæmdir eru þegar hafnar þrátt fyrir að málaferli varöandi landið standi yflr og dóms sé ekkl að vænta fyrr en í fyrsta lagi í sumar. Forsaga þessa máls, er sú aö eigandi landsins, ásamt tengdasyni sínum, gerði samning við Kópavogskaupstað árið 1980 um að sá síðarnefndi fengi nefnt land gegn því aö eigandinn og tengdasonurinn fengju átta lóðir annars staðar í Kópavogi. Eftir dag eigandans rynnu svo allar eigurnar til tengdasonarins. Skömmu síðar kom sonur eigandans heim úr dvöl erlendis. Þótti honum, svo og öörum ættingjum, á sig hallaö með samningi þessum og í dag mælir Pagfari______________j dag mælir Dagfari_________ j dag mælir Pagfari ar grisjan hvarf á sjúkrahúsinu fyrir norðan innan í manninn á skurðar- borðinu. En þá vaknar líka sú spurn- ing þegar maður drepur mann hvort sökudólgarnir geti ekki skotið sér á bak við mannleg mistök. Til dæmis haldið því fram að þeir hafi ætlað sér að drepa annan mann eða valdið dauðanum óvart. Það eru allavega jafnframbærileg mistök eins og þau að ruglast á vítamíni og bórsýru og þarf þó ekki kunnáttumann til. Fréttir berast frá læknastéttinni um að heimilislæknar hafi hug á því að leggja númerakerfið niður og að ekki þurfi lengur aö fá tilvísun frá heimilislækni til að fá skoðun h já sér- fræðingi. í sömu fréttatilkynningu er tekið fram að þetta breyti engu fyrir sjúkl- inga og fer þá að ver a spuraing hvort heilbrigðiskerfið sé hannað fyrir lækna en ekki sjúklinga. Og ef lækn- amir og hjúkrunarliðið skipta öllu í kerfinu, þar sem sjúklingarair eru til trafala, er komin eðlileg skýring á þeirri aðför sem nú er gerð að hinum sjúku. Með því að hræða fólk frá því að veikjast, leggjast í uppskurði eða frá því að taka meðul, losnar heil- brigðiskerfið við sjúklingana án þessaðlæknaþá. Dagfari. Ætla mætti að heilbrigðisyfirvöld, meö lækna, apótekara og ráðuneytið í broddi fylkingar, séu komin í heil- agt stríð gegn sjúklingum. Er illt til þess að vita því sjúklingar hafa yfir- leitt ekki gert annað af sér en það eitt; aö veikjast. Jafnvel þótt þau veikindi bitni auövitað á spítölunum og lækn- unum og sjúkratryggingarkerfinu, og auki bæði vinnuálag og útgjöld h já þessum aðilum, ætti að vera óþarfi fyrir sjúklinginn að biðjast afsökun- ar á veikindum sínum. Hvað þá að hann verði fóraardýr einhverra hefndarráðstafana hjá læknum sem er illa við að lækna, eða apótekurum sem er illa við að blanda á meðala- glösin. Súviröist þóraunin. Fyrir ekki alllöngu var skýrt frá því í blöðum að grisja hefði fundist inni í sjúklingi eftir að öðru leyti vel- heppnaðan uppskurð. Ekki mun grisjunnar hafa veriö saknað eða eftir henni spurt af sjúkrahúsliðinu enda jafnan nægar birgðir af grisjum á betri spítölum. Það var hins vegar sjúklingurinn sjálfur sem uppgötvaöi aöskotahlut- inn innan um meltingarfærin og forð- aði sjálfum sér undan þessari ein- kennilegu aðför. Aðför að sjúklingum Næst gerist það að heilbrigðis- ráöuneytið leggur fram tillögur til stjóramálamanna um að skattleggja hvera þann sjúkling sem álpast inn á sjúkrahús. Sem betur fer tókst að stööva þá aðför og það þá mest fyrir atbeina almennings sem sá fram á að sjúkrahúsvist yrði fjárhagslega of- viða þegar röðin kæmi að þeim 1 veikindum enda fara sjúkdómar yfirleitt ekki í manngreinarálit og leggjast jafnt á efnalítiö fólk og efna- menn. Nýjasta og um leiö alvarlegasta aðförin að sjúklingunum er þó sú sem DV gat um fyrir helgi að apótek í Hafnarfirði hefði byrlað eitur í með- alaglas sem hljóöaði upp á c-víta- mín. Sjúklingaskattar og grisjur inn- an um innyfli eru smáræði miðað við bórsýru í meðalaglösum sem sjúkl- ingum er uppálagt að taka kvölds og morgna. Það þarf að minnsta kosti meiriháttar hraustmenni til að þola slikar inntökur án þess að af þvi hljótist bráður bani. Apótekið í Hafnarfirði hefur haft það sér til afsökunar að um „mann- leg mistök” hafi verið að ræða og að- eins tíu glös hafi verið framleidd með eitri í staðinn fyrir vítamín. Það voru sjálfsagt einnig mannleg mistök þeg- t íiiin’ - vr.íii -il,irn i n liii .iuiýy>iéáii. . VijV kröfðust ógildingar á honum. Vildu þeir breyta innbyrðis skiptingu lands- ins meðal ættingjanna en til þess þurfti að rifta samningnum. Ekki tókst sam- komulag um það meðal ættingjanna og brá því sonurinn á það ráð að stefna tengdasyninum og Kópavogskaupstaö. Og nú er staðan sú að komiö er að aö- alflutningi málsins. — En er ekki óeðlilegt að hefja framkvæmdir á svæðinu áður en niður- staða hefur fengist? „Jú, mér finnst það mjög óeðlilegt,” sagði Gunnar Guðmundsson, lög- maður sækjanda, það er að segja sonarins. „Og það er alveg ljóst að falli dómur mínum skjólstæðingum í vil mun ég gera bótakröfur á Kópavogs- kaupstað.” — Hver er staða þeirra húsbyggj- enda sem þama hafa hafið fram- kvæmdir? Verða líka gerðar kröfur á hendur þeim ef svo fer? „Það erum fyrst og fremst viö sem þurfum að standa skil á því,” sagöi Kristján Guðmundsson bæjarstjóri. „Hins vegar fórum við út í fram- kvæmdir þarna í trausti þess að málið leystist farsællega. Hér hefur ekki verið anað að neinu enda hald manna aö rétt væri að byrja að byggja þarna.” -KÞ Sæbólsland, landið sem deilt er um. Þar hófust byggingaframkvæmdir i fyrra þótt málaferli standi yfir um iandiö. D V-m yndGVA k Apa- plánet- unni Sex tilboð bárast í að gera flugstöðina í Keflavík fokhelda: LÆGSTA BOD109 MILUÓNUM UNDIR KOSTNAÐARÁÆTLUN Corp. í Bandarikjunum, sem er hluti af ITT samsteypunni, með boð upp á tæpar 249 milljónir og hæsta boð barst frá Eyfirskum verktökum, sem stofnaðir eru m.a. upp úr Norðurverki, upp á 288 milljónir. Munar því 83 milljónum á hæsta og lægsta tilboöi. Nú verða tilboðin skoðuö og gengið til samninga við einhvern verktakann. Þegar tilboða var leitaö í fyrsta áfanga var kostnaðaráætlun upp á 16,5 milljónir og var eitt tilboðið meira en helmingi lægra en tekiö var tilboði upp á tæpar 9,4 milljónir. -GS. Þaö rikti spenna i hópi verktaka í húsnæði varaarmáladeildar i gær, síðustu minúturaar áður en tilboðin sex voru opnuð og lesin upp. Almenna verkfræðistofan hafði áætlað kostnaö viö 2. áfanga stöövar- innar upp á liölega 314 milljónir króna. Annar áfangi felur í sér að steypa upp og gera flugstöövarhúsið fokhelt og glerja það. Byrjað verður um leiö og samist hefur við einhvem verktakann og á þessu að verða lokið í október ’85. Istak í Reykjavík reyndist eiga lægsta tilboðið og var það upp á tæp- ar 206 milljónir, eða 109 milljónum lægra en kostnaðaráætlun. Þá kom Steintak, sem nú er að byggja Seðla- bankann, og bauð 231,5 milljónir. KaUa má boö Hagvirkis jafnhliða því þar sem það var upp á 232,5 mUljónir en með fráviki upp á 222 milljónir. Hagvirki fékk fyrsta áfanga og hefur lokið honum. Næst kom ÁrmannsfeU, sem nú er að byggja útvarpshúsið, með boö upp á tæpar 248 mUljónir, þá Howard Tilboðsgögnin voru mjög um- fangsmikil enda liggur mikil vinna að baki hvers þeirra. Hér kanna þeir Sverrir Haukur Gunnlaugs- son, deiidarstjóri i varnarmála- deild, og Svavar Jónatansson, frá Almennu verkfræðistofunni, einn tilboðspakkann. -DVmynd: GVA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.