Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. 9 Útlönd Útlönd MINNSTILÖG- REGLUÞJÓNN BRETLANDS var skotinn við sendiráð Líbýu Vvonne Fletcher, sem lét lífið við sendiráð Líbýu í London í gær, var minnsti lögreglumaðurinn í öllu landinu. Allt frá því að hún var þriggja ára hafði hún látið sig dreyma um að verða lögreglukona. Hin 25 ára gamla Fletcher, jafnan kölluð „Litla ungfrú dirfska” í breskum blöðum, var aðeins 159 sentímetrar á hæð og hafði víða reynt fyrir sér til þess aö komast í lögreglu- lið sem hafnaöi henni vegna þess hve lítil hún var. Móðir hennar segir aö Fletcher hafi jafnvel leitað fyrir sér í Hong Kong. Loks fór svo að metropolitan-lög- reglan i London gerði undantekningu á reglunni um lágmarkshæð því að stúlkan þótti með allra efnilegustu nýliðum að öðru leyti. Yfirmenn hennar bera henni vel söguna og segja að hún hafi verið hörkudugleg, broshýr og hjálpfús. Unnusti hennar, Mike Liddle, 22 ára, stóð við hlið Yvonne Fletcher, þegar hún varð fyrir vélbyssuskothrinunni við líbýska sendiráðið í London. Hann er einnig lögreglumaður. Höfðu þau verið send til eftirlits á mótmæla- aðgerðum sem líbýskir námsmenn efndu til við sendiráðið. Sendum landsmönnum öllum bestu sumarkveðjur. Heath sakar Thatcher um að misbeita valdi sínu á þann hátt sem sé bæði hsttulegt bresku þjóðinni og Ihaldsflokknum. Edward Heath, fyrrverandi forsætis- ráðherra Englands, og erkifjandmaður Margrétar Thatcher, núverandi for- sætisráðherra, hefur gagnrýnt þessa flokkssystur sina mjög harðlega að undanförnu. Það gerðist í umræðu um hvernig eigi að stjórna London og öðrum stórborgum Bretlands. Aform ríkisstjórnarinnar um að leggja niður samkundur sem gegna hlutverki eins konar héraösþings í ýmsum borgum landsins eru að mati Heaths „hættuleg fyrir landið og Ihaldsflokkinn.” Heath sagði aö það væri mikilvægt aö bjarga hinu góða áliti flokksins og binda enda á „mis- beitingar ríkisstjómarinnar sem eru hinar verstu í 150 ár,” eins og hann orðaði það. Það sem fer svo í taugarnar á Heath og f jölmörgum öðrum er aö Thatcher hefur ákveðið aö fella niður borgar- stjómarkosningar í London á næsta ári með þeim rökstuðningi aö GLC (Greater London Counsil), stjóm stór- borgarinnar, muni verða lögð niður eftir 1986. Ákvörðun þessi hefur valdið mótmælum í öllum stjómmála- flokkum. I síðustu kosningastefnu Ihaldsflokksins var þessi leið kynnt og ríkisstjómin telur sig þess vegna hafa fengið umboö til að framkvæma hana. Þrátt fyrir öll mótmælin hyggst ríkis- stjórnin fara sínu fram í máli þessu. Umræddar stjórnir stórborganna em kunnar að þvi að veita miklu fé til ýmissa menningarstofnana og margir eru mjög kvíðnir yfir því sem muni gerast þegar þessar stjórnir verða lagðarniöur. Ingmar Bergman hættir við að hætta: Bergman ætlar að gera eina í viðbót Ingmar Bergman hefur lýst því yfir í sænska sjónvarpinu að hann hafi I hyggju að gera eina kvikmynd í viðbót áður en hann segir skilið við kvik- myndirnar fyrir fullt og allt. Aður hafði hann margsinnis lýst því yfir að Fanny og Alexander yrði hans síðasta mynd. En eftir að sú kvikmynd hlaut fjögur óskarsverðlaun á dögunum virðist honum hafa snúist hugur. ,,Eg á gamla hugmynd sem ég vil láta verða aö veruleika áður en ég hætti,” sagði Bergman. ,,Eg hef verið mjög hrifinn af bók Astrid Lindgren „Lotta pá Brákmakargatan” allt frá því að hún kom út fyrir 15—20 árum. Eg ræddi við Astrid Lindgren þegar bókin kom út um að fá réttinn til að gera kvikmynd eftir henni. En málið er ekki svo einfalt. Eg þarf að finna fimm ára bam sem hentar í hlutverkið og fimm ára böm verða fljótt sex ára svo kvikmyndatakan má ekki taka mjög langan tíma. Svo er þaö annað þegar maður gerir kvikmynd með bömum. Þau geta skyndilega fundið upp á því að leggjast í gólf ið og lýsa því yfir aö þau vilji ekki lengur vera með og þá stendur maður þar,” sagði kvik- myndageröarmaöurinn. „En það væri afskaplega gaman að Ingmar Bergman. Kveiktu óskars- verðlaunin í honum á ný? fá tækifæri til að helga sig þessu verkefni eitt sumar,” bætti hann viö. Þaö er auöséö aö þeir klæöast mcikCS Hönnun og litir eftir nýjustu tísku. Gæöin veita öryggi — öryggi sem helst þótt flíkin sé margþvegin. U K Snorrabraut 56, Glæsibæ, Álheimum 74. Simi: 27211 Gæðin eru landsþekkt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.