Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Blaðsíða 28
40 DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRlL 1984. Andlát ' Guðbjörg (Stella) Stefánsdóttir, fyrrv. matráðskona sjúkrahússins á Patreks- firði, lést 16. apríl. Kristín Magnúsdóttir, Skógskoti, Miö- dalshreppi, sem lést 12. apríl, verður jarðsungin á Kvennabrekku laugar- daginn21.apríl. Björn Ragnar Stefánsson frá Framtíð, Vestmannaeyjum, lést 7. apríl. Jarðar- förin hefur farið fram. Sæmundur Pálsson, múrari, Byggðar- enda 16, andaöist 16. april. Hjalti Jónsson frá Víöiholti, er lést 6. apríl, verður jarðsunginn frá Víði- mýrarkirkju laugardaginn 21. apríl kl. 14.00. ásóiar sandokum 10 peru bekkur og 10 peru himinn í setti Verð kr. 72.100 (gengi 12.4.’84) Þegar 2 eða 3 slá saman verða kaupin leikur einn. Greiðsluskilmálar. Nú er rétti tíminn að panta, verða brúnn og ná úr sér vetrarbólgun- um. Stuttur afgreiðslufrestur. Eigum einnig til ljósa- perur til afgreiðslu strax: Bellaríum Bellaríum S frá Wolf System, V-þýskar „SUPERSUN“ mest seldu sólbaðstækin á íslandi frá byrjun Páll Stefánsson umboðs- og heildvérslun Blikahólar 12 Sími (91) 72530 Ásrún Sigurjónsdóttir, hjúkrunarkona, Víöimel 19, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn26.þ.m.kl. 10.30. Unnur Eriendsdóttir lést 7. apríl sl. Hún var fædd á Akureyri 27. október 1903. Foreldrar hennar voru hjónin Sigurbjörg Olafsdóttir og Erlendur Sveinsson. Unnur giftist Guðmundi Markússyni, en hann lést fyrir nokkr- um árum. Unnur og Guðmundur eignuöust fjögur börn. Utför Unnar verður gerð frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30. Hrefna Amadóttir lést 10. apríl sl. Hún var fædd í Hafnarfirði 2. febrúar 1921, dóttir hjónanna Arna Sigurössonar og Sylvíu Isaksdóttur. Hrefna giftist aldrei en var í sambúð meö Benedikt Einarssyni í nokkur ár eða þar til hann lést árið 1980. Utför Hrefnu verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dagki. 13.30. Guðmundur Jónsson er látinn. Hann var kvæntur Guðrúnu Jónasdóttur. Guðmundur rak um áratuga skeiö fisk- verkun og útgerð, fyrst í Garðinum, síðar í Sandgerði. Utför hans verður gerð frá Utskálakirkju í dag kl. 14.00. FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSLANDS HF Aðalfundur Fjárfestingarfélags íslands hf. árið 1984 verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, jaröhæð, miðvikudaginn 2. maí nk. kl. 16. DAGSKRÁ: 1. Aðalfundarstörf skv. 15. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhiutabréfa. 3. Tillaga um aukningu hlutafjár félagsins. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins að Skólavörðustíg 11, Reykjavík, þrjá síöustu virka daga fyrir aöalfund og á fundardegi. Stjórn Fjárfestingarfélags íslands hf. Gunnar Sigurður Kristjánsson er lát- inn. Hann var fæddur á Isafirði 6. desember 1935, sonur hjónanna Jónu Guðbjargar Sigurðardóttur og Kristjáns Karls Péturssonar. Gunnar var giftur Höllu Hermóðsdóttur og eignuðust þau tvö börn. Þau slitu sam- vistum. Eftirlifandi sambýliskona Gunnars er Sigríöur Sigurðardóttir. Gunnar lauk búfræðiprófi frá Bænda- skólanum á Hvanneyri. Utför hans verður gerö frá Fríkirkjunni í Reykja- vík í dag kl. 13.30. Tilkynningar Páskagleði í IMeskirkju Annan páskadag, kl. 2.00, veröur brugöiö út af heföbundnu messuformi og efnt til páska- gleöi. Börn í sunnudagaskóla kirkjunnar flytja helgileik ásamt ungu fólki í sókninni. Þá veröa lesnar sögur og mikiö sungið bæði hreyfisöngvarog æskulýössöngvar. Frank M. Halldórsson. Vitni óskast Keyrt var utan í Mözdu 626 fyrir utan Mikla- garö mánudaginn 16. apríl sl. um tvöleytiö. Hefur þaö aö öllum líkindum verið gulur bíll. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefiö um atburðinn eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 32647 eöa snúa sér til lögregl- unnar. Félag áhugamanna um heimspeki Laugardaginn 21. april 1984 veröur á vegum Félags áhugamanna um heimspeki Samdrykkja um siöfræöi. Dagskrá hennar verður sem hér segir: Kl. 13.00: EyjólfurKjalarEmilsson: Um hið góða. Kl. 13.45: Þorsteinn Gylfason: Velferð eöa réttlæti? — Umræður — Kl. 15.20: Kristján Kristjánsson: Er siöferöileg hluthyggja réttlætanleg? Kl. 16.00: Vilhjálmur Ámason: Um siðfræði. — Umræður — Samdrykkjan verður haldin í Lögbergi, stofu 101. Stjórnin. KFUM og KFUK, Reykjavík Samkomur um bænadaga og páska: Föstudagurinn langi: Samkoma kl. 20.30 í kristniboðshúsinu Betaníu, Laufásvegi 13. Astráður Sigursteindórsson talar. Páskadagur: Samkoma kl. 20.30 að Amtmannsstig 2B. Sigurður Pálsson talar. Æskulýðskórinn syngur. Annar páskadagur kl. 20.30: Lofgjörðar- og vitnisburðarsamkoma. Hugleiðing: Lilja Kristjánsdóttir. Tekið á móti gjöfum í launa- sjóð. Allir velkomnir á samkomurnar. Páskatrimm Flugleiða 1984 Undanfarin ár hafa Flugleiðir gengist fyrir skíðagöngu og svigmóti í Hlíðarfjalli við Akureyri um páska í samvinnu við skiðaráð Akureyrar. Nú er komiö aö Páskatrimmi Flugleiöa 1984. Svigkeppni barna og unglinga fer fram á föstudaginn langa. Keppt er í aldurs- flokkunum 7—9 ára, 10—12 ára og 13—16 ára. Allir þátttakendur fá sérstaka viðurkenningu fráFlugleiðum. Skírdagsskemmtun Barð- strendingafélagsins Barðstrendingafélagið hefur nú starfað i 40 ár. Alla tíð hefur félagið haldið skemmtun fyrir eldra fólkið á skírdag. Skemmtun þessi veröur fimmtudaginn 19. apríl í Domus Med- ica við Egilsgötu og hefst kl. 14. A þessa skemmtun eru allir 60 ára og eldri, sem búið hafa í Barðastrandarsýslum eða eru ættaðir þaðan, velkomnir. Þama gefst gott tækifæri til að hitta kunningja og sveitunga. Kvenna- deild Barðstrendingafélagsins veitir kaffi og kræsingar. Einnig verður eitthvað til skemmtunar ásamt almennum söng. Kvennadeildin hefur undanfarin ár boðið 67 ára og eldri í eins dags ferð um Jónsmess- una og hafa þær tekist mjög vel. Stórdansleikur að Hlöðum annan í páskum Björgunarsveitin Hjálpin á Akranesi stendur fyrir stórdansleik að Hlöðum á Hvalfjarðar- strönd annan í páskum. Hljómsveitin Toppmenn sjá um f jörið. Rocky Horror Show. Sætaferðir með Sæmundi frá Reykjavík, Akranesi og Borgamesi. Sýning á verkum íslenskra arkitekta 1 tilefni 25 ára afmælis Byggingaþjónust- unnar er haldin sýning á verkum íslenskra arkitekta í húsakynnum Byggingaþjónust- uxmar aö Hallveigarstíg 1. Sýningin er opin alla virka daga kl. 10—18, frá 24. apríl til 28. apríl. Fyrirlestur um dreifingu nifteinda og segulmagn Prófessor AUan R. Mackintosh frá H.C. örsted-stofnuninni í Kaupmannahöfn flytur erindi á vegum eðUsfræðiskorar þriðjudaginn 17. aprU nk. klukkan 17.15 i stofu 158 í húsi verkfræöi- og raunvísindadeUdar við Hjarðarhaga. Erindið nefnist „Neutron scattering and magnetism”. öllum er heimill aðgangur. Skorarformaður. Flugleiðaganga Flugleiðagangan fer fram á páskadag og er opin öUum sem áhuga hafa. Keppt er í 4 km og 8 km skíðagöngu. Auk hefðbundinna verðlauna verða óvænt ferðaverðlaun tU heppinna þátttakenda. Dregið verður úr nöfnum þátttakenda í hvorri göngunni fyrir sig og eru helgarferðir til Reykjavikur í vinn- ing. Ekki er aUt búið enn því síðan verður dregiö út eitt nafn úr hópi aUra þátttakenda. Sá heppni hlýtur Oslóarferð í boði Flugleiða. Páskatrimm Flugleiða er fyrst og fremst hugsað til að hvetja fjölskyldur til að koma í Hh'ðarfjaU og taka þátt i skemmtilegri keppni þar sem þátttaka er aðalatriðið. Sýningar LISTASAFN ALÞYÐU við Grensásveg: Þar stendur yfir samsýning Valgerðar Hauksdótt- ur og Malcolm ChristhUf. Þau sýna grafík- myndir, teikningar og myndir unnar með biandaðri tækni. Sýningin er opin aUa virka daga, nema mánudaga, kl. 16—22 og ’m helg- ar kl. 14—22. Á páskadag verðursýninginopn- uð kl. 15.00. Sýningunni lýkur 1. maí. LISTMUNAHUSIÐ Lækjargötu 2: „Leir og lín” nefnist sýning er stendur yfir í Listmuna- húsinu. Þar sýna listakonumar Arndís Ögn Guðmundsdóttir, Bryndis Jónsdóttir, Heiða Björk, Herborg Auðunsdóttir, Hildur Sigur- björnsdóttir, Hjördís Bergsdóttir, Hjördís Guðmundsdóttir, Kristín Isleifsdóttir, María Hauksdóttir, Olöf Ingibjörg Einarsdóttir og Valgerður Torfadóttir. Á sýningunni eru leir- munir og textilverk. Sýningin sem er sölusýn- ing er opin virka daga frá kl. 10—22. Um helg- ar og helgidaga frá kl. 14—22. Lokað verður þriöjudaginn 24. apríl. Sýningunni lýkur 29. apríl. Myndlistarsýning á Húsavík Fimmtudaginn 19. april opnar Guðmundur Björgvinsson sýningu í Safnaðarhúsinu á Húsavík. Á sýningunni verða 40 myndir, akrílmálverk, pastelteikningar og myndir gerðar með blandaðri tækni. Myndefnið sækir Guðmundur í manninn og mannslíkamann. Sýningin verður opin alla daga kl. 14—22 og lýkur henni 24. apríl. Myndasýning í Neskirkju Á eftir guðsþjónustu á skirdagskvöld kl. 20.00 verða sýndar myndir frá páskahaldi í Israel, en í Israel halda menn páska á þrjá mismun- andi vegu. Kristnir menn minnast krossdauða og upprisu Jesú Krists. Samverjar koma saman til fórnarhátíðar og fylg ja í einu og öllu fyrirmælum Mósebókar. Þeir sem eru gyðingatrúar halda páska til þess að minnast brottfararinnar frá Egyptalandi. Fæstir þeirra sem ekki hafa komið til landsins helga gera sér grein fyrir því hversu páskahald er þar frábrugðið því sem viö eigum að venjast. Á myndasýningunni á skirdagskvöld mun sr. Frank M. Halldórsson leitast við að gera þessu nokkur skii. Þá munu konur í kven- félaginu annast kaffiveitingar. ÁSMUNDARSALUR við Freyjugötu: Þar stendur yfir sýning Hönnu Gunnarsdóttur á 35 vatnslitamyndum. Hanna hefur stundað nám bæði hér heima og erlendis en hún lauk burt- fararprófi í innahússhönnun og myndUst frá Cuyahoga coUege í Ohio í Bandaríkjunum. Súyning Hönnu stendur til 23. apríl og er opin aUa daga frá kl. 14—22. Á pálmasunnudag verður sýningin opnuð kl. 15.00. Kaffisala á sumardaginn fyrsta Skátafélagið Kópar og kvennadeildin Urtur halda sína árlegu kaffisölu i FélagsheimUi Kópavogs (uppi), á sumardaginn fyrsta, frá kl. 3-6. Hlaðborö meðgirnilegum kökum. Styrkið okkur í starfi. íslenska óperan Islenska óperan sýnir vinsælustu óperu Verdis, La traviata í kvöld, miðvUtudags- kvöld, síðasta vetrardag, kl. 20.00. Er það 28. og jafnframt síðasta sýning. Gamanóperan Rakarinn í SevUla eftir Rossini, verður sýnd í 20. sinn á mánudag, annan í páskum kl. 20.00.1 helstu hlutverkum eru Sigríöur EUa Magnúsdóttir, Kristmn Sigmundsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Krist- inn HaUsson, Jón Sigurbjömsson, Guðmund- ur Jónsson og Elísabet F. Eiríksdóttir. Rakarmn í SevUla gerist á Spáni á síðustu öld og segir frá ungum greifa á biðilsbuxunum. Ekki gengur það erfiðislaust fyrir hann að ná ástum hinnar útvöldu því hann á við annan vonbiðil að etja. En sjón er sögu ríkari og ópera þessi er tilvaUn skemmtun fyrir unga sem aldna. Því er upplagt að slá botninn í gott páskafrí með því að sjá góða sýningu á óper- unni. Tónleikar Tónleikar að Breiðumýri Kristinn öm Kristinsson píanóleikari, Lálja Hjaltadóttir fiöluleikari og Þuríður Baldurs-' dóttir altsöngkona halda tónleika að Breiðu- mýri í Reykjadal þriðjudaginn 24. aprU kl. 21. A efnisskránni eru sónötur fyrir fiðlu og pianó eftú- Jón Nordal, W.A. Mozart, sjö sígauna- ljóð eftir A. Dvorak, íslensk söguljóð og fiðiu- tónlist eftir F. Kreisler og V. Monti. Tónleikar Kukls Kukl hefur ákveðið að auka framlag sitt til tónleikahalds í aprUmánuöi hér á landi. Áuk fyrirhugaðra tónleika þann 21. aprU í Félags- stofnun stúdenta, með Slagverki, Dái, P.P Djöf uls ég, hefur Kukl nú fært arma sina yf ir í Safari. Annan í páskum, eða þann 23. apríl, heldur Kukl grímuleik í Safari. Þetta verður grímubaU að fornum sið. Engin afsökun er tU fyrir að mæta ekki því grímur verða til við dymar fyrir aUa þá sem gleyma þeim heima. Þetta verða siðustu tónleikar Kukls um nokk- urra mánaða skeið. Sem fyrr verða gestir Kukls Slagverkur en auk þeirra bætast i hóp- inn P.P. djöfuls ég, Roggkha = Roggkha = Dromm og Lojpippos og Spojsippus. Nokkur skemmtiatriði verða Uka á dagskrá. Sem og fyrr verður verði stiUt í hóf eða 150 krónur. Ætti það ekki að spUla fyrir kvöldi hlöðnu spennu, æsingi og jafnvel hrolU. Tapað -fundið Silfrað drengjahjól hvarf frá Hvassaleiti Sex ára drengur varð fyrú- því óláni að tapa afmælisgjöf sinni, nýju Kalkoff drengjahjóli frá Hvassaleiti um fjögurleytið í gærdag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 30733 á daginn og 38709 á kvöldin. 70 ára afmæli á í dag, 18. apríl, Garðar Þórhallsson, aðalféhiröír Búnaöar- banka Islands, Karfavogi 46. Foreldr- ar hans voru Þórhallur Sigtryggsson kaupfélagsstjóri og kona hans Krist- björg Sveinsdóttir. Afmælisbarniö er erlendis: Hótel Bronsemar, Playa del Englesa, Grand Canary. Kona hans var Kristín Sölvadóttir. Hún lést fyrir tveim árum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.