Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Síða 32
44 DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. PÆMALAUS VerOLD DÆMALAUS 'V’ERÖLD Dæmalaus 'VeRÖLD IB Hinsanna heimsfrægð Heimsfrægðin á tslandi er eigin- lega bara tvenns konar. Annars vegar eru það þeir sem verðal heimsfrægir hér heima áður en þeir halda utan og svo hinir sem halda út í heim^alls óþekktir og verða svo heimsfrægir svona óvart. Það hlýtur að vekja athygli langtf út fyrir borgarmörk Reykjavíkur1 hófst í Miðfirði þegar María Heið- land fæddist á miðjum sjötta ára- tugnum, ætti eftir að draga dilk á cftir sér. Ef Weinberger og hundur hans ákveða að hundahald skuli leyft á íslandi getur enginn mannlegur máttur breytt neinu þar um. Eigandi hundsins er yfirmaður stærstu herja heimsins. að íslensk stúlka, fædd og uppalin í Miðfirði, skuli deila húsi með ein- um valdamesta manni veraldar, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna. Og auk þess gegna því ábyrgðarstarfi að passa hund ráð- herrans en eins og allir vita þykir Bandarikjamönnum ákaflega vænt um hundana sina. er hundahald bannað og þjóðin því reynslulítil á þessu sviði. Ekki er von að svo háttsettur maður sem Weinberger hafi vitað af þessu áð- ur, en nú hlýtur stúlkan úr Miðfiröi að vera búin að segja honum allan sannleikann. Hundur Weinbergers er að sjálf- sögðu vinur kynbræðra sinna hvar í heimi sem er og mætti segja okkur að ævintýrið í Washington, sem Athyglisvert er að ráöherrann skuli velja Islending til starfans þegar haft er i huga að hér á landi EkkiáAuto84 Þessi glæsilegi 6-dyra Rolls Royce var ekki á bílasýningunni á Ártúnshöfða hvemig sem á þvi stendur. 1 Ameríku kostar hann aðeins 6 milljón íslenskar krónur, flaggstengur á þaki og blátt Ijós fyrir kóngafólk sem vill fara hratt yfir. Leðursæti og leðurteppi, valhnota í innréttingum, sjónvarp, video. o.s.frv. Fyrst kom Jónas með Baulumynd Saumastofan hefur verið synd 12 sinnum t Hlegarði: Páll Sturlaugsson og Helga Thoroddsen í hlut- verkum sínum. Leikf élag Mosfellssveitar til Norðurlanda: Sel ja f isk og kökur Leikfélag Mosfellssveitar, sem sýnt hefur Saumastofuna eftir Kjartan Ragnarsson að undanförnu við góðar undirtektir, hyggur á utanferð með leikinn og er því með allar klær úti. Fjáröflunarleiðir hafa m.a. falist í kaupum á ýsu svo lestum skiptir sem leikararnir hafa flakaö og selt sveitungum sínum. Þá hefur verið bakaö og afraksturinn seldur á Lækjartorgi. Ferðinni er heitið til Svíþjóðar og Danmerkur og veröur fyrsta sýningin í Uddevalla 13. júní. Þá veröur sýnt í Gautaborg á þjóðhátíöardaginn, 17. júní, og síðan farið yfir til Danmerkur þar sem sýnt verður í Thisted, sem er vinabær Mosfellssveitar, Oöinsvéum og Arósum. Nú er það Baltasar með Busavigslu. Menntaskólinná Akureyríí57ár: Frá Baulu til Busavígslu Menntaskólinn á Akureyri hefur fest kaup á málverki eftir Baltasar er nefnist Busavígsla á Akureyri og er stefnt að afhendingu fyrir 17. júní nk. Kaupverð: 50 þúsundkrónur. MA á nú veglegt safn myndverka alls konar sem prýöa vistarverur menntastofnunarinnár og mun láta nærri að þau séu nú 200 talsins. Allt öndvegisverk eftir fremstu lista- menn þjóðarinnar. Fyrsta málverkið sem skólinn eignaðist var Baulumynd eftir Ás- grím Jónsson sem Jónas Jónsson frá Hriflu, þáverandi kennslumála- ráðherra, færði skólanum aö gjöf árið 1927, fyrsta árið sem MA hafði formlegt leyfi til að útskrifa stúdenta. Síðan eru liöin 57 ár enda langt á milli Baulu og Busavígslu. María Heiðland f rá Staðarbakka f Miðfirði: Passar hund fyrír vamar- málaráðherra Caspar Weinberger vamarmála- ráðherra hefur stúlku úr Miðfirði í þjónustu sinni. Fyrir hálfu ári hleypti María Heiðland Sigurlaugsdóttir heim- draganum og hélt vestur um haf til enskunáms. Á 6 mánuðum hafa mál aftur á móti þróast svo að nú situr stúlkan frá Staöarbakka í Miðfirði, sem áður vann við véla- bókhald í Nóatúni, í stofum Casp- ars Weinberger, vamarmála- ráöherra Bandaríkjanna, og pass- ar hund hans. Eitthvað mun hún einnig vinna við heimilisstörf á ráðherraheim- ilinu og að sögn ættingja hennar hér á landi unir María hag sínum vel, kann vel við húsbónda sinn og hyggur á lengri dvöl ytra en upphaflega var ráð f yrir gert. Caspar Weinberger er fæddur 1918 og lögfræðingur að mennt. Er hann sagður einn af „sterku mönnunum” i ríkisstjórn Ronalds Reagans. María Heiðland Sigurlaugs- dóttir er 29 ára og fædd og uppalin á Staðarbakka í Miöfirði eins og fyrrsagði. -EIR. m---------------► Maria Heiðland Sigurlaugsdóttir frá Staðarbakka i Miðfirði, nú bú- sett á heimili varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.