Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1984, Qupperneq 37
uoor TlrjrjA
?>o n' ir'*h mr\jn
DV. FIMMTUDAGUR 26. APRlL 1984.
37
Dæmalaus "Veröld Dæmalaus Veröld Dæmalaus 'Verölp
Snú
snú
í sólar-
hring
Snú snú og aftur snú snú, snú snú í
heilan sólarhring. Þaö voru krakkar í
9. bekk Gagnfræöaskóla Akureyrar
sem fóru þá leið til aö afla fjár fyrir
skólaferöalag til Vestmannaeyja að
hafa maraþon í snú snú 16. apríl síðast-
liöinn. Byrjaö var klukkan hálfellefu
um morguninn og snúningnum ekki
hætt fyrr en hálfellefu daginn eftir.
Þegar blaöamaður DV leit inn í
íþróttahúsiö rétt áður en maraþoninu
lauk var ekki aö sjá mikil þreytumerki
á liðinu, kannski þó pínuiitil. Krakk-
arnir sögöu aö 31 heföi byrjað, 21 var
eftir, enginn haföi týnst síöan eitt um
nóttina. En hvaö skyldi nú vera
erfiöast við snú snú í heilan sólar-
hring? Jú, aö standa og bíöa eftir aö
hoppa, sögöu flestir. Erfiðast hafði
veriö milli 3 og 6 um nóttina, svo lifnaði
yfir fólkinu þegar fór aö birta. Og það
var samdóma álit hópsins aö þetta
Hoppað á Akureyri og siðan tí! Vestmannaeyja.
DVmynd JBH.
væri meiri þrekraur, en svo að nokkur
glóra væri aö legg ja út í.
Ekki vissu 9. bekkingarnir hvernig
fjársöfnunin haföi gengið, það komu
víst ekki mjög margir að fylgjast með
en sama var, sennilega lá heimsmet á
boröinu. Að minnsta kosti veröur leitaö
til Guinness um skráningu á afrekinu.
-JBH/Akureyri.
Drottningin og prinsinn.
Margrét II. Danadrottning er ákaf-
lega listelsk, sumir segja listræn.
Nýlega var kynnt í Kaupmannahöfn
jólaskeiö ein sem sett veröur á markaö
fyrir næstu jól en skeiðin er einmitt
hönnuö af drottningunni.
Nú ber ekki að skilja þetta þannig aö
drottningin hafi hér með hannað einu
jólaskeiöina sem Danir framleiða því
sú þjóð er afar iöin viö fyrirbæriö og
framleiöir afbrigöin í tugatali.
Þessi tiltekna skeið er aftur á móti
frá A. Michaelsen en sú ætt hefur
fengist viö jólaskeiöar í fjóra ættliði.
„Innblástur minn má rekja til Verdun-
altarisins Klostemeunburg í Vínar-
borg og mótíviö er Jesúbamið,” sagði
Margrét í hanastéli þar sem skeiðin
var kynnt. Á meöan á því stóö var
Henrik prins, eiginmaöur hennar, að
sinna skyldustörfum í skemmtigarð-
inum Dyrehavsbakken þar sem hann
opnar „rússíbanann” ár hvert viö
hátiölega athöfn. Fær hann sér þá sali-
bunu með frægum söngvurum og
leikurum og alþýðan horfir á.
Jóiaskeið drottningarinnar.
„Lucy
from
lceland”
Frægasti hundur í heimi, hún Lucy
hans Alberts, prýöir nú dósir sem inni-
halda íslenskan hundamat sem fram-
leiddur er í Keflavík. Að sögn þeirra
sem reynt hafa, þ.e.a.s. að gefa hund-
unum sínum, eru skepnumar vitlausar
í matinn og sleikja dósina jafnt aö
innan sem aö utan. Enda er hráefnið
hreint fyrirtak; innmatur úr
islenskum stórgripum, lifur, lungu,
afskurður af hrossakjöti, fiskimjöl og
þoL skhrogn svo eitthvað sé nefnt.
Framleiðendumir hyggja á útflutn-
ing og þá er ekki verra að hafa lit-
mynd af Luey á dósinni en eins og allir
vita sem komnir era til ára sinna hefur
næstfrægasti hundur í heimi, hún
Lassie, prýtt hundamatardósir svo
áratugum skiptir.
Á myndinni má s já Albert meö mynd
af Lucy, dósirnar og svo framleiðand-
ann, Gunnar Pál Ingólfsson.
-DV-mynd Bjarnlelfur.
HEIMSLJÓS
Boy George
græðir
Boy George hefur grætt
fyrsta tnilljón punda seöilinn
sinn (41,6 millj.) og þykir í
frásögur færandi að það tók
hann skemmri tima en bæði
The Beatles, Rod Stewart og
Elton John —18 mánuði.
Caine
leikstýrir
Eftir að hafa staðið fyrir
framan kvikmyndavélarnar í
yfir 50 kvikmyndum ætlar
Michael Caine nú að reyna
fyrir sér sem ieikstjóri.
Hefur keypt kvikmynda-
réttindin að skáldsögunni
Paris One eftir Jim Brady og
leikur einnig aðalhlutverkið.
Frú Carter
Rosalynn Carter, eigin-
kona Jimmy Carters, fyrrum
Bandaríkjaforseta, hefur
skráð æviminningar sinar.
Þar segir m.a. að hún sakni
þess að vera ekki lengur í eld-
línu stjórnmálanna og hún
myndi berjast við hlið manns
síns ef hann færi aftur í fram-
boð. „Ég er metnaðargjarn-
ari og pólitiskari en Jimmy,”
segir frúin.
Kvennahósi
kvænist
Roger Vadim, sá er eitt
sinn var kvæntur Brigitte
Bardot, Jane Fonda og fleiri
frúm, hyggst nú ganga í það
heilaga eina ferðina enn. Ann
Bidermann heitir hún i þettá
sinn og samtímis ætlar sá
franski að gefa út fyrstu
skáldsögu sina, Hungraða
engilinn.
Nærbuxna-
18 ára gamall Dani var hand-
(tekinn fyrir skömmu eftir aðl
I 300 kvennærbuxur höfðu fund-j
ist á herbergi hans. Voru þærj
I af öllum stærðum og gerðumj
| og flokkaðar eftir litum. Hafðij
! strákur stolið buxunum af j
snúrustaurum og eina afsökun j
. hans var: — Þær voru svo|
j fallegar.
SueEllen
í eldsvoða
Sue Ellen hefur óskað eftir |
| að hætta í Dallas. Uppsagnar-
frestur er 6 mánuðir og þá mun ]
frúin farast í eldsvoða á South-
fork þegar hún er að bjargaj
j litla John Ross úr eldhafinu.