Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Page 14
14
DV. LAUGARDAGUR 28. APRIL1984.
ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN ROKKSPILDAN
Rokkspildan brá undir sig betri fætinum og
hélt í heimsókn í bílskúrinn hjá hljómsveitinni
DÁ sem staðsettur er ofarlega á Hverfisgötunni
í bakhúsi og að sjálfsögðu í náinni sambúð við
bílaverkstæði eða eitthvað í þá áttina.
Er komið var að skúmum sjálfum flaug
manni í hug atvikið er ég og Jobbi vinur minn
álpuðumst eitt sinn, vel við skál, inn í miðja
sumarferð Alþýðubandalagsins að Stöng í
Þjórsárdal. Allaballar skoðuðu húsakynni sögu-
aldarbæjarins með mikilli andakt í fylgd
leiðsögumanns sem leiddi þá í allan sannleika
um staðinn. Jobbi vinur minn arkaði upp að
honum, tók um axlir hans til að styðja sig og
kallaði yfir hópinn: „Mér er sama hvað hann
segir, fólk, ég tel þennan kofa byggðan af
vanefnum.” En við erum víst komin langt út
fyrir efnið héma.
Hljómsveitina DÁ skipa þau Hanna
Steina, söngur, Hlynur Höskuldsson,
bassi, Kristmundur Jónasson,
trommur, Eyjólfur Jóhannsson, gítar,
Helgi Pétursson, hljómborö, og Heimir
Baröason, bassi, Hanna Steina hefur
áöur sungiö með ýmsum „neðan-
jarðar” hljómsveitum, Helgi og
Heimir koma úr Haugnum sáluga,
Hlynur og Kristmundur voru síöast í
„bransanum” á árunum 1969—71 og
léku þá saman í hljómsveitinni Dýpt
Hljómsveitin Dá.
um hljómsveitina Dá upphaflega fyrir
sér ræddi Helgi viö Hlyn um aö hafa
tvo bassaleikara í henni en þaö var
hugmynd sem hann haföi lengi iangaö
tilaðútfæra.
Aöspuröir um tónlistina kemur fram
að enn sem komiö er byggir hún mest á
hugmyndum þeirra „Haugs”manna. ■
„Tónlistin hjá okkur er enn sem
komið er algjör tilraunastarfsemi og
þar sem báöir „pólarnir” eru mjög
jákvæðir hefur þetta gengið vel hjá
okkur, allavega betur en við bjugg-
umst viö, og segja má aö dæmiö hafi aö
þessu leyti gengið vel upp hjá okkur,”
segir Helgi.
„Þeir gömlu hafa frekar sveigt sig
aö okkur til aö byrja meö heldur en
öfugt en það á sennilega eftir aö breyt-
astíframtíöinni.”
Undirritaöur hefur heyrt til Dá á
einum tónleikum Satt í Safari, og
varpar fram þeirri skoöun sinni aö
honum finnist tónlist þeirra dökk en á
síðan erfitt meö að skýra hvað hann á
viö er Dá spyr hann nánar út í þetta
atriði.
„Við getum varla gefið aðrar
skýringar á tónlist okkar en þær að
þetta er það sem viö höfum tilfinningu
fyrir og langar til þess að gera. Þetta
er þaö sem okkur Helga hefur lengi
langað til aö leika. Þaö sem skiptir
máli fyrir okkur öll, aö ég tel, er ekki
aö leita svo mjög eftir vinsældum
heldur fyrst og fremst aö fá ánægju
sjálf út úr verkum okkar og ef það
Hljómsveitin DÁ helmsött í bílskúrinn:
„TVEIK ANDSTÆÐm PÓL-
AR 1 LEIT AÐ SAMSTARFI”
ROKK-
PÁSKAR
Mikiö var að gerast í rokktón-
listarlífí Reykjavíkurborgar yfir
páskana sem kemur ekki á óvart
er haft er í huga að þessir dagar
eru svo heilagir að maður þorir
varla að hnerra af ótta viö helgi-j
spjöll og lítið hægt að gera ef
maður er ekki skíðaáhuga-
maður.
Fjörið byrjaði á miðvikudags-
kvöldið er Frakkar léku á Borg-
inni, Grafík í Safari og Kukl í
Nýlistarsafninu við Vatnsstíg.
Baraflokkurinn brá sér suður og
lék í Safari á skírdag, Drýsill lék
þar laugardaginn á eftir en þá
var Kukl ásamt ýmsum í
Félagsstofnun stúdenta og þess-
ari tónleikasyrpu lauk svo ann-
an í páskum með grímudansleik
Kukl í Safari.
Tónleikar Frakkanna á Borg-|
inni eru athyglisverðir fyrir þá
sök að það var svanasöngur þess
staðar í annað sinn og
stemmningin eftir því, svona1
álíka og í meðaljarðarför. Bara-
flokkurinn kom engum á óvart í
Safari með pottþéttum leik sín-
um en þessi sveit kemur senni-
lega til með að fylla upp í það
tómarúm sem Egó lætur eftir ág
ef einhver gerir það á annað
borð. Þeir tónleikar sem hér
verður greint hvað nánast frá er
grímuball Kukl í Saf ari.
Undirritaður mætti þar um
miðnættið, til að losna við Zorro-
hlutverkið, og höfðu þá Oxmá
tekið eitt lag, P.P. djöfuls ég
nýlokið sér af en Slagverkur var
á fullu á sviðinu með Diddu í
broddifylkingar.
Kjartan Kjartansson í mixinu
sem þýddi að áheyrendur
heyrðu best í trommunum, lítið í
Diddu, og hinir skiluðu sér svona
með höppum og glöppum. At-
hyglisverð sveit í þyngri kanti
nýbylgjurokksins.
Aðalnúmer kvöldsins var
Kukl með Einar öm í broddi
fylkingar en hann hefur verið
hér í mánaðarfríi frá skóla sín-
um í London. Kukl er sennilega
eina hljómsveit landsins sem
reynir að halda NIT-hugmynd
Einars á lofti, og kemur engum
á óvart, og leika samkvæmt því
(NlT=nýíslensk tónlist) en hug-
takið varð tU er Purrkur PiUnikk
var upp á sitt besta. Eins og ég
skU hugtakið gengur það helst út
á að feUa þunga nýbylgju inn í
sálarlíf íslenskrar rokktónlistar,
tónlistarsköpun þeirra félaga
hreint og beint springur framan
í andlit, eða grimur, áheyrenda,
þrýstir sér í meðvitund þeirra og
þótt þú hafir í sjálfu sér engan
áhuga á henni kemstu ekki hjá
því að taka tiUit tU hennar svona
svipað og ef drukkinn sjóari
ætlar sér að tala við þig á
skemmtistað hvað sem tautar og
raular.
Persónulega hef ég ekki mjög
gaman af tónlist Kuklsins en
geri mér hins vegar grein fyrir
því að hún er nauðsynlegur þátt-
ur í rokktónUst okkar þessa dag-
ana, því fleiri sem eru að pæla í
frumlegum eigin tónUstarhug-
myndum því betra.
-FRI
og Eyjólfur kemur úr Tappa tíkarrassi
sem barði á dyr poppguösins mikla i
fyrra.
„Þetta voru tveir andstæðir pólar í
leit aö samstarfi, annars vegar ég og
Helgi og hins vegar Hlynur og Kiddi,”
sagöi Heimir Baröason er viö ræddum
um tilurö hljómsveitarinnar. ,3g og
Helgi höfðum verið að leita að hljóm-
sveit til aö spila í æ siðan við hættum í
Haugnum og rákumst þá á þá félaga
þar sem þeir voru að „djamma” hér í
skúrnum,” bætti hann viö.
Þetta mun hafa veriö síðla árs í
fyrra en skömmu eftir áramótin bætt-
ist Eyjólfur svo í hópinn og í febrúar sl.
kom söngkonan Hanna Steina til sög-
unnar.
Er verið var aö velta hugmyndinni
tekst er markmiðinu náð,” segir
Heimir.
Helgi segir í þessu sambandi að alls
ekki sé rétt aö telja tónlist þeirra
byggjast á gamla „Haugsdæminu”.
Þaö sé hlutur sem hann aö minnsta
kosti vilji alls ekki viðurkenna.
„Hér er um allt annaö fólk aö ræða
og aUt annan móral i kringum þessa
hljómsveit,” segir hann.
Kristmundur bætir því við aö eðli-
, lega vUji þeir Uta á sig sem nýja hljóm-
sveit sem byggir ekki fyrirfram á
neinu öðru.
„Viö fylgjumst eiginlega ekkert meö
því hvað er aö gerast í „bransanum”
sjálfum enda alls ekki komin út í hann
ennþá. Enn sem komið er reynum viö
að hafa bara gaman af þessu en samt
tökum við þaö sem viö erum að gera
alvarlega og leggjum mikinn metnað í
lagasmíöarnar,” segir hann. -FRI
Skarrskal
hairn heita
Á fundi hins nýstofnaða
þungarokksklúbbs í Safari
nýlega var þessum merka
félagsskap gefið nafn,
SKARR, sem mun vera gam-
alt og gott gullaldarmál yfir
sverð. Gárungarnir eru þeg-
ar farnir að leika sér með
nafnið, t.d. með því að breyta
síðasta r-inu í n eða bara
sleppa því alveg.
Ýmislegt er á döfinni hjá
klúbbnum og það helst að
hann hyggst standa fyrir
hópferð á Donnington rokk-
hátíðina í sumar, eins og
greint var frá í síðustu
rokkspildu, en verð per ein-
stakling í þá ferð verður
mjög hagstætt, ekki yfir 15
þúsund spesíur og er staðfest-
ingargjald 1000 kr. sem borg-
ast verður í byrj un núní.
Formaður klúbbsins var
kosinn á þessum fundi auk
þriggja manna starfsst jórnar
og kom það engum á óvart að
Sigurður Sverrisson var
kosinn formaður.
-FRI