Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Side 25
DV. LAUGARDAGUR 28. APRlL 1984.
25
Það er ekki langt síðan þjóðkirkjan
fór að hafa opinber afskipti af þessum
friðarmálum eins og þau hafa þróast á
undanfömum árum og ekki vom allir
innan hennar sammála því að hún ætti
að skipta sér af þessum málum vegna
þess pólitiska stimpils, sem margir
vom búnir að setja á friðarhreyfing-
araar?
„Það hefur verið svo átakanlegt hér
á landi að ákveðin pólitísk öfl hafa
eignað sér ákveðin mál, orðið eins og í
þessu tilfelli eins konar friðareigenda-
félag. Það er að mati kirkjunnar af og
frá að mál sem varðar líf og framtíð
mannkyns sé einungis til umfjöllunar
hjá ákveðnum hópi manna. Þess vegna
hefur starf kirkjunnar núna upp á síö-
kastið ekki síst beinst að því að fá sem
breiðasta samstöðu í friðarumræðunni
og vekja sem flesta til meðvitundar
um þá vá sem er fyrir dyrum, með
fræðslu og upplýsingu alls konar.”
Nú voru það ailt í allt 16 friðarhreyf-
ingar, sem stóðu að þessari friðarviku
í Norræna húsinu. Er ekki erfitt að
samræma starf allra þessara hreyf-
inga?
,íiins og þessi friðarvika var skipu-
llögö og samkomuiag varð um, var öll-
mm sem skilgreina sig sem friðar-
hreyfingu og telja sig vinna að friði í
Iheimi boðið að eiga aöild. Þama var
isett upp það sem við getum kaliað
upplýsingamarkað þar sem allir þessir
aðilar gátu kynnt þær leiðir sem þeir
sjá vænlegastar til friðar. Þetta var
gert bæði í upplýsingabásum og á hin-
ium ýmsu fundum sem þama vom
haldnir og þannig gafst öllum þessum
aöilum tækifæri á aö koma sínum mál-
stað á framfæri. Og hinn venjulegi
Islendingur gat svo komið og kynnt sér
þessi mál og tekiö afstöðu til þeirra og
dregið af því sínar ály ktanir.
Þama var alls ekki verið að reyna
að innræta fólki eitt eða neitt heldur að
fá fólk til að skoða þessi mál sem ræki-
legast og mynda sér sína eigin skoöun.
Og ekki síst aö koma á samtali milli
fólks meö ólíkar skoðanir.
Eg held aö þetta hafi tekist þvi að
það var að mínu mati þverskurður
þjóðfélagsins, sem kom þama í Nor-
ræna húsiö, fólk á öllum aldri, úr öll-
um flokkum og úr öllum stéttum.
Þaö kom þarna til dæmis inn maöur
og segir við þann sem var í móttök-
unni: „Heyrðu, ég hef tekið þátt í
Keflavíkurgöngum síðastliöin 25 árin
og svo kem ég hér á friðarvikuna og þá
bara þekki ég ekki nokkurn mann,
þetta er allt annaö fólk.”
Eg held að þetta' sýni að með þessari
friðarviku hafi tekist aö ná umræðunni
að einhverju leyti upp úr þeim farvegi
sem hún hefur oft á tíðum verið í
hérna. Eg held að hinn almenni borg-
ari taki mun meira þátt í henni núna en
áður.”
Er þá kannski hinn pólitíski stimpill
að hverfa af umræðunni?
„Þetta er auðvitað pólitískt mál en
á ekki að vera flokkspólitískt. Menn
verða að átta sig á því að það erum við
sem erum ábyrg en ekki aðeins stjóm-
málamennirnir. Og við höfum tök á því
hérna á Islandi hinir almennu borgar-
Texti: Sigurdur
Þér Salvarsson
Myndir: Gunnar
Y. Andrésson
ar aö láta muna um okkur vegna þess
að við getum náð til stjómmála-
mannanna, við getum bankað upp á
hjá forsætisráðherranum og spjallaö
við hann, sem væri óhugsandi í öðrum
iöndum. Þannig getur hinn venjulegi
Islendingur haft sitt að segja. A
alþjóðavettvangi, þar sem Island telst
ekki til stóru nafnanna, gæti það látið
að sér kveða með því að taka hraust-
lega í árina varðandi friðarmál.”
Áður en friðarvika hófst urðu
nokkrar deiiur út af því hverjir ættu að
taka þátt i henni og hverjir
ekki.Kirkjan gekk þar á milli og tókst
að ieysa málið. Heldurðu að kirkjan
ætli sér að reyna að taka að sér að
verða einhvers konar sameiningar-
tákn fyrir allar þessar friðarhreyfing-
ar?
„Við undirbúninginn vann kirkjan
að því að þessi friðarvika yrði opin öll-
um sem vilja starfa að friði. Menn
greinir mjög á um leiðir, sumir telja aö
sú leið sem Varðberg boðar sé ekki leið
til friðar. Varðbergsmenn telja hins
vegar alfarið að svo sé. Fyrsta skrefið
tel ég því hafi verið að fá menn til aö
tala saman og vinna saman. Síðan er
svo að athuga hvort þessar hreyfingar
geta raunverulega unnið saman aö
einu marki mjög náið eða hvort þær
kjósa aö vinna hver með sínum hætti
en að sameiginlegu marki. Allir vilja
f rið. Það f er ekki á milli mála.
En það eru mörg sameiningartákn-
in. A lokadegi friðarvikunnar var
ræðumaöur Æskulýðsnefndar Alþýðu-
bandalagsins nýbúinn að tala on var
með kornabam í fanginu. Ræðu-
maður Varðbergs stóð við hlið hans
ogier eitthvað að kjá framan í barnið
og leika sér við það. Og þá segir maöur
sem sat við hliðina á mér: „Hér má nú
segja að þessi vaka hafi tekist þegar
lambið og ljónið eru farin að leika sér
saman.”
Eg tók auðvitað undir þessi orð
mannsins en sagði honum ekki frá því
að þessir tveir menn eru svilar. En
svona getur þetta verið á Islandi! ”
Var eitthvað sérstakt sem kom þér
á óvart á friðarvikunni eða vakti sér-
staklega athygli þina?
„Eg held að allir hafi verið mjög
snortnir af því sem þau sögðu öldur-
mennin tvö, Hulda A. Stefánsdóttir og
séra Jakob Jónsson, sem reyndar eru
168 ára samanlagt. Við ættum að gera
meira að því að hlusta einmitt á fólk
með þessa miklu lífsreynslu, sem er
búið að lifa fleiri heimsstyrjaldir og sjá
þá lífið "í öðru samhengi en viö sem
yngri erum. Hulda sagði til dæmis eitt-
hvað á þá leið aö hún þekki ekki lengur
þessa þjóð sem hún sé að tala við og
breytingin haf i gerst með tilkomu s jón-
varpsins. Núna sé sjónvarpið inni á
fólki og miðli því upplýsingum, sem
gjörbreyti hugarheimi þess. Hún sagði
sögu af litlum dreng sem fékk eitthvert
stríðsleikfang í afmælisgjöf og byrjaði
að leika sér að því að skjóta fólk. Þá
segir hún: „Þetta má ekki, þú veist að
þetta má ekki.” „Jú, víst,” segir hann.
„Nei,” segir hún, „það má ekki skjóta
fólk, þú veist það.” Og þá svarar
drengurinn: „Af hverju gera þeir það
efþað má ekki?”
Hann var jú búinn að sjá það í sjón-
varpinu upp á hvem einasta dag að
það er alltaf verið að skjóta. Og það
læra bömin sem fyrir þeim er haft.”
Hvað tekur nú við að lokinnl þessari
friðarviku. Hveraig á að halda starfinu
áfram?
„Það hafa nú komið fram beiðnir
víða aö utan af landi um að fá þau
erindi sem þama voru flutt útgefin og
þá iika flutt i útvarpi eöa sjónvarp.
Mér finnst þaö eðlilegt að svo verði.
Fólk utan Reykjavíkur á að hafa sama
aögang að upplýsingum og við sem hér
búum.Hins vegar fannst mér útvarpið
gera þessu afskaplega góð skil. Þaö
kom útvarpsdagskrá strax á páskadag
með efni frá vikunni. Fréttaflutningur-
inn frá vökunni var ákaflega hlutlaus
oggóður.”
En það hefur ekkert verið ákveðið
um framhald á þessu samstarfi sem
þaraa tókst?
„Nei, það hefur ekkert verið ákveð-
iö í þeim efnum enn en samstarfs-
nefndin ætlar að koma saman aftur
bráðlega og leggja á ráðin með hver
verði næstu skrefin.”
Hvað með hina umtöluðu friðar-
fræðslu í skólum. Hefur kirkjan tekið
einhverja afstöðu til þeirra hug-
mynda? •
„Nei, hún hefur ekki gert það enn
sem slík en hvetur auðvitaö mjög að
uppeldi til friðar. Það má segja að
kristinfærðikennsla í skólum sé friðar-
fræðsla og öll kennsla í samskiptum
fólks aö taka tillit til hvert annars
sé friðarfræðsla. En varöandi þetta
frumvarp um friðarfræðslu sem liggur
fyrir Alþingi býst ég við aö þaö komi til
tals á fundi kirkjuráðs sem kemur
saman bráðiega.
Að mínu áliti er meginmálið og auð-
vitað sjálfsagt mál að námsefnið sé
miðaö viö þroska einstaklingsins
hverju sinni. Það verði ekki farið að
kenna margbrotin hernaðarbandalög
og slíkt á unga aldri.”
Ert þú persónulega hræddur við að
fara með þessa svokölluðu pólitísku
friðarfræðsiu inn í barnaskólana?
„Þetta er vandaverk og reynir ekki
hvað síst á upphafsvinnuna, gerð
námsefnisins og skipulag kennsiunnar
svo aö þarna verði ekki illa haldiö á
málum. Það er svo auðvelt að hafa
áhrif á böm. En auðvitað byrjar þetta
allt heima. Friðarfræðslan þarf ekki
síst aö eiga sér stað inni á heimilunum,
aö böm læri aö taka tiliit til sins nán-
asta umhverfis.
Eg held hins vegar að ófriðar-
fræðslan, sem fjölmiðlar veita okkur,
sá hættuiegur þáttur því hún kemur
inn um bakdymar hjá fóiki. Böm
skynja það ómeðvitað að það leysir
vandamálin að beita ofbeldi, eins og
þau sjá í sjónvarpsþáttum. Eitt byssu-
skot eða eitt hnefahögg, það leysir
vandann.”
Er eitthvað sérstakt sem þú telur
mikilvægara en annað í
friðarbaráttunni?
„Friðarstarf kirkjunnar hefur staö-
ið yfir í nær tvö þúsund ár. Orð Krists
eru aö mínu mati leiðarljósin i aliri
friðarbaráttu. En hvaö varðar hina
sérstöku áherslu á baráttu gegn kjam-
orkuvá held ég aö þaö skipti miklu
máli að fólk geri sér grein fyrir hinni
ógnarlegu vá og tali um þessi mál sin á
milli. Láti ekki mata sig, heldur vakni
til meðvitundar og ræöi þetta yfir
kaffiboilanum, við samstarfsfólk sitt
og fjölskylduna. Og sömuleiðis er
mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir
þvi að við getum náð markinu ef við
vinnum saman. I þvi felst vonin. Þó að
mönnum finnist það eins og að ausa
upp Atlantshafið með teskeið, þá hefst
það ef þaö eru nógu margarmiiljónir
manna aðausa.”
-SþS
Teikningar:
fengnar ad laini ilr
friðarfræðsluriti
norsku kirkjunnar
\ p§
ill m< >a\v<