Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1984, Side 42
42
DV. LAUGARDAGUR 28. APRlL 1984.
Boltinn
Boltinn
Boltinn
Bestu
leikmenn
ensku
deildanna
1983
Paul Walsh, kosinn
efnilegasti leikmaður
á Englandi í ár.
- að áliti
þeirra sjálfra
Eins og skýrt hefur verið
frá á íþróttasíðum DV þá
gekkst PFA =Professional
Footballers Association,
(félag atvinnuknattspyrnu-
manna) fyrir kosningu á
besta leikmanni í Englandi
árið 1983 og einnig efnileg-
asta leikmanninum fyrir
sama ár.
Ian Rush vann fyrrnefndu verðlaun-
in en hann var kosinn sá efnilegasti í
fyrra.
Það var hins vegar Paul Walsh sem
talinn er vera efnilegasti leikmaður
ensku knattspymunnar í dag.
Sá næstefnilegasti var Steve Nicol
hjá Liverpool og þriðji var Steve
Hodge hjá NottinghamForest.
Sérstök verðlaun fyrir gott starf í
þágu knattspymunnar féllu í skaut Bill
Nicolson sem var framkvæmdastjóri
Tottenham á sjöunda áratugnum er
liðiö var það besta í Englandi.
En leikmenn ensku knattspymunn-
ar völdu einnig besta lið í hverri deild,
þ.e. ellefu bestu einstaklingana í
hverri deild. Hér á eftir fer listi yfir þá
leikmenn sem hlutu kosningu í deildun-
um f jórum ásamt stuttri kynningu.
Fyrstadeild:
Peter Shilton (Southampton), Mike
Duxbury (Man.Utd.), Mark
Lawrenson, Alan Hansen (Liverpool),
Kenny Sansom (Arsenal), Bryan
Robson (Man Utd.), Graeme Souness
(Liverpool), Glenn Hoddle
(Tottenham), Ian Rush, Kenny
Dalglish (Liverpool), Frank Stapleton
(Man.Utd).
Það er óþarfi að kynna þessa menn
nánar, það vita allir hverjir þeir em.
Það vekur hins vegar athygli að
atvinnumennirnir ensku hafa valiö
næstum sama lið og spekingar DV
gerðu þann 14. janúar sl. eins og með-
fylgjandi úrklippa sýnir.
Það er aðeins Alan Hansen sem ekki
var í liði DV en Alvin Martin er í hans
stað.
önnurdeild:
Alex Williams (Man. City), Mike
Sterland (Sheff Wed.), MikeMcCarthy
(Man. City), Mike Lyons (Sheff.
Wed.), Joe Jones (Chelsea), Gary
Megson (Sheff. Wed.), Jimmy Case
(Brighton), Tony Grealish (Brighton,
nú WBA), Kerry Dixon (Chelsea),
Kevin Keegan (Newcastle), Mark
Hatley (Portsmouth).
8 af þessum 11 eru úr fjórum efstu
liðunum. Williams leikur nú sitt fyrsta
heila keppnistímabil í deildinni og er
óhætt aö segja að hann fari vel af staö.
Mike McCarthy, félagi hans hjá City,
'Jfe
Sfc;í%.
Lið vetrarins
Mlke Duxbnry
(MaocbesterUtd.)
Peter SbUten
(Soathampton)
Mark Lawrenson AlvtnMartin
(Liverpool) (WestHam)
Kenny Sansom
(Arsenal)
Graeme Souness Glenn Hoddle. Bryan Robson
(Uverpool) (Totteoham). (MancheaterUtd.)
Kenny DalgUsh
(Líverpool)
lanRush
(IJverpool)
Frank Stapleton
(ManchesterUtd.)
Lið vetrarins sem DV-spekingarnir völdu þann 14. janúar sl. Það er
næstum alveg eins og liðið sem atvinnumennimir völdu.
var keyptur til liðsins frá Bamsley í
haust. Hann er feikisterkur miðvörður
sem aidrei hefur leikið eins vel og
núna. Honum hefur tekist vel að fylla
upp í skarðið sem Tommy Caton
skildi eftir sig er hann fór til Arsenal.
Að Mel Steriand var valinn sem hægri
bakvörður kemur nokkuð á óvart en
hinir tveir Wednesdaymennimir hafa
blómstrað i vetur. Þetta em fyrrum
Evertonmennimir, Mike Lions og
Gary Megson. Joe Jones er velskur
landsliðsmaður (okkur til sællar minn-
ingar) og fyrrum leikmaður Liverpool.
Annar fyrrum Liverpoolmaður er
Jimmy Case hjá Brighton. Það lið á tvo
fulltrúa þarna sem teljast verður
skrýtiö, miðað við gengi liösins.
Engan skal undra hvernig framlín-
an er skipuð. Þetta gæti allt eins verið
1. deildar framlinan. Kerjy Dixon kom
til Chelsea frá Reading í haust og er nú
markahæstur í 2. deild með 29 mörk.
Keegan kemur á eftir honum með 24
mörk. Mark Hateley er fyrrum
leikmaður Coventry og gerði garðinn
frægan er hann skoraöi f jögur mörk í
landsleik U-21 árs liða Englendinga og
Frakka sem þeir fyrmefiidu unnu, 6—
1.
Hann er þriðji markahæstur með 22
mörk.
Þriðjadeild:
David Felgate (Lincoln), Gordon
Nisbet (Plymouth), Steve Bruce (Gill-
ingham), Malcolm Shotton, Bobby
McDonald, Trevor Hebbard, Kevin
Brock (Oxford), Bryan Flynn (Bum-
ley), Keith Edwards, Colin Morris
(Sheff. Utd.), Brilly Hamilton
(Burnley).
Leikmenn efsta liösins, Oxford, ríða
feitum hesti frá þessari veislu, eru
með fjóra fulltrúa i liðinu. Það er ekk-
ert skrýtið því að auk þess að vera efst
i deildinni þá náði liöiö langt i báðum
bikarkeppnunum.
Bobby McDonald er gamall refur
sem leikið hefur með Coventry og Man.
City. Kevin Brock þótti standa sig frá-
bærlega í hinum erfiðu bikarleikjum
gegn Man. Utd. Hann er aöeins 21 árs
en hefur þó leikið meira en 100 leiki
meðOxfordliðinu.
Bryan Flynn er orðið gamalt brýni
eins og sagt er, fyrrum fyrirliði
Welsara og Leeds. Félagi hans í Bum-
ley, Billy Hamilton, er n-írskur lands-
liðsmaöur og var einn af bestu leik-
mönnum þess á Spáni ’82.
Framlína Sheffield United kemur
vel út úr kosningunum. Þeir eru þama
báöir framherjarnir, Keith Edwards
sem gert hefur 40 mörk og er marka-
hæstur í Englandi og Colin Morris sem
einnig er einn af markahæstu mönnum
deildarinnar. Bikarliðin Plymouth og
Gillingham hafa bæði sina fulltrúa í
liðinu. Nisbet er fyrirliði Plymouth.
Val David Felgate' í markiö kemur
nokkuð á óvart en hann er engu að
síður feikilega sterkur markmaður,
búinn að koma víða við þótt hann sé
aðeins 24 ára.
Fjórðadeild:
Roger Jones (York), Chris Price
(Hereford), Colin Greenall (Black-
pool), John McPhail (York), Steve
Richardson (Reading), Ian Snodin
Doncaster), Jimmy Harvey (Here-
ford), Trevor Quow (Peterborough),
Trevor Senior (Reading), John Byrne,
Keith Walwyn (York).
Yorkarar eiga þama fjóra. Mark-
maðurinn er fyrrum leikmaöur New-
castle, Stoke, Derby og Birmingham
svo að eitthvað sé nefnt. Hann er nú
orðinn 38 ára en er ennþá í banastuði.
John McPhail er fyrrum leikmaður
Sheffield United og varð 4. deildar-
meistari með þeim í hittiðfyrra og er á
góðri leið með aö endurtaka það nú
með York. John Byme og Keith Wal-
wyn em báðir sóknarmenn og hafa
verið lengi með York-liðinu og gengið í
gegnum sætt og súrt með því og reynst
vel.
Trevor Senior er markahæsti maður
3. deildarinnar í dag, hefur gert ein 36
mörk. Jimmy Harvey hefur leikið með
dsliði N-Ira. Hann kom frá Irlandi
Arsenal en lék aðeins þrjá leiki með
þeim áður en hann fór til Hereford.
SigA
i.lan'
1. DEILD
Liverpool 37 21 10 6 65-29 73
Man.Utd. 37 20 11 6 68-35 71
Q.P.R. 38 20 6 12 60-32 66
Nott. For. 37 19 7 11 66-41 64
Southampton 36 18 9 9 47-34 63
WestHam 37 17 7 13 56-48 58
Tottenham 38 16 9 13 60-57 57
Arsenal 38 16 8 14 65-53 56
Aston Villa 38 15 9 14 54-56 54
Everton 37 13 12 12 36-39 51
Luton 38 14 8 16 50-58 50
Watford 38 14 8 16 63—70 50
Norwich 37 12 12 13 44—42 48
Leicester 38 12 12 14 62-62 48
Coventry 38 12 10 16 51-61 46
W.B.A. 37 13 7 17 43-56 46
Birmingham 38 12 9 17 37—47 45
Sunderland 38 11 12 15 38-51 45
Ipswich 38 12 7 19 48-53 43
Stoke 38 11 9 18 38-62 42
NottsC. 36 9 9 18 44—63 36
Wolves 37 5 9 23 20-72 24
Boltinn
Boltinn
Boltinn