Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1984, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1984, Qupperneq 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 104. TBL. —74. og 10. ÁRG. —MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1984. Ovissa um frekari vinnu við stórmynd 20th Century Fox: LEIKSTJÓRA NUM ÓVÆNT SPARKAÐ Leikstjóri bandarísku stór- myndarinnar Enemy Mine, Richard Loncraine, var rekinn í gær. Þessi skyndilega ákvöröun 20th Century Fox kom mjög flatt upp á þá menn sem að undanförnu hafa unnið að gerð kvik- myndarinnar hérlendls. Símalínur milli Hollywood og Hvols- vallar voru rauðglóandi síðdegis í gær. Klukkan 19.30 var starfslið boöað til fundar í Félagsheimilinu Hvoli þar sem fyrrgreind ákvörðun var tilkynnt. Leikstjórinn hélt kveðjuhóf að Hótel Hvolsvelli í gærkvöldi. Hann yfirgaf samkvæmið skömmu eftir miðnætti, tók saman föggur sínar og hélt til Reykjavíkur. I morgun flaug hann til London. Hann vildi ekkert ræöa um brott- reksturinn við blaöamann DV. Það eina sem hann sagði var: „Island er dásamlegtland.” Með honum í flugvélinni út var framkvæmdastjóri myndarinnar, Stanley O’Toole. Hann hafði verið kallaður til Englands til viðræðna um framhald kvikmyndatöku. Ovissa ríkir um frekari tökur hér- lendis. Taka átti upp atriði viö risa- fururnar á Skógsandi í dag en hætt var við það. Myndatökumönnum hefur þó verið gefið til kynna að þeir verði send- ir á Skógasand síðar í vikunni en án leikara. , 20th Century Fox virðist ætla að halda áfram gerð Enemy Mine en ráða nýjan leikstjóra. Orðrómur var á kreiki í gær um að kvikmyndafólkið yrði sent til Ungverjalands næstu daga. „Þetta kom okkur öllum mjög á óvart. Starfsfólkiö er allt mjög ánægt meö það sem hann hefur verið að gera,” sagði breskur tæknimaöur sem blaöamaður DV spjallaöi viö. Ekki hefur verið upplýst hvers vegna leikstjóranum var sparkað. Ein útlendinganna sagði að ágreiningur hefði verið um umgjörð myndarinnar. „Framleiöendur vilja fá mynd- ina meira í Star Wars-stíl en leik- stjórinn vildi byggja meira á íslensku landslagi,” sagði viðmælandi blaðsins. DV hefur áður skýrt frá því að for- ráðamenn 20th Century Fox hafi í upp- hafi sett sig á móti því að myndin yrði tekin á Islandi sökum gífurlegs kostnaðar. Loncraine leikstjóri hótaði að hætta fengi hann ekki að mynda hérlendis. I kveðjuhófinu í gærkvöldi var augljóst var að leikstjórinn var niður- dreginn. „Hann var grátandi,” sagði einn samkvæmisgesta. „Iceland is a very wonderful country," var það eina sem Richard Lon- craine sagði þegar hann yfirgaf Litlagerði 10, einbýlishúsið sem hann hefur búið í á Hvolsvelli, klukkan hálfeitt í nótt. Á minni myndinni sést inn i kveðjuhófið sem leikstjórinn hélt i gærkvöldi. -KMU. DV-myndir Loftur. Fmnskukart- öflumartilað liökafyrir kjötsöluSÍS sjá bls. 2 — meira um skemmdar kartöflur bls. 6 Skotíðápáfa úrleikfanga- byssu — sjábls.9 Jólabókaver- tíðinbrást 3jaáríðíröð — sjá bls.20 Ganges-fljót mengaðaf mannakjöti — sjábls.45 Dómari rotaður íKeflavík — sjá íþróttir bls.21 «128 FLUGLEIDIR í VANDA- VEGNA HÁVAÐAREGLNA gætu þurft að leigja þotur til Ameríkuf lugs Alvarlegur vandi blasir við Flug- leiðum. Eftlr næstu áramót verður DC—8 þotum félagsins óheimilt að lenda í Baudaríkjunum vegna þess hversu há vaðasamar þsr eru. Hljóðdeyfar eru í hönnun fyrir þessa flugvélartegund. Þeir verða ekki komnir á markað fýrr en í fýrsta lagi um mitt næsta ár. Verð þeirra er áætlað um 70 miJljónir króna á hver ja þotu. Hvemig tímabilið frá áramótum til sumars verður brúaö er óvíst. „Við getum engan veginn treyst því að fá undanþágu. Yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda gefa ekki tilefni til þess aö ætla að undanþágur verði veittar,” sagði Leifur Magnús- son, framkvæmdastjóri stjómunar- sviðs Flugleiða. Nokkrir möguleikar eru í stöðunni. Félagið gæti keypt nýja hreyfla á DC—8 þotumar. Slíkt myndi kosta gífurlega fjármuni eða um 530 milljónir króna á hverja þotu. Til greina kemur að kaupa DC—10 breiðþotur en stykkið kostar vart undir 600 milljónum króna. Raunhæfasta leiðin út úr vandanum virðist vera sú að leigja þotur þangað til hljóðdeyfamir koma. Flugleiga myndi einnig reynast Flugleiðum þungur baggi en þó trúlega mun léttari en hreyfla- eöa breiðþotukaup. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.