Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Qupperneq 6
6
DV. FÖSTUDAGUR11. MAÍ 1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
María Estela Peron skuldar rikissjóði
9 milljónir.
SKULD
MARÍU
PERON
Einn af dómurum Argentínu úr-
skurðaði að tilskipun yfirvalda um að
gefa Maríu Estela Peron, fyrrum for-
seta landsins og ekkju Juan Peron,
eftir níu milljón dollara skuld við ríkis-
stjóð, stríddi gegn stjómarskránni.
Raul Alfonsin hafði undirritað
tilskipunina til þess að greiða götu þess
að María Peron sneri aftur heim til
Argentínu úr útlegð sinni á Spáni til
þess að vera fulltrúi flokks Perónista í
viðræöum við hann og stjórn hans um
samstöðu allra flokka og verkalýðs-
samtaka í aðgerðum til þess að leysa
efnanagsvanda Argentínu.
Dómarinn úrskurðaöi aö Alfonsin
forseti heföi gengið lengra en valdum-
boð hans náöi og að einungis þing
landsins gæti gefið eftir slíka skuld við
ríkissjóö.
SJÓRÁN
í GYANA
Fiskimenn í Gyana krefjast auk-
innar löggæslu og verndar vegna sjó-
rána. Nýlega var ráðist þar um borð í
togbát, en ræningjamir myrtu skip-
stjórann og vörpuðu honum og áhöfn-
inni fyrir borð.
Togarinn fannst síðar yfirgefinn en
af li og talstöð voru horfin frá borði.
88 togbátar aðrir frá sama útgerðar-
félagi eru lagstir í höfn og áhafnimar
neita að fara út á sjó aftur, nema þeim
verði tryggð öragg vernd gegn slíkum
atburðum.
Duartefagnar
samþykktBanda-
ríkjaþings
Jose Napoleon Duarte, sem almennt
er talinn hafa farið með sigur af hólmi
í nýafstöðnum forsetakosningum í E1
Salvador þó úrslit liggi enn ekki fyrir,
fagnaði í gærkvöldi þeirri samþykkt
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings aö
verja 1,3 mUljörðum Bandaríkjadoll-
ara til stuönings við Mið-Ameríku.
„Eg er mjög ánægöur að vita af því
að þingið skyldi sýna okkur þetta
traust með því að styrkja okkur með
fjárframlögum og lánum,” sagði
Duarte í samtaU við Reuters-frétta-
stofuna.
Hann sagði að sú staðreynd að þing-
ið setti engin skilyrði varðandi mann-
réttindamál „hvetur okkur tU að berj-
ast enn harðar fyrir mannréttindum og
gegn misbeitingu valds og dauða-
sveitunum, þannig að við getum öU ööl-
astfrið.” , ... . , .
.?ií’¥0O«fe,«hi^iteNg»sál i| W
Einn af forvígismönnum ólympíu-
hreyfingarinnar kemur til Moskvu í
dag í sömu mund sem afstaöa austan-
tjaldsríkjanna tU ólympíuleikanna í
Los Angeles í sumar er að byrja aö
skýrast.
Mario Vazquez Rana, forseti sam-
taka ólympíunefnda þjóðanna, vonast
tU þess að geta taUð forystumönnum í-
þróttahreyfingarinnar í Sovétrikjun-
um hughvarf um leikana sem eiga að
byrja í júlí.
Búlgaría og nú Austur-Þýskaland
hafa sagt aö þau ætli að sniðganga
leikana og bera viö samskonar á-
stæðum og Sovétmenn. Nefnilega
kvíöa fyrir öryggi íþróttamanna
þeirra, misnotkun Bandaríkjastjórnar
á leikunum í pólitískum tilgangi og
fleira.
LUdegast þykir að önnur
austantjaldsríki muni fara að þessu
fordæmi, að undanskiUnni kannski
Rúmeníu, sem oft sýnir meira sjálf-
stæði í utanríkisstefnu sinni, en ná-
grannaríkin, og hefur gefið til kynna
aö hún muni senda íþróttaUð.
Rana sagði á miðvikudag að ferð
hans til Moskvu hefði verið ákveðin í
desember í vetur en að hann mundi
færa ákvörðun Sovétstjómarinnar í tal
við íþróttafrömuði og ræða við
ólympíunefnd Sovétríkjanna. — „Viö
munum berjast fyrir því aö Sovétríkin
taki þátt í leikunum,” sagði hann, og
upplýsti að hann færi þessa ferð að
beiðni Samaranch forseta alþjóðlegu
ólympíunefndarinnar.
Fjöhniölar í Sovétríkjunum em nú
teknir til við að gagnrýna alþjóðlegu
ólympíunefndina jafnt sem bandarísk
yfirvöld. Liggja þeir Samaranch á
hálsi fyrir að hafa ekkert aðhafst í um-
kvörtunarefnum Sovétmanna varð-
andi undirbúninginn í Los Angeles. —
Þykú- þessi gagnrýni ekki auka
líkurnar á að Sovétmenn muni tilleið-
anlegir til aö skipta um skoðun.
Málinu hefur raunar lítið verið
haldið á lofti í sovéskum f jölmiðlum.
Los Angeles, gestgjafi sumarleikanna 1984.
Ballerínan krefst
25 milljón dollara
í skaðabætur
Ballerínan, Natalía Makarova, hefur
höfðað skaðabótamál þar sem hún
krefst 25 milljóna dollara bóta vegna
meiðsla hennar þegar hluti af sviöinu
hrapaði á hana í Kennedy-miðstöðinni
í Washington 1982.
Segist hún hafa hlotið varanleg
örkuml í slysinu sem varð við sýningu
á ballettinum „On your toes”. Strigi og
járnpípur höfðu fallið á hana. Hlaut
Natalia Makarova, fyrram stórstjáraa
viö Kirov-ballettinn, segir að meiðslin
spilli dansi hennar.
hún höfuöhögg og auk þess brotnaði
annað herðablaðið.
Slysiö varð 18. desember 1982, þegar
Makarova, sem áður var ballett-
stjama við Kirov-ballettinn í Moskvu,
var að koma í fyrsta skipti fram í grín-
ballett. Dansaöi hún aðalhlutverkið, en
það var skapmikil ballerína í sovésk-
um ballettflokki í heimsókn í New
York. — Sjálf stakk Makarova af til
Vesturlanda frá Sovétríkjunum 1970.
I málshöfðuninni heldur hún því
fram að framkvæmdastjórn Kennedy-
miðstöðvarinnar hafi vitað að slysa-
hætta stafaöi af sviðinu í því ástandi
semþarvar.
Yf irlýsing ísraelsks ráðherra veldur hneyskslun:
4 fleiðingar hryðju-
verkanna jákvaeðar”
Yuval Neeman, vísinda- og
þróunarmálaráðherra Israels, hefur
þyrlað upp miklu pólitísku moldviðri
heima fyrir með því að gefa í skyn að
bílsprengjuárásir á tvo palestínska
borgarstjóra á hinum hertekna
vesturbakka Jórdanár 1980 hafi haft
jákvæð áhrif.
Neeman, sem er úr hinum mjög
svo þjóðemis- og hægrisinnaða
Tehiya-flokki, sagði í útvarpsviðtali:
„Eg er ekki að segja að ég réttlæti
þær (sprengingarnar) en ég tel að
þegar á heildina er litið hafi þær haft
góðáhrif.”
Aðrir ísraelskir stjómmálamenn
voru fljótir aö taka afstööu gegn um-
mælum hans og átti það einnig við
um flokksbræður hans í Tehiya.
Nú eru í haldi ísraelsku lögregl-
unnar 25 Israelsmenn, flestir land-
nemar á vesturbakkanum og í
Golanhæöum, sem gmnaðir era um
aö tilheyra neðanjaröarhreyfingu er
hefur kosið að berjast með hryðju-
verkum gegn Aröbum.
Fréttir greina að sumir hinna
handteknu hafi játað að hafa staðið á
bak við árás á islamskan skóla í
Hebron í júlí síðastliönum þar sem
fjórir Arabar létu lífið. Heimildir
innan lögreglunnar segja að sami
hópur hafi sennilega staðið á bak við
bílasprengjuárásirnar 1980 sem
særðu borgarstjórana í Nablus og
Ramallah.
Er Neeman bar saman þessa tvo
atburði sagði hann að bíla-
sprengjumar hafi „ekki verið eins
alvarlegur glæpur í mínum augum
og morð á saklausu fólki sem svar
við morði á saklausum gyðingum.”
Annar borgarstjóranna missti
báða fætur fyrir neöan hné í
sprengjuárásinni.
Neeman er fyrsti ráðherrann til að
gefa í skyn að slíkar árásir á hinum
herteknu svæðum geti haft jákvæð
áhrif í för með sér.
Geula Cohen, þingmaður Tehiya-
flokksins, gagnrýndi Neeman fyrir
yfirlýsinguna og sagði aö ekki væri
unnt að hafa mismunandi stig yfir
þaö að hafna hryðjuverkum.
Þingmaöurinn Mordecai
Virshussky úr miðflokknum Shinui
hvatti Shamir forsætisráðherra til að
reka Neeman úr stjórninni vegna
yfirlýsingarinnar.
S3p!T5T
RÆÐIRIDAG VIÐ
ÍÞRÓTTAFRÖMUÐI
SOVÉTRÍKJANNA
Fjölmiðlar í Sovétríkjunum gera sem minnst úr ólympíumálinu en gagnrýna IOC