Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Síða 16
16
íþróttir
Tíu þúsund
fréttamenn
— áOLíLos Angeles,
þaraf þrír íslenskir
Gífurlegur fjöldi fréttamanna mun fylgj-
ast meö OL í Los Angeles og er reiknað meö að
um það bil 10 þúsund frétta- og blaöamenn
muni fylgjast með gangi mála.
Hver þjóð má senda ákveðinn fjölda blaða-
og fréttamanna og fá Islendingar að senda
þrjá slíka. Þórir Guömundsson verður okkar
maður á leikunum. Þórarinn Ragnarsson
verður fyrir Morgunblaöið og Stefán Jön Haf-
stein verður fulltrúi tltvarpsins í Los Angeles.
Þeir Þórir og Stefán hafa dvalist erlendis um
nokkurt skeið.
Til gamans má geta þess að Indland fékk
leyfi fyrir f jóra fréttamenn. -SK.
Ætti að verða
rúmt um okkur
Búið cr að raða þátttökuþjóðum á OL í Los
Angeles niður á ólympíuþorpin. Islenski
hópurinn mun búa með Svíum, Bretum, Kín-
verjum og Sovétmönnum og ef austantjalds-
þjóðirnar verða ekki á meðal þátttakenda œtti
að verða rúmt um okkar fólk. 'sk.
Gífurlegur
fjöldi fólks
— flykkist til Los Angeles
Gífurlegur fjöldi keppenda mun mæta á OL
í Los Angeles en ekki er enn vitað nákvæmlega
hve margir þeir verða. Endanlegur þátttak-
endafjöldi ræöst af hátterni austantjaldsþjóð-
anna en upphaflega var áætlaö að keppcndur
yrðu um 12 þúsund. Rússar hafa undanfarna
leika sent á milli 500 og 600 keppendur á OL og
f jöldi Austur-Þjóðverja er lítið minni.
Reiknað er með rúmlega sjö þúsuud farar-
stjórum og þjálfurum. Allt i aUt munu um 85—
90 þúsund snúast í kringum leikana sjálfa og
er þá aUt meðtalið en auðvitað ekki áhorf-
cndur. "SK.
Fimmtudagsmót
í f rjálsum
Fimmtudagsmót Frjálsíþróttaráðs Reykja-
víkur var háð í gærkvöldi í kulda og roki, sem
háði mjög árangri. Helstu úrsUt urðu þau aö
Jóhann Jóhannsson, IR, sigraði í 100 m hlaupi
á 11,2 sek. Einar Gunnarsson, UBK, annar á
11,4 og Stefán Þór Stefánsson, IR, þriðji á
sama tíma. Jóhann sigraði einnig í 200 m
hlaupi á 24,2 sck. Stefán Þór í hástökki, stökk
1,80. Jón Sævar Jónsson, UMFK, annar með
sömu hæð. Sigurjón Valmundsson, UBK, sigr-
aöi í langstökki, stökk 6,60 m. örn Gunnars-
son, USVH, annar með 6,50 m. Magnús Har-
aldsson, FH, sigraði í 800 m hlaupi á 2:10,2
mín. Steinn Jóhannsson, IR, annar á 2:10,6
mín.
Bryndís Hólm, IR, sigraði í 100 m hlaupi
kvenna á 12,7 sek. Einnig í langstökki, stökk
5,61 m. Eva Sif Heimisdóttir, IR, sigraði í 200
m hlaupi á 28,6 sek. Súsanna Helgadóttir, FH,
í 800 m hlaupi á 2:28,2 mín. og Inga Ulfsdóttir,
UBK, í hástökki. Stökk 1,55 m. hsím.
Vormót ÍR í
Laugardalnum
Frjálsíþróttamenn eru nú að byrja keppnis-
timabUið og er fyrsta stóra mótið vormót IR
sem verður haldið miðvikudaginn 16. maí kl.
18.30 íLaugardal.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
Karlar: 100 m hl., 110 m grhl., 3000 m hlaup,
til minningar um Jón Kaldal, hástökk og spjót-
kast.
Konur: 200 m hl., 1500 m hl., langstökk og
kringlukast.
Einnig verður keppt í 800 m hl. drengja og
100 m hl. meyja.
Þátttökutilkynningar þurfa aö hafa borist
til Guðmundar Þórarinssonar í síma 81701 eða
Hafsteins Oskarssonar Mosgerði 23, 108
Reykjavík, s. 33970 í síðasta lagi 14. maí.
ðsortAM rr nrmAíTiTT>'0'ó vo
DV. FÖSTUDAGUR11. MAl 1984.
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
íþró
Sveinn björnsson, aðalfararstjóri á
ólympíuleikana.
Nftján í íslenska ólympíuhópnum á Lo:
KEPPENDUR VERDA
FARARSTIORAR OG
tslenska ólympíunefndin tilkynnti í
gær á blaöamannafundi að hún hefði
vaUð átta íþróttamenn sem keppa á
ólympíuleikunum í Los Angeles fyrir
tslands hönd. Fram kom í máU Gísla
HaUdórssonar, formanns OL-nefndar,
að Island myndi senda tólf þátt-
takendur á leikana að öUu forfalla-
lausu og sjö fararstjóra og þjálfara,
eða alls 19 manna hóp.
Þeir sem ólympíunefndin hefur
þegar valið til þátttöku í Los Angeles
eru: Einar VUhjálmsson, Oddur
Lokastyrkur
til OL-fara
— var veittur í gær að upphæð 570 þúsund
Þeim íþróttamönnum sem í gær
voru valdir á OL-leikana í Los Angeles
og eins þeim sem líklegir þykja til út-
nefningar fyrir 2. júní var í gær veittur
lokastyrkur frá OL-nefnd og úr Afreks-
manuasjóöi ISI, samtals að upphæð 570
þúsund kr. Afreksmannasjóöur
veitti styrk að upphæð 270 þúsund og
OL-nefnd að upphæð 300 þúsund.
Afmæliskaffi
Valsmanna
Hið árlega afmæliskaffi Valsmanna
verður í félagsheimUi Vals við Hlíðar-
enda í dag kl. 16—18. Valur er 73 ára í
dag. Félagsmenn og velunnarar
félagsins eru hvattir til að mæta — fá
sér kaffi og ræða málin.
hæð 270 þúsund og OL-nefnd að upphæð
300 þúsund.
Þessi 570 þúsund skiptast þannig
miUi einstaklinga og sérsambanda:
Skíðasambandið
Tryggvi Helgason
Guðrún Fema Agústsd.
Vésteinn Hafsteínsson
Þráinn Hafsteinsson
OddurSigurösson
Þórdís Gísladóttir
Bjami Friðriksson
Kristján Harðarson
Einar Vilhjálmsson
Oskar Jakobsson
Kolbeinn Gíslason
Sundsambandið
Sigurður Einarsson
Haraldur Olafsson
Sigurður T. Sigurðss.
100 þús.
50þús.
50þús.
40þús.
40þús.
40þús.
40þús.
30þús.
30þús.
30þús.
30þús.
20þús.
20 þús.
20þús.
20þús.
10 þús.
-SK.
Ásgeir oftar
en Karl-Heinz
Rummenigge
— var valinn f níunda skiptið í lið vikunnar
Asgeir Sigurvinsson var nú í vikunni
valinn í niunda skiptið í liö vikunnar
hjá hinu viðlesna v-þýska knattspyrnu-
blaði „Kickers”. Aðeins einn leik-
maður hefur oftar verið vaUnn í liðið —
Herget hjá Bayer Uerdingen, sem
hefur eUefu slnnum verið í liðinu. Rudi
Bommer hjá Diisseldorf hefur verið
níu sinnum i liðinu, eins og Asgeir.
Karl-Heinz Rummenigge var valinn
í áttunda sinn í Uöið, eftir leik Ham-
burger SV og Bayem Miinchen. Hinn
stórefnilegi Buchwald, sem leikur með
Asgeiri hjá Stuttgart, var vaUnn í
fimmta sinn í Uðið sem sést hér á síð-
unni. -SOS
Lið vikunnar hjá Kickers.
fjórir f rjálsíþróttamenn, tveir sundmenn og t\
Fjórir keppendur verða valdir síðar í íslei
Guðrún.
Tryggvi.
Bjarni.
Kolbeinn.
Sund- og júdófólk
lyfjaprófað í gær
„tslenska lyfjanefndin prófaði í gær
fjóra íþróttamenn hérlendis og hafa
þeir aUir verið valdir tU þátttöku á OL-
leikunum. Fjórmenningamir eru:
Bjarni Friðriksson og Kolbeinn Gísla-
son júdómenn og sundfólkið Tryggvi
Helgason og Guðrún Fema Agústsdótt-
ir.
Þvagsýni þessara íþróttamanna
ásamt þvagsýnum sem Páll Eiríksson
læknú tók í Bandarikjunum fyrú
skömmu verða send til Svíþjóðar í dag
og er ekki að vænta niðurstöðu fyrr en
eftir fimm vikur. Þykir mörgum það
langur tími. Nokkuð er síðan lyfja-
nefnd ISI stóð fyrú lyfjaprófi á
lyftingabræðrunum Gylfa og Garðari
Gíslasonum frá Akureyri og eru niður-
stöður úr þeim prófum væntanlegar til
landsins um næstu mánaöamót. -sjf.
Ásgeir Sigurvinsson — sést hér skora annað mark sitt gegn Offenbach um sl.
helgi. Sendir knöttinn fram hjá Oliver Rock, úr vítaspyrnu.
■ ■
LOGREGLUSLAGUR
í KEFLAVÍK
íslendingar og Englendingar eigast þar við
á morgun f EM lögregluliða
Það verður sannkallaður lögreglu-
slagur i Keflavik á morgun. Þá mætast
lögreglulandslið tslands og Englands i
undankeppni Evrópukeppni lögreglu-
landsliða í knattspyrnu. Englendingar
mæta til leiks með leikmenn sem hafa
leikið með enskum atvinnumannalið-
um. Markvörðurinn Neil Freeman hóf
feril sinn hjá Arsenal en lék síðan með
Northampton, Grimsby, Walsall, Sout-
hend, Huddersfield og Birmingham.
Þá má nefna miðvallarspilarana
Ken Raper, sem lék áður meö
Torquay, og Micky Butress, sem var
leikmaður með Aston Villa og Gilling-
ham, Donato Nardinello framherji lék
eitt sinn með Coventry. Einn leik-
maður lék með Glentoran á Irlandi —
hann heitir Mark Caughey og vann það
sér til frægðar aö skora eitt sinn
fimm mörk í leik.
Það er því spurningin hvort honum
tekst að skora hjá Þorsteini Bjarna-
syni, landsliösmarkverði Islands, sem
mun verja mark íslenska liðsins.
Annar leikmaöur Keflavíkurliðsins
leikur meö liðinu — Einar Ásbjörn
Olafsson. -SOS
íþrótt
íþrótt
íþróttir