Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Blaðsíða 26
34
DV. FÖSTUDAGUR11. MAl 1984.
Ragnhildur Eyjólfsdóttir lést 3. maí sl.
Hún var fædd 13. október 1917.
Foreldrar hennar voru ögmunda
Ögmundsdóttir og Eyjólfur Gíslason.
Eftirlifandi eiginmaöur hennar er Ar-
mann Friðriksson. Þau eignuöust þrjú
böm. Utför Ragnhildar verður gerö frá
Bústaðakirkju í dag kl. 13.30.
Kjartan Jónsson, Garösenda 5, áöur
bóndi í Bitru, er lést 4. maí sl., veröur
jarðsunginn frá Bústaöakirkju
þriöjudaginn 15. maí kl. 13.30.
Þérunn Finnsdóttir verður jarösungin
frá Innri-Njarövíkurkirkju laugar-
daginnl2.maíkl. 14.
Jón Kristjánsson Fagrahvammi,
Bergi viö Keflavík, veröur jarösunginn
frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 11.
maíkl. 14.
Hólmfriöur Oddsdóttir frá Kirkjubæ
veröur jarösungin frá Akraneskirkju
laugardaginn 12.maíkl. 11.30.
Olöf Jámbrá Þórarinsdóttlr, sem lést í
Landspítalanum laugardaginn 5. maí,
veröur jarösungin frá Landakirkju í
Vestmannaeyjum laugardaginn 12.
maí kl. 14.
Níels Carlsson, Laugavegi 39, lést 9.
maí.
Séra Garöar Svavarsson lést 9. maí í
Landakotsspítala.
Magnea Halldórsdóttir frá Siglufiröi,
Seljavegi 31 Reykjavík, andaöist í
Sunnuhlíö í Kópavogi 9. mal
Finnbogi Helgi Magnússon skipstjóri,
Patreksfiröi, verður jarðsunginn frá
Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 12.
maíkl. 14.
Tapað -fundið
Teitur týndur
Heimilisköttur að Laufásvegi 2A hvarf frá
heimili sínu sl. miðvikudag. Þeir sem hafa
orðið hans varir eru vinsamlegast beðnir að
haf a samband í sima 23611.
Ferðalög
Helgarferð í Þórsmörk 11.13.
maí:
Brottför kl. 20 föstudag. Gist í Skagfjörðs-
skála. Gönguferðir um nágrennið. Farmiða-
sala á skrifstofu FI, Oidugötu 3, s. 19533 og
11798.
Dagsferðir sunnudaginn 13.
maí:
1. kl. 10.30 fuglaikoðunáSuðurnesjum. Farið
verður um Ha&iarfjörð, Sandgerði,
Hafnarberg, Gnndavik (Staðarhverfi) og
Alftanes.
Fararstjorar: Erling Olafsson, Grétar
Eiriksso i, Gunnlaugur Pétursson og Kjart-
an Magnússon.
Æskiiegt að hafa sjónauka og fuglabók AB
með í ferðina. Verð kr. 350.
2. kl. 13 Eldborgir—Leiti—Blákollur. Verð
kr. 200.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan-
megin. Farmiðar við bíl. Fritt fyrir börn í
fylgdfullorðinna.
Ferðafélag Islands.
Útivistardagur
fjölskyldunnar
Sunnudagur 13. maí
Kl. 10.30 Esja—Gunnlaugsskarð—Hábunga.
Hæsti hluti Esju. Verð 200 kr.
Kl. 13 Alfsnes-listaverk fjörunnar — pylsu-
veisla. Létt ganga fyrir alla fjölskylduna. Til-
valið fyrir byrjendur að kynnast dagsferðum
Utivistar. Ferðirnar eru liður í svæðiskynn-
ingu Utivistar 1984: Esja og umhverfi. Góðir
fararstjórar. Verð 150 kr. (pylsugjald innifal-
ið) frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá
BSl, bensinsölu. Simi/símsvari 14606.
Sjáumst!
Utivist, ferðafélag.
Fundir
Friðarhreyfing
Þingeyinga
I framhaldi af blysförinni fyrir friði á
Þorláksmessu ’83 og Friðarpáskum ’84 á
Húsavík er nú boðað tU aUsherjarfundar í
FélagsheimUinu nk. laugardag kl. 2 e.h.
Umræður verða um starfið framundan,
ræddar starfsreglur hreyfingarinnar og kosin
framkvæmdanefnd.
A eftir fundinn verður ungUngaskemmtun
og hefst hún kl. 4.
Hljómsveitin ZKJÁLWANDI leikur fyrir
dansi. Aögangseyrir á baUið er 50 kr.
Friðarsinnar eru hvattir til að fjölmenna á
fundinn og nýrir liðsmenn boðnir velkomnir.
Happdrætti
Dregið hefur verið í
listaverkahappdrætti Friðar-
viku '84
Vinningar, sem aUt eru verk eftir islenska
myndhstamenn, komu á eftirtahn númer:
862, 627 , 812, 1108, 2335, 1429, 2492, 15, 2003,
1909,2351 og 658.
Vinninganna má vitja á skrifstofu Banda-
lags ísienskra leikfélaga, Hafnarstræti 9,
Reykjavík, sími 16974.
Þann 30. aprfl síðastliðinn
var dregið í happdrætti
ferðasjóðs Bændaskólans á
Hvanneyri
Komu eftirfarandi númer upp:
1. v. svefnbekkur á miða nr. 35, 2. v. skrif-
borðsstóll á miða nr. 1860, 3. v. Tjaldborgar-
tjald á miða nr. 176,4. v. djúpsteikingarpottur
á miða nr. 995,5. kommóða á miða nr. 1114,6.
v. borðlampi á miða nr. 949 , 7. v. sjálfvirk
kaffikanna á miða nr. 1432, 8. v. svefnpoki á
miða nr. 1470, 9. v. Solon Islandus eftir Davið
Stefánsson á miöa nr. 254,10. v. ferðataska á
hjólum á miða nr. 1122.
Vinninga skal vitjað fyrir 1. október 1984.
Agóða af happdrætti þessu verður varið í ferð
sem brautskráðir búfræðingar fara í vor tU
Danmerkur. Frekari upplýsingar í súna 93-
7000.
Ferðanefnd.
Siglingar
Áætlun Akraborqar
Frá Akranesi P ra Reykjavik
Kl. 8.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 17.30 Kl. 19.00
GAUTABORG: HULL/GOOLE:
Francop.... .10/4 Jan .2/4
Francop.... .24/4 Jan .16/4
Francop.... ..8/5 Jan .30/4
Francop.... . 22/5 Jan .14/5.
KAUPMANNA-
HÖFN: ROTTERDAM:
Francop.... .11/4 Jan ..3/4
Francop.... .25/4 Jan .17/4
Francop.... ..9/5 Jan ..1/5
Francop.... .23/5 Jan .15/5
SVENDBORG: ANTWERPEN:
Francop.... .12/4 Jan ..4/4
Francop.... .26/4 Jan .17/4
Francop.... .10/5 Jan ..2/5
Francop.... .24/5 Jan .16/5
AARHUS:
Francop.... .13/4 HAMBURG:
Francop.... .27/4 Jan ..6/4
Francop.... .11/5 Jan .19/4
Francop.... .25/5 Jan ..4/5
Jan .18/5
FALKENBERG:
Helgafell... . 12/4
Mælifell.... .25/4 HELSINKI/TU-
Helgafell... .10/5 RKU:
Hvassafeli.. .25/4
GLAOUCESTER, Hvassafell.. .20/5
MASS.:
Jökulfell.... .13/4
Skaftafell... .25/4 LARVIK:
Francop ,.9/4
HALIFAX, Francop .23/4
CANADA: Francop ,.7/5
Skaftafell... .26/4 Francop .21/5
í gærkvöldi
I gærkvöldi
Guðmundur Kjærnested fv. skipherra:
Sjónvarpið ekki
verra en
„Eg hlustaði ekkert á útvarpiö í
gær, hafði annaö aö gera. Eg heyri
þó alltaf fréttirnar. Eg hef mjög gott
álit á útvarpinu yfirhöfuö, er ánægö-
urmeðþað.
Leikritið gat ég ekki hlustað á
vegnaanna.
Af sjónvarpsmálum yfirleitt þá
horfi ég alltaf á fréttimar og íslenska
þætti. Fréttimar er ég mjög ánægöur
erlendis
með en samtalsþættirnir, eins og
Kastljós, finnast mér úreltir. Þetta
er miklu frekar útvarpsefni heldur
en nokkum timann sjónvarpsefni.
Miðaö við þann tíma sem íslenska
sjónvarpið hefur úr aö spila þá finnst
mér þaö standa erlendum s jónvarps-
stööum fyllilega á sporði.
— Sjá umsögn um útvarpsleikrit á
bls.4.
Ný fyrirtæki
Baldur Rafnsson, Vattarnesi,
Fáksrúösfjaröarhreppi, og Daníel
Hálfdánarsson, Lækjarkinn 6, Hafnar-
firöi, reka sameignarfélag undir nafn-
inu Alfur sf. Tilgangur félagsins er aö
annast útgerö og fiskverkun aö Vattar-
nesi, Fáskrúðsfjarðarhreppi.
Sigurjón Guöbjömsson, Brekkustíg 15,
Njarðvík, rekur í Reykjavik verslun
meö vörur ætlaðar handverks- og lista-
mönnum, ásamt föndurvörum, undir
nafninu Handlist.
Tilkynningar
Heyrn og tal rannsakað á
Norðurlandi vestra
Einar Sindrason háls-, nef- og eyrnalæknir
ásamt öðrum sérfræðingum Heymar- og tal-
meinastöðvar Isiands verða á ferð á Norður-
landi vestra dagana 21. maí—26. maí nk.
Rannsakað verður heym og tal og útveguð
• heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði:
Oláfsfjörð21. maí.
Siglufjörð 22. mai.
Sauðárkrók 23. maí.
Skagaströnd24.maí.
Blönduós25.maí.
Hvammstanga 26. maí.
Afmælisrit
I tilefni 75 ára afmælis Páls Jónssonar bóka-
varðar í júní nk. verður gefið út rit honum til
heiðurs. Ritið verður ekki til sölu á almennum
markaði og mun kosta til áskrifenda kr. 700.
Áskrifendalisti liggur frammi á skrifstofu
Ferðafélagsins.
Sumarstarf skáta að
Úlfljótsvatni
Nú fer sumarstarf í hönd hjá Skátunum að
Ulfljótsvatni. Sumarstarfið hefst 8. júní og
stendur til 21. ágúst.
Aldur barna í sumarbúðirnar er 8—12 ára.
Sumarbúðastarf á Ulfljótsvatni byggist á
miklu og fjölbreytilegu útih'fi svo sem; Tjald-
búð, vatnaferðum, auk iþróttamóta.
Skráning í sumarbúðimar er alla virka
daga frá kl. 13.00—17.00 í síma 154 84, Snorra-
braut60. (Ath.örfáplásslaus).
Ég átti að skila kveð ju frá vinkonu
þinni og segja: Vertu bless!
ANDSTÆÐINGUM BÍL-
BELTA EKKIREFSAÐ
Allt bendir nú til þess að ekki verði
gripið til refsinga gagnvart þeim sem
ekki nota bílbelti. Frumvarp þessa
efnis hefur verið samþykkt í efri deild
Alþingis en allsherjamefnd neöri
deildar hefur lagst gegn því aö þaö
veröi samþykkt og er talið líklegt aö
þaö veröi niðurstaðan.
Allsherjamefnd neöri deildar lagöi
til aö málinu væri vísaö til ríkis-
stjórnarinnar sem er fagmál þing-
manna um aö mál verði jörðuð til
frambúöar. Flutningsmaður þessa
frumvarps var Karl Steinar Guönason,
þingmaöur Alþýðuflokksins. OEF
Símtal póst- ogsíma-
málastjóra truflað ?
„Þetta er svo alvarlegt að viö látum
einskis ófreistaö til aö hafa uppi á
þessum vanda,” sagöi Jón A. Skúla-
son, póst- og símamálastjóri, um
truflanir á símakerfinu aö undanfömu
sem gmnur leikur á að séu af manna-
völdum.
Jón lenti sjálfur í því í gær aö
truflanir komu inn á samtal sem hann
átti viö Akureyri. Hann lét rannsaka
máliö en ekki haföi truflunin veriö
skýrö í morgun.
Póst- og símamálastjóri kveöst eiga
bágt með að trúa því aö starfsmenn
stofnunarinnar standi aö skærum sem
þessum. Hann segir aö ekki hafi enn
tekist að benda á neitt haldbært tilfelli.
Hann viöurkennir þó aö upphringing-
ar, sem ritstjórn DV og fréttastofa út-
varps fengu síöastliðinn miövikudags-
morgun, bendi til að viljandi hafi veriö
tmflaö.
„Það hrelldi mig óneitanlega aö
heyra aö einhver skyldi vita meö svo
mikilli nákvæmni fyrirfram um
tmflanir,” sagði Jón A. Skúlason.
-KMU.
Em ovíst um þingslit
Enn er óvíst hvort tekst aö ljúka
þingi um næstu helgi, eins og stefnt
hefur verið að. Mikill ágreiningur er
milli stjórnarflokkanna um afgreiðslu
ýmissa mála og hefur ekki náðst sam-
staða þrátt fyrir mikil fundahöld
síöustu daga.
Skiptar skoðanir eru um afgreiöslu
húsnæðisfrumvarpsins og kosninga-
laganna en samkomulag hefur tekist
um þann spamaö í menntamálaráðu-
neytinu sem gert er ráö fyrir í „band-
orminum”. Þá bendir ýmislegt til aö
útvarpslagafmmvarpið verði ekki
samþykkt á þessu þingi og segja sjálf-
stæðismenn aö þaö sé vegna þess aö
framsóknarmenn hafi tafið fyrir mál-
inu.
Þá er nú risinn ágreiningur milii
flokkanna um niðurgreiöslu á áburöar-
veröi. Landbúnaðarráðherra lagði til í
ríkisstjóm í gær að til aö koma í veg
fyrir aö áburðarverð hækkaöi um
meira en 20% yröi þaö niðurgreitt og 60
milljónir teknar úr kjarnfóöursjóöi í
því skyni. Sjóðurinn er myndaöur af
skatti sem lagður er á kjarnfóður en
helstu notendur þess em eggja-,
alifugla- og svínabændur. Niður-
greiðsla áburðarverðs kemur hins veg-
ar sauöfjár- og kúabændum helst til
góöa. Eru margir sjálfstæöismenn
ósáttir viö að yfirfæra þannig fé til
hinna hefðbundnu búgreina.
-OEF.