Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Page 28
36
HEMMIGUNN - FRÍSKUR OG FJÖRUGUR:!
IAN DURY — 4000
WEEKS HOLIDAY:
Dury
kominn
í fönkið
Sú var tíðin að Ian Dury og þver-
hausar nans voru í framvarðasveit
pönkara og sungu um Sex and drugs
and rock’n roll. En nú er öldin önnur.
Dury hefur losað sig við þverhausana
og fengið tónlistarstúdentana til liös
við sig í staðinn. Jafnframt hefur tón-
listin breyst og þaö æði mikið.
Ekki svo að skilja að Duiy sé hlaup-
inn yfir i einhvem commercialisma,
sei sei nei, nú er það fönkið. Fönkið set-
ur sem sagt mestan svip á þessa nýju
plötu Dury með léttri jasssveiflu í
bland. Inn á milli eru róleg lög sem
Dury gerir skemmtileg skil með sinni
djúpu rödd. Stundum minnir hann mig
á Lee Marvin í laginu Wondering Star
sællar minningar. Tekið skal þó fram
að Dury getur sungið, en það var varla
hægt að segja um Lee Marvin.
Eins og vera ber í fönki eru blást-
urshljóðfæri mjög áberandi ásamt
þéttum bassa- og trommuleik. Lögin
eru mjög misjöfn að gæðum og á heild-
ina litiö er platan ekki mjög aðlaðandi.
Textar Durys hafa alltaf verið at-
hyglisverðir og þaö eru þeir líka á
þessari plötu. Hann hefur greinilega
gaman að rími og orðaleikjum og
stundum virðist hann leggja meira upp
úr þessum þáttum en innihaldi text-
ans. Engu að síður getur þetta oft á tíð-
um verið hinn fyndnasti samsetningur.
Dury hefur alla tíð verið maöur sem
er ófeiminn við að taka afstöðu og á
þessari plötu skipar hann sér í sveit
friðarsinna og eldflaugnaandstæðinga.
Utan á plötunni skartar hann friðar-
merkinu kunna og í einu laganna hvet-
ur hann til þess að sprengjan verði
bönnuð áður en hún drepi okkur öll.
Heyr. -SþS
Að gera gott úr öilu eins
og framleiðendur sælgætis
Hemmi blessaður Gunn gerir það
ekki endasleppt og nú er komin sóló-
plata með Hemma; Friskur og f jörug-
ur heitir hún og er víst réttnefni. Þaö
er óþarfi að hafa mörg orð um dreng-
inn þann er vippaöi sér frá knettinum
upp í útvarp og reif íþróttaþættina upp
með eftirminnilegum hætti þannig að
nú hlustar hálf þjóðin. Það er nú einu
sinni svo með okkur Islendinga aö við
eigum ekkert yfrið nóg af skemmtilegu
fólki. Afleiðingin er sú að þegar fréttist
af einum slíkum er hann svo umsetinn
og eftirsóttur að engu lagi er líkt. I
samræmi við þetta hefur Hemmi kom-
ið nærri nokkrum hljómplötum á síð-
ustu misserum. Rúnar Júl. og Geim-
steinn, að ógleymdum Gylfa Ægissyni,
. nældu í kappann og hafa nýtt hann vel.
Hemmi sendir vinum sinum nokkur
vel valin orð á plötuumslaginu og þar
getur hann þess meðal annars að þetta
sé „partí-plata” sem ætluð er „fjör-
ugu fólki á fullri ferð í fagnaði”. Orð-
sendingu sina endar hann svona:
„Listin (lystin) er hverful,”' sagði
gömul kona í Keflavik einu sinni og
bætti við, að þetta væri ágæt plata, en
roskinn maöur á Reyðarfirði sagði að
þetta væri lélegt.” Eg held að þetta sé
kjami málsins. Hemmi er að gera það
sem hann gerir best; að vera skemmti-
legur og enga tilgerð þarf hann. Þetta
er skemmtiplata fyrst og siðast og
þannig ber aö skoða hana og dæma.
Hún hefur sina kosti og sína galla eins
og allar plötur. Sumum finnst hún góð,
öörum léleg.
Lögin eru í takt við tilganginn; létt
og leikandi hröð og textar sömuleiðis.
A fyrri hliðinni eru erlend lög sem ekki
hafa heyrst í íslenskum búningi fyrr
(utan eitt eftir Sigvalda Kaldalóns).
Seinni hliðin er hins vegar eign Gylfa
Ægissonar. Fyrst er Minning um mann
og er það eina lagið sem ég tel að hefði
mátt sleppa. Hemmi veldur því tæp-
ast. Fjögur síðustu lög plötunnar eru
einnig gömul og hafa áður komið á
Halastjörnuplötum í sama búningi. Má
auðvitað deila um réttmæti slíkra ráð-
stafana. Verður það látið liggja milli
hluta aö sinni.
Utsetningar eru í Geimsteinsstíl og
auðheyrt að Þórir Baldursson stýrir
þar málum. Er notkun hljómborða
tæpast fyrir minn smekk. Hemmi
sjálfur syngur með sínu nefi, hann er
orðinn vel „miðlungs partífær”.
Sem sagt: skemmtiplata með
Hemma Gunn í búningi Þóris Bald.
-TT.
VAN MORRISON - LIVE AT THE GRAND OPERA HOUSE:
MORRISON A HEIMASLOÐUM
Van Morrison er einn af þeim tón-
listarmönnum sem vilja láta taka sig
alvarlega, enda eru textar hans oft á
tíöum beitt ádeiluljóð sem vert er aö
taka eftir. Morrison er fæddur í Belfast
á Norður-Iriandi og því hefur honum
þótt við hæfi að halda konsert í hinu
stríðshrjáða heimalandi sínu, þar sem
bræður berjast, konsert sem hefur
verið settur á plast.
Live At The Grand Opera House
Belfast heitir platan og mun vera önn-
ur hljómleikaplata hans. Fyrir réttum
tíu árum kom tvöfalt hljómleikaalbúm
frá honum sem nefndist It’s To Late To
Stop Now og er óhætt að telja þá plötu
með allra bestu „live” plötum sem
gerðar hafa verið. Nýja platan er
einnig að mörgu leyti vel heppnuð og
eru lögin góður samnefnari fyrir
sköpunarverk mikils listamanns sem
búinn er að vera í bransanum í tuttugu
ár. Byrjaði í hljómsveit er kaliaðist
Them, og vakti þar nokkra athygli, en
hefur síðan 1967 veriö einn á ferö þó
hann hafi við ýmis tækifæri stofnað
hljómsveitir með vinum og kunningj-
um og hefur haldið sínu striki í tón-
listarsköpun sinni þrátt fyrir breytta
tíma. Einn af þeim sem aödáendur
geta alltaf treyst á.
Það eru tíu lög á Live At The Grand
Opera og eru níu þeirra eftir Van
Morrison en hann hefur látið fylgja
með gamlan slagara, It’s All In The
Game, í eigin útsetningu. Það er eigin-
lega ekki hægt að taka eitt lag fram
yfir annað á þessari plötu, þau mynda
eina sterka heild og þótt platan taki um
fimmtíu mínútur í spilun er hún ekki
einninótuoflöng.
Þegar hlustað er á Live At The
Grand Opera getur maður verið
öruggur um að þannig var þetta á tón-
leikunum, það er ekkert stúdíófiff
komið inn á eftir á. Hljómurinn er
passlega hrár og hentar vel lögunum.
Þó er einn annmarki á konsertinum
sem ég sætti mig ekki við. Van Morri-
son hefur fengið til liðs við sig þrjár
söngkonur í bakraddir og finnst mér
nokkur ofnotkun á þeim. Kemur
stundum fyrir að hálfgerður soulfíling-
ur verði sem ekki passar við lögin. En i
heild er Live At The Grand Opera hin
ágætasta eign og góður vitnisburður
umsannanlistamann. HK.
| SCORPION — LOVE AT FIRST STING: |
Tilbreytingarlaust
Hljómsveitin Scorpion er eldri í hett-
unni en flesta grunar, búin að gefa út
sjö plötur. Hún er líka þýsk sem sjálf-
sagt kemur einhverjum á óvart.
Plata hennar, LoveatFirst Sting, er
nú í áttunda sæti bandariska listans,
sem auðvitað er (svo aö segja) ein-
stætt afrek af þýskri sveit.
Við fljóta hlustun myndi tónlist
,sveitarinnar skýlaust flokkast undir
þungarokk, en þegar betur er að gáð
þá spilar hún ekki þetta týpíska þunga-
rokk á enska vísu. Enda segir það sig
sjálft að normalt þungarokk færi ekki
að vaða í áttunda sæti í Ameríkunni.
Tónlist Skrópajónanna er nákvæm
blanda af bandarísku suðurstrandar-
rokki (að hætti Journey) og svo breska
bárujárninu. Ekki ósvipað Loverboy.
Fyrir vikið er tónlistin melódískari
en þárujámið og líka betri. Það er ekki
þar meö sagt að þetta sé einhver gæða-
Nýjar
plötur
tónlist, því fer fjarri. Lögin eru öll
svipuð og flækjast öll fyrir hvert öðru.
Það er helst aö veðja á ,Coming
Home’ þegar á að fara að útnefna eitt
lag öðru betra. Annars segir umslagið
nokkuð vel til um innihald plötunnar.
Sama myndin er á báðum hliðum þess
og svo aftur utan á nærhaldinu. Sem
sagt. Tilbreytingarlaust.
SigA
IDV. FÖSTUDAGUR11. MAl 1981
• 1 •
Sæl nu! Eitthvað frett-
næmt? Sjáum tii... Flciri
stórsöngvarar t*n Mick Jagg-
cr cru upptcknir við gcrð
sólóplatna. Arciðanlcgar
heimildir cru fvrir þ\í að
Frcddie Mcrcury, söngvari
Quccn, se mcð eina í burðar-
liðnum og viuni að hcnni t
Þýskalandi. Mercury hcfur
citthvað vcrið að dcdúa mcð
Michacl Jackson cn óvíst cr
hvort það cfni verður a pliit-
unni... Jackson cr drengur
góðhjartaður og liösinnir
ymsum vinum sínunr, hann
cr til dæmis nýbúinn að
syngja dúctt mcð bróöur sm-
unt Jeremy cn kemur aftur á
móti ckki fram a fyrstu plötu
svstur sinnar: Latovu...
r
Gömlu jálkarnir í Decp
Purple hafa ákveðið aö rcisa
hljómsveitina upp frá dauð-
um og allir upphafsmennirn-
ir eru með í spilinu: Ian Gill-
an, Ritchie Blackmore, Jon
Lord, Roger Glover og Ian
Paice... Amóta gamlar
hljómsveitir, Troggs og Dave
Dee, Dozy og félagar, hafa
nýlega gefið út plötur sem
ekki hafa farið hátt...Rokk-
rásin kynnti í gær niðurstöö-
ur úr vinsældakosningu
sinni: bestu popplög síðustu
tveggja áratuga. ’Urslitin
geta tæpast komið á óvart en
í fimm efstu sætunum voru:
Stairway to Heaven/Led
Zeppelin, Bohemian Raps-
ody/Queen, Yesterday/Thc
Beatlés, Money/Piiik Floyd
og House Of the Raising
Sun/Animals... A fimmta
hundrað manns tóku þátt í
könnuninni, meðalaldur rúm-
lega tuttugu ár, og miðað við
það er merkilegt hvað sigur-’
lögin eru komin til ára
siiina... Nýja breiðskífa Echo
& the Bunnymen, Ocean
Rain, hefur fengið frábæra
dóma og sömu sögu er að
segja um plötu Cure, The
Top... Nýja platan frá Hum-
(
an League, Hysteria. kom ut i
byrjun mai og þar er meðal
annars að finna lag James
Bond með lengsta nafni sem
um getur í poppsögunni:
Rock Me 'Again And Again
And Again And Again And
Again And Again!... Minnstu
rokkstjörnurnar samkvæmt
síðustu talningu í sentímetr-
um eru þessir: Nik Kershaw,
Elton John, Phil Collins...
Dallas-stjarnan Howard Keel
(Clayton) á lag á breska
breiðskífulistanum...