Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1984, Qupperneq 32
I
Fréttaskotið
68-78-58
SIMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist efla er
notað i DV, greifl-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fullrar nafnleyndar
er gætt. Vifl tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984.
Kaupfélag
Austur-Skaftfellinga
athugar kaup á togara:
Hafa skoðað
Runólf í
Grundarfirði
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
hefur nú til athugunar kaup á togara
fyrir frystihús sitt á Höfn í Hornafirði
og fór hópur manna frá KASK nýlega
til Grundarfjarðar þar sem þeir skoð-
uðu togarann Runólf.
Hermann Hansson, kaupfélagsstjóri
á Höfn í Hornafirði, staöfesti þetta í
samtali við DV en sagöi að málið væri
á algjöru frumstigi hjá þeim og að
fleiri skip en Runólfur væru í sigtinu.
Hvað ákvarðanatöku í þessu máli
varðaði sagöi hann að hún gæti jafnvel
legið fyrir í þessum mánuði en einnig
gæti hún dregist eitthvað fram yfir
þann tíma.
„Astæður fyrir togarakaupum okkar
eru að tryggja meiri festu í atvinnulíf-
inu hér, ” sagöi Hermann Hansson.
-FRI
Kartöflu-
undir-
skriftir
„Undirritaðir skora á stjórnvöld að
gefa innflutning frjálsan á kartöflum
og grænmeti á þeim tíma sem innlend
gæðaframleiðsla annar ekki eftir-
spurn.” Þetta er yfirskrift undir-
skriftasöfnunar sem ráðgert er að
standi yfir í dag og á morgun. Það eru
Neytendasamtökin sem hafa hrundið
þessari undirskriftasöfnun af staö. Jón
Magnússon, formaöur samtakanna,
sagði að reynt yrði að dreifa listunum í
sem flestar matvöruverslanir. Listun-
um verður síðan safnaö saman og
afhentir ríkisstjóminni.
Húsmæðrafélag Islands, Manneldis-
félag Islands, Félag Matvörukaup-
manna, Kaupmannasamtök Islands,
Verslunarráð Islands hafa lýst yfir
stuðningi viö þessa undirskrifta-
söfnun.
-APH
LUKKUDAGAR
13. MAÍ
38418
HLJÓMPLATA
FRÁ FÁLKAIMUM
AÐ VEROMÆTI KR. 400,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Fíest er nú apað eftir
Svíumf
HUSNÆÐIS-
FRUMVARPIÐ
STRANDAÐ?
v I Vafllil/lflr ■
Ekkert samkomulag er enn milli
stjómarflokkanna um hvemig af-
greiða eigi húsnæðisfrumvarpið
þrátt fyrir stöðug fundarhöld í allan
gærdag.
Sjálfstæðismenn munu vera
ósveigjanlegir i þeirrí afstöðu sinni
að Búseti fái ekki rétt til lána úr
Byggingasjóði verkamanna en þau
nema sem kunnugt er 80% af bygg-
ingarkostnaði. Vilja sjálfstæðismenn
annað hvort fresta afgreiðslu frum-
varpsins fram á næsta þing eða taka
af öll tvímæli um að Búseti falli ekki
undir ákvæði frumvarpsins um
félagslegar íbúðabyggingar.
— „Við viljum stefna að því að koma
öllum húsnæðislánunum í 80%, ekki
bara til þeirra sem vilja leigja út
húsnæði eins og Búseti heldur einnig
til þeirra sem vilja eiga húsnæði. Við
viljum ekki fallast á þá mismunum
sem felst í túlkun félagsmálaráð-
herra,” sagði Olafur G. Einarsson,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Samkvæmt heimildum DV lagði
félagsmálaráðherra fram mála-
miðlunartillögu í gær þar sem lagt
var til að gildistöku þeirrar greinar
laganna sem um er deilt verði
frestað en frumvarpið samþykkt að
öðru leyti. Sjálfstæðismenn höfnuðu
þeirri tillögu. Virðist ýmislegt benda
til þess að frumvarpið verði ekki af-
greitt á þessu þingi. OEF
Sæmundur Pálsson, lögreglumaður á Seltjarnarnesi, ræöir við sjónarvotta sem telja sig hafa séð lítinn
kafbát isjónum út afnesinu. D V-mynd S.
KAFBÁTUR í SJÓNUM?
„Þaö fór lítil flugvél í sjóinn út af Sel-
tjarnamesi og hana rekur nú í átt aö
Gróttu.” Þessa tilkynningu fékk
lögreglan á Seltjarnarnesi í gær-
morgun laust fyrir kl. 9.30 og var mikiö
lið sent út á nesið til leitar. SVFI hóf
þegar aögerðir en þegar samband var
haft við Flugmálastjórn kom í ljós aö
engin flugvél var þarna á ferð. Þyrla
Landhelgisgæslunnar varð einskis vör
er hún flaug yfir svæðið.
Sjónarvottar báru síðan að þeir teldu
sig hafa séð kafbát en ekki flugvél í
sjónum en skipverjar á olíuskipinu
Héöinn Valdimarsson og flutninga-
skipinu Langá sem voru á þessum
slóðum urðu ekki varir við neitt.
JGH/FRI
Hraðbraut hf.:
Selurtværaf
blöndunar-
stöðvum
sínum
Hraðbraut hf. hefur ákveðið að selja
hluta af eigum sínum, þar á meðal 2
blöndunarstöðvar og standa nú yfir
samningar við nokkra aðila vegna söl-
unnar.
Benedikt Bogason, stjórnarfor-
maður í Hraðbraut hf., sagði í samtali
viö DV að ljóst væri að verkefni væru
ekki fyrir hendi til að halda starfsem-
inni áfram óbreyttri og því hefði verið
gripið til þess að selja eigumar en
Hraðbraut á alls 5 blöndunarstöðvar
auk annarra tæk ja og véla.
Samhliða sölunni á eignunum verður
dregin verulega saman starfsemi
Hraöbrautar hf. Ekki hefur fengist
uppgefið hvaöa verðhugmyndir eru á
þeim blöndunarstöðvum, sem selja á,
en ný blöndunarstöð af minnstu gerð
kostar nú á bilinu 8—9 milljónir kr.
-FRI
M jólkursamlag KASK
býður út
mjólkurflutninga:
Lægsta tilboð
er30% undir
kostnaðarverði
Frá Júlíu Imsland, fréttaritara DV á
HöfníHornafiröi:
Mjólkursamlag KASK hefur ákveöið
að bjóða út mjólkurflutninga sína en á
svæði þeirra eru 44 framleiðendur. Alls
bámst 8 tilboö í flutningana, hið lægsta
þeirra um 30% undir núverandi
kostnaðarverði þeirra.
Ef lægsta tilboðinu verður tekiö
þýðir það að flutningskostnaður á
hvern lítra mjólkur fer úr 94 aurum í
um 60 aura sem þýðir um 450 þúsund
kr. spamað á ári eða um 10 þúsund kr.
áhvem bónda.
-FRI
SJÓÐANDI
HEIT HÚS
Þeir eru ekki í vandræðum með
kyndingarkostnaðinn í Hveragerði. I
Borgarheiði 11 þar í bæ er nú verið að
grafa frá húsi til að hleypa jarðhita í
aðra átt en beint upp í stofur.
„Við fórum aö taka eftir hitanum hér
í húsinu fyrir 2 árum og ágeröist hann
svo að um tíma var gólfið orðiö nær því
40 stiga heitt og vart verandi inni, allir
gluggar opnir en kom fyrir lítið,” segir
Geir Ágústsson, sem býr í húsinu.
-EIR
Nýstof nuð Samtök fatlaðra ungmenna á íslandi:
„Enginn vildi vera með okkur’”
„Eg vil ekki segja að þessi samtök
séu stofnuð til höfuðs öörum samtðk-
um fatlaðra í landinu. Hins vegar
erum viö með þessu að vekja þetta
f óik til umhugsunar um stöðu sína og
reyna að virkja það,” sagðí Rögn-
valdur Oðinsson, formaður nýstofn-
aðra Samtaka fatlaðra ungmenna á
Isla ndi í samtali við DV.
„Það hefur aldrei verið til neitt
sem heitlr æskulýðsstarf fyrir þenn-
an hóp. Við reyndum að fá ýmsa til
að vinna fyrir okkur í tengslum viö
æskulýðsárið, en næsta ár er tileink-
að æskulýð um heim allan. Okkur
tókst þaö ekki og því drifum við í því
að stofna okkar eigin samtök,” sagöi
Rögnvaldur.
Hann sagði ennfremur að þessi
samtök væru byggð upp á sama
grundvelli og önnur æskulýðssamtök
i landinu og væru þau fyrir fólk á
aldrinum 16til35ára.
— Hvert er markmiðið með
samtökum þessum?
„Viö munum berjast fyrir hags-
munum þessa hóps. Þar er fyrst að
nefna menntunarmáiin en þau eru í
molum. Fötluöu fólki er gert mjög
erfitt fyrir aö komast í gegnum
skólakerfið. Að vísu eru hér reknar
ýmsar sérdeildir, en okkur finnst að
með því að draga þetta fólk í sér-
dilka, sé það úr öllu raunverulegu
sambandi við þjóðfélagið. Við viljum
að fatlað fólk fái að vera með hinum
áskóiabekk.
Atvinnumálin eru og ofarlega á
baugi. En þetta tvennt er samhang-
andi. Það er erfitt fyrir fatlað fólk að
komast út á atvinnumarkaöinn, en
þar er það einkum menntunin sem
stendur þvi fyrir þrifum.”
— Hvert verður fyrsta verkefni
samtakanna?
„Viö ætlum aö kynna þessi samtök
og vekja fólk til umhugsunar. Svo er
það auðvitað undirbúningurinn að
æskulýösárinu á næsta ári,” sagði
Rögnvaldur Oðinsson..
-KÞ