Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1984, Síða 18
ei
18
MtertAM tr strm&rnTHÁM .VOT
DV. MÁNUDAGUR14. MAÍ1984.
Ibúð óskast á leigu
Okkur vantar nú þegar eða fljótlega litla íbúö fyrir starfs-
mann okkar, æskilegt að hún sé sem næst Nóatúni.
Góðri umgengni og öruggum mánaðargreiðslum heitið.
_STENSILL
Nóatúni 17.
Símar 24250 og 24884.
EINHELL „SOGMEISTARINN”
SÝGUR FLEST SEM FYRIR ER
30 LTR. VATNS- OG RYKSUGA A
EINSTÖKU VERÐI AÐEINS KR. 4.746.00
EINNIG 20 LTR. Á LÆGRA VERÐI /
Skeljungsbúðin
Síðumúla33
símar81722 og 38125
Vorverk og sauðburður að byrja í Borgarfirði:
BÓNDIÁ í ERFID-
LEIKUM MEÐ ÁLFTIR
Frá Þórunni Þ. Reykdal, fréttaritara
DVíBorgarfirði:
Vorverkin eru að hefjast og bændur
eru farnir aö bera skít á tún sín og
sauðburður er að byrja hér í Borgar-
firði.
Páll Jónasson, bóndi á Signýjarstöð-
um, telur aö heyfengur muni duga ef
svo heldur sem horfir. Telur hann
ástand túna almennt mjög gott og lít-
inn klaka í jörð en girðingar eru víða
stórskemmdar vegna mikilla snjó-
þyngslaívetur.
Páll segir farir sínar hins vegar ekki
sléttar í samskiptum sínum við stjóm-
völd og álftina. Undanfarin ár hafa um
300 álftir, auk nokkurra grágæsa, herj-
að á 12 ha. tún í eigu hans á hverju
vori. Lega túnsins er slík að snjóa leys-
ir þar tiltölulega fljótt og safnast
leysingavatnið fyrir á túninu á vissum
svæðum. Álftirnar sækja mjög í þessi
svæði, ösla um og rífa upp grasrótina.
I vor höfðust fuglamir viö mun
skemur en endranær vegna hlýinda og
góðs tíðarfars en 2—300 álftir og 20—30
grágæsir vom á túninu í hálfan mánuö.
Páll sótti um leyfi til menntamála-
ráðuneytisins til aö fæla fuglana frá
meö því að skjóta nokkra þeirra.
Menntamálaráðuneytið veitti Páli
leyfi til 1. maí til veiða á grágæs að
fenginni umsögn fuglafriðunamefndar
en nefndin mælti gegn sambærilegu
leyfi fyrir álftina.
Telur Páll að skemmdir af völdum
grágæsarinnar séu hverfandi miðað
við álftina en túniö hefur ekki gefið af
sér nema hálfa uppskeru undanfarin
ár.
Tún Páls gengur nú almennt undir
nafninu „Alftatúnið” meðal sveitunga
hans og jafnvel hafa komið fram hug-
myndir um að ríkið taki það að sér og
geri aö f riðlandi álftarinnar.
Augljóst er að þótt fólk hafi almennt
taugar til álftarinnar, m.a. vegna tígu-
legs útlits og fegurðar, er vandamál
Páls allt annað en fagurfræðilegs eðlis.
-FRI
ftre$tone
ER FJOLSKYLDA PWÍ
GOÐRA
HJÓLBARÐA VIRÐI?
Firestone S-211 radial hjólbarðarnir eru framleiddir
undir ströngu gæðaeftirliti sem tryggir öryggi þitt
og fjölskyldu þinnar.
Sérstæð lögun og mynstur gefa frábært grip og mýkt
bæði á malarvegum og malbiki, sem veitir hámarks
öryggi og þægindi í akstri, innanbæjar sem útan.
Firestone S-211 eru einu radial hjólbarðarnir sem eru
sérhannaðir jafnt til aksturs á malarvegum og malbiki.
Og þeir eru úr níðsterkri gúmmíblöndu sem endist og
endist og endist...
Nýbýlavegi 2
Kópavogi
Sími 42600
UMBOÐSMENN
UM LAND ALLT!
JÖFUR HF
Þetta danska herskip kom i heimsókn til Reykjavíkur i siðustu viku. Sjóliðamir viðruðu sig i vorveðrinu og
þyrlan á palli skipsins gerði hið sama. DV-mynd S
Rólur, 3 gerðir.
Vegasölt, 3 gerðir.
Rennibrautir, 3 gerðir.
Handbolta- og fótboltamörk.
Reiðhjólagrindur.
Klifurgrindur.
Körfuboltahringir.
T-snúrustaurar.
Fyrir einbýlishús
og sumarbústað
Leiktæki fyrir
fjölbýlishús og
félagasamtök.
LISTSMIÐJAN H F
Skemmuvegi 16B — Símar 75502 og 71400.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA -
A1 FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
Allt efni
úr ryðfríu
járni og
galvaniseruðu
stáli
Hús mfrennibraut
LEIKTÆKI
3• ■ (4CVtLt«.KVKCMim
tnmatjrarBan
1 UVrr * '
S»