Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 1
38.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG. óháð dagblað DAGBLAÐIЗVÍSIR 117. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984. Þad er goll ad geta Itafl mömmu til ad leida sig um stra’li borgarinnar. En litla sgstkinid er enn of ungl lil ad ganga sjálft. Þad ferdast eins og keng- úrubarn. Ábgrgdin er á Iterdum módurinnar. Hán þarf a<) skila öllum heim. DV-mgnd: GVA. þingi ia//a nótt —en samkomulag um þinglausnir í dag Þinglausnir veröa á Alþingi síðdegis í dag. Þaö varö aö sam- komulagi milli stjórnar og stjórnar- andstöðu eftir mikil fundahöld í gær- kvöldi. Stjórnarandstaöan haföi hótaö málþófi um stjórnarfrumvarp um skattskyldu innlánsstofnana og geröi kröfu um aö þaö yröi ekki af- greítt jafnframt því sem -tvö mál stjórnarandstööunnar, um skatta- frádrátt vegna tannviögerða og um frestun byggingar Seölabankans, yröu afgreidd. Samkomulagiö sem gert var í gærkvöldi fól í sér aö breytingar voru geröar á frumvarpi um gjald af umboðsþóknun vegna gjaldeyrisviö- skipta og á frumvarpi um jarðalög. Jafnframt var ákveöið aö vísa frum- vörpunum um tannviðgerðir og Seðlabanka til ríkisstjórnarinnar. Stjórnarandstaöan samþykkti þó að ljúka umræðum um öll mál stjórn- arinnar í nótt og munu því aöeins verða atkvæöagreiöslur um mál í dag. Þingfundir stóöu engu aö síður til klukkan 6 í morgun þar sem Stefán Valgeirsson, þingmaðui- Framsókn- arflokksins og formaöur bankaráös Búnaöarbankans, beitti málþófi til aö tefja fyrir samþykkt stjórnarfrum- varps er felur í sér að yfirstjórn Búnaöarbankans verði færö frá land- búnaöarráöherra til viðskipta- ráöherra, þannig aö öll bankamál heyri undir einn ráöherra. Umræðum um málíö var ekki lokið og veröa þær teknar aftur upp í dag klukkan 11. I gær voru samþykkt á Alþingi höfundalög, lög um Húsnæöis- stofnun, um íslenska málnefnd og lög er veita 70 erlendum borgurum ríkis- borgararétt hér á landi. -ÖEF. Krefjast f rjáls innf lutnings: MIKIL VONBRIGÐI — segir Jón Helgason landbúnaðarráðherra „Viö erum ekki reiöubúnir til þátt- töku í hálfgildings einokunarfyrir- komulagi viö hlið þess gamla. Þetta mál er fyrst og fremst hagsmunamál neytenda og viö teljum, aö neytendum sé best þjónaö í frjálsri samkeppni,” segir í bréfi sem sex væntanlegir kartöfluinnflytjendur hafa sent til landbúnaöarráöherra. 1 bréfinu er bent á aö þær tillögur um innflutning sem borist hafa frá landbúnaöarráöherra séu haftafyrir- komulag og stríði gegn heilbrigðum viöskiptaháttum og ekki framkvæm- anlegar án kvótaskiptingar. Þeir leggja því til aö innflutningur veröi gefinn frjáls og ráöuneytinu sé heimilt aö stööva þann innflutning meö fyrir- vara þegar innlend framleiðsla kemur á markaöinn. Jón Helgason landbúnaöarráöherra sagöi í viðtali viö DV í morgun aö enn heföi ekki verið tekin nein ákvöröun í sambandi viö þetta bréf. En þaö væni mikil vonbrigði aö þessir aöilar skuli ekki vilja stuöla aö innflutningi án þess •aö allt fyllist hér af kartöflum. Ekki væri bent á neinar leiöir til aö hamla gegn því. Hann sagöi aö í allri umræöu á Alþingi hefði komiö fram aö gæta yröi hagsmuna innlendra framleiöenda og innflutningurinn yrði aö vera á þann veg aö þeim y röi ekki stef nt í hættu. -APH Ný teppi fyrir 138 milljónir — „teppin” á vegina ná líklega 1000 kílómetrum Ný teppi eöa bundin slitlög á vegina veröa lögð í sumar fyrir 138 milljónir króna. Fyrir þaö fást tæplega 122 kílómetrar og í sumarlok veröa bundnu slitlögin þá oröin nærri 880 kílómetrar. Næsta sumar fara þau þá væntanlega yf ir 1.000 kílómetra. Þessi upphæð í bundin slitlög, 138 milljónir í ár, er ekki nema um 10% af því fé sem fer til vegamála. Niður- stööutala vegaáætlunar er 1.383 milljónir króna. Af þeirri upphæö koma 663 milljónir af bensíngjaldi og 190 af öörum gjöldum á bensín, 307 milljónir af þungaskatti, en að láni eru teknar 223,1 milljón. HERB ÓSKEMMTI- LEGT AÐ HEYRA — segir Jóhannes Nordal um hávaðann vegna afmælisgjafanna „Eg er í útlöndum í fríi. Eg hef ,,Eg ætlaöi að reyna aö vera í fríi. ekki nokkum skapaðan hlut fylgst Eg hef ekki veriö í sambandi viö meö þessari umræöu,” sagöi landiö. En þetta er óskemmtilegt aö Jóhannes Nordal er DV hringdi í heyra,” sagöiSeðlabankastjóri. hann til London í morgun. „Eg vil ekkert segja um þetta núna,” bætti hann viö. Blaöamaöur DV sagöi Jóhannesi Jóhannes kvaöst vera í fríi fram í aö málverkagjafir til hans heföu næsta mánuð. Hann fer aö vísu á kallað fram meðal annars þings- tveggja daga fund í Sviss síöar í ályktunartillögu og undirskriftasöfn- þessari viku til viöræöna viö un, þar sem skorað væri á hann að Alusuiesse. skila gjöfunum. \ -KMU. Kapalvæðing Evrópu - sjá bls. 17 Kartöflurstreyma tillandsins -sjábls.2 Huldufólkístríði gegn Leiruveginum? — sjá bls.4 Smitast flugmenn afturá félagsfundi? — sjá bls. 3 Nýjar reglur um úðungarða — sjá Neytendurá bls. 6og7 Vínarveisla DV-áskrifenda — s já bls. 34 og 35

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.