Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Qupperneq 3
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984.
3
Smitast f lugmenn á f élagsf undinum annað kvöld?
Flugleiðir:
Bókanir hrynja
læknisvottorð hafa borist f rá fjórum f lugmönnum
„Miðað við þær tölur sem ég hef
séö fró helginni um farþegafjölda í
Atlantshafsfluginu sýnist mér að
bókanir séu byrjaðar að hrynja af
okkur,” sagði Sveinn Sæmundsson,
forstöðumaður kynningardeildar
Flugleiða, um afleiöingar veikinda-
forfalla flugmanna.
Sveinn sagði að á föstudag, daginn
sem flugmenn voru heima, hefðu um
900 farþegar verið bókaöir í
innanlandsflugi. Aðeins hefðu 288
farþegar verið fluttir með vélum
litlu f lugf élaganna.
Alls áttu 29 flugmenn að fljúga
fyrir Flugleiðir þennan föstqdag. 28
þeirra boðuöu veikindaforföll. Einn
mætti til vinnu.
Flugleiðir óskuðu samdægurs eftir
læknisvottorði frá hverjum og
einum. Um miðjan dag í gær höfðu
aðeins borist f jögur vottorð. Hugðist
félagið ítreka ósk sína um læknis-
vottorð frá hinum 24 flugmönnunum.
-KMU.
LEGGJAST FLUGMENN AFTURIRUMIÐ?
Flugmenn Flugleiða munu koma
saman til fundar annað kvöld. Þar
munu þeir ræöa stööu mála eftir að
slitnaði upp úr samningaviðræðum í
fyrrinótt. Ennfremur verða ræddar
hugsanlegar aögerðir.
Flugmenn héldu siöast félagsfund
síöastliðið fimmtudagskvöld.
Trúlega var það ekki tilviljun að
strax að þeim fundi loknum fór að
berast fjöldi veikindatilkynninga til
Flugleiða.
Staða kjaradeilu Flugleiða og flug-
manna er nú sú sama og var daginn
sem veikindatilkynningamar komu.
Ekkert hefur gerst sem útilokar
annan „veikindafaraldur”.
Skúli Br. Steinþórsson, vara-
formaður Félags íslenskra atvinnu-
flugmanna, sagði aðFlugleiðir hefðu
boðið upp á svipaðan samning og
aðrir aðilar á vinnumarkaðnum
hefðu gert. En auk þess hefði félagið
farið fram á að hvíldartími flug-
manna yrði skertur.
Félag atvinnuflugmanna veitti
Flugleiðum undanþágu til að hægt
yrði að manna DC-8 þotu síðastliðinn
sunnudag. Ekki er búist við aö fleiri
slíkar undanþágur verði veittar á
næstunni heldur muni flugmenn
vinna bókstaflega eftir samningum
og sýna engann sveigjanleika. Þaö
mun trúlega leiða til þess að
áætlunarferðir falli niður af og til.
— gætu „smitast”
áfélagsfundi
annaðkvöld
Sérstaklega má búast við þessu í
Ameríkufluginu.
Samkvæmt lögum Alþingis á
kjaradómur að úrskurða í flug-
mannadeilunni fyrir 15. júní næst-
komandi.
-KMU.
EINN AF ÞJOÐVEGUM LANDS-
INS ER BOTNLAUST SVAÐ
Þjóðvegur nr. 716, svokallaður Síðu-
vegur í V-Húnavatnssýslu, er nú botn-
laust svað og hefur það valdið bændum
í nágrenninu og feröamönnum vand-
ræðum.
Astæöur fyrir slæmu ástandi veg-
arins eru m.a. þær að ræsi fór á
þjóðvegi nr. 1 hjá Víðihlíð í Húnavatns-
sýslu. Við það var allri umferð, þar
með töldum þungaflutningum, beint
inn á Vatnsnesveg nr. 711 og Síðuveg
og fór vegurinn þá eins og myndin
sýnir.
Síðuvegur er vart fólksbílafær sem
stendur og við skólaslit, sem nýlega
fóru fram í sveitinni, þurfti fólk að
mæta á dráttarvélum eða öðrum
þungaflutningavélum og ekki bætti það
ástandið sem var mjög slæmt fy rir.
-FRI.
Eins og sjá má er vegurinn botnlaust svað.
EV-SALURINN í FIATHÚSINU
HIN SÍVINSÆLU OG LANDSÞEKKTU EV-KJÖR - ERU KJÚR SEM BYGGJAST Á TRAUSTI
SELJUM í DAG M.A.:
Citroén GS Pallas 1978, ek. 62 þús. km.
Lada 1982, ek. 24 þús. km.
Lada 1982, ek. 35 þús. km.
Willys 1966, m/blæju.
Auto Bianci 1978, ek. 87 þús. km.
Simca Talbot 100 VF 2 1982, ek. 26 þús. km.
Fiat 132 1978, ek. 61 þús. km.
Fiat 125 st. 1977, ek. 50 þús. km.
Galant 1600 GL 1977, 4-dyra, blár.
Cherokee 1979, ek. 35 þús. km.
Willys Wagoneer 1979, 8 cyl., sjálfsk.
Fiat 127 special 1983, ek. 28 þús. km.
AMC Concord 1981, ek. 48 þús. km.
VIÐ
TÖKUM
GAMLA
BÍLIIMIXI
UPPI
Ford Econoline 1974, 8 cyl., sjálfsk.
Toyota Crown 1972, 4 cyl.
Ford Fiesta 1976, 4-dyra.
Fiat 128 station 1978, 3-dyra.
AMC Eagle Wagon 1982, ek. 22 þús. km.
Ford Cortina 1979, ek. 56 þús. km.
AMC Concord 1979, ek. 60 þús. km.
Fiat 131 1977, 4-dyra.
Fiat 132 1976,1600 vél.
Datsun 140 Y 1974, 4-dyra.
Fiat 127 1976, ek. 69 þús. km.
Ford Ltd. 1979, ek. 40 þús. km.
Cherokee 1978,8 cyl., sjálfsk.
I
cn
I
co
0PIÐ A LAUGARD. KL. 10-16.
ALLS KONAR SKIPTI MÖGULEG
1929 notodir bílar í eigu umbodssins 1984
- ALLT Á SAMA STAÐ EGILL ,
- 5ÍSÍ ÆTA VILHJALMSSON HF
YFIR HALFA 0LD.
Smiðjuvegi 4c — Kópavogi — Sími 79944—79775