Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 5
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI1984.
5
Verið að fara yf ir próf læknanemanna:
„Aldrei komið annað til greina en
fara yfir prófin með þeim”
—segir Hannes Blöndal, prófessor f læknadeild. Kennsla og prófannir hafa tafið fyrir
„Þaö er unniö aö því núna aö fara
yfir prófin með læknanemunum. Viö
tökum fjóra á dag og áætlum aö yfir-
feröinni ljúki um mánaöamótin
næstu,” sagöi Hannes Blöndal,
prófessor viö læknadeild Háskóla
Islands, í samtali við DV.
„Yfirferð hófst miðvikudag fyrir
páska, daginn eftir að kennslu lauk.
Fram að páskum vorum viö kennar-
amir uppteknir viö kennslu og störf
samkvæmt vinnuáætlun vetrarins.
Þetta var stúdentum og háskólayfir-
völdum gert ljóst, jafnframt því aö
yfirferð myndi hefjast þegar kennslu
lyki. Ekki var gert ráö fyrir þessari
vinnu í áætlun vetrarins og kennarar
ekki tilbúnir að bæta henni á sig
fyrirvaralaust, enda meö fulla
kennslu fyrir og sumir ríflega það.
Fullyröingar nemenda um að mikiö
lægi viö aö þeir fengju aö sjá prófin
með hraði eru ekki réttar.
Um páskana varð ég fyrir slysi,
sem ég átti í um skeið. A tímabilinu
1. til 11. maí þurfti að undirbúa þrjú
próf, svo ekki var tími aflögu. Næstu
próf eru svo 29. þessa mánaðar og
áformum við að vera búnir aö fara
yfir prófin með þeim 45 nemendum
sem þess hafa óskaö bréflega,” sagöi
Hannes.
Hann sagöi kennara ekki hafa vit-
aö annað en sú framkvæmd sem
heföi verið á meðferð prófa væri
samkvæmt lögum og reglum og hefði
hún gengiö vandræðalaust til þessa.
Þessu til skýringar væri rétt að geta
þess aö 1976 var ákveöið í Háskólan-
um aö hætta að hafa prófdómara
nema í munnlegum prófum. Var
þetta gert í sparnaöarskyni. A tíma-
bilinu 1976 til ’80 var því farið yfir
prófúrlausnir með stúdentum sem
þess óskuðu, en reyndin var sú aö
nær alltaf óskaöi einhver eftir skipun
prófdómara. Hann þurfti þá aö fara
yfir allar úrlausnir, því einhverja
viðmiðun varö hann að hafa. Hlaust
af þessu mikil vinna og tvíverkn-
aöur.
„Því var þaö árið 1980 aö ég
óskaöi eftir varanlegri skipan próf-
dómara í prófum í líffærafræði á 1.
ári. Var þaö samþykkt og fékk rétta
afgreiðslu hjá læknadeild, rektors-
embættinu og ráðuneytinu. Síöan þá
hefur prófdómari farið yfir öll þessi
próf og við því talið prófin endanlega
afgreidd þegar ráöuneytisskipaöur
prófdómari haföi yfirfarið þau.
Síöan kemur lögskýringanefnd
meö sinn úrskurð í febrúar, þar sem
hún telur lögin gera kennurum skylt
að fara yfir próf með nemendum án
tillits til þess hvort prófdómari hafi
tekið þátt i meöferö prófanna eöa
ekki. Háskólaráð fellst á þessa
túlkun og því hefur af okkar hálfu
aldrei komiö annaö til tals en oröið
yröi viö gildandi lögum, en svo sem
áöur sagði yrði þaö aö bíöa þar til
tími gæfist til.
Annars er þaö makalaust hvemig
þetta hefur veriö blásiö út, sem í
raun er ekkert mál. I því sambandi
er rétt að geta þess hvert upphafiö
var.
Þannig var að einn sunnudags-
morgun í janúar, meöan enn var
veriö aö vinna úr prófunum, hringdi
Hjálmar Olafsson, fyrrverandi kenn-
ari og fleira, í mig meö ofstopa-
skömmum. Gengu þær í megindrátt-
um út á þaö hversu illa væri fariö
meö nemendur í læknadeild og óhóf-
legar kröfur til þeirra gerðar. Væri
sonursinn orðinn svo taugaveiklaður
aö hann væri aö leggja heimilislífiö í
rúst. Allt átti þetta aö vera af mínum
völdum og mundi hann ekki líða
þetta. Klykkti hann svo út meö því að
segja aö ég ætti eftir að heyra frá sér
frekar. Fljótlega eftir birtingu próf-
niöurstaðna hóf svo sonurinn undir-
skriftasöfnun meðal nemenda um að
fá yfirferð yfir prófin meö kennur-
um.
Síöan hófst allur hamagangurinn
meö blaðaskrifum og ýmsum yfirlýs-
ingum lögfræðings nemendanna,
sem engu hefur til leiðar komiö fyrir
þá, en þó rukkað þá um tæpar
þúsund krónur hvem,” sagði Hannes
Blöndal. -KÞ
Alþjóðleg ráðstefna um SÁ Á:
Ráðgert að stofna „SÁÁ samtök” í Svíþjóð
„Tilgangurinn meö þessari al-
þjóðaráðstefnu er að kynna starf-
semi SAA og eru Svíar búnir aö
ákveöa að kom'a á staö svipuðum
samtökum í Sviþjóð,” sagði Hendrik
Bemdsen, formaður SAA, i viötali
viðDV.
Hann er nú staddur á þessari ráö-
stefnu ásamt nokkrum Islendingum.
Þaö eru nýstofnuð samtök, aö fyrir-
mynd SAA, sem standa aö þessari
ráðstefnu. Þátttakendur eru um 350
og er meginhluti þeirra frá hinum
Norðurlöndunum. Þá eru einnig 50—
60 þátttakendur frá Bandarikjunum
og einnig frá Frakklandi, Þýskalandi
og Portúgal.
Ráöstefnan var sett á sunnudag-
inn og var drottning Svía og heil-
brigöisráöherrann viðstödd. Vil-
hjálmur Þ. VOhjálmsson flutti þá
ræðu og skýrði frá starfsemi SAA sl.
6ár.
„Athyglin beínist mikið aö starf-
semi SAA á Islandi og eru margir
búnir að ákveöa aö reyna aö koma
slíkri starísemi í gang i sínum lönd-
um. Þegar hafa fjölmargir boöaö
komu sína hingaö til landsins í sum-
ar í þeim tilgangi aö kynnast SAA
betur," sagöi Hendrik Bemdsen.
Islendingar eru miðpunktur ráö-
stefnunnar og hafa flestir þeirra
haldiö ræður um hinar ýmsu hliðar á
starfsemiSAA.
-APH
Hinn nýi slökkvibill á Akureyri.
DV-mynd JBH.
Akureyringar fá
nýjan slökkvibfl
Slökkvilið Akureyrar hefur tekiö
í notkun nýja og glæsilega slökkvibif-
reiö af gerðinni MAN 26.321 DF.
Bifreiöin er 3ja öxla meö drifi á 2 aftari
og meö 3 innbyggðum driflæsingum.
Vélarstærö er 320 hestöfl og gírkassinn
löþrepa.
Yfirbygging nýja bílsins er frá HF.
Nielsens Maskinfabrik a.s. í Dan-
mörku. Vatnstankur tekur 10 þúsund
lítra, froöutankur 600 lítra. Einnig eru
á bílnum 4 áhaldaskápar, 2 háþrýsti-
slöngukefli, 10 metra sundurdreginn
álstigi, Rosenbauer vatns- og froðu-
byssa og Ruberg dæla sem afkastar
yfii- 3000 lítrum á mínútu í lágþrýsti og
300 lítrum til viöbótar í háþrýsti.
Meö bifreiöinni kom líka fullkominn
búnaöur til aö skera sundur járn og
lyfta hlutum. Annars vegar er um aö
ræöa hollensk rifjárn eöa klippur af
Holmatro gerö og hins vegar Wetter
loftpúöa, þýska. Þessi tæki geta til
dæmis komið aö sérlega góðum notum
viö aö bjarga fólki sem er fast í bíl-
flökum eftir umferðarslys.
Heildarverð á slökkvibílnum og
aukabúnaöi er tæpar 4 milljónir króna.
JBH/Akureyri
Eskifjörður:
Aðkomufólki sagt
upp í f iskvinnslu
Nú eru allir skólar að hætta hér á
Eskifiröi og vafasamt aö allir nemend-
ur fái atvinnu, að sögn Hauks Björns-
sonar, rekstrarstjóra hjá Haröfrysti-
húsi Eskifjarðar, en hann segir að
samdráttur sé mikill og eigi eftir að
koma betur í ljós eftir því sem á líður.
Segir Haukur aö nú sé búiö að segja
upp aðkomufólki sem hefur unnið hér í
hraðfrystihúsinu síðan um áramót. 10
danskar stúlkur, sem hafa verið hér
4—5 síöustu mánuöi, fara héöan næstu
daga. Hafa þær reynst vel í fiskvinnslu
fyrir stundvísi og vandvirkni í hví-
vetna, aö sögn Hauks.
I frítímum sínum hafa þær farið
mikiö í göngutúra og einnig hafa þær
gengiö á háfjöllin eins og t.d. Hólma-
tind og Snæfell um páskana. Og al-
gengt er að þær fari út í Vöðlavík, sem
engum Eskfirðingi eða Islendingi
myndi detta í hug, og dveljist þar um
helgar.
Hér hefur ,verið blíöskaparveður
þær 3 vikur sem ég hef verið hér.
—Regína Eskifirði.
Rauðir hundar í landinu
Rauöir hundar hafa stungiö sér niö-
ur á einu barnaheimila borgarinnar.
Er öllum ófrískum konum, sem eru á
fyrstu þremur mánuöum meðgöngu og
ekki hafa verið mældar með tilliti tU
mótefna gegn veikinni, eindregið bent
á aö hafa samband við næstu heilsu-
gæslustöö strax og gangast undir mót-
efnamælingu. Fóstri sem verður fyrir
smiti vegna rauðra hunda er veruleg
hætta búin.
Trúlega hefur veikin borist hingað
frá Þýskalandi. Ef þessi faraldur nær
aö breiðast út gæti hann oröiö í landinu
í eitt til eitt og hálft ár.
-KÞ
VERÐHRUN
ÁÁLSTIGUM
OG -TRÖPPUM?
Nei, einungis
hagstæð innkaup
Nú þegar tími málunar og almenns
viðhalds eignar þinnar er runninn
upp getum við sagt þér gleðitíðindi.
Við seljum mjög vandaða og sterka
v-þýska álstiga og -tröppur á allt að
30% lægra verði en þú færð annars
staðar.
Dæmi: Tvöfaldur á/stigi sem er
í fu/lri lengd, 5,4 m:
Okkar verð aðeins kr. 5.920,-
Það munar um minna.
Líttu inn strax í dag.
Sendum ennfremur í póstkröfu um
allt land.
VELA 0G PALLALEIGAN
FOSSHÁLSI 27, SÍMI 68 71 60.