Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Page 7
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI1984.
7
ÞURRKUN Á ÞVOTTI
aðferð. Kosturinn við siíka þurrkun er
að þvotturinn verður mjúkur og sléttur
þegar vindurinn fær að leika um hann.
Of mikil sól getur þó haft slæm áhrif á
Iþvottinn, s.s. hreytt litum hans. Það er
því mikilvægt að taka þvottinn inn
strax eftir að hann er orðinn þurr.
Þvott, sem er næmur fyrir upplitun,
fer vel á að hengja í skugga ef unnt er
og hengja hann ranghverfan upp.
Þurrkun innandyra
Þar sem þvottur er þurrkaður inni
þarf að vera góð loftræsting, því
annars er hætta á rakaskemmdum.
Til er þvottur sem er það laust ofinn
eða prjónaður að nauðsynlegt er að
láta hann liggja útbreiddan þegar
hann er þurrkaður. Ef þessi þvottur er
hengdur upp er hætt við því að þyngd
vatnsins hafi þau áhrif að viðkomandi
hlutir aflagist. Hægt er aö setja þennan
þvott í vindu eða rúlla honum inn í
handklæöi þar sem hann er látinn vera
í hálfan klukkutíma. Þar næst er hann
breiddur á handklæði og teygður út í
sina upphaflegu mynd. Þegar svo
þvotturinn er orðinn næstum því þurr
er yfirleitt hægt að hengja hann upp á
herðatré til áframhaldandi þurrkunar.
Best er að nota plastherðatré því
herðatré úr tré eöa járni getur smitað
frá sér.
Þurrkun á snúru
Það borgar sig að nota góöan tíma til
að hengja þvottinn upp og gera það á
þann hátt að sem minnst vinna verði á
eftir þegar þarf að brjóta hann saman.
Það er þvi mikilvægt að strekkja á
þvottinum þannig að hann sé í sinni
upphaflegu stærð þegar hann er hengd-
ur upp. Blússur og skyrtur fá besta út-
litið þegar þær eru hengdar upp á
herðatré til þerris.
Þurrkun utandyra
Að þurrka úti er nokkuö ódýr og góð
Aðferð tilaðþurrka t.d. peysur.
Verðhrun!
Ný reglu-
gerð um
garða-
úðun
Sængur.
Verð áður kr. 1.210
Verð nú kr. 890.-
Koddar.
Verð áður kr. 360
Verð nú kr. 260.
Gefin hefur veriö út ný reglugerð um
garðaúðun. Þeir sem nota ákveðin efni
við úðun og flokkast undir eiturefni og
hættuleg efni þurfa að fá leyfi til þess
hjá viðkomandi heilbrigðiseftirliti. I
reglugerðinni er gerð grein fyrir því
hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem
stunda þessa iöju.
Til eru þó hættu minni efni sem hver
og einn garðeigandi getur úðaö sjálfur
á trjágróðurinn i garði sínum.
Upplýsingar um þessi efni og tilheyr-
andi áhöld er hægt að fá í Sölufélagi
garðyrkjumanna. -APH.
20% afslattur
NUDDPOTTAR
SUNDLAUGAR
Svefnpokar
ALLTTIL
SUNDLAUGA
KLÖRTÖFLUR
OG DUFT
SÖLUMENN MEÐ
SÉRÞEKKINGU
Verð áður kr. 1.995
Verð nú kr. 1.195
Sendum í póstkröfu
AUSTURSTRÆTIÍO SIMI 27
Meira en venjuleg verslun!
Gunnar Asgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur