Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Page 8
8 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1984. Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd Sovéskum njósnur- um vísað úr Belgíu Belgía ætlar aö vísa tveim sovéskum erindrekum úr landi en yfirvöld segja að þeir hafi veriö staönir aö því aö reyna aö komast yfir NATO-leyndar- skjöl. I tilkynningu dómsmálaráöu- neytsins segir aö ennfremur veröi íhuguö staöa eins diplómats frá Sovét- ríkjunum, eftir að bundinn hafi verið endi um helgina á njósnaverk Sovét- mannaíBelgíu. Erindrekamir tveir njóta ekki diplómatahelgi en eru þó sagöir hafa séraöstöðu og nokkra vernd svo aö þeir veröa ekki dregnir fyrir rétt, heldur reknir úr landi innan tveggja sólar- hringa. — Fyrr á þessu ári hafa Belgíumenn vísaö sex Rússum úr landi fyrir njósnir. Kvisast hefur aö sá fimmti hafi fariö frá Belgíu í kyrrþey eftir aöyfirvöld óskuöu þess. I tiikynningu þess opinbera um máliö er talaö um NATO-leyndarskjöl en ekkert skýrt nánar frá málinu. Vitaö er aö belgíska lögreglan hefur aö undanförnu rannsakað inn- og út- flutningsfynrtæki austantjalds- ríkis í Antwerpen, sem illur bifur hefur veriö haföur á, en ekki kemur fram hvort sú rannsókn hefur flett ofan af njósnunum. Umsjón: Gunnlaugur A. Jónsson og Guðmundur Pétursson •'t. X'h' b&i if.’í.'XSfi&l . _ ji_____. . f -.............. * ■ ' X—* t .%1" m.' 1_ Frá ólympiuleikunum í Moskvu. Bandarikjamenn mættu ekki á leikana þar og yfirleitt er litið á aðgeröir Sovét- manna nú sem hefnd fyrir þaö. TIL FORSVARSMAN NA FYRIRTÆKJA. B-.BÓNUSÁ FJARFESTINCARSJOÐS- REIKNINCA. Athygli er vakin á breytingu á lögum um tekju- og eigna- skatt, sem gekk í gildi 30. mars 1984. Samkvæmt þeirri breytingu er nú heimilt aö draga 40% frá skattskyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóö. Ressi frádráttur er bundinn því skilyröi, aö skattaðili leggi a.m.k. 50% fjárfestingarsjóöstillagsins inn á verðtn/ggðan, bundinn reikning, fyrir 1. júní og eigi síöar en fimm mánuöum eftir lok reikningsárs. 9. maí s.l. var lögö fram á Alþingi tillaga um að þessi frestur veröi í ár lengdur til 1. júlí. Viö minnum sérstaklega á í þessu sambandi, aö viö BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR IB -BÓNUS Á ALLA . BUNDNASEX MÁNAÐA REIKNINCA. IB-bónusinn er reiknaö- ur tvisvar á ári, íjúlí og janúar. Bónusinn er nú 1.5% p.a. sem leggst sjálfkrafa auk vaxta við innstæðu sem hefur verið án úttektar. Ef fjárfestingarsjóöstillag er lagt inn í lönaöarbank.ann fyrir 1. júlí, n.k. reiknastlB-bónusaukvaxta, af innstæöunni 1. júlí og.aftur 1. janúar, hafi ekki verið tekið út af reikn- ingnumátímabilinu. Rétt er að geta þess, aö þegar slíkur reikningur er opnaður þarf aö taka sérstaklega fram viö starfsfólk bankans, aö um fjárfestingarsjóðsreikning sé aö ræöa. Bankinn birtir þessa auglýsingu til þess aö forsvarsmenn fyrirtækja geti íhugað þessi mál í tíma og væntir þess að geta átt gagnkvæm viöskipti við sem flesta í þessu sambandi. Allar frekari upplýsingar eru veittar í bankanum. Mnaðarbankinn Fereigin leiðir-fyrir sparendur. Neyðir Moskva Rúmeníu til að hætta við þátt- töku í leikunum? Peter Ueberroth, formaöur ólympíunefndar Los Angeles, sakaði í gær Sovétstjórnina um aö halda áfram aö leggja aö öðrum löndum aö hætta viö þátttöku í leikunum. — Sovétstjóm- in hefur þó áöur fullyrt aö hún reyndi ekkert slíkt. Ueberroth var aö fjalla um spurn- ingar varöandi það hvort Rúmenía muni taka þátt í leikunum eöa ekki og sagöi hann ljóst aö Moskvustjómin legöi mjög fast aö öörum löndum aö sniöganga sumarleikana að þessu sinni. Minnti hann á aö Marat Gramov, forgöngumaöur íþróttamála í Sovét- ríkjunum, hefði í Sviss í síðustu viku f ullyrt aö Sovétríkin mundu ekki reyna aö hafa áhrif á aðrar þátttökuþjóðir. — Níu bandamenn Sovétríkjanna í Evrópu og í Asíu hafa þegar tilkynnt að þeir muni ekki taka þátt í leikunum. Rúmenar hafa margítrekaö aö þeir ætli aö senda liö á leikana í Los Angeles. Síöast geröi Nicolae Ceausescu forseti þaö sjálfur. En eftir fund alþjóðlegu ólympíunefndarinnar í Sviss á dögunum var fulltrúi Rúmeníu í nefndinni kallaöur heim skyndilega og hefur þaö vakiö menn til umhugsunar um hvort Rúmenía ætli aöhætta viö. ,,Ef Rúmenía og fleiri ríki hætta viö þátttöku fyrir sömu sakir og önnur austantjaldsríki sjá allir aö Sovétmenn hafa gengið á bak orða sinna um aö láta afskiptalaust hvort aðrir taka þátt í leikunum eöa ekki,” sagöi Ueberroth. Skinner var drepinn Bresk yfirvöld hafa tilkynnt Sovét- stjóminni aö breskur bankamaður hafi veriö drepinn í Moskvu en jjaö var niðurstaöa réttarrannsóknar sem fram fór í London á dauða bankamannsins Dennis Skinner. Skinner hrapaöi til dauða úr íbúð sinni í Moskvu í júní í fyrra en sovésk yfirvöld höfðu komist aö þeirri niöur- stööu að þaö heföi veriö slys. Aöstandendum Skinners þótti „slysið” grunsamlegt, enda var vitað að hann hefði veriö í tengslum viö bæði bresku og sovésku leyni- þjónustuna og haföi nokkrum dögum fyrir „slysiö” látið í ljós áhyggjur við nágranna sína af því aö um líf hans væri setið. Stjómarandstaðan í Bretlandi hefur krafist áframhaldandi rann- sóknar á dauöa Skinners sem iét eftir sig sovéska eiginkonu er ekki hefur viljað snúa aftur austur fyrir jám- tjald. Mannvfg í Punjab Vopnaðir menn skutu til bana þrennt í hinu róstusama fylki Punjab á Indlandi í gær, á meöan Indíra Gandhi forsætisráöherra var í heimsókn í Maharashtra, nágrannafylkinu, þar sem skærur sem kostað hafa 110 manns lífiö hafa verið síðustu fimm daga milli hindúa og múslima. Gandhi heilsaöi upp á aöstandendur þeirra sem falliö hafa í átökunum, heimsótti særða og kom á vettvang þar sem 200 brunnin lík fundust á bóndabæ sem eldur haföi verið borinn í. — Bóndinn gat sagt henni aö um 1000 menn, vopnaðir sverðum og bareflum, heföu ráðist að bænum og myrt alla sem inni vom. Líkin drógu þeir út, helltu steinolíu yfir og kveiktu í. A kommarkaði við landamæri Punjab og Pakistan í gær var skotið af vélbyssu á fólk á ferli. Tveir féllu og fjórir særöust. Fimmtugur maður var skotinn til bana þegar hann opnaöi hús- dyr sínar fyrir ókunnugum sem knúðu dyra og hóf u skothríö á hann um leiö og dyrnar opnuðust.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.