Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 8
8
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ1984.
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Útlönd
Sovéskum njósnur-
um vísað úr Belgíu
Belgía ætlar aö vísa tveim sovéskum
erindrekum úr landi en yfirvöld segja
að þeir hafi veriö staönir aö því aö
reyna aö komast yfir NATO-leyndar-
skjöl.
I tilkynningu dómsmálaráöu-
neytsins segir aö ennfremur veröi
íhuguö staöa eins diplómats frá Sovét-
ríkjunum, eftir að bundinn hafi verið
endi um helgina á njósnaverk Sovét-
mannaíBelgíu.
Erindrekamir tveir njóta ekki
diplómatahelgi en eru þó sagöir hafa
séraöstöðu og nokkra vernd svo aö þeir
veröa ekki dregnir fyrir rétt, heldur
reknir úr landi innan tveggja sólar-
hringa. — Fyrr á þessu ári hafa
Belgíumenn vísaö sex Rússum úr landi
fyrir njósnir. Kvisast hefur aö sá
fimmti hafi fariö frá Belgíu í kyrrþey
eftir aöyfirvöld óskuöu þess.
I tiikynningu þess opinbera um
máliö er talaö um NATO-leyndarskjöl
en ekkert skýrt nánar frá málinu.
Vitaö er aö belgíska lögreglan hefur
aö undanförnu rannsakað inn- og út-
flutningsfynrtæki austantjalds-
ríkis í Antwerpen, sem illur bifur hefur
veriö haföur á, en ekki kemur fram
hvort sú rannsókn hefur flett ofan af
njósnunum.
Umsjón:
Gunnlaugur A. Jónsson
og
Guðmundur Pétursson
•'t. X'h' b&i
if.’í.'XSfi&l . _ ji_____. . f -.............. * ■ ' X—* t .%1" m.' 1_
Frá ólympiuleikunum í Moskvu. Bandarikjamenn mættu ekki á leikana þar og yfirleitt er litið á aðgeröir Sovét-
manna nú sem hefnd fyrir þaö.
TIL
FORSVARSMAN NA
FYRIRTÆKJA.
B-.BÓNUSÁ
FJARFESTINCARSJOÐS-
REIKNINCA.
Athygli er vakin á breytingu á lögum um tekju- og eigna-
skatt, sem gekk í gildi 30. mars 1984.
Samkvæmt þeirri breytingu er nú heimilt aö draga 40%
frá skattskyldum tekjum til að leggja í fjárfestingarsjóö.
Ressi frádráttur er bundinn því skilyröi, aö skattaðili leggi
a.m.k. 50% fjárfestingarsjóöstillagsins inn á verðtn/ggðan,
bundinn reikning, fyrir 1. júní og eigi síöar en fimm
mánuöum eftir lok reikningsárs. 9. maí s.l. var lögö fram á
Alþingi tillaga um að þessi frestur veröi í ár lengdur til 1. júlí.
Viö minnum sérstaklega á í þessu sambandi, aö viö
BJÓÐUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR IB -BÓNUS Á ALLA .
BUNDNASEX MÁNAÐA REIKNINCA. IB-bónusinn er reiknaö-
ur tvisvar á ári, íjúlí og janúar. Bónusinn er nú 1.5% p.a. sem
leggst sjálfkrafa auk vaxta við innstæðu sem hefur verið án
úttektar.
Ef fjárfestingarsjóöstillag er lagt inn í lönaöarbank.ann
fyrir 1. júlí, n.k. reiknastlB-bónusaukvaxta, af innstæöunni
1. júlí og.aftur 1. janúar, hafi ekki verið tekið út af reikn-
ingnumátímabilinu.
Rétt er að geta þess, aö þegar slíkur reikningur er
opnaður þarf aö taka sérstaklega fram viö starfsfólk
bankans, aö um fjárfestingarsjóðsreikning sé aö ræöa.
Bankinn birtir þessa auglýsingu til þess aö forsvarsmenn
fyrirtækja geti íhugað þessi mál í tíma og væntir þess að
geta átt gagnkvæm viöskipti við sem flesta í þessu
sambandi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í bankanum.
Mnaðarbankinn
Fereigin leiðir-fyrir sparendur.
Neyðir Moskva
Rúmeníu til að
hætta við þátt-
töku í leikunum?
Peter Ueberroth, formaöur
ólympíunefndar Los Angeles, sakaði í
gær Sovétstjórnina um aö halda áfram
aö leggja aö öðrum löndum aö hætta
viö þátttöku í leikunum. — Sovétstjóm-
in hefur þó áöur fullyrt aö hún reyndi
ekkert slíkt.
Ueberroth var aö fjalla um spurn-
ingar varöandi það hvort Rúmenía
muni taka þátt í leikunum eöa ekki og
sagöi hann ljóst aö Moskvustjómin
legöi mjög fast aö öörum löndum aö
sniöganga sumarleikana að þessu
sinni.
Minnti hann á aö Marat Gramov,
forgöngumaöur íþróttamála í Sovét-
ríkjunum, hefði í Sviss í síðustu viku
f ullyrt aö Sovétríkin mundu ekki reyna
aö hafa áhrif á aðrar þátttökuþjóðir. —
Níu bandamenn Sovétríkjanna í
Evrópu og í Asíu hafa þegar tilkynnt
að þeir muni ekki taka þátt í leikunum.
Rúmenar hafa margítrekaö aö þeir
ætli aö senda liö á leikana í Los
Angeles. Síöast geröi Nicolae
Ceausescu forseti þaö sjálfur. En eftir
fund alþjóðlegu ólympíunefndarinnar í
Sviss á dögunum var fulltrúi Rúmeníu
í nefndinni kallaöur heim skyndilega
og hefur þaö vakiö menn til
umhugsunar um hvort Rúmenía ætli
aöhætta viö.
,,Ef Rúmenía og fleiri ríki hætta viö
þátttöku fyrir sömu sakir og önnur
austantjaldsríki sjá allir aö Sovétmenn
hafa gengið á bak orða sinna um aö
láta afskiptalaust hvort aðrir taka þátt
í leikunum eöa ekki,” sagöi Ueberroth.
Skinner var
drepinn
Bresk yfirvöld hafa tilkynnt Sovét-
stjóminni aö breskur bankamaður
hafi veriö drepinn í Moskvu en jjaö
var niðurstaöa réttarrannsóknar
sem fram fór í London á dauða
bankamannsins Dennis Skinner.
Skinner hrapaöi til dauða úr íbúð
sinni í Moskvu í júní í fyrra en sovésk
yfirvöld höfðu komist aö þeirri niöur-
stööu að þaö heföi veriö slys.
Aöstandendum Skinners þótti
„slysið” grunsamlegt, enda var
vitað að hann hefði veriö í tengslum
viö bæði bresku og sovésku leyni-
þjónustuna og haföi nokkrum dögum
fyrir „slysiö” látið í ljós áhyggjur
við nágranna sína af því aö um líf
hans væri setið.
Stjómarandstaðan í Bretlandi
hefur krafist áframhaldandi rann-
sóknar á dauöa Skinners sem iét eftir
sig sovéska eiginkonu er ekki hefur
viljað snúa aftur austur fyrir jám-
tjald.
Mannvfg í Punjab
Vopnaðir menn skutu til bana þrennt
í hinu róstusama fylki Punjab á
Indlandi í gær, á meöan Indíra Gandhi
forsætisráöherra var í heimsókn í
Maharashtra, nágrannafylkinu, þar
sem skærur sem kostað hafa 110
manns lífiö hafa verið síðustu fimm
daga milli hindúa og múslima.
Gandhi heilsaöi upp á aöstandendur
þeirra sem falliö hafa í átökunum,
heimsótti særða og kom á vettvang þar
sem 200 brunnin lík fundust á bóndabæ
sem eldur haföi verið borinn í. —
Bóndinn gat sagt henni aö um 1000
menn, vopnaðir sverðum og bareflum,
heföu ráðist að bænum og myrt alla
sem inni vom. Líkin drógu þeir út,
helltu steinolíu yfir og kveiktu í.
A kommarkaði við landamæri
Punjab og Pakistan í gær var skotið af
vélbyssu á fólk á ferli. Tveir féllu og
fjórir særöust. Fimmtugur maður var
skotinn til bana þegar hann opnaöi hús-
dyr sínar fyrir ókunnugum sem knúðu
dyra og hóf u skothríö á hann um leiö og
dyrnar opnuðust.