Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Síða 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984. 31 Sandkorn Sandkorn Sandkorn Innbrot innan starfsramma lög- reglunnar, segir Bjarki. Vítt verksvið Þjónar réttvíslnnar hér á landi hafa í mörgu að snúast, cnda er verksvið þeirra geysivítt. Nægir í því sambandi að minna á innbrot lögreglunnar í íbúð ungrar, elnstæðrar móður á Eiðs- granda. Hafði hún brugðið sér frá með son sinn ungan og skilið útvarpið eftir í gangi. Þegar hún kom heim hafði lögreglan brotist inn í íbúð hennar, án heimildar, tekið ljósin af íbúðinni og skemmt útvarpið, líklega í þeim til- gangi að fá það til að þagna! Konan kærði að sjálfsögðu athæfið. En þegar dagbiöð leituðu skýringa Bjarka Elíassonar yfirlögregluþjóns á innbrotinu, svaraði hann að það væri „innan starf sramma lögreglunnar”. Svo eru menn að halda, að laganna verðir hafi tima til að sitja yfir spilum og tafli allan Ilðlangan daginn! Sovét-Akureyri Rússarnir virðast hafa gaman af því að leika sér á dvergkafbátum sínum uppi i kálgörðum nágrannaþjóða okkar og kannski hafa finnsku kartöflugarðarnir eitthvað smltast líka. Við höfum bara engan her til að rýna ofan i djúpið eftir þeim. Hann hefur að minnsta kosti eitthvað annað að gera. Þessi friðsemd okkar gerir það að verkum að Rússar eru ekkert að fara leynt hérna. Á tímabili i vor var eins og Akureyri væri bær i Rúss- Sovéski fáninn var á fleygiferft í 1. maí göngunni á Akureyri. landi. Rússneska heyrðist úr hverju horni en þetta voru jú bara saklauslr rækjusjómenn á snakki. Eitthvað ruglaðist þó Akureyringurinn, því það vakti mikla athygli að í 1. maí göngu verkalýðsfélaganna var haldið á sovéska fán- anum. Þótti mönnum sem Rússum hefði orðið vel ágengt í rækjusölunni. Nokkur eintök Margir munu hafa orðið fyrir vonbrigðum, þegar kvlkmyndafyrirtækið The Twentieth Century Fox hætti við töku myndarinnar „Enemy Mine” hér á landi. Hafði allstór hópur Islendinga ráðið sig i statista- hlutverk í myndinni, þar á meöal nokkrir Þingeyingar. Um það segir Víkurblaðið á Húsavik: „I siöasta mánuði kom hingað fulitrúi frá kvik- myndafélaginu til að velja nokkur eintök af Þingeying- um til að lelka í myndlnni. Eftir því sem við komumst næst, munu þeir hafa átt að leika einhverjar verur frá öðrum hnetti. Þeir áttu að vera um 180 cm á hæð, mjó- slegnir, með skúffukjaft, út- stæð eyru og skósíða hand- leggi. Heyrst hefur, að fuiltrúi kvikmyndafélagsins hafi ver- ið himinlifandi með árangur sinn í sýsiunni og fundið marga innfædda sem faila undir fyrrgreinda lýsingu.” Á franskan máta Um þessar mundir er verið að innrétta nýjan veitinga- stað í Hamarshúsinu við Tryggvagötu. Verður hann opnaður i byrjun júní. Margir höfðu álitið, að þarna ætti aðopna eina bjór- krána til viðbótar. Það mun þó ekki vera rétt, því að fyrir- hugað er að hleypa af stokkunum matsölustað sem mun kenna sig við franska matargerð. Mun hann sér- hæfa sig í s jávarréttum. Græðir við bryggju Síðasta ár var íslenskri tog- araútgerð erfitt. Varla er sá koppur til sem ekki var rekinn með meiri eða minni halla. Það er víst nokkuð sama hvort þessi útgerðar- fyrirtæki eru i flokki hinna vel reknu eða illa, útkoman er hábölvuð. Nýlega var haldinn aðal- fundur Utgerðarfélags Akur- eyringa hf. Það hefur lengi haft á sér gæðastimpil og þykir með best reknu fyrir- tækjum f útgerðarbransanum og fiskvinnslunni. Engu að Kannski borgar sig bara að leggja þeim. . . síður voru fjórir togarar Ut- gerðarfélagsins reknir með halla í fyrra, Kaldbakur, Svalbakur, Harðbakur og Sléttbakur. Sá fimmti, Sól- bakur, var rekinn með rúm- lcga hálfrar milljónar króna gróða. Það ágæta skip var reyndar bundið við bryggju allt árið og fiskaöi ekki gramm. Nú er að sjá hvort hinum togurunum verður ekkilagt lika. Umsjón: Jóhanua S. Sigþórsdóttir. VOPNAHLÉ TIL HAUSTS, Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir Austurbæjarbíó—Breakdance: Gefið okkur breik Það hefur löngum sannast í þessum heimi að þar sem tveir kyn- þættir koma saman er aðeins rúm fyrir annan. Löngum hefur það verið hvíti maðurinn sem ráðið hefur ferð- inni og ýtt hinum minni máttar til hliðar, út á götu. Meira að segja á heimavelli „and- stæðingsins” er hvíti maðurinn með afgerandi forystu, hinir sópa göturnar. Sá sem tapar á aðeins einn mögu- leika ef hann getur ekki sætt sig við að sópa stræti og torg. Að skara framúr, vera bestur. Blökkumenn í Bandaríkjunum hafa ýmislegt fram yfir kúgara sína og þeir hafa notið þess í landi tæki- færanna. Þaö er þá aöallega í íþróttunum sem þeir svörtu hafa getað gefið öllum öðrum fingurinn og stungiö af. Ymiss konar hlaup og stökk bera þessu ríkulega vitni. Annaö er það einnig. Dansinn. Það er almennt viðurkennt að svart fólk hefur þetta í blóöinu, eins og sagt er. Að hreyfa sig í takt viö hljómfallið er því eins eðlilegtogað anda. 1 allri eymdinni safnast fólk saman niðri á strönd eða í húsaskotum og dansar, dansins vegna. Þannig varð breikiö til. Svertingj- amir í gettóum stórborganna voru orðnir leiðir á að slást og drepa hvor annan svo þeir f óru að keppa um þaö hver væri bestur að dansa. Sigur- vegarinn hlaut hylli viöstaddra að launum en hinn sigraði gekk sneypt- ur á braut og hugði á hefndir. Ekki með því að drepa heldur dansa betur næst. Um þetta f jallar Breakdance sem nú er sýnd í Austurbæjarbíói. Inn í atburðarásina fléttast hvít stúlka, sem reyndar er aðalleikarinn. Hún segir skilið við dansstúdíóið og fer að dansa með götufólkinu. Umboðs- maðurinn hennar „uppgötvar” svo breikið og reynir að koma því á framfæri. En án mikils árangurs, enginn trúir á götudansinn fyrr en þremenningamir (stúlkan og tveir blakkir breikarar) taka til sinna ráða og heilla íhaldssama prófnefndina upp úr skónum á tveimur og hálfri minútu (gróf ágiskun). Þetta er hálfslepjulegur sögu- þráður enda bara hafður með til þess að ekki sé breikað allan tímann og maður fari að biðja um breik áður en hléið kemur. Dansararnir eru dansarar og engir leikarar (hefur engum dottið í hug að fá leik-stuntara í leikatriöin?). En þetta er fyrst og fremst dans- mynd og sem slík er hún góð og ekki er það bara breik sem er dansað heldur er mikil jassballett blanda í honum. Þaö er greinilegt á öilu hand- bragði við vinnslu aö myndin hefur verið gerð í einum grænum til að koma henni sem fyrst á götuna. En dansatriðin eru jafngóð fyrir það. Þetta er jú lisk List götunnar. Sigurbjöm Aðalsteinsson. Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir 300 undirskríftir á Húsavík og íÞingeyjarsýslum: Skora á Jóbannes að „Þaö em reiðir menn á Húsavík sem standa að þessari undirskriftasöfnun,” sagði Arnar Björnsson er DV spurði hann um undirskriftir sem verið er að safna í Þingeyjarsýslum og á Húsavík til að mótmæla málverkagjöf til Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra. „Það hafa yfir 300 manns skrifað undir, á Húsavík, í Mývatnssveit og á Tjömesi. Fólk á sunnanverðu landinu hefur líka haft samband við okkur en við ætlum aö láta okkur næg ja að safna hér hjá okkur,” sagði Arnar. Undirskriftasöfnunin hófst síðast- liðinn fimmtudag. Hún byrjaði á kaffi- stofu Víkurblaðsins. Texti undir- skriftaskjalsins hljóðarsvo: „A tímum aðhalds og sparnaðar ger- ist sá fáheyrði atburður að einum em- bættismanni íslensku þjóðarinnar, Jóhannesi Nordal, em færöar tvær málverkagjafir að upphæð krónur 480 þúsund. Um leiö og við undirritaður hörmum að opinberar stofnanir (Seðlabanki og Landsvirkjun) sjái sér fært að verja rúmum þrennum árs- launum verkamanns í gjafir handa einum einstaklingi, skorum viö á Jóhannes Nordal að skila aftur þessum gjöfum og aö andviröi málverkanna verði notað til þess að fylla upp í fjár- lagagat ríkisstjórnarinnar. Allt tal um spamað og aöhald í ríkisbúskapnum er marklaust ef embættismenn í þjónustu hins opinbera sjá ekki sóma sinn í að afneitaslíkumgjöfum.” -KMU. Dregið í Afmælisgetraun Vikunnar. Frá vinstri: Páll Stefánsson, auglýsingastjóri Frjálsrar fjölmiðiunar, Gauja Sigríður Karlsdóttir, starfsmaður auglýsinga- deildarinnar sem dró úr innsendum lausnum, Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunn- ar, Steinþór Einarsson, sölustjóri Samvinnuferða-Landsýnar, og Þorkell Gíslason borgarfógeti sem annaðist útdráttinn. Bóndi vinnurfjöl- skylduferð til Hollands Þegar dregiö var í þriðja hluta Afmælisgetraunar Vikunnar, 17. mai síöastliðinn, kom upp hlutur Jónasar Baldurssonar, bónda að Lundarbrekku í Bárðardal. Vinningurinn er þriggja vikna f jölskylduferð og dvöl í sæluhúsi í Hollandi á vegum Samvinnuferða- Landsýnar. Aöur hafa þrír vinningar veriö dregnir út í þessari afmælisgetraun, skemmtisigling fyrir tvo um Karíba- haf og tvær þriggja vikna ferðir fyrir tvotilMallorca. I næstu viku verður dregið í f jórða og síðasta sinn í getrauninni. Þá er dregið um fjórhjóladrifinn fjölskyldubíl, Toyota Tercel. Eskifjörður: Eimskip komið 21 sinni á árinu Alls hefur komið 21 skip á vegum Eimskips til Eskif jarðar það sem af er þessu ári og að sögn Ingólfs Friðgeirs- sonar, starfsmanns á afgreiðslu Eim- skips á Eskifirði, var verið að lesta í norska leiguskipið Utsum á þeirra vegum freðfisk hjá Hraðfrystihúsi Eskifjaröar. Mun fiskur þessi fara á „blandaðan” markað, þ.e. bæði austur og vesturumhaf. Regína/Eskifirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.