Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Qupperneq 31
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984.
31
Sandkorn Sandkorn Sandkorn
Innbrot innan starfsramma lög-
reglunnar, segir Bjarki.
Vítt verksvið
Þjónar réttvíslnnar hér á
landi hafa í mörgu að snúast,
cnda er verksvið þeirra
geysivítt. Nægir í því
sambandi að minna á innbrot
lögreglunnar í íbúð ungrar,
elnstæðrar móður á Eiðs-
granda. Hafði hún brugðið
sér frá með son sinn ungan og
skilið útvarpið eftir í gangi.
Þegar hún kom heim hafði
lögreglan brotist inn í íbúð
hennar, án heimildar, tekið
ljósin af íbúðinni og skemmt
útvarpið, líklega í þeim til-
gangi að fá það til að þagna!
Konan kærði að sjálfsögðu
athæfið. En þegar dagbiöð
leituðu skýringa Bjarka
Elíassonar yfirlögregluþjóns
á innbrotinu, svaraði hann að
það væri „innan starf sramma
lögreglunnar”.
Svo eru menn að halda, að
laganna verðir hafi tima til
að sitja yfir spilum og tafli
allan Ilðlangan daginn!
Sovét-Akureyri
Rússarnir virðast hafa
gaman af því að leika sér á
dvergkafbátum sínum uppi i
kálgörðum nágrannaþjóða
okkar og kannski hafa
finnsku kartöflugarðarnir
eitthvað smltast líka. Við
höfum bara engan her til að
rýna ofan i djúpið eftir þeim.
Hann hefur að minnsta kosti
eitthvað annað að gera.
Þessi friðsemd okkar gerir
það að verkum að Rússar eru
ekkert að fara leynt hérna. Á
tímabili i vor var eins og
Akureyri væri bær i Rúss-
Sovéski fáninn var á fleygiferft í 1.
maí göngunni á Akureyri.
landi. Rússneska heyrðist úr
hverju horni en þetta voru jú
bara saklauslr rækjusjómenn
á snakki. Eitthvað ruglaðist
þó Akureyringurinn, því það
vakti mikla athygli að í 1. maí
göngu verkalýðsfélaganna
var haldið á sovéska fán-
anum. Þótti mönnum sem
Rússum hefði orðið vel
ágengt í rækjusölunni.
Nokkur eintök
Margir munu hafa orðið
fyrir vonbrigðum, þegar
kvlkmyndafyrirtækið The
Twentieth Century Fox hætti
við töku myndarinnar
„Enemy Mine” hér á landi.
Hafði allstór hópur
Islendinga ráðið sig i statista-
hlutverk í myndinni, þar á
meöal nokkrir Þingeyingar.
Um það segir Víkurblaðið á
Húsavik:
„I siöasta mánuði kom
hingað fulitrúi frá kvik-
myndafélaginu til að velja
nokkur eintök af Þingeying-
um til að lelka í myndlnni.
Eftir því sem við komumst
næst, munu þeir hafa átt að
leika einhverjar verur frá
öðrum hnetti. Þeir áttu að
vera um 180 cm á hæð, mjó-
slegnir, með skúffukjaft, út-
stæð eyru og skósíða hand-
leggi.
Heyrst hefur, að fuiltrúi
kvikmyndafélagsins hafi ver-
ið himinlifandi með árangur
sinn í sýsiunni og fundið
marga innfædda sem faila
undir fyrrgreinda lýsingu.”
Á franskan máta
Um þessar mundir er verið
að innrétta nýjan veitinga-
stað í Hamarshúsinu við
Tryggvagötu. Verður hann
opnaður i byrjun júní.
Margir höfðu álitið, að
þarna ætti aðopna eina bjór-
krána til viðbótar. Það mun
þó ekki vera rétt, því að fyrir-
hugað er að hleypa af
stokkunum matsölustað sem
mun kenna sig við franska
matargerð. Mun hann sér-
hæfa sig í s jávarréttum.
Græðir við
bryggju
Síðasta ár var íslenskri tog-
araútgerð erfitt. Varla er sá
koppur til sem ekki var
rekinn með meiri eða minni
halla. Það er víst nokkuð
sama hvort þessi útgerðar-
fyrirtæki eru i flokki hinna
vel reknu eða illa, útkoman er
hábölvuð.
Nýlega var haldinn aðal-
fundur Utgerðarfélags Akur-
eyringa hf. Það hefur lengi
haft á sér gæðastimpil og
þykir með best reknu fyrir-
tækjum f útgerðarbransanum
og fiskvinnslunni. Engu að
Kannski borgar sig bara að leggja
þeim. . .
síður voru fjórir togarar Ut-
gerðarfélagsins reknir með
halla í fyrra, Kaldbakur,
Svalbakur, Harðbakur og
Sléttbakur. Sá fimmti, Sól-
bakur, var rekinn með rúm-
lcga hálfrar milljónar króna
gróða. Það ágæta skip var
reyndar bundið við bryggju
allt árið og fiskaöi ekki
gramm. Nú er að sjá hvort
hinum togurunum verður
ekkilagt lika.
Umsjón:
Jóhanua S. Sigþórsdóttir.
VOPNAHLÉ TIL HAUSTS,
Kvikmyndir Kvikmyndir Kvikmyndir
Austurbæjarbíó—Breakdance:
Gefið okkur breik
Það hefur löngum sannast í
þessum heimi að þar sem tveir kyn-
þættir koma saman er aðeins rúm
fyrir annan. Löngum hefur það verið
hvíti maðurinn sem ráðið hefur ferð-
inni og ýtt hinum minni máttar til
hliðar, út á götu.
Meira að segja á heimavelli „and-
stæðingsins” er hvíti maðurinn með
afgerandi forystu, hinir sópa
göturnar.
Sá sem tapar á aðeins einn mögu-
leika ef hann getur ekki sætt sig við
að sópa stræti og torg. Að skara
framúr, vera bestur.
Blökkumenn í Bandaríkjunum
hafa ýmislegt fram yfir kúgara sína
og þeir hafa notið þess í landi tæki-
færanna. Þaö er þá aöallega í
íþróttunum sem þeir svörtu hafa
getað gefið öllum öðrum fingurinn og
stungiö af.
Ymiss konar hlaup og stökk bera
þessu ríkulega vitni. Annaö er það
einnig. Dansinn. Það er almennt
viðurkennt að svart fólk hefur þetta í
blóöinu, eins og sagt er. Að hreyfa
sig í takt viö hljómfallið er því eins
eðlilegtogað anda.
1 allri eymdinni safnast fólk saman
niðri á strönd eða í húsaskotum og
dansar, dansins vegna.
Þannig varð breikiö til. Svertingj-
amir í gettóum stórborganna voru
orðnir leiðir á að slást og drepa hvor
annan svo þeir f óru að keppa um þaö
hver væri bestur að dansa. Sigur-
vegarinn hlaut hylli viöstaddra að
launum en hinn sigraði gekk sneypt-
ur á braut og hugði á hefndir. Ekki
með því að drepa heldur dansa betur
næst.
Um þetta f jallar Breakdance sem
nú er sýnd í Austurbæjarbíói. Inn í
atburðarásina fléttast hvít stúlka,
sem reyndar er aðalleikarinn. Hún
segir skilið við dansstúdíóið og fer að
dansa með götufólkinu. Umboðs-
maðurinn hennar „uppgötvar” svo
breikið og reynir að koma því á
framfæri. En án mikils árangurs,
enginn trúir á götudansinn fyrr en
þremenningamir (stúlkan og tveir
blakkir breikarar) taka til sinna
ráða og heilla íhaldssama
prófnefndina upp úr skónum á
tveimur og hálfri minútu (gróf
ágiskun).
Þetta er hálfslepjulegur sögu-
þráður enda bara hafður með til
þess að ekki sé breikað allan tímann
og maður fari að biðja um breik áður
en hléið kemur.
Dansararnir eru dansarar og engir
leikarar (hefur engum dottið í hug að
fá leik-stuntara í leikatriöin?).
En þetta er fyrst og fremst dans-
mynd og sem slík er hún góð og ekki
er það bara breik sem er dansað
heldur er mikil jassballett blanda í
honum. Þaö er greinilegt á öilu hand-
bragði við vinnslu aö myndin hefur
verið gerð í einum grænum til að
koma henni sem fyrst á götuna. En
dansatriðin eru jafngóð fyrir það. Þetta
er jú lisk List götunnar.
Sigurbjöm Aðalsteinsson.
Kvikmyndir
Kvikmyndir
Kvikmyndir
300 undirskríftir á Húsavík og
íÞingeyjarsýslum:
Skora á Jóbannes að
„Þaö em reiðir menn á Húsavík sem
standa að þessari undirskriftasöfnun,”
sagði Arnar Björnsson er DV spurði
hann um undirskriftir sem verið er að
safna í Þingeyjarsýslum og á Húsavík
til að mótmæla málverkagjöf til
Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra.
„Það hafa yfir 300 manns skrifað
undir, á Húsavík, í Mývatnssveit og á
Tjömesi. Fólk á sunnanverðu landinu
hefur líka haft samband við okkur en
við ætlum aö láta okkur næg ja að safna
hér hjá okkur,” sagði Arnar.
Undirskriftasöfnunin hófst síðast-
liðinn fimmtudag. Hún byrjaði á kaffi-
stofu Víkurblaðsins. Texti undir-
skriftaskjalsins hljóðarsvo:
„A tímum aðhalds og sparnaðar ger-
ist sá fáheyrði atburður að einum em-
bættismanni íslensku þjóðarinnar,
Jóhannesi Nordal, em færöar tvær
málverkagjafir að upphæð krónur 480
þúsund. Um leiö og við undirritaður
hörmum að opinberar stofnanir
(Seðlabanki og Landsvirkjun) sjái sér
fært að verja rúmum þrennum árs-
launum verkamanns í gjafir handa
einum einstaklingi, skorum viö á
Jóhannes Nordal að skila aftur þessum
gjöfum og aö andviröi málverkanna
verði notað til þess að fylla upp í fjár-
lagagat ríkisstjórnarinnar. Allt tal um
spamað og aöhald í ríkisbúskapnum er
marklaust ef embættismenn í þjónustu
hins opinbera sjá ekki sóma sinn í að
afneitaslíkumgjöfum.” -KMU.
Dregið í Afmælisgetraun Vikunnar. Frá vinstri: Páll Stefánsson, auglýsingastjóri
Frjálsrar fjölmiðiunar, Gauja Sigríður Karlsdóttir, starfsmaður auglýsinga-
deildarinnar sem dró úr innsendum lausnum, Sigurður Hreiðar, ritstjóri Vikunn-
ar, Steinþór Einarsson, sölustjóri Samvinnuferða-Landsýnar, og Þorkell Gíslason
borgarfógeti sem annaðist útdráttinn.
Bóndi vinnurfjöl-
skylduferð til Hollands
Þegar dregiö var í þriðja hluta
Afmælisgetraunar Vikunnar, 17. mai
síöastliðinn, kom upp hlutur Jónasar
Baldurssonar, bónda að Lundarbrekku
í Bárðardal. Vinningurinn er þriggja
vikna f jölskylduferð og dvöl í sæluhúsi
í Hollandi á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar.
Aöur hafa þrír vinningar veriö
dregnir út í þessari afmælisgetraun,
skemmtisigling fyrir tvo um Karíba-
haf og tvær þriggja vikna ferðir fyrir
tvotilMallorca.
I næstu viku verður dregið í f jórða og
síðasta sinn í getrauninni. Þá er dregið
um fjórhjóladrifinn fjölskyldubíl,
Toyota Tercel.
Eskifjörður:
Eimskip komið 21 sinni á árinu
Alls hefur komið 21 skip á vegum
Eimskips til Eskif jarðar það sem af er
þessu ári og að sögn Ingólfs Friðgeirs-
sonar, starfsmanns á afgreiðslu Eim-
skips á Eskifirði, var verið að lesta í
norska leiguskipið Utsum á þeirra
vegum freðfisk hjá Hraðfrystihúsi
Eskifjaröar. Mun fiskur þessi fara á
„blandaðan” markað, þ.e. bæði austur
og vesturumhaf. Regína/Eskifirði.