Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Side 32
32 DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984. Andlát Davíö Guðjónsson lést 12. maí sl. Hann fæddist 16. september 1902 á Arnar- stööum í Hraungeröishreppi. Foreldr- ar hans voru Elín Bjarnadóttir og Guöjón Guðmundsson. Davíö giftist Kristjönu Arnadóttur en hún lést áriö 1970. Þau eignuðust tvö börn og er eitt á lífi. Davíö vann lengst af viö tré- smíöar, hann var verkstjóri hjá Trésmiöju ríkisins 1947-52, eftir þaö vann hann nokkur ár viö byggingar. Síöustu árin vann hann einkum viö smíöar á verkstæöi — smíðaði innrétt- ingar og geröi við tréverk. Utför hans veröur gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Guðmunda Erlendsdóttir, Smáratúni 36 Keflavík, andaöist í Borgarspítalan- um aö kvöldi 15. maí. Jaröarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardag- inn26. maíkl. 14. Helga Guðmundsdóttir, Þórufeili 4, lést á heimili sínu 18. maí. Agúst Sigurösson lést í Landakots- spítala 18. maí. Oddrún F. Guömundsdóttir veröur jarösungin frá Fossvogskirkju miö- vikudaginn23.maíkl. 13.30. Jónas Hallgrímsson húsgagnasmíöa- meistari veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju miövikudaginn 22. maíkl. 15. Aðalsteinn Asgeirsson heilsugæslu- læknir, Þórshöfn, andaöist á heimili sínu aö morgni 19. maí. Tilkynningar 6. göngudagur Ferðafélags íslands: Sunnudaginn 27. maí efnir Feröafélag Islands til göngudags í sjötta skipti. Gönguleiðin er umhverfis Helgafell sem er stuttan spöl suð- austan Hafnarfjarðar og gert er ráð fyrir að gangan taki tvo til þrjá klukkutíma og gönguhraði við allra hæfi. Ekið verður að Kaldárseli, en þar hefst gangan og lýkur einnig. Fólk á eigin bilum er velkomið. Verð kr. 100. Brottfarartímar eru kl. 10.30 og kl. 13.00 frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin, og eru farmiðar seldir við bílana. Frítt er fyrir börn í fylgd fullorðinna. Fararstjórar verða margir í ferðinni. Notið tækifærið og gangið með Ferðafélaginu, það svíkur engan. A leiöinni verður áð til þess að boröa nesti. Munið eftir regnfötum og góðum skóm. Helgarferð í Þórsmörk 25. maí—27. maí: Brottför kl. 20.00. Gist í Skagfjörðsskála. Gönguferðir með fararstjóra um Mörkina. Farmiðasala og allar upplýsingar á skrif- stofunni, Oldugötu 3. SHIPMATE:r MARINE ELECTRONICS ® RS 1000 Vindhraða- og vind- stefnumælar. Fridrik A. Jónsson h.f. Skiphoiti 7, Reykjavik, Simar 14135 - 14340. nlitj.,astu<u ,iyít. u v Afmælisrit: I tilefni 75 ára afmætls Páls Jónssonar bóka- varðar, í júní nk., verður gefið út rit honum til heiðurs. Ritið verður ekki til sölu á almennum markaði og kostar til áskrifenda kr. 700,00. Askrifendalisti liggur frammi á skrifstofu Ferðafélagsins. Athugið, áskrift lýkur 30. maí nk. Ferðafélag Islands. Nýjar víddir í vörnum Evrópu Francois de Tricomot de Rose, san var fasta- fulltrúi Frakklands hjá Atlantshafsbanda- laginu á árunum 1970 til 1974, er væntanlegur hingaö til lands á vegum Samtaka um vest- ræna samvinnu (S VS). I kvöld, þriðjudagskvöldið 22. maí, verður hann framsögumaður á fundi, sem SVS gang- ast fyrir ásamt Varðbergi á Hótel Esju, annarri hæð. Fundurinn hefst klukkan hálfníu og er hann ætlaður félagsmönnum í SVS og Varðbergi og gestum þeirra. Framsöguerindi sitt flytur de Rose á ensku og nefnir það: „Nýjar víddir í vömum Evrópu”. Francois de Rose á að baki langan og fjöl- breytilegan feril í frönsku utanríkisþjónust- unni og hefur gegnt mörgum trúnaðarstöðum fyrir franska ríkiö. Hann er höfundur bókanna ,,La France et la Défense de l’Europe” og „Contre la Stratégie des Curiaees”. Hvítasunnuferðir Ferða- félagsins, 8.—11. júní (4 dagar): 1. Gengið á Oræfajökul (2119 m). Gist í tjöldum í Skaftafelii. 2. Skaftafell. Gönguferðir með fararstjóra um þjóðgarðinn. Gist i tjöldum. 3. Þórsmörk — Fimmvörðuháls (dagsferð). Gist í Skagf jörðsskála. 4. Þórsmörk. Gönguferðir daglega við allra hæfi. 5. Snæfellsnes — SnæfeUsjökull. Gengið á jökulinn og famar skoðunarferðir um nesið. Gist í Arnarfelli á Amarstapa. Þessar ferðir verða kynntar á Hótel Hofi 28. maí nk. Allar upplýsingar á skrifstofunni, Öldugötu3. Ferðafélag Islands. Stéttartal Ijósmæðra Skil á myndum frá 22. maí 1984 og í næstu tvær vikur virka daga klukkan 17—19 að Grettisgötu 89,1. hæð. Ritstjóri. Aætlun Akraborgar Frá Akranesi Kl. 8.30* Kl. 11.30 Ki. 14.30 Kl. 17.30 Frá Reykjavík Kl. 10.00* Kl. 13.00 Kl. 16.00 Kl. 19.00 Kvöldferðir kl. 20.30 og 22.00. Á sunnudögum í apríl, maí, september og október. A föstudögum og sunnudögum í júní, júlí og ágúst. Tvö drengjareiðhjól töpuðust Aðfaranótt laugardagsins hurfu tvö silfruð Supería drengjareiðhjól frá Háaleitisbraut 119. Voru bæði hjólin svo til ný. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefið um hjólin eru vinsamlegast beðnir að hringja í síma 37181. Einsöngsplata með Jóni Kr. Ólafssyni Nýja einsöngsplatan með Jóni Kr. Olafssyni frá Bíldudal er komin aftur í hljómplötudeild u: í gærkvöldi í gærkvöldi Útvarp f rá Alþingi? A alþingi komu fram hugmyndir um beinar útsendingar frá þinginu. Kannski þætti sumum slíkt skemmti- legt síöustu daga þingsins þegar margt hefur borið til tíöinda eins og nú. En slíkar útsendingar væru frá- leitar. Þingmenn eru einfaldlega litlir skemmtikraftar. Eldhúsdags- umræðum var útvarpað fyrir skömmu. Eg hlustaði á og fannst sem oft endranær að ég væri eini hlustandinn á landinu, I Bandaríkjunum fylgdist þjóðin með athygli með yfirhey rslum þingnefnd- ar í Watergatemálinu. Slíkar yfir- heyrslur tíðkast ekki hér. Yrði daglegum störfum þingsins útvarpað mundu þingmenn flytja framboðs- ræður í síbylju. Þeir flytja nógu margar framboðsræður eins og er ef vera kynni að einhver vinsamlegur fjölmiölamaður skyldi hafa eitthvaö eftir þeim. Og hver vill fá á öldum ljósvakans langhunda Hjörleifs eða Jóns Baldvins? A hinn bóginn mætti annað veifið útvarpa spennandi at- kvæðagreiöslu, svo sem nafnakalli. Væri meira útvarpað frá þinginu mundu hlustendur bara flýja á náðir Rsar 2. Mér datt þetta í hug í gær- kvöldi þar sem þingi fer að ljúka. Hefði orðið af atkvæðagreiðslu um þjóðaratkvæði um bjór heföi nafna- kalla veriö gimilegt útvarpsefni — en svo verður víst ekki. Þingsköpum yrði að breyta, svo sem með styttum ræðutíma, eigi að vera unnt að auka aö ráði útvarp frá Alþingi. Sú breyt- ing er einnig nauösynleg til aö bjarga þinginu úr þeim glundroöa sem nú ríkir í meðferð mála. Haukur Helgason. Silja Aðalsteinsdóttir: Óvenjulegt efni í sjónvarpsleikritinu „Ef þú værir að inna eftir bóka- lestri mínum í gærkvöldi þá myndi ég geta sagt meira um hann en um sjónvarpsefni gærkvöldsins. Eg kveikti þó sérstaklega á sjónvarpstækinu til að horfa á Konu- kjánana. Þar var á feröinni mjög sérstök mynd um mjög sérstakt efni. Þaö er ekki algengt að fjallað sé um hve börn geta elskaö foreldra sína heitt en samt skammast sín fyrir þau. Aðalleikarinn Maggie Smith er geysilega mögnuð leikkona og getur alveg skilið mann eftir í rusli. Þetta vargóðmynd. I útvarpinu heyrði ég Lög unga fólksins álengdar. Eg er ánægð með að krökkum skuli vera gefinn þessi tími á milli átta og níu á kvöldin, alla daga vikunnar. Þaö er mjög mikiö af krökkum í kringum mig sem hlustar á þessa þætti g eru ánægð með. Fálkans. Einnig er platan til sölu hjá söngvaranum sjálfum á Bíldudal. íþróttir Dunlop open Golfklúbbur Suðurnesja Opið mót haldið á Hólmsvelli í Leiru dagana 26. 27. mai. Þetta er höggleikur 36 holur með ogánforgjafar. Dunlop open er nú haldið í fimmtánda sinn og verða verðlaun hin glæsilegustu eins og alltaf hefur verið í þessu opna móti. Það er Austurbakki h/f sem gefur verölaunin til keppninnar. Skráning hefst á miðvikudag 23. maí. Hólmsvöllur í Leiru er nú að komast í sitt besta form og nú er bara að biðja um gott veður. Knattspyrnuskóli Fram 1984 Hinn geysivinsæli knattspymuskóli FRAM verður starfræktur nú í sumar með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hvert námskeið stendur í tvær vikur og skiptist í tvo hópa eftir aldri. Eldri hópur kl. 9-12, fædd 1972,1973 og 1974. Yngri hópur kl. 13—16, fædd 1975, 1976, 1977 og 1978. Námskeið verða sem hér segir: A. 4. júní til 15. júní. B. 18. júní til 29. júní. C. 2. júlí til 13. júlí. D. 16. júlí til 27. júlí. Athugið! Námskeiðin verða líka á föstudögum. Aðalkennari verður Sigurbergur Sig- steinsson íþróttakennari og honum til aðstoðar verður Gylfi Orrason. Jafnframt Ung stúlka var nærri drukknuð í Peningagjá á Þingvöllum á laugardag, þar sem hjálparsveit skáta var við æfingar. Er líðan hennar nú góð eftir atvikum. Hópur manna úr hjálparsveit skáta í Hafnarf. var á Þingvöllum um helg- ina þar sem veriö var að æfa kletta- klifur, köfun og fleira. Unga Stúlkan, sem er 16 ára og hefur æft með köfunarflokki sveitarinnar um skeið, var aö kafa við grynnri enda Peninga- gjár, þegar henni fataðist og hún sökk til botns. Vanir kafarar höfðu umsjón með köfuninni og einn þeirra hafði sér- stakt auga með stúlkunni. Sá hann aö ekki var allt með felldu og gaf þegar fyrirskipanir um björgunaraðgerðir. Þegar komið var aö stúlkunni, sem munu ýmsir þekktir knaítspymumenn koma í heimsókn, þar á meðal landsliðsmennirnir Marteinn Geirsson, Trausti Haraldsson og Guðmundur Baldursson. Þá mun þjálfari meistaraflokks, Jóhannes Atlason, einnig koma við. Verð fyrir hvert námskeið er 550 krónur. Innritun fer fram í Framheimilinu við Safa- mýri alla virka daga kl. 13—14 og eftir kl. 17. Upplýsingar í síma 34792. Knattspyrnuskóli KR Undanfarin 5 sumur hefur knattspymudeild KR rekið knattspyrnuskóla fyrir yngstu krakkana á KR-svæðinu. SkóUnn er fyrir drengi og stúlkur á aldrinum 6—12 ára. 10—12 ára krakkar verða í skólanum alla virka daga kl. 9.30-11, 8-9 ára kl. 11.15-12.45 og 6—7 ára böm kl. 13.30—15.00. Niðurröðun námskeiðanna veröur annars semhérsegir: 1. 28. maí—14.júní. 2. 15. júní—1. júlí. 3. 9. júlí—24. júlí. 4. 25. júlí—10. ágúst. 5. 14. ágúst—29. ágúst. Aðalkennari verður Ágúst Már Jónsson, íþróttakennari og leikmaðurmfl. KR, en hann kenndi síðast við skólann sumarið 1982. Iþróttasvæði KR er eitt hið besta í borginni og virðast grasveUirnir vera í mjög góðu ásig- komulagi. Námskeiðin fara að sjálfsögðu fram á grasvöllunum en ef Ula viðrar þá verða íþróttasalir félagsins notaðir. Innritun stendur yfir á skrifstofu knatt- spyrnudeUdar KR í KR-heimiUnu við Frosta- skjól (s. 27181) og þar eru allar nánari upplýsingarveittar. Firmakeppni Fylkis Fyrsta firmakeppni sumarsins verður haldin á ArbæjarvelU helgina 26.-27. maí. SpUað verður þvert á völUnn með 7 manna liðum. Tilkynnið strax þátttöku í síma 84998, Sig- mundur, 78889, Guðmundur, og 78536, Hreinn, eftúkl. 17. KnattspyrnudeUd. ekki var með líflínu, haföi hún rifið af sér munnstykkið, gleraugun og kafara- hettuna. Var hún meðvitundarlaus. Komu þeir stúlkunni upp á bakka gjárinnar þar sem sjúkrabíll var til taks svo og kennari í skyndihjálp. Voru þegar hafnar h'fgunaraðgerðir, bæði blástur og hjartahnoð og lagt af stað í bæinn. Var haft samband við hjartabíl- inn, sem kom á móti sjúkrabílnum. A leiðinni fór stúlkan að anda sjálf. Hún var flutt á gjörgæsludeild Landakots- spítala þar sem hún komst til meðvit- undar snemma á sunnudag. Þegar DV hafði samband við Landakotsspítala um miðjan dag í gær var stúlkan enn á gjörgæslu en líðanin sögð góð eftir atvikum. -KÞ Lagermað- urinn í Sjöfn hef ur játað Lagermaðurinn í Sjöfn, sem hand- tekinn var í fyrri viku, hefur viður- kennt aö hafa dregiö sér fé. Mun þó vera um lítinn fjárdrátt aö ræða eða nokkra tugi þúsunda. Máhð er enn í rannsókn en yfirheyrslum er lokið. JBH/Akureyri Togarinn Snæfugl seldi í Bremerhaven: Verðmætið vartæpar 5 milljónir Togarinn Snæfugl frá Reyðar- firöi seldi nýlega rúm 174 tonn af karfa og grálúðu í Bremerhaven í Þýskalandi og fékk aö meðaltah 28 kr. fyrir kg eða alls um tæpar 5 milljónir fyrir aflann. Hallgrímur Jónasson, fram- kvæmdastjóri Skipakletts, sagði í samtali við DV að þetta væri mjög gott verð fyrir þennan afla á þessum árstíma. Hann taldi að há- setahluturinn fyrir þennan afla gæti numið um 56 þúsund kr. -Regína/Eskifirði. Sjötugsafmæli I dag, þriðjudaginn 22. maí, er sjötugur Sigurður Guðmundsson, fyrrv. tæknifulltrúi á Símstöðinni hér í Reykjavík, Krummahólum 2 í Reykja- vík. Hann er að heiman. 16 ára stúlka nærri drukknuð við köfunaræfingu: Fataðist og sökk til botns — en var bjargað á elleftu stundu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.