Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Blaðsíða 35
DV. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAl 1984.
35
Vín hefur oft breytt mönnum, aö
minnsta kosti um stundarsakir. Hvaö
þá Vín í viku. Einu sinni var sagt aö
fullorönir yrðu sem börn og böm sem
full-oröin. Og víst var lund manna létt-
ari en í streðinu heima strax og lagt
var upp í vikuferð DV-áskrifenda meö
feröaskrifstofunni Atlantik til Vínar-
borgar fyrir skömmu.
Dvelja skyldi vikutíma í borginni,
fara í óperuna, aðskiljanlegar skoðun-
arferöir og annað eftir höföi þátt-
takenda.
Vín kemur á óvart
Vínarborg hefur löngum verið róm-
uö sem háborg menningar og lista,
ekki síst á sviöi tónlistar. Feröalangar
áttu eftir aö komast aö því aö þau orö
höföu viö rök að styðjast. En því til við-
bótar reyndist Vínarborg líká hafa upp
á aö bjóða almennar lystisemdir stór-
borgar án þess að vart yrði þeirrar
spillingar sem oft vill fylg ja slíkum. Aö
minnsta kosti bar ekki á henni á göt-
um og torgum eins og víöa í stórborg-
um. Þaö kom sem sé í ljós aö næturlíf
var meö miklum blóma þannig aö þeir
sem ekki voru sérstakir áhugamenn
um að rífa sig upp eldsnemma á
morgnana þurftu ekki að láta sér leið-
ast þar til svefnhöfginn sótti á þá.
gamla og virta óperuhúsi sem tekur
um 1600 manns í sæti en er þrátt fyrir
það oftast fullbókaö.
Sjálft húsið er áberandi fallegt og
mikið stolt Vínarbúa. Hún var byggð
milli áranna 1861 og 1869 en eyðilagöist
1945 eins og svo margar aörar bygging-
ar í Vín. Siöan hefur hún verið endur-
byggð.
Dóná svo blá
Nauðsynlegt þótti að sannreyna Ut-
inn á Dóná á fleiri stööum en þar sem
hún rennur í gegnum borgina og auö-
vitaö varö líka aö njóta þeirrar sér-
stöku tilfinningar aö sigla um ána.
Farið var í heilsdagsferð um Wachau
héraö sem Dóná liðast um. A leiðinni í
rútunni gaf aö líta þá gömlu menningu
sem enn hefur varðveist á bökkum
Dónár.
Gömlu vínekrumar vöktu sérstaka
athygli og gaman var að sjá bændur
hlúa að þessum gróörí sínum.
Svo tók við siglingin um sjálfa Dón-
á. Draumur margra þátttakenda í DV
ferðinni haföi nú ræst; sigling um
Dóná! Ekki gefst kostur á að lýsa öllu
sem fyrir augu bar en það var sam-
stilltur hópur í góðri stemmningu sem
kom heim á hótel að ferðinni lokinni.
Verslun og viðskipti
Að skoða, hlusta
og tylla sér
I upphafi þótti rétt að fara yfirlits-
ferð um borgina svo menn gætu náð
áttum og séð markverðustu byggingar
á svo til einu bretti. Þá reyndist
Stefánskirkjan eða Stefánsdómurínn
einna haldbærust viðmiöun. Þannig
var iöulega talað um að eitt og annað
væri svona langt frá Stefánskirkjunni,
á hominu þar á móti og þar fram eftir
götunum.
Ekki er skrítið þótt tekið sé mið af
Stefánsdómskirkj unni því hún er eigin-
lega tákn Vínar. Kirkjan var byggð
milli áranna 1263 og 1511 og er í gotn-
eskum stíl. Klukka kirkjunnar vegur
hvorki meira né minna en 21 tonn og
turninn er 137 metra hár. Mikill hluti
kirkjunnar eyðilagðist 1945 en hefur
síðan verið endurbyggð í sinni upp-
runalegumynd.
Að lokinni yfirlitsf erðinni f óru menn
svo á rölt og kiktu á markverða staði
sem komast mátti yfir ári þess að of-
reyna sig svona fyrsta daginn. Þóttu
þægilegar krárnar síst of þéttar í upp-
hafi.
Aður en lagt var af stað hafði At-
lantik tryggt miða á óperuna Salóme
sem var á fjölunum í Ríkisóperunni.
Þar nutu menn sýningarinnar í þessu
Schönbrunn höllin stórglæsilega
skoðuð.
Vínarborg reyndist hentug borg til
innkaupa og kusu margir að notfæra
sér það eins og títt er í utanlandsferð-
um. Verðlag var í mörgum tilvikum
lægra en á Islandi og ýmsir vöruflokk-
ar í mun meira úrvali en við þekkjum.
Alltaf gaman að kaupa eitthvað sem
ekkier tilheima.
Helstu verslunargötumar eru
Kártner gatan og Graben, sem báðar
eru göngugötur, og Mariahilfer gatan.
Ekki skaðaði að þegar við dvöldum í
Vín fóru skyndilega að birtast undar-
legar mannverur á göngugötunum.
Fyrst var tekiö eftir iðnaðarmönnum á
vinnupöllum við Agústínusarkjallar-
ann (sem er sögufrægur veitingastað-
ur). Það undarlega við þessa annars
vasklegu iðnaðarmenn var, aö þeir
virtust hreyfa sig lítið og viö nánari at-
hugun hreint ekki neitt. Síðan skutu
upp kollinum á göngugötunum ýmsir
aðrir karakterar, allir hreyfingarlaus-
ir. Þegar hópurinn hélt heim til Islands
var til dæmis gömul blind kona með
‘staf búin að bíða í þrjá daga eftir að
komast yfir götu.
Listavika
Við eftirgrennslan kom í ljós að
gervifólk þetta var sett upp til
skemmtunar í tilefni af árlegri lista-
viku sem haldin er í Vínarborg. Þótti
mönnum þetta einstaklega vel til fund-
ið og gátu vel til þess hugsað að sjá
slíkt í Austurstræti Reykjavíkur eða
Hafnarstræti Akureyrar. Af þessu
styttufólki má til viðbótar nefna nokkr-
ar „manneskjur” á sundbolum sem á
laugarbarmi væri og ein styttan var
þannig útbúin að aðeins lappimar
stóöu upp úr, eins og maöurinn hefði
stungiö sér í laugina.
Matur er yfirleitt góður á veitinga-
húsum borgarinnar og framreiddur
langt fram eftir kvöldi þannig að menn
þurfa ekki að vera í eilífum spretti að
ná sér í boðlegan mat í svanginn.
Frjálsræði
I Austurríki ríkir mikið frjálsræði í
viöskiptum. Erlendum fyrirtækjum er
þar hiklaust boöin aöstaða og skatt-
frelsi en á móti kemur aöstöðugjald og
vinna fyrir fólkið. I Vín er fjöldi al-
þjóðastofnana og hefur borgin einnig
að þvi leyti alþjóðlegan blæ. Listasöfn-
in eru mörg og eiga margt merkra
gripa. I Listasögusafninu er til dæmis
safn fágætra múmía, sem sérstök upp-
lifun er að sjá, auk þess sem safnið á
eitt stærsta safn mynda eftir Peter
Breughel sem samankomið er á einum
stað. Mörgum dagstundum má verja í
safninu án þess aö láta sér leiöast.
Vínarveislan stóð í viku. Samstilltur
DV-hópurinn naut þessarar sérstöku
borgar sem ekki eru jafnan ferðir til
frá Islandi. Því komu menn kátir heim.
óm.
Halldóra G. Ólafsdóttir:
Áhrifa-
mikil ferð
„Mér hefur þótt þetta áhrifa-
mikil ferð,” sagði Halldóra G.
Olafsdóttir. „Ferðin um Wachau
var mjög góð og líka ferðin til
Búdapest. Við höfðum líka góða
fararstjóra allan tímann. Húsin
hér eru stórkostleg. Það er bara
verst að hafa ekki komist yfir að
skoða allt.”
Katrín Ásmundsdóttir:
Dásamleg
borg
„Eg er mjög ánægð, Vín er
dásamlegri borg en ég hafði gert
ráð fyrir,” sagði Katrín Asmunds-
dóttir.
„Það var mest gaman að skoða
keisarahöllina og svo auðvitað
Viktoríuklaustrið. Svo skemmdi
ekki fyrir að ferðafélagamir voru
skemmtilegir og góð stemmning.”
Elías Kárason:
Gott
andrúmsloft
„Þetta hefur verið góð ferð.
Fólkið er skemmtilegt og vingjam-
legt og hér er gott andrúmsloft,”
sagði Elías Kárason.
„Mér kom á óvart hvað borgin
er hreinleg og snyrtileg, auk þess
sem hér er margt merkra staöa að
sjá.”
SigurðurK.G.
Sigurðsson:
Ævintýra-
ferö
„Þessi f erð hefur verið með stór-
kostlegum ágætum og satt að segja
ævintýraferð fyrir mig,” sagði
Sigurður K.G. Sigurðsson.
Eg ákvaö ferðina með stuttum
fyrirvara en Vín er í mínum augum
draumaborg eins og Róm.
Hótelið var mjög gott og mark-
verðast þótti mér að sjá klaustrið
og fara í óperuna.”
T T. V *- * * * * * *
Í^Gabrigjjf
HÖGG
DEYFAR
HABERG HF.
• SkeiSunnÍ Sa — Sími 8*47*88
»••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
Nýr 35 m2 sumarbústaður
m/svefnlofti til sölu. Hann
stendur á 1 ha. eignarlandi i
landi Klausturhóla, Grímsnesi.
Mest af innbúi fylgir. Verð
700 — 750.000. Greiðslur
samkomuiag. Upplýsingar i
síma 75502 vs., 11802 hs.
(Bjarni Harðarson.)
KENNARAR
Lausar stööur viö grunnskólann Hofsósi. Meöal kennslu-
greina handmennt, myndmennt, enska og kennsla yngri
barna. Umsóknarfrestur til 1. júní. Nánari upplýsingar veita
formaður skólanefndar, Pálmi Rögnvaldsson, í síma 95-6374
og 95-6373, og skólastjóri, Guöni S. Öskarsson, í síma 95-6386 og
95-6346.
Auglýsing
um starf slaun til listamanns
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um starfslaun til
listamanns í allt að 12 mánuði.
Þeir einir listamenn koma til greina viö úthlutun starfslauna
sem búsettir eru í Reykjavík. Þaö skilyrði er sett aö lista-
maöurinn gegni ekki fastlaunuöu starfi meðan hann nýtur
starfslauna. Listamenn úr öllum listgreinum geta sótt um
starfslaunin. Fjárhæð starfslauna fylgir mánaðarlaunum skv.
4. þrepi 105. lfl. í kjarasamningi Bandalags háskólamanna og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóös. Starfslaun eru greidd án or-
lofsgreiðslu eöa annarra launatengdra greiðslna.
Aö loknu starfsári skal listamaöurinn gera grein fyrir starfi
sínu meö greinargerð til stjórnar Kjarvalsstaöa, framlagn-
ingu, flutningi eða upplestri á verki í frumflutningi eöa frum-
birtingu, allt eftir nánara samkomulagi viö stjórn Kjarvals-
staöa hverju sinni og í tengslum viö Listahátíð eöa Reykja-
víkurviku. Ekki er gert ráö fyrir sérstakri greiöslu skv. þess-
ari grein en listamaöurinn heldur höfundarrétti sínum
óskertum.
í umsókn skal gerð grein fyrir viöfangsefni því sem umsækj-
andi hyggst vinna að og veittar aðrar nauðsynlegar
upplýsingar.
Umsóknum skal komiö til listráðunauts Kjarvalsstaða fyrir
10. júní 1984.
STJÓRN KJARVALSSTAÐA.
Cinhell Vatnsdælur
mótordrifnar.
fyrirliggjandi.
Skeljungsbúðin -
SíÖumúla33
símar 81722 og 38125