Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1984, Side 40
Fréttaskotió 68-78-58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá i sima 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greið- ast 1.000 krónur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Frjálst, óháð dagblaö ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 1984. Símvirkjar melda sigveika: Símakerfíð ff hrynurekkiá einum eðatveimur dögum" — segir Þorsteinn Óskarsson, yfirdeildar- st jóri hjá Pósti og síma „Hér eru aðeins yfirmenn mættir en stór hluti símvirkjanna hefur þegar meldað sig veikan,” sagði Þorsteinn Oskarsson, yfirdeildarstjóri á hús- stöðudeild hjá Pósti og síma, í samtali viö DV á níunda tímanum í morgun. Símvirkjar, er nú heita rafeinda- virkjar og starfa hjá Pósti og síma, eru mjög óánægðir með kaup og kjör. Hefur hópur símvirkja síöustu daga hvatt félaga sína til að mæta ekki til vinnu í dag og næstu tvo daga til að legg ja áherslu á kröf ur sínar. „Viö á þessari deild vinnum að upp- setningu á símum í heimahúsum og fyrirtækjum, auk ýmiss konar tækni- vinnu,” sagði Þorsteinn. „Við uppsetn- inguna á símunum vinna svokallaðir linumenn en tækniviniiuna sjá sím- virkjarnir um. Þótt þeir mæ;i ekki til vinnu, kemur það ekki str;ix fram. Símkerfið hrynur ekki á einum eða tveimur dögum. Þar þarf langtímaað- gerðir. Hins vegar vona ég aö hlutirnir gangi eðlilega fyrir sig í dag og næstu daga, ef þessu heldur áfram,”sagði ÞorsteinnOskarsson. -KÞ Forsetakosningar: Framboðsfrestur að renna út Nú líður aö lokum framboðsfrests forsetakosninga en ekkert mótfram- boð hefur komiö fram gegn Vigdísi Finnbogadóttur forseta. Framboðs- fresturinn rennur út næstkomandi föstudag en kjördagur í forsetakosn- ingum er samkvæmt lögum síðasti laugardagur í júní, ef kosningar þurfa aðfarafram. -Obg LUKKUDAGAR ^!:-------— 22. maí 462 VÖRUBÍLL FRÁ I.H. HF. AÐ VERÐMÆTI KR. 900,- Vinningshafar hringi i síma 20068 LOKI Bankastjórastól undir Stefán — strax! Kaupf élag Berufjarðar og Búlandstindur hf. hef ur ekki borgað orlof: GREIDSLUR NEMA ALLS 2,5 MILU. —f éð hef ur verið bundið í rekstrinum Kaupfélag Berufjarðar og Búlandstindur hf. á Djúpavogi hefur enn ekki borgað starfsfólki sínu orlof en þessar greiðslur nema alls um 2,5 milljónum kr. og hefur fé þetta veriö bundið í rekstrinum. Gunnlaugur Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri KB og Búlandstinds, staöfesti þetta í samtali við DV og sagöi jafnframt að þeir ættu ekki peninga fyrir þessum greiðslum. „Við munum reyna allt sem við getum til að leysa þetta mál og vonandi fæst lausn á því í þessari viku,” sagði Gunnlaugur Ingv- arsson. Mikiö hefur verið um hringingar starfsfólksins á skrifstofuna vegna orlofsfjárins enda alls um 500 einstaklinga að ræða sem vilja rukka sitt orlofsfé inn. Sagði Gunnlaugur að reynt yrði að borga viðkomandi orlof sitt um leið og hann tæki sumar- frí sitt. Að féð skuli hafa verið bundið í rekstri fyrirtækjanna sagði Gunnlaugur að væri meö samþykki starfsfólks og verkalýðsfélags. _FR1 Líkur eru á aö garðlönd Reykjavikur við Korpúlfsstaði verði opnuð fyrir almenning á morgun. Þá er að drifa fram spiruðu kartöflurnar og skipa þeim fastan sess i gróðurmoldinni. DV-mynd GVA. Hraðfrystihús Stöðvarfjarðar hefurekkiborgað orlofenn: „Ræðiekki viðskipta- málokkar við blöðin" — segirGuðjón Smári Agnarsson framkvæmdastjóri Hraðfrystihús Stöövarfjarðar hf. hefur enn ekki greitt starfs- fólki sínu orlof en forráðamenn frystihússins munu hafa sagt að þeir greiddu féð til Póstgíró- stofunnar um miðjan þennan mánuð. Samkvæmt heimildum DV mun Póstgíróstofan ekki greiða út orlofið fyrr en um miðjan júlí og þá aðeins ef búið verður að semja um greiðslur frá Hraðfrystihúsinu vegna skuldar þess frá síðasta ári en heimiidir DV herma að hún nemi um 700 þúsund kr. ,,Eg hef ekkert um þetta að segja og ég ræði ekki viöskiptamál okkar við blöð,” sagði Guðjón Smári Agnarsson, framkvæmda- stjóri hraðfrystihússins, í samtali viðDV. Valdis Kristinsdóttir, for- maður verkalýðsfélagsins á Stöðvarfiröi, vildi heldur ekkert tjá sig um málið. -FRI. Sandtaka á fríðlýstu svæði i heimildarieysi Undanfama daga hefur verið mokaö upp sandi úr fjörunni á Garð- skaga í heimildarleysi, en svæðið er friðlýst og efnistaka bönnuö með öllu. Svæði þetta tilheyrir Miðnes- hreppi. „Landið er í eigu Asgarðs sem er bær hér í hreppnum,” sagði Jón K. Olafsson, sveitarstjóri Miðneshrepps. „Þama í fjöranni er skilti sem á stendur að landið sé friðlýst og efnistaka með öllu bönnuð. Sveitarstjóri Gerðahrepps kvartaði yfir þessu við okkur og var þegar settur maður í að kanna málið. Kom í ljós, að það voru menn frá Golfklúbbi Suöurnesja sem þarna voru að verki. Þóttust þeir hafa leyfi Náttúravemdarráðs til að taka þennan sand. Þegar viö fundum að þessu hættu þeir sandtökunni. Við höfum heimtað skýringar á þessu og beðið um að fá að sjá þetta leyfi, en ekki fengið,” sagði Jón. „Það hefur ekki verið leitað til okkar um þetta,” sagði Gísli Gísla- son hjá Náttúravemdarráði. „Við munum hins vegar kanna þetta, verðiþaðgert.” Hér er um að ræða hvítan skelja- sand, sem forráöamenn Golf- klúbbsins hafa notaöá golfvöllinn. Ellert Eiríksson, sveitarstjóri Gerðahrepps, sagði, að hann hefði oftlega ritað bréf varðandi þetta til forráðamanna Miðneshrepps. Sagði hann land þama mjög óvarið og oft- lega hefði flætt sjór inn á þeirra land, sem liggur fast að fjöranni. „Það má ekki mikið við þessu hrófla, svo ágangur sjávar aukist ekki enn frekar,”sagðihann. -KÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.