Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.1984, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR 26. MA11984. 7 „Ekki nokkur dráttur” Mokfiskiriiö sem var i Isafjarðar- djúpi fyrri hluta mai og fram undir miðjan mánuðinn er nú búið. „Þetta er ekki nokkur dráttur núna,” var svarað á hafnarvigtinni á lsafirði. Fiskurinn sem veiddist var þorskur, mjög góður. „Meðalþyngd hvers þorsks var um 3,5 kiló en fór smækkandi er fór að tregast. ” -JGH Innritað í Fjölbraut íBreiðholti Innritun í Fjölbrautaskólann i Breiöholti fer fram í Miöbæjar- skólanum í Reykjavik dagana 4. og 5. júni næstkomandi klukkan 9 til 18 svo og i húsakynnum skólans við Austurberg dagana 6. til 8. júni á sama tíma. Fer þá fram innritun i dagskóla og öldungadeild. Umsóknir um skólann skulu að öðru leyti hafa borist skrifstofu hans fyrir 10. júni. Þeir sem senda umsóknir síðar geta ekki vænst skólavistar. Upplýsingar um skólann má fá á skrifstofuhans. -KMU. Hallbjörn nýjaplötu Hallbjörn Hjartarson, kántrí- söngvarinn frá Skagaströnd, er nú kominn í stúdió til að taka upp Kántri 3. Platan á aö koma á markaöinn um miðjan júni. Stúdió í Reykjavík og á Akureyri stóðu um tíma i miklum striöi um að fá að taka þessa plötu upp. Stúdió Bimbó á Akureyri stóð að lokum uppi sem sigurvegari. Upptökur þar byrjuðu um miðjan maí og á að ljúka í næstuviku. Kántri 3 mun eiga að vera með meiri kánriblæ en fyrri plötur Hall- bjarnar. Ameriski kántrístíllinn verður meira áberandi en þó með Skagastrandarblæ. Hljóðfæraleikarar á Akureyri aðstoða Hallbjörn. Meöal þeirra eru Matthias Henriksson á trommur, Kristján Jónsson á bassa og Ingirnar Eydal á hljómborð. Snorri Guðvarðsson spilar á gítar og útsetur lögin, sem ílest eru eftir Hallb jörn sj álfan. -JGH/Akureyri Bif hjóls og skellinöðru er leitað Lögreglan leitar nú að bláu bifhjóli, Suzuki,, sem stolið var frá Grettisgötu 96 þann 5. mai síðastliðinn. Númer bifhjólsins er R-73732. Þá leitar hún einnig aö léttu bifhjóli, skellinöðru, rauöu aö lit. Það er af gerðinni Honda 50 og var stolið frá Há- leitisbraut 103 þann 12. mai síðastiiðinn. Númer hjólsins er R-1350. Þeir sem kynnu að vita um hjólin eða geta gefið upplýsingar um þau eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík. -JGH Verðbólgan 13 prósent — fyrstufjóra mánuði ársins TVÆR GAMLAR OG RÓTGRÓNAR VERSLANIR OPNA í NÝJUM HÚSAKYNNUM Í DAG * >r Flestir Reykvíkingar þekkja þessar tvær rótgrónu byggingavöruverslanir. Veggfóðrarlnn hf. hóf göngu sína árið 1931, og er verslunin því rúmlega hálfrar aldar gömul. Málning & Járnvörur hf. var stofnsett árið 1934 og á pví hálfrar aldar afmæli á þes'su herrans ári. Þeir eru ófáir viðskiptavin- irnirsem notið hafa þjónustu reyndra starfsmanna þessara grónu verslana. Báðar verslanirnar opna í dag í sameiginlegum húsakynnum í Síðumúla 4. Nýju húsakynnin eru björt og rúmgóð, svo hinir ágætu starfsmenn beggja verslana geta veitt enn betri pjónustu en áður. Starfsmenn Veggfóðrarans og Málningar & Járnvara þakka viðskiptavinum sínum ánægjuleg samskipti á liðnum árum, og bjóða þá jafnframt velkomna í nýju húsakynnin í Síðumúla 4. Hraði verðbólgunnar í aprílmánuði, miöað við visitölu framfærslu- kostnaðar, var 11,1 prósent. Vísitalan hækkaði um 0,88 prósent frá apríl- byr jun til maíbyr junar. Fyrstu fjóra mánuði ársins hefur framfærsluvísitalan mælt verðbólguna sem 12,8 prósent, á ársgrundvelli. Vísitala byggingarkostnaðar hækkaöi ótrúlega litið í aprilmánuöi eða um 0,13 prósent. Samkvæmt henni mælist verðbólgan aðeins 1,57 prósent áári. -KMU.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.