Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1984, Blaðsíða 1
37.000EINTÖK PRENTUO I DAG SIMI LYSINGAR ■ Frjalst, óháð dagblað DAGBLAÐIЗVISIR 124. TBL. — 74. og 10 ARG. — MIOVIKUDAGUR 30. MAÍ 1984. Talið fjármagnað með okurlánum þrír þeirra sem sitja inni eru þekktir fíknief nasalar „Fjármögnunin á fíkniefna- kaupunum erlendis er enn mjög óljós en viö teljum aö hún hafi verið gerö með okurlánum. Þau eru vinsæl i svona tilfellum,” sagöi Amgrímur Isberg, fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík, í samtali viö DV er viö spurðum hann um þetta atriði rann- sóknarinnar á fíkniefnasmyglinu um boröíEyrarfossi. Fikniefnalögreglan og tollverðir upplýstu í fyrrinótt eitt stærsta fikni- efnasmygl sem komist hefur upp hérlendís er þeir lögöu hald á 700 g af amfetamíni og 400 g af hassolíu en varlega áætlað nemur verðmæti þessara efna á götunni hérlendis, miöað viö aö þau séu þynnt til helminga, um 5 millj. kr. Fjórir menn eru nú í gæsluvarð- haldi og beðið er ákvörðunar um þann fimmta en af þessum mönnum munu þrír vera þekktir fíkniefna- salar. Mikil undirbúningsvinna liggur að baki rannsókninni á þessu smygli og er Eyrarfoss kom að landi i fyrrinótt var skipiö vaktaö. Tveir menn komu um borð og er þeir fóru aftur elti lög- reglan þá. Hún náði mönnunum við Alfabakka og við leit í bíl þeirra fundustefnin. -FRI Sjá nánar á bls. 3. -Sandkom bls. 31 Léttarmál- tídirítil- rauna- eldhúsiDV — bls.6 Palme tilíslands l í morgun var siöastí þátturinn „A virkum degi" i umsjá Stefáns Jöku/ssonar, Kolbrúnar Hal/dórsdóttur og Kristinar Jónsdóttur. Stefán og Kristín brugöu sér út á götu i morgun ásamt tæknimanni og röbbuöu við vegfarendur um daginn og veginn og lögðu gátur fyrir fólk: Hvað er þaö versta sem fyrir tannlækni getur komiö? var spurt. Og svariö var: Þegar hann finnur ekki kjaft. Sigurður Grétarsson undir smásjánni hjáLokeren -bls. 20-21 ■-Ma— Blaðberahappdrætti DV hófst með hamborgurum — bls.35 Utför Olafs Jóhannes- sonar bls.2 Eittvað fyriralla á listahátíð — bls. 14*15 HWB—BIPMil Fíkniefnasmyglið um borð í Eyrarfossi: Niðurstöður skoðanakönnunar DV: TAPAR FYLGI Ríkisstjómin hefur tapað fylgi síðustu mánuði samkvæmt skoðana- könnun sem DV gerði um síðustu helgL Af öUu úrtakinu í skoðana- könnuninni styðja nú 49,5% ríkis- stjórnina. 23,7% eru henni andvíg, 19,2% óákveðin og 7,7% vUdu ekki svara spurningunni. Sambærilegar tölur í skoðanakönnun DV í mars- byrjun voru: fylgjandi56,8%,andvig 17,2%, óákveðin 21,5% og 4,5% vUdu ekki svara. Þetta þýðir að nú styöja ríkis- stjómina 67,7% þeirra sem taka af- stöðu, samanborið við 76,8% í mars. Nú eru 32,3% andvíg stjórninni af þeim sem taka afstööu, samanborið við 23,2 % í marsbyrjun. Fylgi ríkisstjórnarinnar er þó ennþá meira en þaö var i skoðana- könnun DV í október i fyrra og meira en stjórnarflokkarnir fengu í síðustu kosningum. _______________________________THL Sjá nánar um niðurstöður á bls. 4 ogviðtöl ábaksíðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.