Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Page 5
DV. LAUGARDÁGUR 2. JtJISfl l&á4.
5
h
Fyrsta húsiö í Grafarvogi, hinu nýja
byggingarhverfi Reykjavíkur, hefur
nú verið afhent eigendum sinum. Þaö
Logandi
hefilspænir
kveiktu í
verkstæði
„Logandi hefilspænirnir þyrluðust
upp úr ruslatunnunni og svifu inn um
útidymar á verkstæðinu og komust í
plasteinangrunina sem mettuð var
málningarefnum,” sagði einn þeirra
manna sem vann við að hreinsa rusl úr
gömlu trésmíðaverkstæði um hádegis-
bilið í Garöinum í gær, „og þótt við
brygðumst skjótt við var eldurinn
sneggri. Hann læsti sig í vegginn. A
skammri stundu varð byggingin alelda
og ekki við neitt ráðið.”
Slökkviliðiö frá Brunavörnum
Suðuraesja kom innan tíöar á vettvang
en þá var mestallt brunnið sem brunn-
ið gat. Aðeins bogabitarnir og báru-
járnið stóðu uppi af þessari tveggja
álmu bogabyggingu.
Búið var að fjarlægja allar trésmíða-
vélarnar úr byggingunni en fyrir utan
beið vörubifreið með rækjuvinnslutæk-
in frá Gerðaröst, sem búin var að taka
húsnæðið á leigu.
Astæðan fyrir brunanum var sú að
kveikt var í ruslatunnu skammt frá
verkstæöinu. Hætta stafaði ekki af
henni fyrr en vindáttin breyttist en þá
færðu starfsmennimir hann nær hús-
inu, í skjól. Við það lyftu logandi hefil-
spænirair sér á kreik og inn um næstu
dyr með áðurgreindum afleiðingum.
emm
Lionsþing í
Hafnarfirði
Umdæmisþing Lions á Islandi hófst í
gær í Viðistaðaskóla í HafnarfirðL
Þingið stendur yfir í tvo daga. Tveir
iionsklúbbar, Asbjörn og Ha&iarfjarð-
ar, buðu til þessa þinghalds sem um
fimm hundruð manns munu sæk ja.
Á þessu þingi verður m.a. tekin
ákvörðun um sölu á „Rauöu fjöörinni”
árið 1985 og ráöstöfun söfnunarfjár.
Aætlanir eru uppi um að verja
söfnunarfénu sem væntanlega safnast
árið 1985 vegna sölu á „Rauðu fjöðr-
inni”, til kaupa á mjög fullkomnu
geislalækningatæki, línuhraðli.
Mikill viöbúnaður hefur verið að
undanfömu í Hafnarfirði til að taka á
móti þinggestum, bæði af hálfu undir-
búningsaðila og bæjaryfirvalda.
I tengslum við umdæmisþingið munu
lionessur, konur í lionshreyfingunni,
halda sinn fyrsta landsf und á morgun.
-ÞG
Tekið til hendinni
íÁrbæjarhverfi
I dag gengst Framfarafélag Seláss
og Arbæjarhverfis fyrir almennum
hreinsunardegi í hverfunum.
Ruslapokar verða afhentir ókeypis í
Arseli frá kl. 10.00—14.00.
Skorað er á fólk aö taka vel til á
lóðunum og einnig skal bent á mögu-
Ieika að losa sig við smáhluti úr
geymslum ef með þarf.
Hreinsunardeild Reykjavíkurborgar
tekur ruslapokana á laugardag kl.
13.00—18.00 og takist ekki að ná öllum
pokunum verður afgangurinn tekinn á
mánudag.
Reykjavíkurborg mun láta hreinsa
götur og gangstíga jafnhliða framtaki
ibúa hverfanna en æskilegt er aö ibúar
hreinsi almenn svæði í nágrenni húsa
sinna.
er trésmiðjan Osp hf. í Stykkishólmi
sem byggir húsið. Þetta er fyrsta
einingahúsið sem fyrirtækiö reisir í
Reykjavík. Húsið var afhent
eigendum, Amari Sigurbjömssyni og
Sigrúnu Sverrisdóttur, fullbúið og með
frágenginni lóð.
Húsiö er á einni hæð, 145 fermetrar
að flatarmáli, og að auki 40 fermetra
bílskúr. Fullfrágengið aö utan og inn-
an, með gróinni lóð og hellulagðri og
trjám í garði, kostar húsið um 4,2
milljónir króna. Það veröur til sýnis að
Logafold 126 í Grafarvogi um helgina, í
dag, laugardag, frá kl. 10—22 og á
morgun, sunnudag, á sama tíma. Þá
verður þaö og sýnt um hvítasunnuhelg-
ina.
Hægt er að velja mismunandi stór
hús frá Ösp hf. og kaupandinn hefur
sjálfdæmi um þaö á hvaða stigi hann
tekur viö húsi sínu, fokheldu, tilbúnu
undir tréverk eða fullbúnu. Osp hf.
tekur eldrl íbúðir fólks upp í húsin á
markaðsverði, óski kaupandi þess.
-JH
Gunnar Haraldsson, framkvæmdastjóri Aspar hf., lengst til hægri, afhend-
irArnari og Sigrúnu iykiana að nýja húsinu.
STJÖRNU
reikningar
Æskusparnaður / Lífeyrissparnaður
Nú er sama á hverju gengur í verðbólgustríðinu. Með fullri
verðtryggingu og 5% vöxtum að auki, veita hinir nýju stjörnureikn-
ingar Alþýðubankans algjört öryggi og góða ávöxtun.
Við förum af stað með tvo sparireikningaflokka undir samheit-
inu Stjörnureikningar, annan fyrir æskuna og hinn fyrir lífeyris-
þega eða þá sem nálgast eftirlaunaaldurinn.
* Verðtryggð innistæða
og 5% vextir að auki!
m,
Víð gerum vel við okkar fólk
Alþyöubankinn hf.
ÆSKUSPARNAÐUR
Hann er ætlaður foreldrum, öfum og ömmum, eða öllum þeim
sem vilja gefa barni yngra en 16 ára sparifé. Þegar barnið verður
16 ára er upphæðin, með verðtryggingu og vöxtum laus til
útborgunar og gott vegarnesti út í lífið.
LÍFEYRISSPARNAÐUR
Hann er fyrir 65 ára eða eldri - tryggur bakhjarl þegar aldurinn
fer að segja til sín og tekjurnar dragast saman.
FYRSTA HÚSIÐ TIL-
BÚIÐ í GRAFARVOGI