Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1984, Qupperneq 6
DV. LAUGARDAGUR2-. JUWI1984r-
Ferðamál
Ferðamál
Ferðamál
HRINGVEGURINN A10 DOGUM
FYRIR17 ÞUSUND KRÓNUR
innifalðð hótelgisting og fullt fæði
Eins og fram kemur í viötalinu viö
Kjartan Lárusson býöur Feröaskrif-
stofa ríkisins 10 daga hringferð um
landiö í sumar á aðeins 17.600 krón-
ur. Innifalið er allur akstur og leiö-
sögn, gisting á hótelum og fullt fæöi.
Hér er um aö ræöa sannkallað kosta-
boö miðað viö aö fara á eigin bíl og
kaupa gistingu og mat fullu verði.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi
er 2.535 krónur. Ekki er farið um
Snæfellsnes eöa Vestfiröi í hringferð-
inni og því boðið upp á sérferö þang-
aö er tekur 9 daga og kostar 16.900
krónur meö f ullu fæði. Auk þess verö-
ur fjögurra daga Islendingasagna-
ferð um Snæfellsnes og víöar sem
kostar 7.300 krónur meö hálfu fæöi.
En hér á eftir birtum viö áætlun
hringvegsferðarinnar, en brottfarar-
dagar eru 6. og 20. júlí og 2. ágúst.
1. dagur:
Brottför að morgni frá Ferðaskrif-
stofu ríkisins. Ekiö um Hvalfjörö yfir
Borgarfjaröarbrú í Borgarnes. Síöan
yfir Holtavöröuheiöi aö Húnavöllum
viö Svínavatn í Húnavatnssýslu þar
sem gist veröur á hótel Eddu.
2. dagur:
Ekiö um Sauðárkrók, Skagafjörö og
Öxnadalsheiöi til Akureyrar. Gist á
Akureyri.
3. dagur:
Farið inn Eyjafjörðinn aö Mööruvöll-
um, síöan um Vaðlaheiöi og Fnjóska-
dal aö Goðafossi. Gist veröur á
sumarhótelinu aö Laugum í Reykja-
dal.
4. dagur:
Dagur viö Mývatn þar sem náttúru-
fegurö er mikil og fuglalíf fjölskrúö-
ugt. Fariö verður m.a. að Dimmu-
borgum, Námaskaröi og Grjótagjá.
Gist aftur að Laugum.
5. dagur:
Ekið til Húsavíkur, síöan um Tjörnes
og í Ásbyrgi, sem er stórbrotið nátt-
úrufyrirbæri í Kelduhverfi, skeifu-
laga jaröfall meö 90—100 m háum
hamraveggjum, síöan aö Dettifossi,
sem er aflmesti og hrikalegasti foss í
allri Evrópu. Því næst um Mööru-
dalsöræfi og Jökuldal aö Eiöum eöa
Hallormsstað þar sem gist verður á
hótel Eddu.
6. dagur:
Ferð umhverfis Löginn, m.a. fram
hjá Valþjófsstað, fornu höfuöbóli í
Fljótsdal. Gist aftur á Eiðum eöa
Hallormsstað.
7. dagur:
Aö morgni frá Eiöum/Hallormsstaö
um Fagradal og þræddir firöirnir:
Reyöarfjörður, Fáskrúösfjöröur og
Stöðvarfjöröur til Breiödalsvíkur.
Síðan firðirnir Berufjöröur, Hamars-
fjöröur og Álftafjöröur og þaöan um
Lón og Almannaskarð aö Höfn í
Homafiröi þar sem gist veröur á
HótelHöfn.
8. dagur:
Ekið um sandana sunnan Vatna-
jökuls, staldrað viö hjá Jökullóninu
viö Jökulsá á Breiöamerkursandi og
ekiö þaðan um Fagurhólsmýri með
útsýni til Ingólfshöföa í þjóögaröinn í
Skaftafelli í Öræfum. Þá er ferðinni
heitiö aö Kirkjubæjarklaustri og
leiðin liggur um Skeiöarársand milli
Öræfasveitar og Fljótshverfis. Gist
aö hótel Eddu, Kirkjubæjarklaustri.
9. dagur: ^
Þessi dagur hefst á ferö yfir
Eldhrauniö, mikiö hraunflæmi sem
rann úr Lakagígum 1783. Farið um
Mýrdalssand, eina víöáttumestu
sandauðn á Islandi, fram hjá Hjör-
leifshöföa og í Vík í Mýrdal þar sem
gott útsýni er aö Reynisdröngum.
Stutt dvöl hjá Skógafossi og Selja-
landsfossi á leiöinni aö Laugarvatni
þar sem gist verður á hótel Eddu í
húsmæöraskólanum sem stendur á
fallegum staö á bakka vatnsins.
10. dagur:
Skoðunarferö aö Gullfossi og Geysi,
þaöan til Þingvalla þar sem höfö
verður viödvöl og komiö viö á mark-
veröum stööum. Komiö til Reykja-
víkur seinni hluta dags.
VH>A KOMID WÐ / HRINGVEGSFERÐINNI
„Þegar sumarleyfisferðir hér
innanlands ber á góma veröur Is-
lendingum yfirleitt hugsaö til einka-
bílsins og skipuleggja feröir sínar
meö þaö í huga aö geta farið á eigin
bíl. Þetta stafar sennilega af því aö
þjóöin er búin aö fjárfesta slík ósköp
í einkabílum aö einsdæmi er í
Evrópu. Þess vegna finnst okkur
endilega aö viö verðum aö nýta
þessa fjárfestingu. En það er svo
sannarlega hægt aö feröast á annan
máta,” sagöi Kjartan Lárusson, for-
stjóri Feröaskrifstofu ríkisins, í
spjalli viö Feröasíöuna.
Við ræddum viö Kjartan í tilefni
einstaklegra ódýrra hópferöa sem
Feröaskrifstofa ríkisins býöur þeim
Islendingum upp á í sumar sem vilja
fara um eigið Iand. Þaö getur ekki
talist mikiö aö borga 17.600 krónur
fyrir 10 daga hringferð um landiö
með fararstjóra, innifalin er gisting
á hótelum og fullt fæöi. Þetta þóttu
okkur næsta ótrúlegir prísar, eigin-
lega grunsamlega lágt verð. Hvers
vegna er þetta svona ódýrt,
Kjartan?
Verð fyrir
eliilífeyrisþega
„Ef ég á aö segja þér eins og er þá
er þetta verö pínt niður eins og hægt
er þar sem reynslan sýnir að þátt-
taka er nánast eingöngu frá ellilíf-
eyrisþegum. Sú kynslóö, sem nú er
aö láta af störfum og hefur byggt upp
landiö, hefur ekki haft tíma til mik-
illa feröalaga fyrr á ævinni auk þess
sem samgöngur voru meö allt öörum
hætti þegar þetta fólk var ungt. Nú
vill þaö gjarnan feröast um og skoða
landið. Því finnst notalegt að fara
hægt yfir, gista á góðum hótelum og
hlíta góöri leiösögn. Æskilegur fjöldi
í hverri ferö er svona 20—25 manns.
Þá næst samheldni í hópnum og auð-
velt er aö sinna hverjum og einum.”
— Er þá einhver lágmarksaldur í
þessar ferðir, 65 ár eða svo?
„Nei, nei. Viö vísum engum frá
þótt hann sé ekki kominn á ellilíf-
eyrisaldurinn. En þetta eldra fólk
sem fyllir þessar ferðir er yfirleitt
vel á sig komið, 65 ára og upp úr.
Hins vegar skipuleggjum viö geysi-
mikið af ferðum hér innanlands fyrir
Islendinga sem vilja til dæmis gista
á Edduhótelum. Margir kjósa aö
fljúga hluta leiöarinnar og aka síöan
í áætlunarbílum, en flestir fara samt
á eigin bíl. Hér er um aö ræöa allt frá
þriggja daga helgarferöum og upp í
svona 15 daga ferðir.
Auk þessa erum við meö mikið af
styttri og lengri ferðum um landið
fyrir útlendinga. Viö erum hættir aö
selja Islendlingum í þær ferðir. Þaö
sýndi sig aö feröir, sem settar voru
upp með þarfir útlendinga í huga, til
dæmis hvaö leiðsögn varöar, féllu
ekki aö smekk landans sem vill víða
staldra viö til aö skoöa hæöir og hóla
er tengjast fornsögum en útlending-
ar hafa takmarkaöan áhuga á.
Opið um
helgar í sumar
— Þiö höfðuð opið um helgar í
fyrra hjá Ferðaskrifstofu ríkisins.
Veröur sami háttur á í sumar?
„Já, viö höfum opiö sjö daga vik-
unnar í sumar. A laugardögum og
sunnudögum veröur opiö frá klukkan
átta aö morgni til klukkan 14 eins og
undanfarin sumur. Þetta á viö um
bæði skrifstofuna hér viö Reykjanes-
braut og turninn í Lækjargötu. Hér
er hægt að fá margs konar feröaupp-
lýsingar og kaupa gistingu um land
allt, svo eitthvaö sé nefnt. Það hefur
færst mjög í vöxt aö Islendingar komi
á skrifstofuna snemma á laugar-
dagsmorgna áöur en lagt er upp í
helgarferö eöa lengri feröir. Þá er
ljóst hvernig veöurspá helgarinnar
er og menn ákveöa kannski eftir
henni hvort haldið er austur eða
.vestur og vilja panta gistingu eöa þá
afla sér upplýslingabæklinga um þau
svæöi sem ætlunin er aö heimsækja,”
sagði Kjartan Lárusson.
Viö gerum nánari grein fyrir
feröatilboöum Feröaskrifstofu ríkis-
insáöörumstaöhérásíöunni. -SG